Fréttablaðið - 11.04.2009, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 11.04.2009, Blaðsíða 64
44 11. apríl 2009 LAUGARDAGUR folk@frettabladid.is Hvað er að frétta? Er á fullu að æfa söngleikinn Söngva- seið í Borgarleikhúsinu sem verður frumsýndur 8. maí, leik næstelstu stelpuna, Lovísu, sem er þrettán ára gömul. Augnlitur: Grænblár. Starf: Leikari í Söngvaseið í Borgarleikhúsinu. Fjölskylduhagir: Er yngst, bý hjá mömmu og pabba og á tvær systur og einn bróður. Hvaðan ertu? Er fædd og uppalin á Blönduósi en bý nú í Mosfellsbænum. Ertu hjátrúarfull? Já, ég get stundum verið það. Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Það er náttúrulega Neighbours. Uppáhaldsmaturinn: Kjúklingur klárlega. Fallegasti staðurinn: Ég myndi segja Feneyjar. iPod eða geislaspilari: Klárlega iPodinn. Hvað er skemmtilegast? Að leika, syngja og dansa! Það er best í heimi. Hvað er leiðinlegast? Ætli það sé ekki bara að læra fyrir prófin eins og flestum öðrum þykir. Helsti veikleiki: Stundum of áköf og þarf alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Helsti kostur: Ég er mjög opin og hress og er oftast mjög jákvæð. Helsta afrek: Held að það sé að komast inn í Söngvaseið af 4.000 krökkum. Mestu vonbrigðin? Þegar ég fótbrotnaði á þessu ári. Hver er draumurinn? Að mennta mig í tónlistinni og leiklistinni og starfa við það. Hver er fyndnastur/fyndnust? Klárlega Jóhannes Haukur sem leikur pabba okkar í Söngvaseið! Hvað fer mest í taugarnar á þér? Þegar fólk stendur sig ekki í því sem það á að gera og líka þegar maður getur ekki treyst á manneskjuna til að gera eitthvað. Hvað er mikilvægast? Bara að lifa lífinu eins vel og sem heilbrigðast og maður getur og vera hamingju- samur. HIN HLIÐIN MARÍA ÓLAFSDÓTTIR LEIKARI Í SÖNGVASEIÐ Skemmtilegast að leika, syngja og dansa 02.02.1993 > LENNON-AÐDÁANDI Ungstirnið Miley Cyrus hefur nú tekið upp nýja útgáfu af John Lennon-laginu Imagine. Hin 16 ára Cyrus syngur lagið með leikkonunni Emily Osment sem hún kynntist við gerð Hannah Montana-bíómynd- arinnar. Cyrus segist ekki vita hvort dúettinn verði nokkurn tíma gefinn út, en segir þær stöllur báðar hafa áhuga á Lennon. Hinn sjóðheiti Zac Efron, sem er þekktastur fyrir High School Musical-myndirnar, hefur ekki sagt skilið við menntaskólann því næsta mynd hans nefnist Full Metal Panic. Myndin er byggð á japanskri manga-mynd og fjall- ar um meðlim í leynilegum and- hryðjuverkahóp sem reynir að vernda japanska menntaskóla- stúlku með dulrænum hæfileik- um sínum. Full Metal Panic var upphaf- lega gefin út sem skáldsaga en er nú komin á hvíta tjaldið. Þrátt fyrir söguþráðinn er þetta róm- antísk gamanmynd en ekki hörku- spennandi hryðjuverkatryllir sem fær hárin til að rísa. Áður en Full Metal Panic verður frumsýnd sést Zac Efron næst í bíó hérlend- is í gamanmyndinni 17 Again þar sem hann leikur unga útgáfu af Matthew Perry. Myndin fjallar um mann sem er ósáttur við líf sitt og óskar þess að hann komist aftur í tímann til að breyta gangi mála. Enn í menntaskóla EFRON OG HUDGENS Zac ásamt mót- leikkonu sinni úr High School Musical, Vanessu