Morgunblaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Fundarboð
Sparisjóðs Vestfirðinga
Stjórn Sparisjóðs Vestfirðinga boðar hér með
til fundar stofnfjáreigenda, föstudaginn 30.
nóvember 2007, klukkan 17.00.
Fundarstaður er Félagsheimilið á Þingeyri.
Dagskrá:
1. Tillaga um samruna við Sparisjóðinn
í Keflavík og Sparisjóð Húnaþings og
Stranda.
2. Tillaga um aukningu stofnfjár, þ.e.
heimild til stjórnar að auka stofnfé að
söluverðmæti allt að kr. 1.229.325.000
og að samfara falli niður eldri heimild
til aukningar stofnfjár.
3. Kynning á stofnun menningarsjóðs.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Fundargögn verða afhent stofnfjáreigendum
eða umboðsmönnum þeirra á fundarstað frá
kl. 16.00.
22. nóvember 2007,
stjórn Sparisjóðs Vestfirðinga
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir
Hjarðarland 6, 208-3702, Mosfellsbæ, þingl. eig. Hilmar Þór Sævars-
son, Guðrún Elvira Guðmundsdóttir og Guðmundur Eggertsson,
gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf, Glitnir banki hf,
Íbúðalánasjóður, Landsbanki Íslands hf, aðalstöðv., Mosfellsbær,
Sparisjóður Vestfirðinga og Sparisjóðurinn á Suðurlandi, þriðju-
daginn 27. nóvember 2007 kl. 11:00.
Markholt 17, 208-3887, Mosfellsbæ, þingl. eig. Hilmar Bergmann,
gerðarbeiðendur Innheimtustofnun sveitarfélaga og Tollstjóraemb-
ættið, þriðjudaginn 27. nóvember 2007 kl. 10:30.
Miðholt 11, 208-4144, 51% ehl., Mosfellsbæ, þingl. eig. Erna Björg
Kjartansdóttir, gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands hf, aðalstöðv.,
þriðjudaginn 27. nóvember 2007 kl. 10:00.
Rauðarárstígur 11, 200-9690, Reykjavík, þingl. eig. Bryn ehf, gerðar-
beiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 27. nóvember 2007 kl.
14:30.
Rauðarárstígur 30, 201-0837, Reykjavík, þingl. eig. Guðjón Ágúst
Agnarsson, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, þriðjudaginn 27. nóv-
ember 2007 kl. 15:00.
Skeljatangi 25-27, 222-2935, Mosfellsbæ, þingl. eig. Ásgeir Baldur
Böðvarsson, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn
27. nóvember 2007 kl. 11:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
22. nóvember 2007.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir
Hamratún 38, íb. 07-0101, Akureyri (227-6835), þingl. eig. Lilja Björg
Þórðardóttir og Kraftverk Byggingaverkt. ehf, gerðarbeiðandi Frjálsi
fjárfestingarbankinn hf, miðvikudaginn 28. nóvember 2007 kl. 11:00.
Helgamagrastræti 26, Akureyri (214-7292), þingl. eig. Jónborg Sigurð-
ardóttir og Sigurður Guðmundsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á
Akureyri, miðvikudaginn 28. nóvember 2007 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
22. nóvember 2007.
Til sölu
Bókaveisla
í Kolaportinu
50% afsláttur
af öllum bókum hjá Þorvaldi.
Ath. Aðeins þessa helgi. Opið kl. 11-17.
Tilboð/Útboð
Lóðir & lagnir
Einn verktaki í allt verkið
Tökum að okkur verk fyrir fyrirtæki, stofnanir,
húsfélög og einstaklinga. Grunnar, dren,
skolplagnir, jarðvegsskipti, efnissala og
smágröfuleiga o.fl. Gerum föst verðtilboð.
Guðjón, s. 897 2288.
