Morgunblaðið - 23.11.2007, Síða 22
matur
22 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Íslensku nemarnir tveir úr Mennta-skólanum í Kópavogi stóðu sig vel í ár-legri nemakeppni Evrópusamtaka hót-el- og ferðamálaskóla sem haldin var í
ferðamannabænum Jesolo, nærri Feneyjum, í
liðnum mánuði. Nemakeppnin er liðakeppni
þar sem saman koma þátttakendur frá ólíkum
löndum sem síðan spreyta sig á verkefnum
tengdum áherslusviðum þeirra í námi. Íslenski
bakaraneminn Aron Egilsson keppti í eft-
irréttagerð ásamt fulltrúum frá Tyrklandi og
Ítalíu í liði og Tinna Hrund Gunnarsdóttir,
nemi á ferðalínu MK, hreppti gullverðlaun í
keppni í ferðafræðum ásamt fulltrúum frá
Hollandi og Svíþjóð.
Ráðstefna og nemakeppni
Evrópusamtök hótel- og ferðamálaskóla
voru stofnuð 1988 með 24 skólum frá 16 Evr-
ópulöndum. Samtökin hafa vaxið jafnt og þétt
og eru nú á fjórða hundrað skólar frá 39 lönd-
um í samtökunum. Stór ráðstefna og nema-
keppni er haldin í október ár hvert og skiptast
aðildarlöndin á um gestgjafahlutverkið. Að
þessu sinni voru ráðstefnugestir um 600 tals-
ins, þar af rúmlega 300 nemendur frá 130 skól-
um í 30 þátttökulöndum. MK hefur sent nem-
endur í keppnina frá 1998 með góðum árangri
því íslenskir ferðanemar og bakaranemar hafa
gjarnan raðað sér í fyrsta til annað sætið.
Ingólfur Sigurðsson, fagstjóri í bakstri, og
Ásdís Ó. Vatnsdal enskukennari hafa lengst af
séð um að þjálfa og undirbúa nemendur fyrir
keppnirnar auk þess sem þau hafa nokkrum
sinnum tekið þátt í dómgæslu.
Frumleg nálgun í vínekrum
Tinna Hrund stefnir á að útskrifast sem
stúdent af ferðamálabraut MK um næstu jól
og stefnir þá helst á nokkurra vikna spænsku-
nám í Mexíkó. Í keppninni var keppendum
uppálagt að rannsaka ferðaþjónustumöguleika
Jesolo með tilliti til styrkleika, veikleika, ógn-
ana og tækifæra. Þeir áttu að koma með til-
lögur til úrbóta og leggja fram hugmyndir um
hvernig hægt væri að markaðssetja staðinn
betur í formi fyrirlesturs og glærusýningar.
„Okkar frumlega nálgun snerist um að víkka
ferðamannatíma Jesolo, sem er mikill djamm-
staður, með vínekrum og tilheyrandi vínrækt
því góð skilyrði munu vera þarna fyrir slíka
ræktun. Og í stað þess að vera í samkeppni við
Feneyjar lögðum við til samstarf og samvinnu
sem báðir staðir gætu haft hag af,“ segir
Tinna. Hún sigraði í undankeppninni hér
heima með því að kynna túristaborgina
Queenstown á Nýja-Sjálandi þar sem hluti af
hinni frægu „Lord of the Rings“-kvikmynd var
kvikmyndaður, en Tinna var einmitt skipti-
nemi á bóndabæ á Nýja-Sjálandi veturinn
2004/2005 þar sem hún fékk m.a. ágæta
reynslu af framsögn og kynningum ýmis kon-
ar.
Ætlar að baka í Flórídasólinni
„Ég tek sveinsprófið í desember og þá
standa bara allar dyr opnar. Planið er að læra
eitthvað meira, en ég stefni á að fara til Or-
lando á Flórída eftir áramót þar sem ég er bú-
inn að ráða mig í vinnu hjá Reyni bakara sem
rekur þar bakarí í samstarfi við aðra,“ segir
Seyðfirðingurinn Aron Egilsson, sem lenti í
öðru sæti í Kornax-bakarakeppninni hér
heima. „Ég fékk hins vegar að keppa úti á Ítal-
íu fyrir hönd skólans þar sem sigurvegarinn í
undankeppninni var valinn í íslenska hand-
boltalandsliðið á sama tíma og tók það fram yf-
ir bakarakeppnina,“ segir Aron, sem bakaði
tvenns konar eftirrétti fyrir Daglegt líf.
Súkkulaðihindberjakaka
Vanillukex:
65 g ósaltað smjörlíki
30 g flórsykur
2 harðsoðnar eggjarauður
1 vanillustöng
85 g hveiti
½ g lyftiduft
Hita ofninn í 165°C. Blanda hráefnum sam-
an og hnoða þar til samfellt. Kæla deigið og
fletja svo út í þriggja mm þykkt. Bakað á bök-
unarplötu í 10-15 mín.
Súkkulaðikaka:
35 g 70% súkkulaði
2,5 g kakó
45 g eggjarauður
20 g strásykur
56 g eggjahvítur
19 g sykur
Hita ofninn í 175°C. Bræða súkkulaðið í
vatnsbaði. Þeyta rauður og sykur þar til ljóst
og létt. Þeyta kakói saman við og þeyta svo
eggjahvítur og sykur í stífan marengs. Blanda
bráðnu súkkulaðinu saman við rauðurnar, síð-
an marengsinum. Setja deigið í fituborið köku-
form og baka í 10-12 mín. Kæla vel.
