Morgunblaðið - 07.12.2007, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
● TÍÐINDIN af mati Fitch Ratings á
NIBC og Kaupþingi eru talin hafa haft
áhrif til lækkunar á hlutabréf í kaup-
höll OMX í gær. Úrvalsvísitalan end-
aði í 6.380,8 stigum, lækkaði um
1,99%, og hefur ekki verið lægri í ár.
Mest var lækkun á bréfum 365 eða
7%, bréf FL Group lækkuðu um
4,3%, Teymi um 2,96%, Kaupþing
um 2,7%, Exista um 2,6% og Föroya
Banki um 2%. Viðskipti með hluta-
bréf námu alls 19,2 milljörðum
króna. Mest hækkun varð á bréfum
Eik banka, eða 1,89%, og bréf Mar-
els hækkuðu um 1,45%. Krónan
styrktist í gær um 0,13%. Dollar er
nú á 61,86 krónur, pundið 125,28
krónur og evran 90,4 krónur.
Lægsta gildi ársins
● HEIMSMARKAÐSVERÐ á hveiti hef-
ur rokið upp um 60% á árinu og hefur
ekki verið hærra í 22 ár. Það hefur
haft víðtæk áhrif
til verðhækkunar
á matvælamark-
aði, ekki síst á
brauði og pasta.
Ítalir eru ekki
par ánægðir með
þessa þróun enda
eru þeir sú þjóð
sem neytir pasta í
hvað mestum
mæli. Þar í landi eru seldir tugir pasta-
tegunda í mörgum litum og ýmiss
konar lögun. Misjafnt er hversu mikið
pastategundirnar hafa hækkað í
verði, til dæmis hefur spaghetti
hækkað um 27% en að meðaltali
nemur verðhækkunin á pasta 20%.
Ítalir hafa gripið til ýmissa aðgerða til
að sporna við hækkuninni og m.a. var
boðað til verkfalls þar sem mælst var
til þess að fólk keypti ekkert pasta – í
einn dag. Það mun hafa gengið vel.
Pastaverkfall á Ítalíu
● GREININGARDEILD Morgan Stan-
ley hefur samkvæmt fréttum á vefj-
um Bloomberg og Dagens Industri
lækkað verðmat sitt á hlutabréfum í
Kaupþingi. Var matið lækkað úr 100
krónum sænskum í 92 krónur, eða
um 892 krónur íslenskar. Til sam-
anburðar má geta þess að lokagengi
bréfa Kaupþings í kauphöllinni hér á
landi var 857 krónur í lok dags í gær.
Gengi bréfanna í sænsku kauphöll-
inni var 89,50 krónur sænskar í lok
viðskipta í Stokkhólmi í gær.
Morgan Stanley lækk-
ar mat á Kaupþingi
á að verðið sé hugsanlega of hátt
miðað við markaðsaðstæður nú.
Þá er rakið að afkoma Keops og
Stoða, áður en þau urðu að hluti af
Landic Property, hafi ekki verið til
að hrópa húrra fyrir. Keops hafi
rétt sloppið í plús í hálfsársupp-
gjörinu (sem lauk 1. apríl) vegna
uppfærslu á verðmæti fasteigna og
Stoðir hafi eingöngu náð að sýna
hagnað á fyrri helmingi ársins
vegna fjármagnstekna en grunn-
reksturinn sjálfur hafi hins vegar
ekki staðið undir fjármagnsgjöld-
um félagsins.
„Óvissa um verðmæti
fasteigna FL Group“
Morgunblaðið/Golli
Í hámarki Margir spá því að verð á atvinnuhúsnæði í Kaupmannahöfn
kunni að fara lækkandi samfara minnkandi hagvexti og hækkandi vöxtum.
SÉRFRÆÐINGAR á danska fast-
eignamarkaðinum og í fjármálalíf-
inu í London eru efins um þá að-
gerð sem Baugur Group fór í til
þess að hlaupa undir bagga með
FL Group vegna fjárhagsvand-
ræða félagsins, þ.e. að flytja fast-
eignasafn Baugs yfir í FL Group
og fá á móti aukinn hlut í félaginu.
