Morgunblaðið - 23.11.2007, Síða 29

Morgunblaðið - 23.11.2007, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 29 ✝ ÞorbjörgTryggvadóttir fæddist í Laufási í Reykjavík 25. sept- ember 1922. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Skjóli 14. nóvember síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Anna Guðrún Klem- ensdóttir húsmóðir og Tryggvi Þór- hallsson prestur, ritstjóri, forsætis- ráðherra og banka- stjóri. Systkini Þorbjargar: Klem- ens, f. 1914, látinn, Valgerður, f. 1916, látin, Þórhallur, f. 1917, Agnar, f. 1919, Björn, f. 1924, lát- inn og Anna Guðrún, f. 1927. Þorbjörg giftist 7. ágúst 1948 dr. Ívari Daníelssyni, fyrrverandi 2005. b) Valgerður Halla, f. 10. mars 1977, gift Nirði Sigurjóns- syni, f. 15. janúar 1974. c) Áslaug Ína, f. 18. júlí 1980, sambýlis- maður Thomas Már Gregers, f. 16. janúar 1977, dóttir þeirra Ína Kolbrún, f. 2004. 3) Anna Guðrún, sérfræðingur hjá Kaupþingi, f. 26. ágúst 1959, lærði þjóðhagfræði og tölvunarfræði, í fjarbúð með Þor- láki Jónssyni verkfræðingi hjá Al- mennu verkfræðistofunni, f. 13. júlí 1956. Þorbjörg bjó alla tíð í Reykja- vík. Hún brautskráðist frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1940 og stafaði hjá Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga, Ið- unnarapóteki og í Útvegsbank- anum þar til hún giftist. Frá 1963-1985 var hún fram- kvæmdastjóri Fjölritunarstofu Daníels Halldórssonar og starfaði þar þangað til hún lét af störfum vegna aldurs. Síðustu tæplega fimm árin bjó Þorbjörg á Hjúkr- unarheimilinu Skjóli. Útför Þorbjargar fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. lyfsala, f. 18. júlí 1920, þau skildu. Þau eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Tryggvi lyfjafræðingur, f. 13. janúar 1949, d. 24. júní 1979. Kona hans Hildur Sveinsdóttir, lífeindafræðingur á Landspítala, f. 20. ágúst 1949. 2) Guð- rún Ína, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur á Landspítala, f. 31. mars 1950, gift Kristni Valdimars- syni kennara, f. 28. september 1949, starfar sem sölufulltrúi hjá Kassagerðinni. Dætur þeirra eru a) Þorbjörg Ása, f. 13. júní 1975, gift Finnboga Hafþórssyni, f. 17. júlí 1971, börn þeirra eru Skarp- héðinn, f. 2001 og Hrafnhildur, f. Mér er það í fersku minni þegar ég hitti Þorbjörgu tengdamóður mína í fyrsta skipti. Ég kom með Ínu minni á heimilið á Ránargötu 19 á laugar- dagskvöldi í október 1973. Þorbjörg heilsaði mér hlýlega og bauð mig vel- kominn og strax leið mér eins og ég hefði komið þarna oft áður. Ég, sveitamaðurinn, var hins vegar ekki búinn undir móttökur yngri heima- sætunnar á heimilinu en hún settist við hlið mér og spurði mig spjörunum úr um ætt, uppruna, starf og fleira. Oft hefur fjölskyldan skemmt sér yfir minningum um vandræðalegt and- rúmsloft sem myndaðist í fáeinar mínútur við þessar aðstæður. Ég hef oft litið á þessa prófraun sem nokk- urs konar vígslu inn í fjölskylduna. Alla vega átti fjölskyldan á Ránar- götu hug minn upp frá þessu laug- ardagskvöldi og hef ég aldrei fundið annað en að það hafi verið gagn- kvæmt. Eftir sex ára búsetu á Vestfjörðum fluttum við Ína í bæinn ásamt dætr- um okkar þremur. Ég tel það gæfu okkar að hafa átt þess kost að búa í sama húsi og tengdamamma