Morgunblaðið - 07.12.2007, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LJÓS friðarsúlu Yoko Ono í Viðey
verður slökkt á miðnætti á laug-
ardagskvöldið en þá lýkur tveggja
mánaða tímabili sem ljósið verður
látið loga ár hvert, þ.e. frá fæðing-
ardegi Johns Lennon 9. október til
og með dánardegi hans 8. desember.
Fjölbreytt dagskrá verður í eyjunni
á laugardaginn sem hefst kl 14 með
listsmiðju í Viðeyjarnausti. Frið-
arsúlan hefur vakið mikla athygli
víða um heim, að sögn Örvars Ei-
ríkssonar hjá Höfuðborgarstofu.
„Við höfum fundið fyrir miklum
áhuga og það hefur verið mikil um-
fjöllun af ýmsum toga um verkið. Þá
má nefna að talsvert hefur verið um
að farnar hafa verið hópferðir með
skólabörn út í Viðey og að verkinu á
kvöldin.“ Verkið sé að verða eitt af
helstu kennileitum borgarinnar.
Slökkt á
friðarljósi
ÖKUMAÐURINN sem huldi núm-
eraplötur bifreiðar sinnar og sýndi
löngutöng þegar hraðaljósmyndavél
stóð hann að verki við hraðakstur í
Reykjavík fyrir skömmu er væntan-
legur í skýrslutöku í dag. Mynd af
brotinu birtist í vefmiðlum og í sjón-
varpi í gær og um kvöldið ákvað hann
að hringja í lögreglu og viðurkenna
brotið.
Að sögn lögreglu er talið öruggt að
maðurinn sem hringdi sé sá sem sást
á myndinni aka umræddum bíl 23
kílómetrum yfir hámarkshraða um
gatnamót Sæbrautar og Langholts-
vegar 27. nóvember síðastliðinn.
Sagðist mæta
á stöðina í dag
FAGNAÐAREFNI er að stjórnvöld
skuli vera tilbúin að ráðstafa miklum
fjármunum til að bæta hag aldraðra
og öryrkja, en for-
gangsröðunin er
röng, segir Gylfi
Arnbjörnsson,
framkvæmda-
stjóri Alþýðusam-
bands Íslands.
Hann gerir alvar-
lega athugasemd
við að í yfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar
skuli koma fram
að víðtækt sam-
ráð hafi verið haft við ASÍ.
„Það hafa verið lagðar fyrir ráð-
gjafarnefndina ýmsar hugmyndir og
það hafa verið mjög skiptar skoðanir,
allt að því deilur, um einstaka liði. Al-
varlegast er að ríkisstjórnin, í því
sem á að heita að draga úr tekjuteng-
ingum í almannatryggingakerfinu, er
að kynna til leiks nýjan bótaflokk
sem á að vera með 100% tekjuteng-
ingu við greiðslur úr lífeyrissjóðum,“
segir Gylfi og á þar við að ellilífeyr-
isþegum á að tryggja að lágmarki 25
þúsund krónur á mánuði frá lífeyr-
issjóði. „Þessi meinti 25 þúsund kall á
að tekjutengjast krónu á móti krónu,
þannig að ef fólk á eitthvað í lífeyr-
issjóði þá skerðist hann um sömu
fjárhæð.“
Röng for-
gangsröðun
ríkisstjórnar
Gylfi
Arnbjörnsson
♦♦♦
♦♦♦
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
EXISTA er ekki gamalt félag og
aðeins er rúmt ár síðan það var
skráð í Kauphöll Íslands. Exista
var stofnað árið 2001 af hópi spari-
sjóða. Félagið varð á því ári
stærsti hluthafinn í Kaupþingi. Í
árslok 2002 urðu Bakkabræður
stærstu eigendur í félaginu og í
framhaldinu varð Exista stærsti
hluthafinn í Bakkavör. Í ársbyrjun
2005 keypti Exista 19,6% hlut í
tryggingafélaginu VÍS. Exista var
leiðandi í hópi fjárfesta sem átti
hæsta tilboðið í Símann þegar rík-
ið seldi hlut sinn í fyrirtækinu á
fyrrihluta árs 2005. Um mitt síð-
asta ár keypti Exista síðan nær
allt hlutaféð í VÍS.
Exista var skráð í Kauphöll Ís-
lands 15. september sl. Félagið
var þá næst stærsta félagið í
Kauphöllinni miðað við eigið fé, en
eigið fé þess var 143 milljarðar
króna miðað við hálfsársuppgjör
þann 30. júní 2006. Heildareignir
námu þá 311 milljörðum. Sam-
kvæmt níu mánaða uppgjöri þessa
árs var eigið fé félagsins komið í
237 milljarða og heildareignir
námu 746 milljörðum. Vöxtur fé-
lagsins hefur því verið hraður.
