Morgunblaðið - 23.11.2007, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 15
ICELANDAIR Cargo, dótturfélag
Icelandair Group, hefur samið við
aðila í Kanada um fraktflug til og frá
Gander á Nýfundnalandi.
Um er að ræða flutninga á fersk-
um sjávarafurðum og hlutum tengd-
um olíu- og gasiðnaði. Farnar verða
fimm reynsluferðir á milli Keflavík-
ur og Gander í nóvember og desem-
ber.
Mikil eftirspurn
Í tilkynningu frá Icelandair Cargo
segir að stjórnvöld á Nýfundnalandi
hafi efnt til átaks í útflutningi, meðal
annars á ferskum sjávarafurðum í
samstarfi við þarlenda framleiðend-
ur. Mikil eftirspurn sé eftir ferskum
fiski í Evrópu, en erfitt hafi verið að
koma honum í flug þar til að nú hafi
opnast leið fyrir vörurnar um Kefla-
víkurflugvöll.
Flogið verður frá Gander á föstu-
dögum með Boeing 757-200-frakt-
þotu og verður fiskinum dreift frá
Keflavík á markaði í Bretlandi og
meginlandi Evrópu.
Segir í tilkynningunni að heppnist
þessi tilraun sé stefnt að reglu-
bundnu flugi frá byrjun næsta árs.
Fyrsta flugið Ásamt flugstjóra og
flugmanni í fyrstu ferðinni sjást
fulltrúar Icelandair Cargo og
stjórnvalda í Nýfundnalandi.
Icelandair Cargo flýgur með fisk
milli Nýfundnalands og Evrópu
AÐILAR beggja vegna borðsins í
deilunni um það hvort seðlabanki
Bandaríkjanna eigi að lækka stýri-
vexti gátu fundið rök málstað sín-
um til stuðnings í fundargerð frá
síðasta fundi bankastjórnar seðla-
bankans. Einkum voru það ummæli
bankans um að ólíklegt væri að
hagvöxtur gæti farið mikið yfir
2,5%, en þessi orð skilja menn svo
að bankinn telji ekki ástæðu til
vaxtalækkunar ef hún geti ekki
haft áhrif til aukningar á hagvexti.
Hins vegar kemur fram í fund-
argerðinni að bankastjórnin hafi
meiri áhyggjur af minnkandi hag-
vexti en af vaxandi verðbólgu og
það ætti að gera bankann líklegri
til að lækka stýrivexti.
Olía lækkar en gull hækkar
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði í
gær en verðið hafði verið nærri því
að fara yfir 100 dollara daginn áð-
ur. Lokaverð á hráolíu nam 96,90
dölum í gær en nam 99,29 daginn
áður.
Verð á gulli hækkaði hins vegar í
gær og nam verð á gullúnsunni
802,70 dölum en viðskipti með
málminn voru að vísu ekki mikil í
gær.
Óvissa um fyrirætlanir
bandaríska seðlabankans
Vatnsendahvarf – Tónahvarf II
Atvinnuhúsnæði
Úthlutun á byggingarétti
Kópavogsbær auglýsir byggingarétt til úthlutunar á lóðum 1, 3, 5 og 7 við Tónahvarf II* undir atvinnuhúsnæði
á tveimur hæðum. Lóðirnar eru frá u.þ.b. 4800 m2 til 6400 m2.
*Athugið að götuheitið Tónahvarf II er ekki endanlegt.
Smáralind
Vatnsendahvarf
Kópavogskirkja
1
3
5
7
Kambavegur
Tónahvarf
Tónahvarf II
Skipulagssvæðið er hluti af heildarskipulagi Vatnsenda
og verður ýmis þjónusta sameiginleg. Ætlast er til að
atvinnuhúsnæðið falli vel að umhverfi svæðisins og
fyrirhugaðri og núverandi byggð í Vatnsendahvarfi.
Af lóðunum greiðast gatnagerðar– og yfirtökugjöld.
Yfirtökugjöld vegna lóða eru kr. 14.300 á m2 í lóð en
gatnagerðargjöld kr. 9.988 á m2 í húsnæði. Gjöldin taka
mið af byggingavísitölu sem er 376,7 stig og breytast
með henni.
Gert er ráð fyrir að ofangreindar lóðir verði byggingar-
hæfar í september–október 2008.
Úthlutunargögn fást afhent á Tæknideild Kópavogs,
Fannborg 2, 3. hæð. Einnig er hægt að nálgast gögnin
á vefsíðu Kópavogs www.kopavogur.is.
Umsóknum skal skilað á sama stað fyrir kl. 15.00
mánudaginn 3. desember 2007.
Vakin er athygli á að fyrirtækjum sem sækja um er
skylt að skila ársreikningi sínum fyrir árið 2006.
Byggingarétti á lóðum verður úthlutað með fyrirvara um
samþykkt aðal- og deiliskipulags.
Bæjarstjórinn í Kópavogi
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
23
27