Tilkynningar
IN THE HIGH COURT OF JUSTICE, CHANCERY DIVISION, COMPANIES COURT
No. 7034 of 2007
IN THE MATTER OF
NM PENSIONS LIMITED
and IN THE MATTER OF
NM LIFE LIMITED
(together the “Transferor Companies”)
and IN THE MATTER OF
WINDSOR LIFE ASSURANCE COMPANY LIMITED
and IN THE MATTER OF THE FINANCIAL SERVICES AND MARKETS ACT 2000
NOTICE IS HEREBY GIVEN that, on 2 October 2007, an application was presented to Her Majesty’s
High Court of Justice by the Transferor Companies (as defined above) for an order under Section 111
of the Financial Services and Markets Act 2000 sanctioning a scheme (“the Scheme”) for the transfer of
their insurance businesses including all of their policies, assets and liabilities to Windsor Life Assurance
Company Limited (“Windsor Life”).
Copies of the Scheme, of a report in accordance with Section 109 of the said Act on the terms of the
Scheme by Mr N Dumbreck (an Independent Expert, whose appointment was approved by the
Financial Services Authority), and of a statement which sets out the terms of the Scheme and contains
a summary of the Independent Expert’s report may be obtained by any person free of charge by
contacting the Transferor Companies or Windsor Life using the appropriate telephone numbers or
appropriate addresses set out below until the making of an order sanctioning the Scheme. Alternatively
you can access these documents on the websites set out below until the making of such an order.
The application is directed to be heard before the Applications Judge at the Royal Courts of Justice,
Strand, London WC2A 2LL on 11 December 2007. Any person (including an employee of either of the
Transferor Companies or Windsor Life) who alleges that he/she would be adversely affected by the
carrying out of the Scheme may appear at the hearing in person or by counsel or solicitor advocate.
Any person who intends so to appear, and any policyholder of either of the Transferor Companies or
Windsor Life who dissents from the Scheme but does not intend so to appear, is requested to give
notice in writing of such intention or dissent, and the reasons therefor, to the solicitors named below
not less than two clear days before the hearing.
The Transferor Companies can both be contacted at Tomorrow, Tilehouse Street, Hitchin, Herts, SG5
2DX or on 0845 606 4130 for enquiries relating to this transfer. Their website address is
www.tomorrow.co.uk
Windsor Life can be contacted at Windsor Life Assurance Company Limited, Windsor House,
Ironmasters Way, Telford Centre, TF3 4NB or on 0870 887 3333. Their website address is
www.windsor-life.com
23rd November 2007
Linklaters LLP (for the attention of DEOB), One Silk Street, London EC2Y 8HQ
Solicitors for the Transferor Companies and Windsor Life
Félagslíf
Í kvöld kl. 20.30 heldur séra
Tómas Sveinsson erindi sem
hann nefnir “Brúðarmystík í
Biblíunni” í húsi félagsins
Ingólfsstræti 22.
Á laugardag 24. nóvember
kl. 15-17 er opið hús. Kl. 15.30
heldur Sigríður Einarsdóttir
erindi: “Maríusaga í máli og
myndum.”
Á fimmtudögum kl. 16.30 -
18.30 er bókaþjónustan opin svo
og bókasafn félagsins m. miklu
úrvali andlegra bókmennta.
Starfsemi félagsins er öllum
opin.
www.gudspekifelagid.is
I.O.O.F. 12 188112381/2 E.T.1.
I.O.O.F. 1 18811238 E.T.2
Raðauglýsingar
sími 569 1100
Raðauglýsingar
sími 569 1100
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100
FRÉTTIR
Rangt farið með nafn
RANGT var farið með nafn Hafþórs
Arnar Þórðarsonar, skipstjóra á Er-
ling KE, í viðtali við hann í blaðinu í
gær. Beðist er velvirðingar á mis-
tökunum.
LEIÐRÉTT
JÓLAKORT Geð-
hjálpar 2007 eru
komin út. Mynd-
in á kortunum í
ár er helgimynd
eftir Þorstein
Einarsson.
