Morgunblaðið - 23.11.2007, Page 17
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
FAGOTT er gott. Það er djúpi
tónninn meðal tréblásaranna,
mildur, sveipaður þokka og jafn-
vel svolítilli dulúð. Fagottið hefur
lengi verið vinsælt í kamm-
ertónlist og það á sitt sæti í sinfón-
íuhljómsveitinni, en fyrir utan það
heyrist ekki svo oft í því einu og
sér. Allir þekkja stef afa gamla úr
Pétri og úlfinum – það er eitt af
stóru „breikum“ fagottsins í tón-
listarsögunni. Kristín Mjöll Jak-
obsdóttir er einn fárra fagott-
leikara landsins og á tónleikum í
tónleikaröð kennara Tónlistar-
skóla Kópavogs í Salnum kl. 13 á
morgun verður þetta allt of hóg-
væra hljóðfæri í öndvegi. En
hvernig vegnar fagottinu annars í
nútímanum? Kristín segir að nýtt líf
hafi færst í fagottið á 20. öld, þegar
farið var að semja fleiri einleiksverk
fyrir það, og Kristín er sjálf að láta
semja fyrir sig tvö verk; annað smíð-
ar Anna Þorvaldsdóttir en Sveinn
Lúðvík Björnsson hitt. „Mér
fannst biðin eftir nýj-
um fagottverkum orð-
in löng.“ Meðal tónskálda sem mest
hafa hampað fagottinu eru Vivaldi,
Mozart, Stravinskí, Prokofiev og
Sjostakovitsj, en verkin á tónleik-
unum eru eftir Vivaldi, Lárus Hall-
dór Grímsson, Pál P. Pálsson og
Jean Françaix, en verk hans er að
sögn Kristínar meðal skemmtileg-
ustu verka sem samin hafa verið
fyrir fagott í einleikshlutverki.
Strengjasveit samkennara Kristínar
við TK leikur með henni á tónleik-
unum.
Fagott er flott og
gott en vannýtt
Kristín Mjöll Jakobsdóttir leikur ein-
leik í verkum fyrir fagott í Salnum
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 17
MENNING
LEIKMINJASAFN Íslands
stendur fyrir sýningu á ís-
lenskum leikbrúðum í Heilsu-
verndarstöðinni við Barónsstíg
á morgun, laugardag, og laug-
ardaginn 1. desember. Lifandi
leikbrúðusýningar verða á
staðnum, auk þess sem gestir
geta skoðað sýningu á brúðum
og öðrum listaverkum Jóns E.
Guðmundssonar, frumherja í
íslensku brúðuleikhúsi, en
einnig verða sýnishorn af leikbrúðum yngri
brúðulistamanna á staðnum.
Sýningin verður opin frá kl. 13 til 17, aðgangur
er ókeypis og eru allir velkomnir.
Leiklist
Brúðulist í Heilsu-
verndarstöðinni
Jón E.
Guðmundsson
TÓNLISTARSKÓLINN í
Reykjavík heldur tónleika í
Norræna húsinu kl. 14 á morg-
un, laugardag. Tónleikarnir
eru hluti af tónleikaröð sem
hófst fyrr í vetur, en fyrstu
tónleikarnir voru helgaðir nor-
rænum tónskáldum. Nú er hins
vegar komið að Vínarbarokk-
inu og mun Jóhannes Ágústs-
son byrja á að tala um barokk-
tónlist í Vínarborg. Bæði
söngvarar og hljóðfæraleikarar munu svo flytja
tónlist á tónleikunum og á efnisskrá eru verk eftir
Fux, Bononcini, Conti, di Rossi og Caldara.
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
Tónleikar
Vínarbarokk í
Norræna húsinu
Jóhannes
Ágústsson
BANDALAG þýðenda og túlka
heldur sitt árlega þýðingahlað-
borð í kaffihúsi Saltfélagsins,
Grandagarði 2, kl. 15 á morg-
un. Að þessu sinni talar Bjarni
Jónsson um þýðingu sína á
Krabbagangi eftir Günter
Grass, Ísak Harðarson fjallar
um Í landi karlmanna eftir
Hisham Matar, Sigrún Árna-
dóttir um Kæra Gabríel eftir
Halfdan W. Freihow og Þorgerður Agla Magn-
úsdóttir talar um vinnuna við að koma Harry
Potter til íslenskra aðdáenda á mettíma. Hjalti
Rögnvaldsson leikari mun svo lesa kafla upp úr
nýju biblíuþýðingunni. Aðgangur er ókeypis.