á meðan dæturnar voru að vaxa úr grasi. Aldrei þurftum við að hafa áhyggjur af að þær kæmu að tómu húsi. Amma var alltaf til staðar og þær í góðum höndum. Samband dætranna við ömmu sína var mjög náið. Í þeirra augum var hún hafin yfir alla gagn- rýni. Þorbjörg bjó yfir miklum sál- arstyrk og kom það glöggt fram í veikindum Tryggva sonar hennar. Eftir nýrnabilun hjá honum og erfið veikindi fékk hann gjafanýra frá móður sinni en því miður hafnaði lík- ami hans nýranu og hrakaði heilsu hans eftir það uns hann lést árið 1979. Snemma á níunda áratugnum tók- um við hjónin við rekstri fjölritunar- stofu sem Þorbjörg hafði rekið á Ránargötunni í mörg ár en var í eigu hennar og fyrrverandi eiginmanns hennar, Ívars Daníelssonar. Þar var oft mikið að gera og vinnudagur jafn- an langur. Ég varð þess fljótt áskynja hversu mikil og gagnkvæm virðing og væntumþykja var á milli Þorbjargar og starfsfólksins. Orðið mannauður í sínum fallegasta skiln- ingi átti svo sannarlega við þann hóp sem vann á fjölritunarstofunni þegar við hjónin tókum við rekstrinum. Alltaf fylgdist Þorbjörg með, eftir að hún lét af störfum, og leitaði stöðugt frétta hjá okkur um gang mála á stof- unni og ekki síður frétta af starfsfólk- inu sem henni var svo kært. Fyrir allnokkrum árum fór heilsu Þorbjargar að hraka og kom að því að hún varð að fara á Hjúkrunarheimilið Skjól. Ég hef oft lýst aðdáun minni á því góða fólki sem vinnur við kröpp launakjör á stofnunum eins og tengdamóðir mín dvaldi á síðustu ár- in. Það er vandi að láta öldruðu fólki, sem býr fjarri sínum nánustu, líða vel og búa því heimilislegar aðstæður. Aldrei fann ég annað en það tækist vel með tengdamóður mína. Þið, góða fólk, sem þar stóðuð að málum hafið þökk fyrir. Að lokum vil ég þakka elskulegri tengdamóður fyrir samfylgdina. Ég vil þakka henni fyrir hennar framlag í uppeldi dætra minna. Hún átti sinn hlut í þeim þáttum í fari þeirra sem mér þykir vænst um. Blessuð sé minning Þorbjargar tengdamóður minnar. Kristinn Valdimarsson. Í dag kveðjum við elsku ömmu okkar á Ránargötu. Hún hefur ávallt verið stór hluti af lífi okkar enda vor- um við forréttindabörn að eiga ömmu í húsinu sem var alltaf heima. Amma hafði alltaf tíma fyrir okkur systurn- ar. Hún átti marga spennandi hluti sem við fengum að skoða í æsku, gamlar dúkkur, skartgripaskrín með óteljandi skúffum, flotta ballkjóla, hatta og skó sem við mátuðum eft- irlitslausar og lékum okkur í. Amma átti líka alltaf nammi og kók. Mest spennandi var nammi- skápurinn í eldhúsinu sem ískraði í þegar hann var opnaður. Fyrir neðan hann var hringskápurinn ógurlegi, stærsta hindrunin í nammið. Hann var þekktur fyrir að klemma fingur. Í barnaskóla hlýddi amma okkur yfir fyrir próf og oft heyrði maður rödd hennar í prófunum, mundu þetta og hitt, enda var amma oft ansi glögg á aðalatriðin. Á neðri hæðinni sátum við heilu kvöldstundirnar og horfðum á sjónvarpið með ömmu. Stundum lét hún okkur halda fyrir augun, með misgóðum árangri, ef henni fannst sjónvarpsefnið ekki við hæfi ungra barna. Þegar hún eign- aðist vídeótæki tók hún upp bíó- myndir og þætti fyrir okkur barna- börnin og reyndar marga fleiri í ættinni. Spólurnar merkti hún svo með miðum samviskusamlega og gaf myndunum