Þetta kemur fram í fréttaskýr-
ingu Børsen í gær undir fyrirsögn-
inni „Óvissa um verðmæti fast-
eigna FL Group“ og danskar
fasteignir vegi töluvert þungt í
safninu í gegnum Atlas Ejen-
domme, sem Stoðir keyptu um
áramótin 2005-2006. Þá sé auk
þess að finna í fasteignasafninu
frægar eignir í hjarta Kaupmanna-
hafnar eins og Illum og Magasin
du Nord.
Hætta á verðlækkun
Vitnað er til þess að það sé mat
margra sérfræðinga að verð á
verslunar- og skrifstofuhúsnæði í
Danmörku hafi náð hámarki og út-
lit sé fyrir að það muni lækka í
takt við væntingar um minnkandi
arðsemi vegna hækkandi vaxta og
fjármagnskostnaðar.
„Það er alveg ótrúlegt að FL
Group reyni að kynna þetta sem
jákvæð frétt [kaup fasteignasafns-
ins af Baugur Group]. Við höfum
vitað í 3-4 vikur að ástandið [hjá Fl
Group] var alvarlegt. Nú hefur Jón
Ásgeir Jóhannesson farið í hrein
skiptaviðskipti með eigin fyrirtæki.
Fyrir mér þetta alger skammtíma-
lausn og hún mun væntanlega hafa
áhrif á fyrirhugaða hlutafjáraukn-
ingu [FL Group] á næsta ári. Við
erum að minnsta kosti undir það
búnir að geta keypt eignir á góðu
verði,“ hefur Børsen eftir heimild-
armanni í fjármálageiranum í
London.
Afkoman ekki góð
Blaðið bendir á að allt sé á huldu
um það við hvaða verði fasteign-
irnar renni inn í FL Group og seg-
ir marga heimildamenn í fasteigna-
geiranum í Kaupmannahöfn benda
SKRÁNING hlutabréfa íslenskra
hlutafélaga í evrum mun ekki hefj-
ast fyrr en í fyrsta lagi um mitt
næsta ár, að því er segir í tilkynn-
ingu frá Verðbréfaskráningu Ís-
lands.
Fyrirhugað var að skráning
hlutabréfa í evrum gæti hafist í
september síðastliðnum en því var
frestað fram í nóvember vegna
vinnu við endurskoðun á skráning-
arferlum hjá Verðbréfaskráningu
Íslands. Var það í kjölfar athuga-
semda Seðlabankans. Að sögn Ein-
ars Sigurjónssonar, framkvæmda-
stjóra Verðbréfaskráningar, gekk
bráðabirgðalausn við uppgjör á evr-
um, sem unnið var að í samstarfi
við Deutsche Bank, ekki eftir og
væntanlega verður endanleg lausn
unnin með Seðlabanka Finnlands.
Leitað verði eftir millibilslausn af
hendi Finnanna en óvíst sé hvort af
því verði. Vonast er til að endanleg
lausn verði tilbúin um mitt næsta
ár en mun liggja fyrir um áramót.
Nauðsynlegt er talið að fá erlendan
banka á evrusvæðinu til samstarfs.
Straumur tilkynnti í september
að hlutabréf félagsins yrðu skráð í
evrum í sama mánuði. Slík skrán-
ing var sögð liður í þeirri stefnu
Straums að auka hlutfall erlendra
fjárfesta í bankanum. Nokkrum
dögum áður en skráning átti að
fara fram bárust hins vegar fyrr-
nefndar athugasemdir frá Seðla-
bankanum.
„Við vonuðumst auðvitað til þess
að Verðbréfaskráningin myndi
leysa þetta á þessu ári. Nú er ljóst
að það gengur ekki upp,“ segir Jó-
hanna Vigdís Guðmundsdóttir, for-
stöðumaður samskiptaviðs
Straums.