Kortin eru af
stærðinni 10,4 x
14,8 cm. Verð á
jólakortum með umslögum, 10 stk. í
pakka með texta, er 1.200 kr.
Kortin eru til sölu á skrifstofu
Geðhjálpar, Túngötu 7, 101 Reykja-
vík, í síma 570-1700, virka daga kl.
9-16, einnig er hægt að senda fyrir-
spurnir/ pantanir á netfangið: ged-
hjalp@gedhjalp.is.
Jólakort Geð-
hjálpar komin út
STJÓRN Sambands ungra fram-
sóknarmanna lýsir yfir þungum
áhyggjum yfir stöðu mála á húsnæð-
ismarkaði í ályktun sem stjórnin
samþykkti.
„Verðmyndun á markaðnum sem
og aðstæður á lánamarkaði gera það
nú að verkum að ungu fólki er nánast
ómögulegt að eignast sína fyrstu
íbúð. Þá er leigumarkaðurinn ekki
valkostur til lengri tíma enda leigu-
verð á íbúðarhúsnæði nú einnig í
sögulegu hámarki.
Ungt fólk krefst raunverulegra
aðgerða af hálfu stjórnvalda, enda
ekki boðlegt að einu viðbrögð for-
sætisráðherra þjóðarinnar séu að
segja fólki að kaupa sér ekki hús-
næði. Þörf fólks fyrir húsnæði hverf-
ur ekki þótt forsætisráðherra kunni
að óska sér þess.
Stjórnvöld verða að stemma stigu
við villtum dansi bankanna á mark-
aðnum og standa vörð um Íbúðalána-
sjóð sem tryggir aðgang allra lands-
manna að ódýru lánsfé, óháð búsetu.
SUF hefur í hyggju að halda
áfram að láta til sín taka í umræðu
um húsnæðismál ungs fólks. Stefnt
er að málþingi um efnið sem nánar
verður auglýst síðar.“
SUF krefst
aðgerða í hús-
næðismálum
MORGUNBLAÐINU hefur borist
yfirlýsing frá forsætisráðuneytinu
vegna frétta um sölu á fasteignum
á varnarliðssvæðinu.
„Við brottför varnarliðsins
haustið 2006 tóku íslensk stjórn-
völd við varnarsvæðinu á Keflavík-
urflugvelli ásamt tilheyrandi
mannvirkjum. Alþingi samþykkti
þá um haustið lög um ráðstafanir í
kjölfar samnings við Bandaríkin
um skil á varnarsvæðinu en því
var skipt í þrjá hluta, flugvall-
arsvæði, öryggissvæði og þróun-
arsvæði. Lögin heimila Þróunar-
félagi Keflavíkurflugvallar ehf.,
sem stofnað hafði verið 26. október
2006, að annast í umboði ríkisins
umsýslu fasteigna á svæði sem
koma eigi hið fyrsta í arðbær
borgaraleg not. Fram kemur í at-
hugasemdum með frumvarpinu að
í umsýslu felist m.a. úttekt á svæð-
inu, hreinsun þess og eftir atvikum
niðurrif mannvirkja, rekstur, sala
og útleiga fasteigna. Þar segir
ennfremur að fjármálaráðherra
muni gera þjónustusamning við fé-
lagið í samræmi við lög um fjár-
reiður ríkisins. Félagið sjálft muni
gagnvart þriðju aðilum lúta sömu
reglum og ríkið varðandi t.d. út-
boðsskyldu verkefna og gagnsæi
og jafnræði í rekstri og umsýslu
eigna. Í fjárlögum ársins 2007 er
ennfremur heimild til fjármálaráð-
herra til að selja eignir ríkisins á
varnarsvæðinu.
Þjónustusamningur Þróunar-
félagsins við fjármálaráðherra var
undirritaður 8. desember 2006.
Þar segir meðal annars að tilgang-
urinn með stofnun félagsins hafi
verið sá að koma fasteignum í eigu
ríkisins á svæðinu sem fyrst í
skipuleg, hagfelld, borgaraleg not
með það að markmiði að jákvæð
samfélagsleg áhrif verði sem mest
og neikvæðum áhrifum á nærsam-
félagið verði haldið í lágmarki.