Hudgens. Skilnaður leikkonunnar Lindsay Lohan og plötu- snúðsins Samönthu Ronson er enn á milli tannanna á fólki í Hollywood. Þær stöll- ur bregðast mjög misjafn- lega við skilnaðinum. Samantha Ronson svífur bókstaf- lega um á bleiku skýi þessa dagana eftir að hún batt enda á samband sitt við leikkonuna Lindsay Lohan. Rúm vika er síðan þær skildu að skiptum eftir ásakanir þess efnis að Samantha hafi haldið fram- hjá Lindsay. Vinir plötusnúðsins Ronson hafa stigið fram og lýst yfir stuðningi við ákvörðun henn- ar. Pete Wentz, bassaleikari Fall Out Boy, segir á samskiptasíðunni Twitter að gott sé að hún hafi end- urheimt mannorð sitt. Ronson svar- aði með þessum orðum: „Ég elska það. Mér líður eins og ég sé end- urfædd!“ Á meðan þessu líður á Lindsay Lohan í mestu erfiðleikum. Banda- rískir fjölmiðlar greina frá því að vinir hennar hafi snúið við hana baki, leikferillinn hangi í lausu lofti og margir óttast um geð- heilsu hennar. Sumir ganga jafn- vel svo langt að lýsa því yfir að líkur séu á því að hún muni vinna sjálfri sér mein. „Hún er algjör- lega í rusli. Hún er leið, finnst hún vera ein og er algerlega niðurbrot- in … Sam hefur verið svo stór hluti af lífi hennar og það er mjög erf- itt fyrir hana að sætta sig við að sambandinu sé lokið,“ segir Dina Sansing, sérfræðingur í málefnum fræga fólksins. Sambandi þeirra lauk formlega á Chateau Marmont-hótelinu í Kali- forníu. Þar var Lohan hent út úr partíi sem Ronson hélt. Vitni segja að hún hafi reynt að sparka upp hurðinni til að komast aftur inn. Því neitar Lohan. Leikkonan kenn- ir fjölskyldu Ronson um sambands- slitin en sögur hafa verið á kreiki þess efnis að fjölskyldan hafi reynt að fá nálgunarbann á Lohan. Lohan hefur farið um víðan völl á þeirri viku sem liðin er frá sam- bandsslitunum. Hún fékk sér nýtt húðflúr og litaði hárið á sér rautt – rétt eins og það var áður en hún kynntist Samönthu Ronson. Samantha ánægð með að vera laus við Lindsay Lohan Á MEÐAN ALLT LÉK Í LYNDI Stöllurnar Samantha Ronson og Lindsay Lohan hafa slitið sambandi sínu. Ronson er hæstánægð en Lohan er í rusli. NORDICPHOTOS/GETTY Hugh Jackman segist í sam- tali við AP-fréttastofuna vera í sárum vegna lekans á nýjustu kvikmynd hans, X-Men Origins: Wolverine. Kvikmyndin lak á Netið og ekki stóð á netverjum úti um allan heim sem hlóðu henni inn á tölvuna sína. Talið er að yfir hundrað þúsund notendur hafi horft á ófullgert eintak af kvikmyndinni og það þykir Jackman miður. „Þetta er mjög alvarlegur glæpur og þetta er mjög leiðinlegt, ég er í það minnsta miður mín yfir þessu,“ segir Jackman og bætir því við að í ljósi þess að myndin var ekki einu sinni tilbúin hafi þetta verið svipað og að horfa á ómálaða Ferrari-bifreið. Alríkislögreglan og samtök kvikmyndaframleiðanda hyggj- ast hafa hendur í hári þrjóts- ins sem setti myndina á Netið og verður hann sóttur til saka fyrir þjófnað. Hann á væntanlega yfir höfði sér fangelsisvist. Hugh Jack- man í sárum LEIÐUR OG SVEKKTUR Hugh Jackman varð sár þegar hann heyrði af því að Wolverine hefði verið lekið á Netið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.