Um hvort Straumur muni þá
bíða fram á mitt næsta ár með
skráninguna segir hún: „Við mun-
um leita leiða til að skrá hlutabréf
okkar í evrum eins fljótt og hægt
er.“
Jóhanna segir þó ekki liggja fyrir
hvort skráningin muni fara fram
erlendis.
Engin evruskráning í bili
Deutsche Bank ekki reiðubúinn til samstarfs um skráningu
ALÞJÓÐLEGA matsfyrirtækið
Fitch Ratings hefur lækkað láns-
hæfiseinkunnir hollenska bankans
NIBC, sem Kaupþing keypti í ágúst.
Einkunn NIBC fyrir lang-
tímaskuldir lækkar úr A í A- með
stöðugum horfum – þær voru nei-
kvæðar – og einkunnir fyrir
skammtímaskuldir og víkjandi lán
voru sömuleiðis lækkaðar um eitt
stig. Hins vegar staðfesti Fitch
óháða einkunn eða einkunn fyrir
fjárhagslegan styrk NIBC. Á sama
tíma staðfesti Fitch lánshæf-
iseinkunnir Kaupþings banka en
breytti horfum vegna lang-
tímaskulda úr stöðugum í neikvæð-
ar. Þar sem einkunnir dótturbanka
geta ekki verið hærri en einkunnir
móðurbanka var horfum vegna
langtímaskulda Kaupthing Singer
& Friedlander í Bretlandi breytt til
samræmis eða úr stöðugum í nei-
kvæðar horfur. Við tíðindin hækk-
aði strax skuldatryggingaálag
Kaupþings um 20 punkta. Í rök-
stuðningi Fitch segir m.a. að lækk-
un á NIBC sé vegna þess hversu við-
kvæmur bankinn er fyrir ástandinu
á alþjóðlegum fjármálamörkuðum
og hversu háður hann er mörk-
uðum um fjármögnun.
Fitch lækkar
einkunn NIBC
'
/
/%0,12 ( #3(
!!4
% & 6 < 7&
%!!!
&'(!
))(&
%&*&
))+!
,*,!
) &!
'&)!!
,&(!
%&*&
&+!
++)!
%++
**
%',!!!
&(!!!
%!
%'+!!
&(*
+ '!
),)!
%!,&
( !!
'&!
,( &!!
%%)!
*&!
!"
!"
!#
$
!#
#
!#$
"
" "#
!
( *
:
+ ;
* $ 45<<<<<<
.<//.=>.
4</>?@A<>=
4<.?>4@/5A4
./4<./55<>
A/==?/5<
454@<?.@//
555>.4?==
.A@/>>A<>
?=@>@>>5
>>.>==<
?.<5>A5.
4?@><A?5
4><5@4>/
4/5@<A
4A.@44@=
@..5@
@>4/><A@
A<>4<A.A@
A?A>?A<
/?5/5<<<
4<B<<
5=B4<
AAB?5
45B@<
AAB=5
?@B45
A/B5<
=5AB<<
?5B?5
45B5<
5B><
>=B/<
4B>=
@B@/
4=A.B<<
5?5B<<
4B<@
4=>B<<
5B?=
>/B=<
A?BA<
4<BA@
?.55B<<
4<B<5
5=B.<
AAB5<
45B@5
A?B<<
?@B5<
A/B@<
=@4B<<
?5B=<
45B@5
5B>.
>>B><
AB<<
@B/4
4=?<B<<
5.AB<<
4B</
4>AB<<
5B.@
>=B4<
4<B?5
./B<<
?.><B<<
4<B5<
@B5<
29
( *
?
4?
/<
5>
.=
@
4?=
5?
.<
4.
?
?=
A
?4
4
A/
A
4<
.5
?