Bókmenntir
Frá Biblíunni til
Harry Potter
Harry Potter
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
ÞORGERÐUR Katrín Gunn-
arsdóttir, menntamálaráðherra, til-
kynnti í gær í Listasafni Íslands að
myndlistarmaðurinn Ragnar Kjart-
ansson yrði fulltrúi Íslands á Fen-
eyjatvíæringnum árið 2009.
„Nefndin hefur valið listamann
sem hefur náð skjótum þroska og
frama á ferli sínum og hefur óvenju-
sterk og skýr höfundareinkenni svo
jafnvel þekkist úr á alþjóðlegum
vettvangi. Hann á djúpar rætur á
Íslandi en starfar um allan heim auk
þess sem hann fellir inn í starf sitt
hin ýmsu listform, tónlist, leikhús
og auðvitað myndlistina. Ragnar
Kjartansson verður fulltrúi Íslend-
inga á Feneyjatvíæringnum 2009,“
sagði Þorgerður er hún tilkynnti
valið.
Nefnd sem stóð fyrir valinu er
skipuð fagráði Kynningarmið-
stöðvar íslenskrar myndlistar, sem í
sitja Christian Schoen, Hafþór
Ingvarsson og Rúrí, auk Halldórs
Björns Runólfssonar og Kristjáns
Steingríms Jónssonar.
Þorgerður sagði alla vera að rifna
úr monti yfir framlagi Steingríms
Eyfjörð á Feneyjatvíæringnum í ár.
„Hans framlag er að mínu mati
ómetanlegt. Okkur hefur auðnast
það að taka þátt með ýmsum hætti í
Feneyjatvíæringnum og það skiptir
miklu máli að það sé vandað til þátt-
töku okkar í honum. Við eigum að
sýna metnað í þessa veru,“ sagði
ráðherrann.
Samkvæmur sjálfum sér
„Vissulega kom þetta mér á óvart.
Ég er spenntur, hræddur og auð-
mjúkur og líka hugrakkur gagnvart
því tækifæri sem mér býðst með
þessu,“ segir Ragnar Kjartansson
um að vera valinn á Feneyjatvíær-
inginn 2009.
„Ég hef farið tvisvar á tvíæring-
inn sem gestur, núna í ár og fyrir
tveimur árum þegar Gabríela Frið-
riksdóttir var fulltrúi Íslands. Þetta
er ótrúlega flott og öðruvísi sýning
og gaman að fá að vera þátttakandi í
henni.“
Ragnar segir að það eina sem bíði
hans nú sé að leggja hausinn í bleyti
og reyna að fá góðar hugmyndir fyr-
ir tvíæringinn. „Maður verður nú að
gera einhverja bombu,“ segir hann
og hlær. „Ég ætla fyrst og fremst að
vera samkvæmur sjálfum mér og
halda mínu striki. Það er samt alltaf
smá keppni í þessu svo auðvitað kitl-
ar mig að reyna að toppa Steingrím.
Vonandi opnar þessi sýning ný
tækifæri fyrir mig, það er að segja
ef ég geri almennilega sýningu, þá
er tekið eftir því. Það er eins gott að
standa sig,“ segir Ragnar og kveðst
vera í hálfgerðri sæluvímu þessa
stundina. „Annars á eftir að ráðast
hvernig ég spila þetta. Þótt það sé
heillangt í sýninguna þá er þetta í
raun og veru aðeins eitt og hálft ár.
Þetta er hið eina sanna stóra dæmi,
svo ef eitthvað þarf að víkja fyrir því
þá víkur það.“
Ragnar Kjartansson verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2009
Spenntur, hrædd-
ur og auðmjúkur
Í HNOTSKURN
» Steingrímur Eyfjörð varfulltrúi Íslands á Feneyja-
tvíæringnum 2007 með sýning-
una Lóan er komin. Sýningin
stóð frá 10. júní til 21. nóvem-
ber.
» Um 30.000 manns komu í ís-lenska skálann á þeim tíma.
» Lóan er komin kemur íListasafn Reykjavíkur í jan-
úar 2008. Listasafnið hefur jafn-
framt keypt eitt verka Stein-
gríms, Álfakindina, af
sýningunni.
Ánægður Ragnar Kjartansson myndlistarmaður tekur við hamingjuóskum
frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur eftir að hún tilkynnti að hann yrði
fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum eftir tvö ár.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
VERÐLAUN fyrir verstu kynlífs-
lýsingu í skáldsögu verða afhent í
London þann 27. nóvember.
Meðal þeirra sem eru tilnefndir í
ár er rithöfundurinn Ian McEwan,
fyrir víst mjög flata kynlífslýsingu í
bók sinni On Chesil Beach.
