Morgunblaðið - 05.12.2007, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2007 35
✝ Ásgeir Sigur-jónsson fæddist
í Reykjavík 16.
febrúar 1923. Hann
lést á Landspítal-
anum við Hring-
braut 25. nóvember
síðastliðinn. Ásgeir
var sonur hjónanna
Sigurjóns Jóns-
sonar, verkamanns
í Reykjavík, frá
Suðurkoti í Krísu-
vík, f. 29.10. 1875,
d. 28.11. 1932, og
Ingiríðar Jóhannes-
dóttur, húsfreyju og verkakonu í
Reykjavík, frá Skáney í Reyk-
holtsdalshreppi í Borgarfirði, f.
11.1. 1887, d. 1.6. 1960. Systkini
Ásgeirs eru Jóna Björg, f. 24.2.
1913, d. 7.4. 1996, Guðrún Ósk, f.
23.11. 1920, og Áslaug Hanna, f.
25.10. 1927.
Ásgeir kvæntist 15.7. 1949
Þórunni Ingvarsdóttur, f. í Vest-
mannaeyjum 6.12. 1923. For-
eldrar hennar voru Ingvar Þór-
er Guðrún Björg Elíasdóttir,
dætur þeirra eru Elín Björg og
Arna Björg. 2) Ásgeir, f. 23.10.
1955. 3) Sigurjón, f. 28.3. 1961.
Maki Ragnheiður Ragnarsdóttir.
Börn Sigurjóns frá fyrra hjóna-
bandi eru Sara, f. 27.8. 1987,
Sindri, f. 4.2. 1989, og Sölvi, f.
15.4. 1994. Móðir þeirra er Berg-
lind Valdimarsdóttir, þau Sigur-
jón slitu samvistum.
Ásgeir lauk prófi frá Gagn-
fræðaskóla Austurbæjar í
Reykjavík 1937, sveinsprófi í vél-
virkjun frá Iðnskólanum í
Reykjavík 1946 og síðan vél-
stjóraprófi frá Vélskóla Íslands
1948 og úr rafmagnsdeild ári síð-
ar frá sama skóla. Hann hóf að
starfa hjá Eimskipafélagi Íslands
sumarið 1947 og starfaði þar
sem vélstjóri og síðan sem yfir-
vélstjóri í yfir 40 ár eða þar til
hann lét af störfum vegna aldurs
í árslok 1988. Ásgeir var mjög
virkur í Oddfellowreglunni í um
40 ár. Hann var sæmdur heiðurs-
merki Sjómannadagsins árið
1998.
Útför Ásgeirs fer fram frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
ólfsson, húsasmiður
og útgerðarmaður í
Vestmannaeyjum, f.
að Króki í Gaul-
verjabæjarhreppi
27.3. 1896, d. 13.4.
1975, og Þórunn
Friðriksdóttir hús-
freyja, f. á Rauð-
hálsi í Dyrhóla-
hreppi í V-Skafta-
fellssýslu 28.4. 1901,
d. 13.7. 1972. Börn
Ásgeirs og Þór-
unnar eru: 1) Inga,
f. 14.11. 1948, maki
Sæmundur S. Gunnarsson. Börn
Ingu eru: a) Jón Ellert Tryggva-
son, f. 29.7. 1967. Inga og
Tryggvi S. Jónsson slitu sam-
vistum. Tvíburarnir b) Ásgeir
Þór og c) Arnar Þór Björgvins-
synir, f. 24.5. 1974. Inga og
Björgvin E. Arngrímsson slitu
samvistum. Maki Ásgeirs Þórs er
Svana Emilía Kristinsdóttir, börn
þeirra eru Pétur Breki og
Emelía Rán. Maki Arnars Þórs
Það er ótrúlegt að þurfa að setj-
ast niður og kveðja afa sinn, mann
sem er búinn að vera klettur í lífi
manns í rúmlega 40 ár. Mín fyrsta
minning um hann er þegar hann
var að koma af sjónum, og stendur
mér í fersku minni þegar ég fékk
mína fyrstu rúskinnsskó, en það
var svo flott að fá skó frá útlöndum
því að það var alltaf sleikibrjóst-
sykur í skónum, sem var reyndar
aðalatriðið á þessum aldri. Þetta
lýsti honum vel. Alltaf vorum við
bræðurnir með eitthvað nýtt frá
útlöndum, fyrstir með dósagosið,
framandi leikföng og alltaf kom afi
með eitthvað nýtt fyrir okkur.