Tekjur bæði af
rekstri og fjárfestingum
Viðskiptahugmynd stjórnenda Ex-
istu byggist á því að blanda saman
tryggingastarfsemi, eignaleigu og
eignastýringu. Tekjur félagsins
koma þannig bæði af rekstri og
fjárfestingum. Félagið er því ekki
byggt upp með sama hætti og FL
Group sem til skamms tíma hafði
allar tekjur sínar af fjárfestinga-
starfsemi.
Lýður og Ágúst Guðmunds-
synir, stærstu hluthafarnir í Ex-
istu, sögðu í viðtali við Morg-
unblaðið um það leyti sem félagið
var skráð á hlutabréfamarkaði að
það viðskiptamódel sem Exista
hefði valið sér væri ekki óþekkt.
Besta dæmið væri ef til vill fjár-
festingarfélagið Berkshire Hat-
haway en þar ræður ríkjum Warr-
en Buffett sem oft hefur verið
talinn annar ríkasti maður heims.
Greiningardeild Landsbankans
sagði þegar Exista var skráð að
viðskiptahugmynd Existu væri
áhugaverð. „Traust sjóðsstreymi
rekstrarins og bótasjóðir trygg-
ingafélaganna gera Exista að
óvenjulegu fyrirtæki á sviði fjár-
málaþjónustu, að minnsta kosti
meðal skráðra félaga hér á landi,“
sagði í skýrslu frá greiningadeild
bankans.
Gengið fór hratt
upp og hratt niður
Upphafsgengi Exista í september í
fyrra var 23,2. Gengið breyttist lít-
ið fyrstu mánuðina, en fór þó held-
ur niður á við. Um áramót fóru
hlutabréf hér á landi að hækka í
verði og það sama gerðist með bréf
Exista. Frá áramótum og fram í
miðjan júlí hækkaði verðmæti
hlutabréfanna um 80%. Þessi
hækkun hefur hins vegar nánast
öll horfið á þeim tæplega fimm
mánuðum sem síðan hafa liðið.
Gengið er núna komið niður fyrir
skráningargengið í fyrra.
Hagnaður Exista á síðasta ári
nam 37,4 milljörðum króna. Fjár-
festingastarfsemin skilaði 23,5
milljörðum í hagnað og reksturinn,
aðallega af tryggingastarfsemi,
skilaði 13,9 milljörðum í hagnað.
Hagnaður Exista á fyrstu níu
mánuðum þessa árs nam 76 millj-
örðum. Rekstrarstarfsemin skilaði
16 milljörðum í hagnað en hagn-
aður af fjárfestingastarfsemi var
60 milljarðar. Eiginfjárhlutfall fé-
lagsins var komið niður í 32,1%.
Afkoma Existu á þriðja ársfjórð-
ungi var talsvert betri en greining-
ardeildir bankanna höfðu búist við.
Þær spáðu 9,7-11,2 milljarða króna
tapi á rekstri félagsins á þriðja
fjórðungi. Þess í stað hagnaðist fé-
lagið um 676 milljónir króna.
Skýringin á þessum mun var
m.a. sú að félagið uppfærði virði á
óskráðum eignum um 5,6 milljarða
króna. Á kynningarfundi félagsins
kom fram að um væri að ræða fjár-
festingu sem Exista réðst í í A-
Evrópu fyrir um 19 mánuðum, í fé-
lagi við alþjóðlega fjárfesting-
arbankann Lehman Brothers.
Stjórnendur félagsins sögðust
„vegna samkeppnisástæðna“ ekki
geta gefið frekari upplýsingar um
þetta óskráða félag.
Í Morgunkorni Glitnis sagði, eft-
ir að uppgjörið lá fyrir, að athygl-
isvert væri að ekki væru gefnar
frekari upplýsingar um áhrifa-
mesta liðinn í uppgjörinu.
Bakkabræður
með stærstan hlut
Bakkabræður eru langstærstu eig-
endur í Existu með 45% hlut.
Sparisjóðirnir eru einnig með mjög
stóra hluti í félaginu. Sparisjóð-
irnir eiga bæði beinan hlut í félag-
inu og hlut í gegnum fjárfestinga-
félagið Kistu. Þá á
eignarhaldsfélag Samvinnutrygg-
inga nokkuð stóran hlut í Exista.
Þriðji stærsti hluthafinn er Castel,
en það félag er í eigu Roberts
Tchenguiz og fjölskyldu. Enn-
fremur eiga stærstu lífeyrissjóðir
landsins í félaginu.
80% hækkun á gengi hluta-
bréfa Existu gengin til baka
!"