Meðal annarra tilnefndra eru
Jeanetta Winterson fyrir lýsingu í
The Stone Gods, Ali Smith fyrir
Girl Meets Boy og Gary Shteyngart
fyrir Absurdistan.
Verðlaunin eru ekki mjög eft-
irsótt en stofnað var til þeirra í
upphafi til að draga athygli að
óvönduðum og smekklausum kyn-
lífslýsingum í skáldsögum. Bad Sex
Award, eins og þau heita upp á
ensku, hafa verið veitt árlega í
fimmtán ár.
Sigurvegarinn fær í verðlaun ab-
strakt styttu af fólki að eiga mök á
sjötta áratugnum og flösku af
kampavíni, það er ef hann mætir,
en mæting verðlaunahafa hefur
verið nokkuð góð í gegnum árin.
Sigurvegari síðasta árs var Iain
Hollingshead en það var rokk-
söngkonan Courtney Love sem af-
henti honum verðlaunin. Kynnar á
verðlaunaafhendingunni í gegnum
árin hafa meðal annars verið Mick
Jagger, Jerry Hall, Sting og Ger-
maine Greer.
Verðlauna
slæma kyn-
lífslýsingu
FRANSKI dans-
höfundurinn Mau-
rice Bejart lést í
gær, áttræður að
aldri. Bejart hafði
átt við erfið veik-
indi að stríða og
lést hann á
sjúkrahúsi í Laus-
anne í Sviss, en
hann hafði búið í
borginni frá árinu 1987. Bejart fædd-
ist í Marseille árið 1927 og lærði dans
í Lundúnum og París. Hann gat sér
gott orð sem danshöfundur í heima-
landinu á sjötta áratugnum, en vakti
fyrst verulega athygli fyrir túlkun
sína á Vorblóti Stravinskys í Brussel
árið 1959. Í kjölfarið stofnaði hann
ballett sem að lokum var nefndur eft-
ir honum; Bejart Ballet Lausanne.
Hann setti meðal annars upp verk
fyrir tískuhönnuðinn Gianni Versace
og verk sem var samið við tónlist
hljómsveitarinnar Queen. Síðasta
verk Bejarts, Around the World in
Eighty Minutes, verður frumsýnt í
Lausanne 20. desember nk.
Maurice Bejart
Bejart látinn
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
JÓN Þorsteinsson tenórsöngvari og
Hörður Áskelsson organisti héldu ný-
verið tónleika með íslenskum sálma-
lögum í Hallgrímskirkju og hlutu þeir
afburðadóm gagnrýnanda Morg-
unblaðsins, Jónasar Sen. Nú eru þeir
komnir aftur á stjá og syngja á hátíð-
inni Tónað inn í aðventu í Neskirkju
kl. 20 í kvöld. Þar verður Jóhann Seb-
astian Bach í forgrunni, Fünf geist-
liche Lieder – fimm andlegir söngvar.
„Aðalumræðuefni Bachs í söngv-
unum er Jesús Kristur, og sál-
arspurningin um hvort Guð sé á lífi
eða ekki,“ segir Jón. „Af hverju ef-
astu sála mín, gerðu það ekki. Hann
er alltaf í kringum þig.“
Jón segir að þessi verk Bachs séu
því miður allt of sjaldan flutt og að
fyrir sig, gamlan
Bach-söngvara, séu
þau erfið. „Fyrir
marga söngvara er
það svipað með söngva
Bachs og Schuberts;
því meira sem maður
syngur þá, því erfiðari
verða þeir. Í mínum
huga þarf maður styrk
og þroska til að syngja
þá. En ég elska að
koma þeim frá mér,
því þeir eru ríkidæmi
og ótrúlega ólíkir inn-
byrðis. Mér þykir svo
vænt um þessa tón-
list.“
Jón segir ekki gott að segja til um
hvort Bach hafi litið á verkin sem
sönglög eða sálma. „Ég hugsa að
hann hafi bara litið á þá sem styrk-
ingarsálma við
heimasamkundur. Á
þessum árum var
mikið um heimatrú-
boð og heimaguðs-
þjónustur. Ég get
mér til um þetta. En
veraldlegu söngv-
arnir hans eru fáir.
Margir halda að lag-
ið Bist Du bei Mir sé
trúarlegt, en það er
andlegt og eitt það
fegursta,“ segir Jón.
Á tónleikunum
flytja þeir Hörður
einnig nokkra af íslensku
sálmunum, sem nú eru komnir út á
plötu.
Á sunnudag kl. 15 halda þeir Jón
og Hörður tónleika í Skálholts-
dómkirkju.
Jón Þorsteinsson og Hörður Áskelsson flytja söngva Bachs
Mér þykir svo
vænt um þessa tónlist
Jón Þorsteinsson
♦♦♦