Maður bað hann um að finna plöt-
ur með músík sem hann hafði eng-
an skilning á þegar maður var á
unglingsárunum og varði hann
miklu af sínum stutta tíma sem
hann hafði í landi að leita að ein-
hverju fyrir okkur strákana. Síðan
voru ógleymanlegar ferðir sem við
fórum með honum, fyrst til USA,
síðan til Evrópu. Það var alltaf
stutt í hláturinn hjá afa og var
hann óþreytandi að sýna manni
eitthvað nýtt í hverju landi þó að
stoppin styttust þegar leið á
starfsaldurinn og með tilkomu
gámaskipanna, en hann gat líka
verið ákveðinn og gat látið mann
heyra það þegar maður gerði eitt-
hvað af sér eða honum mislíkaði
eitthvað og þá heyrðist það líka
vel. Þegar hann hætti á sjónum var
maður í miklu meira sambandi og
umgekkst afa mikið meira, maður
vandi komur sínar á Rauðalækinn
og gat gleymt sér að spjalla við
ömmu og afa því hann var hafsjór
af fróðleik og sér í lagi ættfræði.
Gátu matartímarnir hjá manni
lengst mikið enda voru þau miklir
vinir og gátu skipst á skoðunum og
voru ekki sammála um allt hjónin
og gat maður stundum haft gaman
af. Ekki gleymdist fótboltinn og
hafði afi ákveðnar skoðanir á bolt-
anum, hann var ávallt með úrslit
okkar Fylkismanna á hreinu og
voru það stundum erfið spor að
þurfa að hitta hann eftir að Fylkir
náði ekki hagstæðum úrslitum.
Í dag kveðjum við góðan mann
og góðan vin, en minningin um
hann mun lifa í hjarta okkar um
ókomna tíð.
Jón Ellert Tryggvason.
Móðurbróðir minn, Ásgeir Sig-
urjónsson, hefur kvatt þennan
heim.
Hugurinn leitar ósjálfrátt til
baka þegar ég, 14 ára gömul, lagði
af stað í leit að fólkinu mínu. Eftir
að hafa ýtt nokkrum ljónum úr
veginum var mér beint upp í Hlíð-
ar. Þar fann ég Ósk Sigurjóns-
dóttur, sem síðan kynnti mig fyrir
fjölskyldunni allri. Það var mikið
ævintýri að eignast allt í einu hóp
af frænkum og frændum, enda
sótti ég mikið til þeirra. Aldrei get
ég nógsamlega þakkað þeim
hvernig þau tóku mér í þessari æv-
intýraför minni. Ásgeir sá ég
sjaldnar á þessum tíma, hann var í
siglingum. En eftir að hann lét af
störfum styrktust tengslin milli
okkar verulega og við höfðum oft
samband.
Frændi minn var einstakur mað-
ur. Réttlætiskenndin var rík, hann
mátti ekkert aumt sjá og illa féll
honum ef haft var rangt við. Hann
bar mikla umhyggju fyrir náung-
anum eins og umsagnir þeirra sem
sigldu með honum bera með sér.
Einlægur áhugi hans á mér og fjöl-
skyldu minni snerti mig djúpt.
Hann vildi fylgjast með fólkinu
mínu, bæði hérna heima og í Am-
eríku. Tengslin milli hans og móð-
ur minnar voru sterk, eins og á
milli systkinanna allra. Hann
reyndi að heimsækja hana á ferð-
um sínum, hitta börnin hennar og
vita hvað þau hefðu fyrir stafni og
hvernig þeim vegnaði.