stundum umsögn. Til dæmis: Þrír pabbar, mjög góð mynd. Oft kom það fyrir að það var heill her af unglingsstelpum sem lögðu undir sig stofuna hennar og horfðu á vin- sæla þætti sem hún hafði tekið upp. Amma var góð fyrirmynd og mót- aði okkur á marga vegu. Hún elskaði okkur systurnar fordómalaust, var stolt af því sem við tókum okkur fyrir hendur og stóð alltaf við bakið á okk- ur. Amma var næm og vissi meira en henni var sagt. Hún var vitur kona sem gaf góð ráð án þess að reyna að stjórna einum né neinum. Við erum þakklátar elsku ömmu fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Það er ljúfsárt að hugsa til baka og rifja upp minningarnar um ömmu sem eru allar góðar og dýr- mætar. Þær munum við varðveita um ókomin ár. Þorbjörg Ása, Valgerður Halla og Áslaug Ína Kristinsdætur. Frænka okkar, Þorbjörg Tryggva- dóttir, er látin. Við Þorbjörg, eða Obba eins og hún var ævinlega köll- uð, vorum systkinabörn en þó var heil kynslóð á milli okkar, enda faðir okkar nítján árum yngri en móðir hennar. Samskipti okkar við Laufás- systkinin voru talsverð eftir að við fluttum heim til Íslands með foreldr- um okkar í upphafi sjöunda áratugar síðustu aldar. Ættmóðirin, Anna frænka í Laufási, var auðvitað mið- punkturinn en við hittum öll systk- inin og börn þeirra margoft heima hjá henni. Sem börn þótti okkur ákaf- lega gaman og ævintýri líkast að koma í Laufás og hitta þessa fjöl- mennu og fjörugu fjölskyldu og hafa þau tengsl haldist óslitið fram á þennan dag. Af systkinunum sjö höfðum við sérstaklega mikil samskipti við Obbu , auk Björns bróður hennar. Bæði var það vegna þess að hún átti börn á okkar aldri og svo leigði Bjarni her- bergi á Ránargötunni á menntaskóla- árum sínum og var jafnframt í fæði hjá Obbu. Þar bjó Áslaug einnig eitt sumar. Á meðan foreldrar okkar bjuggu erlendis nutum við velvildar hennar þar sem hún bauð okkur öll- um þremur vikulega í mat, þrátt fyrir mikið annríki við að reka fjölritunar- stofu sína af annáluðum dugnaði. Það er huggun í harmi að eiga margar góðar minningar um jafn einstaka konu og Obba var. Hjá Obbu var allt- af gott að vera og öll samskipti við hana voru sérlega þægileg og ánægjuleg því hún var afar skemmti- leg og hjartahlý manneskja. Við systkinin sendum Ínu, Önnu og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi hún hvíla í friði. Frændsystkinin í Tjarnargötu. Í ljósmyndabók Sigríðar Zoëga er mynd af sex elstu systkinunum í Laufási. Eldri strákarnir þrír eru í matrósafötum og sést í ber hné Agn- ars sem situr fremst á myndinni. Björn er kornabarn á fyrsta ári en Anna Guðrún enn ófædd. Klemens ljóshærður. Þórhallur stendur aftast og kímir út í annað. Stúlkurnar tvær eru í ljósum pífukjólum og Valgerður með risastóra slaufu. Þorbjörg er tveggja ára og með þumalfingur í munninum og dálítið úfið hár horfir hún stórum augum framan í heiminn með þeim eilítið íhugula og vingjarn- lega svip og þeirri ró sem einkenndi hana alla tíð. Síðan eru liðin 83 ár og af sjö Lauf- ássystkinum eru nú þrjú á lífi. Í ævi manna skiptast óhjákvæmilega á skin og skúrir en í það heila áttu öll systkinin farsælt líf. Obba var næst Þórhalli föður mínum í aldri og þau voru sérstaklega náin og samrýmd. Tvö eldri börn Obbu fæddust áður