Fréttablaðið - 11.04.2009, Blaðsíða 51

Fréttablaðið - 11.04.2009, Blaðsíða 51
BLS. 3 I+ Bókaðu á www.icelandair.is Amsterdam . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr. Bergen . . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr. Barcelona . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr. Berlín . . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr. Boston. . . . . . . . . . . . . . . . . frá 28.630 kr. Düsseldorf . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr. Frankfurt . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr. Glasgow . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr. Halifax . . . . . . . . . . . . . . . . frá 24.800 kr. Helsinki . . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr. Kaupmannahöfn . . . . . . . frá 14.500 kr. London . . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr. Madrid . . . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr. Manchester . . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr. Milano . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr. Minneapolis . . . . . . . . . . . frá 28.630 kr. München . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr. New York . . . . . . . . . . . . . . frá 28.630 kr. Orlando . . . . . . . . . . . . . . . frá 30.130 kr. Osló . . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr. París . . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 16.900 kr. Seattle . . . . . . . . . . . . . . . . frá 49.980 kr. Stavanger . . . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr. Stokkhólmur . . . . . . . . . . . frá 14.500 kr. Toronto . . . . . . . . . . . . . . . . frá 24.800 kr. *Verð aðra leiðina með sköttum og gjöldum. Besta verðið okkar* + Bókaðu á www.icelandair.is Allt verð miðast við lægsta verð í verðskrá og getur á einhverjum tímapunkti verið uppselt. Flug til Boston gefur 3.500–11.200 Vildarpunkta. Vildarklúbbur BOSTON MÍNI Ég er fædd í Boston og bjó þar þangað til ég varð sjö ára. Mér finnst alltaf frábært að koma þangað. Þegar ég kem til Boston reyni ég alltaf að hitta Stellu, bestu vinkonu mína, sem er tveimur dögum yngri en ég. Harvard Square Okkur finnst gaman á Harvard Square í Cambridge, sem er gamla hverfið mitt. Þar er nammi- og dótabúð sem heitir Hidden Sweets. Frog Pond Þetta er tjörn í miðri Boston. Þar er frábært að sulla á sumrin og fara á skauta á veturna. Concord Mér finnst notalegt að fara í bíltúr til Concord, fá ís og synda í Walden Pond. Urður Einarsdóttir grunnskólanemi Uppáhaldsstrendur Það eru margar strendur í kringum Boston þar sem hægt er að synda. Mínar uppáhalds- strendur eru í bænum Truro á Cape Cod. Á Cape Cod er líka bærinn Provincetown, en þar er the Shell Shop, sem er besta skeljabúð í heimi. Þar fást krabbar og líka nammi. Söfn í Boston Það eru líka skemmtileg söfn í Boston. Science Museum fyrir eldri krakka og Childrens Museum fyrir litla krakka. Eplatínsla Á haustin er gaman að tína epli í eplagörðum í nágrenni Boston. Veitingastaðir Uppáhaldsveitingastaðirnir mínir eru Pizzeria Unos þar sem eru góðar pizzur, Chef Changs, sem er kínverskur veitingastaður. Þar fær maður góðan kínverskan mat og æðislega dömplinga. Svo bið ég alltaf um að fara á India Pavillion til að fá indverskan mat. Í NORÐUR Revere Beach Ódýrasta leiðin til að komast niður á strönd í sumar, til að busla í sjónum rétt hjá Boston, er að taka Bláu línuna (neðanjarðarlest) út á Revere Beach. Engin flottheit á staðnum en sleppur ef maður ætlar sér bara að flatmaga í sandinum eða stinga tánum í Atlantshaf. Singing Beach Falleg og lítil strönd hjá Manchester by the Sea. Hægt að hafa það virkilega notalegt. Klukkustundarakstur frá Boston. Plum Island Þar er stór og fín strönd. Tekur ríflega klukkustund að aka. Eftir að hafa leikið sér á ströndinni er hægt að aka til Newburyport og gæða sér á Maine-humri eða hamborgara. Stutt frá Plum Island, í hina áttina frá Newburyport, er annar staður sem verður að líta inn á. Rétt hjá er frægur og ódýr skyndimatsölustaður sem heitir Woodman's og sérhæfir sig í réttum með kræklingi, skelfiski og humri. (woodmans.com) Rockport Rockport er smábær yst á oddanum á höfðanum Cape Ann. Fullt af litlum galleríum og búðum. Skylda að gæða sér á „salt water taffy“ sem er sérstök karamellutegund, auðkennandi fyrir sjávarþorpin á þessum slóðum. Hægt er að sameina í eina dagsferð heimsókn til Rockport og strandferð á Plum Island eða Singing Beach. Í SUÐUR Newport, Rhode Island Newport er í um 90 mínútna akstur suður frá Boston. Þetta var sumardvalarstaður ríka fólksins í New York í lok 19. aldar. Vanderbilt- og Astorfjölskyldurnar reistu hérna sveitar- setur, stórfenglegar byggingar sem hægt er að skoða allan ársins hring. Við Newport er fín strönd og þar eru ágætir veitingastaðir. Cape Cod – Þorskhöfði Tilvalin dagsferð á heimaslóðir Tennessee Williams og Normans Mailers. Takið ferju frá Boston yfir sundið til Provincetown. Próvinsubærinn er líflegur staður, urmull af litlum búðum, mannlífið á skemmtilegum nótum og mikið af körlum og konum sem hneigjast ekki að gagnstæðu kyni. Allt um kring eru fínar baðstrendur. Dagsferðir frá Boston Flug og gisting í 2 nætur frá 63.900 kr. á mann í tvíbýli á Courtyard by Marriot Boston Tremont Hotel *** Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar og gisting. Reykjavík – Boston frá 28.630 kr. Flug aðra leiðina með flugvallarsköttum. Flogið er allt að tíu sinnum í viku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.