Ómetanleg eru þau skipti sem
hann og Þórunn komu ásamt Ingu
til mín að Hamri. Hann var
spenntur fyrir kaupunum á jörð-
inni, spenntur fyrir breytingunum
sem áttu sér stað á húsinu, en
vegna veikindanna komst hann því
miður ekki til að sjá það fullbúið.
Borgarfjörðurinn skipar auðvitað
sérstakan sess í huga fjölskyldunn-
ar allrar. Þar liggja ræturnar.
Það var mikil sorg hjá móður
minni að komast ekki heim til Ís-
lands til að geta kvatt bróður sinn,
en vegna heilsubrests var það
ógerlegt. Hún og systkini mín
senda fjölskyldunni sínar dýpstu
samúðarkveðjur. Oncle Geiri var
þeim jafn kær og mér.
Elsku Þórunn, Inga, Ásgeir, Sig-
urjón og fjölskyldur. Við Jóhannes
sendum ykkur okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu Ásgeirs
Sigurjónssonar
Anna Hallgrímsdóttir.
Enda þótt eiginkonur okkar Ás-
geirs séu náfrænkur var samgang-
urinn á milli heimilanna ekki ýkja
mikill fyrr en við fluttum úr Mið-
stræti og inn á Rauðalæk fyrir 12
árum, í næsta nágrenni við þau
Þórunni og Ásgeir.
Við nánari kynni kom brátt í ljós
hvílíkan öðlingsmann Ásgeir hafði
að geyma. Það er ekki ofmælt að
hann hafi ekki aðeins verið sögu-
maður góður heldur líka hafsjór af
fróðleik um menn og málefni og
það sem meira var takmarkaðist
hann ekki eingöngu við nútímann
heldur náði hann líka langt aftur í
tímann eða fortíðina. Ásgeir var í
einu orði sagt lygilega margfróður
um gamla, góða og miður góða
Reykvíkinga.
Mér aðkomumanninum, sem
settist ekki að í höfuðborginni fyrr
en um þrítugt, þótti það hrein un-
un að hlýða á Ásgeir þegar hann
var virkilega í essinu sínu. Það er
áreiðanlega ekki fjarri sanni að
hann hafi gengið með sagnfræðing
í maganum, enda minnið óvenju-
lega trútt og nákvæmt. Í beinu
framhaldi af þessu er rétt að geta
þess að fyrir utan að vera marg-
fróður maður var Ásgeir líka sér-
lega greiðvikinn.
Þar sem þær frænkurnar, eig-
inkonur okkar, eiga það á stundum
til að vera bæði býsna ákveðnar og
ráðríkar þá vorum við Ásgeir einu
sinni farnir að bollaleggja meira í
gamni en alvöru að stofna félag
kúgaðra eiginmanna, en ekkert
varð úr framkvæmdum, enda var
þetta allt saman í nösunum á okk-
ur. Við vissum líka í hjarta okkar
að við hefðum verið einstaklega
heppnir í makavali.
Til marks um hversu miklir kær-
leikar voru með okkur þá sakar
ekki að geta þess að konan mín,
Andrea, kallaði Ásgeir alltaf mág
sinn.
Við sendum Þórunni og öllum
nánustu ættingjum okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Andrea Oddsteinsdóttir og
Halldór Þorsteinsson,
skólastjóri Málaskóla
Halldórs.