# $%&!
%
' $() (
$* &) (+ ,-
% ./
0
' )
0 +)
!+) (
' $
' %(
!+) 1 /
$*
+ (+
2
3$45
6
$ +)
*7
(""" ) "
*& " , -"+ . +
/) " " 0 - $
1
2
0
$
3
1
2
0
$
3
12#8
#318
2#38
1#8
#28
#8
#18
#38
#38
#8
#$8
#08
#28
#138
#18
#38
#018
#218
#18
#128
3#8
#08
#8
Morgunblaðið/Kristinn
Exista Viðskiptalíkan félagsins tekur mið af Berkshire Hathaway, félagi
fjárfestisins goðsagnakennda Warren Buffett, eins auðugustu mann heims.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
MARKAÐSVIRÐI skráðra
eigna fjármálaþjónustufyrirtækis-
ins Existu hefur lækkað um rúm-
lega 32 milljarða króna það sem af
er þessu ári. Munar þar mestu um
síðari hluta ársins, enda hefur fjár-
málakreppa sú sem hófst í júlí
leikið fjármálafyrirtæki víða um
heim ansi grátt – eins og hremm-
ingar þær er FL Group hefur
gengið í gegnum að undanförnu
eru gott dæmi um. Taka ber fram
að við útreikninga þessa er miðað
við gengi erlendra gjaldmiðla í
gær og þannig litið framhjá geng-
issveiflum enda má ætla að félagið
hafi varið sig fyrir slíkum sveifl-
um.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
töflu er það stærsta eign félagsins,
fimmtungshlutur í finnska trygg-
ingafélaginu Sampo, sem hefur
mest áhrif til rýrnunar markaðs-
virðis eigna Existu en við lokun
kauphallarinnar í Helsinki í fyrra-
dag (frídagur var í Finnlandi í
gær) var gengi félagsins 19,53 evr-
ur á hlut. Markaðsvirði hlutarins
er því um 202,5 milljarðar króna.
Þegar Exista jók hlut sinn í
finnska félaginu í 20% snemma í
ágúst var markaðsvirði hlutarins
um 229 milljarðar króna og hefur
markaðsvirði hlutarins því rýrnað
um 26,5 milljarða króna síðan í
ágúst en hagstæð gengisþróun
Sampo fyrr á árinu vegur á móti
þegar litið er til ársins í heild.
Taka ber fram að þessi lækkun
hefur ekki áhrif á afkomu Existu
þar sem hluturinn í Sampo er
færður til bókar með hlutdeildar-
aðferð en ekki gangvirðisaðferð,
þ.e. Exista reiknar sér hlutdeild í
afkomu Sampo í stað þess að láta
markaðsvirði þess ráða afkomunni
af eigninni hverju sinni, líkt og FL
Group gerði. Hið sama gildir um
hlut Existu í Kaupþingi, þ.e. hann
er færður með hlutdeildaraðferð,
og því hafa sveiflur í markaðsvirði
bankans ekki heldur áhrif á af-
komu Existu.
V/I-hlutfall of hátt
Þegar litið er framhjá þessum
tveimur langstærstu eignum Ex-
istu má berlega sjá að afkomuáhrif
fjármálakreppu undanfarinna
mánaða eru ekki jafnslæm og talan
sem nefnd er hér í upphafi gefur
til kynna. Aðrar skráðar eignir eru
hins vegar færðar til bókar með
gangvirðisaðferð og nemur rýrnun
markaðsvirðis þeirra á árinu ríf-
lega 13 milljörðum króna sem er
óinnleyst gengistap ársins hingað
til. Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu að undanförnu hef-
ur gengi Exista lækkað umtalsvert
að undanförnu, það sem af er viku
hefur markaðsvirði félagsins rýrn-
að um tæplega 35 milljarða króna,
og er félagið ásamt FL Group í
sérflokki meðal úrvalsvísitölu hvað
gengislækkun varðar á síðari hluta
ársins. Athygli vekur að gengi fé-
laganna skuli fylgjast jafn mikið
að og raun ber vitni, enda munur á
þeim. Ástæðu þess er að sögn við-
mælenda Morgunblaðsins helst að
finna í því að fjárfestar líta al-
mennt ekki til þess hvernig félög
bókfæra eignir sínar heldur líta
þeir fyrst og fremst á verð und-
irliggjandi eigna og mælikvarða á
borð við V/I-hlutfall, sem sýnir
hversu dýrt félagið er, miðað við
innra virði þess.
Þar er meðal annars komin
skýringin á því hvers vegna gengi
Existu hefur lækkað jafn mikið og
raun ber vitni að undanförnu.
Markaðsvirði undirliggjandi eigna
félagsins hefur hríðlækkað, eins og
áður segir, og V/I-hlutfall þess var
einfaldlega of hátt að mati viðmæl-
enda Morgunblaðsins sem þrátt
fyrir allt segja Existu gott og öfl-
ugt félag.
Virði eigna Existu hefur
lækkað um 32 milljarða
$*
$
66 $*
/ (9
*7
2
/
4$ $$$#2
4 020#
40 0#
40 103#$
41 1#$
4 3#
412#3
42 21#$
!"#$
8
#28
1#28
3#08
8
8
,"- -
.
5 6& 7 &
+8 89"
+
( + #
10$#
#
2 #2
13 31#
12 1#1
03#$
6& 7 &
68& . +
7 & 6" 6& : )#
0 - $
;9 6
;9 6
;9 6
;9 6
;9 6
;9 6
;9 6
;9 6
;9 6
;9 6
;9 6
;9 6
;9 6
;9 6
%&