Morgunblaðið - 07.12.2007, Qupperneq 44
44 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HVAÐ ERTU MEÐ
UPPI Í ÞÉR?
ALLT Í LAGI, HVAÐ ERTU
EKKI MEÐ UPPI Í ÞÉR?
RÚSÍNUR
SJÁÐU! ÞÓ
AÐ ALLT GRAS
SÉ GRÆNT ÞÁ
ER ÞAÐ EKKI
ALLT JAFN
GRÆNT
HA HA
HA HA HA HA
HA HA
HA
HANN
ER MEIRA
AÐ SEGJA
FYNDINN
SUMIR HALDA TIL DÆMIS
AÐ GRASIÐ SÉ ALLTAF
GRÆNNA HINUM MEGINN
HOBBES? ERTU HÉRNA
NIÐRI? ÞÚ HLÝTUR AÐ
VERA EINHVERS STAÐAR!
HÉRNA ER HANN,
KALVIN! ÉG ER BÚIN AÐ
FINNA HOBBES!
ÞÚ FANNST
HANN! ER HANN
NOKKUÐ
MEIDDUR?
NEI,
HANN
VAR
UNDIR
RÚM-
TEPPINU
HOBBES,
ÞAÐ ER SVO
GOTT AÐ
SJÁ ÞIG!
NÚNA ERTU
ÖRUGGUR...
OG ÉG
LÍKA!
NÚNA ER
FJÖLSKYLDAN
HEIL AFTUR
ÆTLI
ÞAÐ EKKI
HELGA, ÞÚ ÁTT ALDREI
EFTIR AÐ GETA GISKAÐ Á
ÞAÐ HVAR ÉG HEF VERIÐ
SÍÐUSTU ÞRJÁR VIKURNAR
LÁTUM
OKKUR SJÁ...
SUÐUR ÍTALÍU,
STRÖNDUM
SPÁNAR OG
Í PARÍS
ÞÚ ERT ALVEG ÓTRÚLEG!
HVERNIG GASTU VITAÐ ÞETTA?
MATARBLETTIR
LJÚGA ALDREI
ÉG HEITI
BÚKOLLA
OG ÉG ER
GRASFÍKILL
HVERNIG
LÍÐUR ÞÉR
NÚNA ÞEGAR
KALLI ER
KOMINN Í
SUMARBÚÐIR?
MÉR
LEIÐ
BETUR
EFTIR AÐ
ÉG FÉKK AÐ
SJÁ ÞÆR
HANN Á EFTIR AÐ SKEMMTA
SÉR SVO VEL VIÐ ÞAÐ AÐ
SYNDA, LEIKA SÉR, SPILA
FÓTBOLTA OG BÚA TIL
VARÐELDA AÐ HANN Á EKKERT
EFTIR AÐ HUGSA UM OKKUR
HMM
FINNST ÞÉR LEIÐINLEGT
AÐ HANN EIGI EFTIR
GLEYMA OKKUR?
NEI, MIG LANGAR
LÍKA AÐ FARA
Í SUMARBÚÐIR
ÉG GAT EKKI RANNSAKAÐ
VALSLÖNGVUNA Í DAG ÞVÍ ÞAÐ VAR OF
MIKIÐ AF FÓLKI HÉR. EN NÚNA...
ANSANS! MYNDVERIÐ HEFUR VERIÐ LAGT Í RÚST!
dagbók|velvakandi
Þjóðverjar komi að
vörnum Íslands
ÍSLENSK stjórnvöld hafa eins og
kunnugt er tekið upp nána samvinnu
við Dani og Norðmenn í öryggis- og
varnarmálum eftir brotthvarf
bandaríska hersins frá Íslandi.
Þá eiga íslensk stjórnvöld í við-
ræðum við NATO og einstök ríki
þess um aðkomu að vörnum Íslands.
Eitt þessara ríkja er Þýskaland, sem
hefur sýnt öryggis- og varnarmálum
Íslands áhuga. – Því ber að fagna,
því ef einhver þjóð hefur sýnt Ís-
lendingum óskoraða vináttu og virð-
ingu gegnum tíðina, þá eru það ein-
mitt Þjóðverjar. Menningarleg
tengsl Íslendinga og Þjóðverja hafa
ætíð verið afar sterk. Hins vegar
hefðu hin pólitísku tengsl mátt vera
mun meiri, einkum nú og í framtíð-
inni, því Þjóðverjar gegna mörgum
lykilhlutverkum, ekki síst innan
Evrópusambandsins, þar sem Ís-
lendingar eiga mikilla hagsmuna að
gæta. – Innan NATO er Þýskaland
eitt af öflugustu ríkjum bandalags-
ins, en áður en bandaríski herinn
yfirgaf Ísland voru það þýskar her-
flugvélar sem næst komu þeim
bandarísku með millilendingar á
Keflavíkurflugvelli. – Því yrði ómet-
anlegur fengur í því, að Þjóðverjar,
okkar besta vinaþjóð, kæmu að
vörnum Íslands. Og það sem fyrst!