en foreldrar mínir eignuðust börn og föður mínum hefur alltaf þótt vænt um Ránargötusystkinin, Tryggva, Ínu og Önnu, sem væru þau hans eig- in. Obba var fjórða elst og því í miðjum aldurshópnum en hún var líka alltaf miðlæg í þessum fjörmikla hópi og eftir að amma dó var frétta- miðstöð fjölskyldunnar á Ránargötu. Alla tíð laðaði Obba að sér bæði unga og aldna og margir áttu sér athvarf hjá henni á Ránargötu. Hún var höfð- ingi heim að sækja, glaðvær og hafði einstaklega góða nærveru. Tryggvi var uppáhaldsfrændi minn og hetjan mín þegar ég var lítil. Ég man eftir að hafa setið við hlið Obbu í stofunni á Ránargötu hlustandi á Tryggva og vini hans spjalla saman og þeir voru ótrúlega fyndnir og skemmtilegir. Þegar bróðir minn fæddist var ég 8 ára og send í fóstur á Ránargötu. Bak við húsið var lokaður garður þar sem almennt var viðurkennt í fjölskyld- unni að væri hlýrra á góðum dögum en annars staðar í Reykjavík, hugs- anlega að Laufásgarðinum undan- skildum. Þarna lágum við í sólbaði, Ína kenndi mér að hjóla og við ókum Önnu í kerru fram og til baka eftir götunni. Í stofunni á Ránargötu stóð mikið húsgagn, plötuspilari, og á hann voru spiluð lög með Ragnari Bjarna- syni og Hauki Morthens, Kvöld í Moskvu og Til eru fræ. Á neðri hæð- inni var Fjölló, Fjölritunarstofa Daní- els Halldórssonar, með prentvélar sem fylltu út í herbergin og lykt af prentlegi sem sveif á mann. Fremsta herbergið var móttaka, tekkklædd í hólf og gólf. Öllu þessu stýrði Obba. Á sinn rólega hátt var hún hamhleypa í starfi, einstaklega vandvirk og stóð enginn henni á sporði í prófarkalestri og vélritun. Þótt hún væri þessi mikla nákvæmnimanneskja í vinnu var hún eins fjarri því að vera smámunasöm og hugsast getur. Starfsfólkið á Fjölló starfaði þar margt í áratugi og varð að góðum fjölskylduvinum. Húsinu á Ránargötu var smám saman breytt til að rúma fleiri og þar bjuggu sér heim- ili öll börnin hennar, fyrst Tryggvi, svo Ína og loks Anna, og þar uxu barnabörnin úr grasi í sannkallaðri stórfjölskyldu. Obbu tími var kominn en hún skilur eftir sig afkomendur sem erft hafa mannkosti hennar, hlýju og umhyggju. Blessuð sé minn- ing hennar. Þóra Ellen Þórhallsdóttir. Elskuleg föðursystir mín er gengin. Hún bjó lengst af á Ránargötu 19, í sannkölluðu fjölskylduhúsi í nábýli við börn sín og fjölskyldur. Það var fyrir rúmum áratug sem hún fór fyrst að kenna sér meins. Síðustu ár sín dvaldi hún á Skjóli þar sem hún naut framúrskarandi umönnunar starfs- fólks, en dætur hennar og tengdason- ur ásamt börnum þeirra umvöfðu hana hlýju og alúð á allan hátt. Hún sofnaði á Skjóli að kvöldi hins 14. nóv- ember, en þær systur, Ína og Anna, hlúðu að henni síðasta spölinn. Obba, eins og hún var jafnan kölluð, ólst upp í stórum og glöðum systk- inahópi í Laufási. Hún átti fjögur eldri systkini og tvö yngri. Tvö elstu, Klem- ens og Valgerður, ásamt yngri bróð- urnum Birni, eru nú látin, en Þórhall- ur, Agnar og Anna Guðrún lifa systur sína. Obba mun hafa verið fremur heilsulítil sem barn. Hún var alla tíð léttstíg og létt í lund, hafði góða greind, var farsæl kona og gerði sér aldrei mannamun. Fólki þótti gott í nærveru hennar. Vinnusemi var henni í blóð borin. Obba var dugleg og skyldurækin. Hún vann