Morgunblaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Ætlarðu að láta mig standa eftir á nærbrókinni, ódámurinn þinn?? VEÐUR Á forsíðu Morgunblaðsins gat ígær að líta fjögurra dálka frétt undir fyrirsögninni „Hlutur OR í Hitaveitu Suðurnesja til Geysir Green?“ Efnislega var fréttin um „sátta- tillögu“ sem meirihluti borg- arstjórnar í stýrihópi um málefni Orkuveitu Reykjavíkur lagði fram í liðinni viku.     Samkvæmtfréttinni er gert ráð fyrir því að eign OR í Hita- veitu Suðurnesja verði látin renna inn í REI og það- an inn í GGE, en í staðinn komi hlutafé í GGE.     Hvað eru borgarfulltrúarnir fráSamfylkingu, Framsókn, Vinstri grænum og Frjálslyndum að hugsa?     Hvað er Svandís Svavarsdóttir aðhugsa? Ætlar hún að láta þá Dag B. Eggertsson og Björn Inga Hrafnsson kengbeygja sig í þessu máli?     Hvað segir forysta VG við þessari„sáttatillögu“ sem enn hefur að vísu ekki verið afgreidd af stýri- hópnum? Ætla þau Steingrímur J. Sigfússon, Katrín Jakobsdóttir, Ög- mundur Jónasson, Kolbrún Hall- dórsdóttir og Guðfríður Lilja Grét- arsdóttir að láta borgarfulltrúa sinn, Svandísi Svavarsdóttur, eina um að taka skellinn, ef hin ótrúlega sam- suða „sáttatillögunnar“ verður sam- þykkt af stýrihópnum?     Miðað við þær upplýsingar semfram komu í forsíðufrétt Morg- unblaðsins í gær, er kannski ekki svo undarlegt hvers konar pukur og leynd hefur verið yfir svonefndri „sáttatillögu“. Þær upplýsingar vekja óhug og mikla vantrú á að stýrihópurinn sé starfi sínu vaxinn. En það skýrist væntanlega frekar í dag. STAKSTEINAR Svandís Svavarsdóttir Leynd og pukur stýrihópsins SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                 *(!  + ,- .  & / 0    + -                ! "     ##$!$  %$ % &   12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                ## & :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? % ' ' % % % (%  %   % % % %   % % % ' ' ' ' ' ' ' ' ' ' ' ' ' '            *$BC $$$                !  " #  $ %   &  '     (   $     (       $    &  $   " %)  !    %   *+         " , -  .  " *! $$ B *! )!*  + $ $* $   & ",& <2 <! <2 <! <2 )+ # $-  .$/#&0  CD! -         6 2  *  '   *        $   &   $ *    B       #  *"        +$     *  /     - /-  *   "    '    !    '    *  0    " 1     " 12## $!$&33  #&$"!$4 & "&$-  Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir | 21. nóv. Vinstri fóturinn bættur Fyrir þá sem kunna að hafa haft áhyggjur af því að ég væri farin að stíga of fast í hægri fót- inn, þá tilkynnist það hér með að um lækn- isfræðilega skekkju upp á heila 2 sm er að ræða sem nú hefur verið leiðrétt … (við þessa að- gerð var ekki notaður planka- strekkjari úr BYKO, heldur fór ég að hitta „Höfuð, beina og skjald- hryggs“ sérfræðing í dag... Meira: bryndisisfold.blog.is Karl Tómasson | 21. nóvember Geðblendill Einhvern veginn felli ég mig aldrei við nafnið bloggari, af hverju veit ég ekki en tel þó aðal- ástæðuna hjá mér vera að nafnið sé fjarri ís- lenskri tungu. Því tel ég að finna þurfi eitthvert annað heiti yfir þessa áhugasömu og ötulu stétt manna sem hefur svo margt til málanna að leggja. Öll þekkjum við það að talað er um að skiptast á skoðunum og öll þekkjum við það að talað er um að blanda geði... Meira: ktomm.blog.is Helena Kristín Gunnarsdóttir | 22. nóv. Einelti Hvað er einelti? Einelti er til dæmis þegar fleiri en einn er að stríða einstaklingi, eða hópur að stríða ein- staklingi eða öðrum hópi/einstaklingum. Einelti getur líka verið að stríða lík- amlega: lemja, þess vegna eitthvað verra eða svona í verri kantinum. Einelti getur líka verið að nota orð eða baktala fyrir framan ein- staklinginn eða þannig að hann heyri… Meira: helenakristin.blog.is Dofri Hermannsson | 21. nóvember Vg, lánakjörin og krónan Varaformaður Vinstri grænna, Katrín Jak- obsdóttir, kom með þarfa ábendingu í fyr- irspurnartíma í þinginu í gær. Hún benti á að þeir sem taka lán til húsnæðiskaupa á núgildandi kjörum til 40 ára mega búast við að þurfa að greiða um 6,8 milljónir til baka fyrir hverja milljón sem þeir fá að láni. Þetta er hárrétt hjá varaformanni Vg. Fyrir forvitni sakir sló ég inn í lánareikni Landsbankans hvað 20 milljóna lán myndi á endanum kosta eftir 40 ár. Svarið er rúmlega 135 milljónir króna miðað við forsendur varaformanns Vg. Greiðslubyrði á mánuði myndi byrja í 117 þúsundum á mánuði og eftir 20 ár væri skuldarinn búinn að greiða um 41,2 milljónir. Þá væri skuldin hins vegar komin upp í 34,3 milljónir og greiðslubyrðin á mánuði upp í 254 þúsund krónur. Eins og sjá má á mynd ætti skuldin enn eftir að hækka talsvert og síðasta greiðslan yrði um 556 þúsund krónur. En dæmið liti talsvert öðruvísi út ef tekið væri óverðtryggt erlent lán upp á 20 milljónir á 3,8% vöxtum með jöfnum afborgunum. Heildar- endurgreiðsla af 20 milljónum væri þá 35,5 milljónir eða um 100 millj- ónum minna en af íslenska láninu. Greiðslubyrði myndi byrja í rúm- um 105 þúsund krónum á mánuði og eftir 20 ár væri skuldarinn búinn að greiða um 21,6 milljónir. Eftirstöðv- arnar væru komnar niður í um 10 milljónir króna og greiðslubyrði nið- ur í 74 þúsund á mánuði. Síðasta greiðslan af láninu yrði um 42 þús- und krónur. Þetta er mynd sem er talsvert hugnanlegri fyrir íslenska húsnæðiskaupendur. Þessi lán geta flestir tekið í dag en margir óttast hvað gerist ef gengið fellur. Að vísu tel ég að það megi falla býsna mikið til að erlent lán verði óhagstæðara en hið íslenska en fyrir marga getur þetta skipt miklu máli, t.d. þá sem ekki hafa svigrúm til að mæta tíma- bundinni hækkun á afborgunum eða þá sem gætu þurft að selja þegar gengisskráning er óhagstæð … Ef almenningur ætti kost á að fá laun sín að hluta eða öllu leyti greidd… Meira: dofri.blog.is BLOG.IS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.