Höfundur er bókhaldari.
Þakklæti
ÉG á dóttur sem er öryrki vegna bíl-
slyss fyrir fjórum árum. Hún er ein-
stæð móðir með þrjá unglinga á
framfæri í leiguhúsnæði. Langar
mig að koma á framfæri þakklæti til
Ásgerðar og allra þeirra sem vinna
hjá Fjölskylduhjálp fyrir þeirra
miklu aðstoð sem hún og börnin hafa
notið alveg síðan slysið varð. Hjá
þeim hefur hún fengið mat og nauð-
synjar sem gefnar eru af fyrir-
tækjum og góðu fólki, og eiga þau
líkar sínar þakkir skildar. Þörfin fyr-
ir hjálp og aðstoð af þessu tagi er
fyrir hendi allt árið, en aldrei er hún
meiri og sárari en fyrir jólin.
Þakklát mamma og amma.
Fundarlaun
GULLARMBANDSÚR með tveim-
ur rauðum steinum tapaðist í eða við
Domus Medica eða í Kópavogi, á
Skemmuvegi eða Dalvegi. Finnandi
vinsamlega hafi samband við
Sigrúnu í síma 898 5028 – fundar-
laun.
Lýsi eftir bíllyklum –
Mosfellsbakarí, Mosfellsbæ
BÍLLYKLARNIR mínir voru tekn-
ir í misgripum við afgreiðsluborð
Mosfellsbakarís í Mosfellsbæ þann
5. desember, um klukkan átta um
morguninn. Þetta eru bíllyklar af
Ford Focus með bíllæsingu, kippan
er með klassísku sniði, svört leður-
pjatla með merki Brimborgar.
Vinsamlegast hafðu samband við
mig í síma 898 2104 eða 561 2709,
eða í gegnum tölvupóst á netfangið
soffiajo@gmail.com.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
UNGUM sem öldnum til mikillar gleði féll „jólasnjór“ í Reykjavík og ná-
grenni í fyrrinótt og var fagurt um að litast í morgunsárið, en starfsmenn
borgarinnar fóru strax að hreinsa göngustíga, þessi var í Árbæjarhverfi.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Loksins kom snjórinn á höfuðborgarsvæðinu
Úr aðventu
og jóladagskrá
Fríkirkjunnar
í Reykjavík
9.12. 14:00 Annar sunnudagur í aðventu – Barnaguðsþjónusta.
20:00 Aðventukvöld Fríkirkjunnar – ræðumaður er
Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn.
Lögreglukórinn kemur í heim sókn og syngur.
Síðan sjá Anna Sigríður Helgadóttir og Carl Möller um
tónlistarflutning af sinni alkunnu snilld.
16.12. 14:00 Þriðji sunnudagur í aðventu – Jólatrésskemmtun –
hefst í kirkjunni með stuttri helgistund en mun svo halda
áfram í safnaðarheimilinu og fjör færist í leikinn. Dansað í
hring um jólatréð og jólasveinninn kemur í heimsókn með
góðar gjafir.
17:00 Heilunarguðsþjónusta. Á vegum Sálarransóknarfélags
Íslands, Fríkirkjunnar og Kærleikssetursins.
20.00 Tónleikar til styrktar „Fjölskylduhjálpinni“.
Á vegum Kirkjukórs Lágafellssóknar og Jónasar Þóris.
Fjöldi lands frægra gesta koma fram.
Miðaverð 1.500 kr.
21.12. 21.00 Aðventuvaka Öllu, Ásu og Önnu Siggu.
23.12. 14:00 Fjórði sunnudagur í aðventu – Aðventustund.
Barn borið til skírnar. Börnum færðar gjafir.
24.12. 18:00 Aftansöngur aðfangadagskvöld.
24.12. 23:30 Miðnæturguðsþjónusta með Páli Óskari og Moniku.
25.12. 14:00 Hátíðarguðsþjónusta á jóladag.
Sjá frekar á frikirkjan.is