sínum það sem hún mátti. Hún hafði lengst af yndi af því að spila bridge á meðan heilsan leyfði. Á seinni árum var hún ákaflega heimakær og naut þess að horfa á sjónvarpið og var dugleg að nota myndbandstækið. Hún tapaði snemma heyrn og var það henni til baga. Heimili hennar stóð okkur frænd- systkinum og vinum alla tíð opið. Öll greiðasemi af hennar hálfu var svo sjálfsögð og minnist ég hennar sér- staklega með þakklátum huga þegar ég unglingur kom stundum heim með þeim Ínu og Tryggva og fékk að seðja hungrið í eldhúsi hennar, oft yfir vinalegu spjalli og kóki á glerflösku. Þeir sem gerst vissu sögðu hana listakokk. Obba var oftast jákvæð og glöð. Hún var þó ekki alltaf sólar- megin í lífinu. Erfiðast átti hún ef- laust þegar frumburðurinn og einka- sonurinn, Tryggvi, átti í miklu sjúkdómsstríði. Hún gaf honum ann- að nýrað sitt sem þó ekki stoðaði. Tryggvi lést aðeins þrítugur að aldri, langt um aldur fram. Obba sá ekki sólina fyrir dætrum Ínu og Kristins og naut þess að fá langömmubörnin í heimsókn. Ég sá frænku mína fyrir rúmum mánuði – jákvæða sem endranær en fann þó að endalokanna yrði skammt að bíða. Við faðir minn, Agnar og systkini mín, þökkum henni farsæla samfylgd og biðjum Ínu og Kristni, Önnu og Þorláki, börnum og fjölskyldunni allri blessunar. Fari hún og hvíli í Guðs friði. Anna Agnarsdóttir. Nú þegar komið er að leiðarlokum hjá elskulegri frænku okkar, Obbu, viljum við systkinin þakka þá góðvild og áhuga sem hún sýndi okkur ávallt. Obba var einstaklega jákvæð kona allt til hins síðasta og það lýsti bein- línis af henni góðmennskan. Okkur er minnisstætt hversu innilega glöð hún varð alltaf þegar við birtumst í heim- sókn til hennar á Ránargötunni, oft- ast í fylgd með föður okkar og bróður Obbu. Milli þeirra systkinanna var fallegt samband og mikil væntum- þykja. Við munum aldrei til þess að nokkurn tíma hafi fallið styggðaryrði á milli þeirra. Móðir okkar vann í mörg ár í fjölskyldufyrirtækinu, Fjölritunarstofu Daníels Halldórs- sonar, sem var um árabil á neðri hæð- inni á Ránargötunni. Þar var Obba vakin og sofin yfir rekstrinum. Það var gaman að koma þangað, mikið líf og Obba á þönum, grönn og kvik, að passa upp á að allt væri nákvæmlega eins og það átti að vera. Samvisku- semi og vinnusemi var henni í blóð borin. Góð kona er gengin, kona sem með ljúfmennsku og góðvild hafði bæt- andi áhrif á allt og alla í kringum sig. Anna Guðrún Björnsdóttir, Bjarni Þór Björnsson. Þorbjörg Tryggvadóttir ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÖGMUNDUR JÓHANNESSON, lést á Hjúkrunarheimilinu Garðvangi miðvikudaginn 21. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Kristín Ögmundsdóttir, Sigurjón Kristinsson, María Ögmundsdóttir, Sæmundur Einarsson, Alda Ögmundsdóttir, Erlendur Jónsson, Sigurður J. Ögmundsson, Guðrún J. Aradóttir, Jón J. Ögmundsson, Unnur G. Knútsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EIRÍKUR ANNAS GUÐJÓNSSON frá Skjaldabjarnarvík, lést mánudaginn 19. nóvember. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 1. desember kl. 14.00. Blóm afþökkuð, en þeim sem vija minnast hans er bent á Blindrafélagið. Eyvindur P. Eiríksson, Guðjón Eiríksson og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.