Hann Ásgeir Sigurjónsson, vinur
og velgjörðarmaður minn, er lát-
inn. Ásgeir var kvæntur Þórunni,
systur hans pabba míns, en hún er
og hefur alltaf verið sterkur tengi-
liður föðurfjölskyldu minnar úr
Vestmannaeyjum. Ég minnist Ás-
geirs fyrst þegar ég sat hjá afa
mínum Ingvari í Birtingarholti og
hann sýndi mér mynd af Ásgeiri í
einkennisbúningi Eimskips, þar
sem hann var vélstjóri. Þeir voru
miklir mátar og síðar þegar ég var
orðinn stýrimaður hjá Eimskip
sagði afi við mig: „Mig vantar
mynd af þér í búningnum til að
setja við hliðina á Ásgeiri,“ sem
mér þótti mjög vænt um. Eftir að
ég og móðir mín fluttumst til
Reykjavíkur frá Eyjum komum við
oft í Miðtúnið til Þórunnar og Ás-
geirs, en þangað var mjög gott að
koma. Þar bjuggu einnig Inga
dóttir þeirra, Hafsteinn bróðir
pabba og Ragnheiður kona hans,
en þau voru mér öll mjög kær. Ás-
geir var mér innan handar þegar
ég fékk vinnu hjá Eimskip, sem
var ekki mjög auðvelt á þeim tíma
og síðar urðum við samskipa á
Skógafossi þar sem við áttum mjög
góðan tíma saman og urðum við
enn meiri mátar. Ásgeir var mjög
fróðleiksfús maður og hafði sterk-
ar skoðanir á málum hvort sem
það voru þjóðmál, félagsmál eða
önnur mál. Hann setti sig ætíð
mjög vel inn í hlutina áður en hann
kom með sínar skoðanir. Kæri vin-
ur, um leið og ég kveð þig bið ég
góðan Guð um að styrkja ykkur,
elsku Þórunn, Inga, Ásgeir, Sig-
urjón og fjölskyldur ykkar og
þakka ykkur fyrir vináttu til mín
og fjölskyldu minnar.
Ingvar Friðriksson,
Erla Fríður Sigurðardóttir.
Ásgeir Sigurjónsson
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, systir og frænka,
MARGRÉT ÁMUNDADÓTTIR,
húsfreyja, Minna-Núpi,
sem lést 22. nóvember, verður jarðsungin frá
Stóra-Núpskirkju laugardaginn 8. desember
kl. 13:30.
Kristján Helgi Guðmundsson,
Ámundi Kristjánsson,
Guðbjörg Ámundadóttir,
Herdís og fjölskylda,
Guðrún og fjölskylda.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
KATRÍN I. ARNDAL
hjúkrunarkona,
Hlíf 1,
áður Engjavegi 19,
Ísafirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsi Ísafjarðar fimmtudaginn
29. nóvember.
Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju föstudaginn
7. desember kl. 13:00.
Helgi Júlíusson,
Sigríður K. Júlíusdóttir, Albert Ó. Geirsson,
Gunnhildur Elíasdóttir,
Kristín Júlíusdóttir, Hrólfur Ólafsson,
Haraldur Júlíusson, Ingibjörg Einarsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
BIRGIR GUÐLAUGSSON
byggingameistari,
Hlíðarvegi 43,
Siglufirði,
verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju laugardag-
inn 8. desember kl. 14.00.
Erla Svanbergsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
DÓRA GUÐLAUGSDÓTTIR,
Heiðarvegi 9,
Vestmannaeyjum,
er andaðist mánudaginn 26. nóvember, verður
jarðsungin frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 8. desember kl. 14.00.
Bjarni Sighvatsson,
Sigurlaug Bjarnadóttir, Páll Sveinsson,
Guðmunda Áslaug Bjarnadóttir, Viðar Elíasson,
Sighvatur Bjarnason, Ragnhildur S. Gottskálksdóttir,
Ingibjörg Rannveig Bjarnadóttir, Halldór Arnarsson,
Hinrik Örn Bjarnason, Anna Jónína Sævarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
GUÐMUNDUR JÓNSSON,
Ketilsstöðum,
Dalasýslu,
lést á sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 21.
nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Fyrir hönd barna okkar og fjölskyldna þeirra,
Þórdís Oddsdóttir.