Morgunblaðið - 07.12.2007, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007 53
„BEOWULF ER
EINFALDLEGA
GULLFALLEG...“
ENTERTAINMENT WEEKLY
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
„RIDLEY SCOTT LEIKSTÝRIR RUSSELL CROWE OG
DENZEL WASHINGTON Í BESTU MYND ÞESSA ÁRS!“
Ó.E.
eeee
„American gangster er
vönduð og tilþrifamikil“
- S.V., MBL
eeee
,,Virkilega vönduð glæpamynd
í anda þeirra sígildu.”
- LIB, TOPP5.IS
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
„Óskarsakademían mun standa á
öndinni... toppmynd í alla staði.“
Dóri DNA - DV
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
/ AKUREYRI
BEE MOVIE kl. 6 - 8 LEYFÐ
BÝFLUGUMYNDIN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
BEOWULF kl. 10 B.i. 12 ára
SIDNEY WHITE kl. 8 - 10 LEYFÐ
/ KEFLAVÍK
BÝFLUGUMYNDIN m/ísl. tali kl. 6 - 8 LEYFÐ
HITMAN kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
BEOWOLF kl. 10 B.i. 12 ára
ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
/ SELFOSSI
BÝFLUGUMYNDIN m/ísl. tali kl. 8 LEYFÐ
DAN IN REAL LIFE kl. 8 LEYFÐ
BEOWULF kl. 10 B.i. 12 ára
EASTERN PROMISES kl. 10:10 B.i. 16 ára
Leiðinlegu
skóla stelpurnar
- sæta stelpan
og 7 lúðar!
Amanda Bynes úr She‘s The Man er
komin aftur í bráðskemmtilegri mynd
BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDI WWW.SAMBIO.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA
LAUGARD. OG SUNNUD. SÝND Í KEFLAVÍK
SÝND Á SELFOSSI
LAUGARD. OG SUNNUD.
FRÁ LEIKSTJÓRANUM
DAVID CRONEBERG
SÝND Á SELFOSSI
eeee
- S.V., MORGUNBLAÐIÐ
eeee
- T.S.K., 24 STUNDIR
eeee
- L.I.B., TOPP5.IS
SÝND Á SELFOSSI
Ve
rð a
ðeins
600 kr
.
Með
íslensku tali
SÝND Í KEFLAVÍK
LAUGARD. OG SUNNUD.
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
2 VIKUR Á TOPPNUM Á ÍSLANDI
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG held að ég hafi eitthvað til málanna að
leggja í þessum hópi og ég hlakka til að fara að
skapa eitthvað skemmtilegt að nýju,“ segir
Daníel Ágúst Haraldsson, söngvari, lagahöf-
undur og textasmiður, sem hefur ákveðið að
ganga til liðs við hljómsveitina Ný dönsk að
nýju. Daníel sagði formlega skilið við sveitina
fyrir tólf árum, en þá stofnaði hann hljómsveit-
ina Gus gus ásamt stórum hópi fólks. „Það var
aðallega vegna eigin drauma um aðra nálgun á
tónlistarsköpunina og umhverfi hennar sem ég
hætti tímabundið í Ný dönsk. Það var bara af
forvitni sem ég fór að leita að öðrum tóni og
öðrum hljóðheimi og stofnaði því Gus gus.“
Þótt Daníel hafi hætt í Ný dönsk árið 1995
hefur hann komið fram með sveitinni öðru
hvoru síðan þá, enda segir hann að sambandið
þeirra á milli hafi alltaf verið með miklum
ágætum. „Það hefur alltaf verið gott að vinna
með strákunum, og eins og í öllum góðum sam-
böndum er mikil fegurð í þessu.“
Aðspurður segir Daníel að á undanförnum
árum hafi hann oft verið spurður hvort hann
ætlaði ekki að ganga til liðs við Ný dönsk að
nýju. „Þá var ekki rétti tíminn, en nú er rétti
tíminn.“
Hvað Gus gus varðar segir Daníel að hann
muni áfram verða með annan fótinn í þeirri
sveit. „Ég mun halda áfram að starfa með
þeim. Þetta er náttúrlega allt önnur tegund
tónlistar, en það er ágætt að hafa fjölbreytni í
lífinu,“ segir hann, og bætir því við að hann
muni einnig halda áfram að syngja með
Krumma í hljómsveitinni Esju. „Einherjafer-
illinn er líka nokkuð sem mig langar að rækta,
en allt hefur sinn tíma og það verður bara að
púsla þessu rétt saman.“
„Já, endilega“
„Það væri mjög gaman að skoða þetta í
sögulegu samhengi, það hefur örugglega ekki
gerst oft að maður gangi aftur til liðs við
hljómsveit eftir tólf ára fjarveru,“ segir Jón
Ólafsson, hljómborðsleikari sveitarinnar, sem
er hæstánægður með ákvörðun Daníels. Jón
segir þetta allt saman hafa gengið mjög
áreynslulaust fyrir sig, enda sé mikill vin-
skapur milli allra. „Við fundum þetta á okkur í
kringum 20 ára afmælið um daginn, hvað
Danni hafði miklu meiri áhuga á þessu nú en
fyrir fimm eða tíu árum. Svo héldum við ball á
NASA þar sem hann var með okkur á sviðinu
allan tímann og gríðarleg stemning. Fyrir
nokkrum dögum héldum við síðan fund til þess
að fá þetta á hreint, hvort hann vildi koma aft-
ur eða ekki. Hann sagði bara „já, endilega“.“
Að sögn Jóns eru meðlimir sveitarinnar
ákaflega ánægðir með ákvörðun Daníels.
„Hann er bæði frábær söngvari, lagahöfundur
og textasmiður þannig að það er enginn smá-
styrkur fyrir okkur að fá hann til baka. Við
höfum alveg sýnt að við getum verið án hans,
en auðvitað erum við miklu betri með honum.“
Aðspurður segir Jón að hér eftir muni Daní-
el alltaf koma fram með Ný dönsk á tónleikum,
og ef hann verði til dæmis upptekinn með Gus
gus muni Ný dönsk einfaldlega ekki spila. Þá
er Ný dönsk með nýja plötu í pípunum, og
Daníel mun að sjálfsögðu taka fullan þátt í því
verkefni.
Aðdáendur sveitarinnar þurfa ekki að bíða
lengi eftir að sjá hana sameinaða því hún held-
ur tónleika á NASA á laugardaginn eftir rúma
viku, hinn 15. desember. Miðasala verður aug-
lýst þegar nær dregur, en líklega verður sleg-
ist um þá miða sem í boði verða.
Týndi sonurinn snýr aftur
Á sínum tíma Ólafur Hólm, Björn Jörundur, Stefán, Jón og Daníel í sínu fínasta pússi.
Daníel Ágúst aftur í Ný
dönsk eftir tólf ára hlé