/
C
( ( @4AA<</
@4AA<</
@4AA<</
@4AA<</
@4AA<</
54AA<</
@4AA<</
@4AA<</
@4AA<</
@4AA<</
@4AA<</
@4AA<</
@4AA<</
@4AA<</
@4AA<</
@4AA<</
?4AA<</
@4AA<</
@4AA<</
@4AA<</
4>44A<</
@4AA<</
@4AA<</
AA=A<</
@4AA<</
4544A<</
A44A<</
= : '7 7: ="
% 0 *
(9 0 *
'"
2! 0 *
0
' * 3
,- 0 *
*7
!
3
$ 2
:)
D
>" + 8 *&
?@5
%-
%- E EF2
' 2 0 *
2G )
,-- 0 *
H
IJ
$E&KI
:) 9
9
? 8 @ -
) %
0
*
KHL
KHL /
( (
%$%!&
-! .! 8
8
KHL ,
A L ()&
/ 0
.%)8
C M 6
I %,$*)!
)$ !+
.% .% 8
8
2:$'
C%L
*$(''
$+(%
-! -! 8
8
KHL B45
KHL ?.<
*$,'%
%$))'
-) .! 8
8
VÖRÐUR tryggingar hf. og Rík-
iskaup hafa undirritað samning þess
efnis að Vörður muni sjá um bruna-
tryggingar fyrir allar fasteignir rík-
isins, sem eru tæplega 2.000 talsins
um allt land. Samningurinn var gerð-
ur að undangengnu útboði en Sjóvá
var með þessar tryggingar áður. Til-
boð Varðar hljóðaði upp á rúmlega
140 milljónir króna á ári, en samning-
urinn er til þriggja ára og því er
heildarvirði hans rúmlega 400 millj-
ónir króna. Vörður er í eigu Lands-
bankans, Byrs og SP-Fjármögnunar.
Að sögn Guðmundar Jóhanns Jóns-
sonar, framkvæmdastjóra Varðar, er
þetta stærsti einstaki samningur fé-
lagsins til þessa og hefur hann mikla
þýðingu fyrir Vörð, bæði inn á við
fyrir starfsmenn og út á við í sam-
keppninni við hin félögin.
Vörður brunatryggir ríkið
Samið Guðmundur Jóhann Jónsson, framkvæmdastjóri Varðar, og Júlíus
Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa, rita undir tryggingasamninginn.
DANSKA lágfargjaldaflugfélagið
Sterling, sem er í eigu FL Group,
Fons og Sunds, hefur náð sáttum
um að greiða jafnvirði 1,2 milljóna
íslenskra króna í sekt fyrir brot á
reglum sem mæla fyrir um verð-
upplýsingar.
Sterling var kært fyrir að gefa
villandi upplýsingar á heimasíðu
sinni þar sem viðskiptavinir fengu
ekki upplýsingar um að flugvall-
arskattar og gjöld bættust ofan á
auglýst verð á farmiðum. Þetta
brýtur í bága við danskan lagabók-
staf.
Upp með vesk-
ið, Sterling!
ÓLÍKT höfðust þeir að í gær, Seðla-
banki Evrópu og Englandsbanki, í
vaxtamálum sínum. Sá fyrrnefndi
ákvað að halda stýrivöxtum sínum
óbreyttum í 4% en Englandsbanki
ákvað hins vegar að lækka vextina
úr 5,75% í 5,5%. Óvissa ríkti um
hvað bankinn myndi taka sér fyrir
hendur en bankastjórnin telur að-
stæður á fjármálamörkuðum og
teikn um samdrátt í bresku hag-
kerfi réttlæta vaxtalækkun að
þessu sinni. Ákvörðun Seðlabanka
Evrópu kom þó ekki á óvart að mati
sérfræðinga á markaði.
Bæði lækkun og
óbreyttir vextir
♦♦♦
♦♦♦
● LANDSBANKINN og Eyrir Invest
hafa framlengt eign sína í hollenska
félaginu Stork NV, móðurfélagi Stork
Food Systems, gegnum félagið Lond-
on Acquisition með 18 milljarða
króna fjárfestingu. Hlutur þeirra er
25% á móti Candover, segir í Morg-
unkorni Glitnis.
Kaupa í Stork NV