Morgunblaðið - 23.11.2007, Síða 48
FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 327. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Eigendafundur
Stjórnar- og eigendafundi OR var
frestað í gær. Borgarfulltrúi sjálf-
stæðismanna taldi ástæðuna vera
óeiningu um mál OR innan nýs
meirihluta. » Forsíða
Nektardans bannaður
Borgarráð samþykkti í gær að
leggjast gegn nektardanssýningum í
Reykjavík. Lögfræðingur eins dans-
staðanna segir ekki við unað, því
borgarráð hafi tekið ákvörðun út frá
pólitískri hugmyndafræði. » 2
Hlutabréf lækka
Heimili og lífeyrissjóðir verða fyr-
ir barðinu á lækkun hlutabréfa ekki
síður en hlutafjáreigendur. Lífeyr-
issjóðirnir ættu þó að þola töluverð-
ar sveiflur. » Forsíða
SKOÐANIR »
Staksteinar: Leynd og pukur …
Forystugreinar: Fólksflótti frá
höfuðborgarsvæðinu | Réttarbót
fyrir útlendinga
Viðhorf: Burt með „herrann“
Ljósvaki: Útbrot í verkfalli … höfunda
UMRÆÐAN »
Bænaganga
Sigrún Björk ómerkti orð Kristjáns
Landið helga – land ófriðar og átaka
… samþykkt laga um skógrækt …
Karlar kaupa skúffubíla, konur Bjöllu
BMW ætlar sér … mótssigur 2008
Mun stærri njósnamál … komist upp
Björt framtíð á þjóðveginum?
BÍLAR »
'
'(
' '
' '
'(
5
6$)
0 $-
7 #
!#$$%$* 0 $(
' ' ' ' (
'(
' '(
'
/ 8 &3 )
' '(
' ' '((
' '
9:;;<=>
)?@=;>A7)BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA)8$8=EA<
A:=)8$8=EA<
)FA)8$8=EA<
)4>))A%$G=<A8>
H<B<A)8?$H@A
)9=
@4=<
7@A7>)4-)>?<;<
Heitast 6°C | Kaldast 1°C
SA 13-18 m/s og
slydda eða rigning en
hægari og dálítil snjó-
koma norðaustan til.
Snýst í stífa SV-átt. » 10
Það er ekki nóg með
að Páll Óskar njóti
vinsælda meðal al-
mennings – hann
heillar gagnrýn-
endur líka. » 47
TÓNLIST»
Palli fær
fullt hús
FÓLK»
Erla Dögg getur synt
ansi hratt. » 44
Söngvari The Cult
missti út úr sér á
tónleikum að Led
Zeppelin ætlaði í
tónleikaferðalag á
næsta ári. » 44
TÓNLIST»
Zeppelin til
Íslands?
KVIKMYNDIR»
Christian Bale verður
John Connor. » 39
LEIKLIST»
Woyzeck er á leiðinni til
Seúl og New York. » 45
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Keppinautur Þóreyjar Eddu …
2. Nýfædd börn Dennis Quaid …
3. Grunaður um að hafa nauðgað …
4. Lindsay Lohan fallin?
„ÉG varð strax
var við þröngsýni
hjá ákveðinni bók-
menntaelítu. Fólk
sem mér fannst
víðsýnt þegar ég
var að skrifa til-
raunakenndar
bækur og ljóð
verður þröngsýnt
þegar ég fer út í
svokallaðar vinsældabókmenntir,“
segir rithöfundurinn Óttar M. Norð-
fjörð um viðbrögðin við nýjustu
skáldsögu hans Hníf Abrahams.
Bókin er sagnfræðileg skáldsaga
og fjallar um átök á milli íslam og
kristni. Sögunni hefur verið nokkuð
líkt við Da Vinci-lykilinn og Óttar
nefndur hinn íslenski Dan Brown.
Hnífur Abrahams hefur selst vel og
situr í fjórða sæti Bóksölulistans sem
kom út í gær. | 38
Finnur fyrir
þröngsýni
Óttar M. Norðfjörð
MYNDLISTARMAÐURINN Ragn-
ar Kjartansson verður fulltrúi Ís-
lands á Feneyjatvíæringnum 2009.
Menntamálaráðherra tilkynnti val-
ið í Listasafni Íslands í gær um leið
og sýning Steingríms Eyfjörð á
tvíæringnum í ár var gerð upp.
Meðal þeirra sem mættu til að
fagna með Ragnari var Benedikt
Erlingsson leikari. Hér sést hann
færa Ragnari prjónahúfu með ís-
lenska fánanum í tilefni útnefning-
arinnar við mikla kátínu lista-
mannsins. Þorgerði Katrínu finnst
þó vissara að athuga hvort húfan sé
ekki hlý og góð því Ragnar þarf nú
að leggja höfuðið í bleyti og fá góða
hugmynd að verki til að fara með til
Feneyja. | 17
Fékk
húfu frá
Benna
Ragnar Kjartansson verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum 2009
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
„AUÐVITAÐ vona ég að hann lendi
ekki í bardaga. Þetta er auðvitað
enginn aldur til að vera að fara á
svona svæði,“ segir Eufemía Berg-
lind Guðnadóttir, móðir tvítugs Ak-
urnesings sem verður sendur til
Íraks með breska hernum á morgun.
Þar verður hann í allt að átta mánuði.
Ungi maðurinn, Júlíus Butt Dav-
íðsson, á breskan föður og íslenska
móður og á hér tvö alsystkin. Hann
ílentist hjá föður sínum í Bretlandi
eftir skilnað foreldranna en ólst upp
á Íslandi fram að því.
Júlíus gekk tæplega 17 ára í her-
inn og er nú undirliðþjálfi í stórskota-
liðinu. Hann hefur hingað til þjónað í
Bretlandi en einnig verið í verklegu
námi og herþjálfun í Þýskalandi.
Hann lærði bifvélavirkjun í hernum
og mun það verða starf hans í Bag-
dad að gera við trukka og skrið-
dreka, auk þess sem hann sinnir
starfi sjúkraliða. Hlutverk herdeild-
ar Júlíusar verður að fylgja her-
mönnum út úr Bagdad á leið þeirra
til Kúveit.
Júlíus hlaut hálfs árs þjálfun hjá
hernum vegna væntanlegrar farar til
Íraks. Móðir hans telur þó að hann
hafi fram að þessu ekki almennilega
gert sér grein fyrir því sem væri í
uppsiglingu. Hann hafi nú verið í
viku í Kúveit til að venjast aðstæðum
og hitanum og sé smám saman að
gera sér grein fyrir alvöru málsins.
„Ég reyni að vera ekki leið því ég
veit að honum liði illa ef hann vissi af
því. Ég sagði honum að reyna að sofa
vel og ég vona bara að hann komi
andlega og líkamlega heill út úr
þessu,“ sagði Eufemía.
Kemur vonandi heill heim
Ungur íslenskur maður, sem er undirliðþjálfi í breska hern-
um, verður sendur til Íraks með herdeild sinni á morgun
Júlíus Butt Davíðsson