Lögð er áhersla á að ljúka sölunni
á sem stystum tíma, þó þannig að
það samrýmist markmiðum um
hagkvæma nýtingu eignanna.
Áréttað er að félagið skuli ávallt
við sölu eigna ríkisins gæta þess
að mismuna ekki aðilum og í því
skyni skuli eignirnar auglýstar op-
inberlega til sölu og val á viðsemj-
endum ekki byggjast á öðrum
sjónarmiðum en mati á hagstæð-
asta tilboði. Þá eru í þjónustu-
samningnum ákvæði um almennar
skyldur samningsaðila, þ.m.t. um
að Þróunarfélagið skuli virða út-
boðsskyldu skv. lögum um opinber
innkaup og hæfisreglur stjórn-
sýslulaga. Rétt er að taka fram að
tilvísunin í lög um opinber inn-
kaup vísar fyrst og fremst í kaup
félagsins á verki, þjónustu eða
vöru.
Tryggilega var þannig frá því
gengið af hálfu löggjafans og fjár-
málaráðherra að traust umgjörð
væri um starfsemi Þróunarfélags-
ins og sölu fasteigna ríkisins af
þess hálfu. Sú fullyrðing að Rík-
iskaup hefðu átt að annast sölu
fasteignanna á ekki við rök að
styðjast, sbr. t.d. 9. gr. reglugerð-
ar um ráðstöfun eigna ríkisins nr.
206/2003 þar sem segir að fjár-
málaráðherra geti við sérstakar
aðstæður veitt heimild til að víkja
frá ákvæðum hennar varðandi
framkvæmd við sölu eigna ríkisins.
Þá eiga ákvæði laga um útboðs-
skyldu á Evrópska efnahagssvæð-
inu ekki við um þá sölu fasteigna
sem hér um ræðir.
Þróunarfélag Keflavíkurflugvall-
ar er alfarið í eigu ríkisins og fer
forsætisráðherra með hlutabréf
ríkisins í félaginu. Ákveðið var við
stofnun þess að bjóða sveitarfélög-
unum á Suðurnesjum aðild að
stjórn félagsins enda eiga þau
mikið undir því að umbreyting
varnarsvæðisins í borgaraleg not
heppnist vel. Sveitarfélögin eiga
einn fulltrúa af þremur í stjórn fé-
lagsins og geta meðal annars
þannig haft umtalsverð áhrif á
þróun svæða, val á starfsemi sem
laða á að og þar með á ráðstöfun
eigna.
Fljótlega eftir að félagið tók til
starfa kom í ljós að sala eigna gæti
gengið hraðar en búist var við.
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar
ehf. hefur reglulega upplýst bæði
fjármálaráðuneytið og forsætis-
ráðuneytið, sem handhafa hluta-
bréfs ríkisins í félaginu, um fyr-
irkomulag sölu á eignum og önnur
verkefni félagsins. Þá er rétt að
geta þess að fjármálaráðherra gaf
Þróunarfélaginu 8. maí sl. almennt
umboð til sölu fasteigna þannig að
hver einstök sala hefur ekki verið
borin upp við fjármálaráðherra til
samþykktar.“
Yfirlýsing vegna umræðu
um Þróunarfélagið
OPIÐ hús verður hjá dagvist og
endurhæfingu MS-félagins, Sléttu-
vegi 5, á morgun, laugardaginn 24.
nóvember, kl. 13-16.
Boðið verður upp á súkkulaði og
rjómavöfflur gegn vægu verði.
Munir sem unnir eru í dagvistinni
verða til sölu.
Hljómsveitin South River Band
mun spila kl. 14. Hún verður með
nýja diskinn sinn til sölu, til styrkt-
ar MS-félagi Íslands.
Opið hús hjá dag-
vist MS-félagsins
♦♦♦