Súkkulaðifylling:
60 ml rjómi
60 ml mjólk
11 g strásykur
20 g eggjarauður
11 g sykur
90 g 70% súkkulaði
Setja rjómann, mjólkina og sykurinn í pott
og hitað að suðu. Látið kólna. Þeyta svo saman
eggjarauður og sykur og blanda saman við
rjómablöndu. Setja aftur yfir hita og elda þar
til blandan þykknar. Hella blöndunni í skál
með brytjuðu súkkulaði þar til súkkulaðið hef-
ur bráðnað alveg. Plastfilma sett yfir skálina
og kælt þar til kremið hefur stífnað.
Súkkulaðihjúpur:
33 ml rjómi
38 g 60% súkkulaði
4 g ósaltað smjör
8 g sykursíróp
Rjómi hitaður að suðu og hellt í skál ásamt
súkkulaðinu. Hrært þar til orðið samfellt.
Kælt. Smjöri og sykursírópi hrært saman við.
Hindberjafylling:
118 ml fersk hindber
7,5 ml hindberjamauk
7,5 ml sykurvatn
1 g matarlím
Matarlím lagt í bleyti. 2 msk. vatn og 4 msk.
sykur soðið saman. Matarlím brætt á pönnu og
hráefnunum blandað saman með töfrasprota.
Hindberjasósa:
55 fersk hindber
7 g strásykur
14 g flórsykur
Öllum hráefnum blandað vel saman með
töfrasprota. Þrýst í gegnum sigti.
Vanillukexið skorið út eftir formi sem er um
15x10x3 sm að stærð. Kexið sett í botninn á
forminu. Helmingnum af súkkulaðifyllingunni
sprautað yfir. Súkkulaðikakan skorin út og
sett varlega á súkkulaðifyllinguna. Hindberja-
fyllingunni sprautað á súkkulaðikökuna og af-
ganginum af súkkulaðifyllingunni sprautað
varlega á hindberjafyllinguna. Sléttað og fryst.
Bananamús með
vanillu créme brulée
Appelsínukanilkex
44 g möndlumjöl
44 g flórsykur
1 g kanill
2 g fínsaxað appelsínuhýði
45 g eggjahvítur
18 g strásykur
Ofninn hitaður í 190°C og smjörpappír sett-
ur á plötu. Blanda saman möndlumjöli, flór-
sykri, kanil og appelsínuhýði. Eggjahvítur og
sykur stífþeyttar saman. Öllu blandað varlega
saman að lokum. Sprautað á plötu í litlum
hringjum. Bakað í 7-10 mín þar til ljósgult.
Kælt.
Bananamauk
96 g banani
12 g sítrónusafi
3,5 g matarlím
24 g vatn
68 g strásykur
30 g eggjahvítur
100 g rjómi
Matarlím lagt í bleyti í kalt vatn í 15 mín.
Bananinn, sítrónusafinn og matarlím sett á
pönnu og hitað þar til matarlímið er bráðnað.
Hakkað með töfrasprota. Vatn og sykur soðið
saman í 120°C eða þar til þykkt. Sykurblönd-
unni hellt varlega í eggjahvíturnar og svo stíf-
þeytt. Léttþeyttum rjómanum bætt í banana-
blönduna og síðan marengsinum.
Créme brulée:
187 g rjómi
1 vanillustöng
30 g eggjarauður
30 g strásykur
Vanillustöngin klofin og skafið úr henni.
Hún sett í rjómann og hitað að suðu. Eggja-
rauður og sykur þeytt saman þar til samfellt.
Smávegis af heitum rjómanum er hellt í eggja-
rauðurnar og hrært vel. Eggjablöndunni er
síðan hellt yfir í restina af rjómanum og hrært
vel saman. Sett aftur yfir hita þar til þykknar.
Sett í grunnt form og bakað í vatnsbaði við
140°C í 35-40 mín.
Sýrð karamellusósa:
25 g vatn
71 g sykur
19 g smjörlíki
85 g sýrður rjómi
Vatni og sykri blandað saman á pönnu og
hitað á miðlungshita. Hitinn hækkaður og eld-
að þar til orðin er til karamella. Tekið af hit-
anum og smjörlíkinu bætt út í. Sett aftur á lág-
an hita og sýrða rjómanum bætt saman við í
skömmtum. Hrært, sigtað og kælt.
Súkkulaðinetinu sprautað á plaststrimla og
þeir settir á sex litla járnhringi. Sex appels-
ínukexbitar skornir út og látnir í botninn á
járnhringjunum. Bananamús sprautað í um
það bil helminginn af forminu, créme brulée
skorið út og látið ofan í miðju formsins. Fyllt
með bananamús. Fryst. Rétturinn er svo tek-
inn úr járnforminu og plastið tekið af. Borið
fram með karamellusósu.
join@mbl.is
Lystugir eftirréttir með
listilegu handbragði
Morgunblaðið/G.Rúnar
Nemarnir Aron Egilsson, bakaranemi, og Tinna Hrund Gunnarsdóttir, ferðamálanemi við MK.
Velgengni hefur fylgt íslensk-
um nemum við MK sem tekið
hafa þátt í alþjóðlegum nema-
keppnum í ferðafræðum og
eftirréttagerð. Jóhanna Ingv-
arsdóttir forvitnaðist um ný-
afstaðna keppni og bragðaði á
eftirréttum í formi listaverka.
Eftirréttirnir Súkkulaðihindberjakakan og
bananamús með vanillu créme brulée.
Einbeittur Það getur verið mikil nákvæmn-
isvinna fólgin í gerð fagurra eftirrétta.