Morgunblaðið - 21.12.2007, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2007 63
EFTIR endurkomutónleika Led
Zeppelin þann 10. desember í
Lundúnum hafa gengið allskonar
sögur um að hljómsveitin víðfræga
hyggist halda fleiri tónleika.
Slúðurvefveitan Bang Showbiz
greindi frá því í gær að búið væri
að bóka Led Zeppelin sem aðal-
númerið á Glastonbury tónlistarhá-
tíðina á næsta ári áður en þeir
halda í átján mánaða tónleikaferð
um heiminn.
Heimildamaður, náinn bandinu, á
að hafa sagt: „Þetta hefst allt á
Glastonbury hátíðinni á næsta ári,
þegar Robert [Plant] hefur lokið
við að túra með amerísku kántr-
ístjörnunni Alison Krauss.“
Það var Led Zeppelin sem blés
Michael Eavis því í brjóst að setja
Glastonbury-hátíðina á laggirnar
eftir að hann sá bandið leika undir
berum himni árið 1970. Einnig hef-
ur komið fram að hljómsveitin ætli
að snúa aftur í Madison Square
Garden í New York þar sem hún
lék á þrennum sögulegum tón-
leikum árið 1973.
Þó að bandmeðlimir hafi ýjað að
því að þeir muni halda fleiri tón-
leika hefur ekki komið fram nein
formleg tilkynning um það. Gít-
arleikarinn Jimmy Page á að hafa
sagt; „Það væri dálítil sjálfselska af
okkur að halda aðeins eina tónleika.
Ef svo verður hefðum við líklega
ekki átt að hleypa andanum úr
flöskunni.“
Zeppelin Það yrðu líklega margir glaðir ef þeir héldu fleiri tónleika.
Led
Zeppelin
á Glaston-
bury?
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Tækjasjóður
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2008
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
www.rannis.is
Hlutverk Tækjasjóðs er að veita rannsóknastofnunum styrki
til kaupa á dýrum tækjum og búnaði til rannsókna.
Við úthlutun úr Tækjasjóði er tekið mið af úthlutunarstefnu
Rannsóknasjóðs og eru eftirfarandi atriði lögð til grundvallar:
• Að tækin séu mikilvæg fyrir framfarir í rannsóknum
á Íslandi og fyrir rannsóknir umsækjenda.
• Að fjárfesting í tækjabúnaði sé til uppbyggingar nýrrar
aðstöðu sem skapi nýja möguleika til rannsókna eða að
tæki tengist verkefnum sem Rannsóknasjóður styrkir.
• Að tækin séu staðsett á rannsókna- og háskólastofnunum.
• Að samstarf verði um nýtingu tækja milli stofnana eða milli
stofnana og fyrirtækja með fyrirsjáanlegum hætti.
• Að áætlanir um kostnað og fjármögnun á kaupunum
séu raunhæfar.
Framlag Tækjasjóðs greiðir aðeins hluta kostnaðar við
fjárfestinguna.
Ítarlegar upplýsingar um Tækjasjóð, styrkina og
umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Rannís
(www.rannis.is).
Vatnagörðum 14 – 104 Reykjavík
Sími 563 6000 – www.litrof.is
– fyrsta bókin í nýrri ritröð
um íslenskar laxveiðiár
Laxá í Kjós, ásamt Bugðu, hefur af þekktum stangaveiðimönnum verið
kölluð „Háskóli“ stangaveiðimanna vegna fjölbreytileika síns.
Þetta er óskabók veiðimanna, hvort sem þeir eru þaulreyndir eða að
feta sín fyrstu spor í veiðikúnstinni og fæst bæði á ensku og íslensku.
Höfundurinn, Guðmundur Guðjónsson, lýsir veiðistöðum af
þekkingu og kryddar lýsingar sínar sögnum af skemmtilegum
mönnum sem hafa notið þeirrar ánægju að spreyta sig í þessum ám í
gegnum tíðina. Gullfallegar myndir Einars Fals Ingólfssonar gæða
bókina enn frekara lífi.
Fæst bæðiá ensku ogíslensku
Bókin fæst í öllum helstu bóka-
og veiðivöruverslunum auk þess
er hægt að panta hana á vefnum
www.votnogveidi.is