Fréttablaðið - 11.04.2009, Blaðsíða 6
6 11. apríl 2009 LAUGARDAGUR
Lifðu núna
Í GSM páskaeggjunum frá Nóa
Síríus leynist góð fermingargjöf.
Flottur Nokia 2630 Vodafone
live! sími með myndavél og
útvarpi, ásamt málshætti og
heilum hellingi af sælgæti.
Verð aðeins:
15.900 kr.
Ath. Takmarkað magn í boði
Oft fylgir sími
stóru eggi
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Tryggðu þér eintak í verslunum Vodafone.
KENÍA, AP Sjóræningjar, sem hafa
haft bandaríska skipstjórann
Richard Phillips í haldi í björgun-
arbáti undan ströndum Sómalíu
síðan á miðvikudag, kröfðust í
gær tveggja milljóna dala lausnar-
gjalds, eða rúmra 250 milljóna
króna, í skiptum fyrir skipstjórann.
Phillips reyndi að flýja í gær með
því að stökkva útbyrðis og freista
þess að synda í bandarískt herskip
skammt frá. Sjóræningjarnir náðu
skipstjóranum á flóttanum.
Samkvæmt bandarískum fjöl-
miðlum er talið að um fjóra ræn-
ingja sé að ræða. Tilraun þeirra til
að ræna flutningaskipinu Maersk
Alabama, sem er í eigu danskra
aðila en hefur heimahöfn í Banda-
ríkjunum, á miðvikudag mistókst.
Skipið var á leið til Kenía. Ræn-
ingjunum tókst þó að hafa skip-
stjórann á brott með sér. Sómal-
ískur ríkisborgari, sem segist hafa
átt í viðræðum við sjóræningjana,
segir þá ekki munu hika við að
myrða Phillips berist lausnar-
gjaldið ekki.
Starfsmenn bandarísku alríkis-
lögreglunnar áttu í samningavið-
ræðum við ræningjana í gær. Hill-
ary Clinton, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, segir málið graf-
alvarlegt og hefur kallað eftir
aðgerðum alþjóðasamfélagsins
vegna þess.
Vitað er að sjóræningjar hafa
fleiri skip á valdi sínu á þessum
slóðum, en ekki hversu mörg. Talið
er að sjóræningjahringurinn ætli
sér að styrkja stöðu sína með því
að sigla flestum þessara skipa að
ströndum Sómalíu, þar sem hægt
yrði að flýja í land undan áhlaup-
um björgunarliða. Bandarískt her-
skip er á svæðinu og fleiri slík talin
á leiðinni.
Þá gerðu franskir sérsveitar-
menn áhlaup á frönsku skútuna
Tanit, sem hefur verið í haldi
sómalískra sjóræningja á sömu
slóðum síðan um síðustu helgi,
í gær. Einn gísl og tveir sjóræn-
ingjar létu lífið í áhlaupinu. Fjór-
um gíslum, þar á meðal einu barni,
var bjargað í áhlaupinu. Þrír sjó-
ræningjanna voru handteknir.
Eric Chevallier, talsmaður franska
utanríkisráðuneytisins, sagði í gær
að frönsku gíslarnir hefðu verið
varaðir eindregið við því að sigla
á þessum slóðum. Erfitt væri að
skilja hvers vegna þeim viðvörun-
um hefði ekki verið hlýtt.
Skip á siglingu úti fyrir strönd-
um Sómalíu hafa orðið illa fyrir
barðinu á sjóræningjum að undan-
förnu. Ráðist hefur verið á rúmlega
130 skip á þessum slóðum á síðast-
liðnu ári og yfir fjörutíu skip hafa
verið hertekin af sjóræningjum.
kjartan@frettabladid.is
Skipstjórinn gerði
tilraun til að flýja
Sómalískir sjóræningjar krefjast 250 milljóna króna lausnargjalds fyrir banda-
rískan skipstjóra sem þeir halda föngnum. Talið er að mörg skip séu í haldi
sjóræningja undan ströndum Sómalíu. Gísl lét lífið í björgunaraðgerð í gær.
SVÍÞJÓÐ Skattayfirvöld í Svíþjóð
hafa hafið herferð til að sporna
við því að Net-fatafellur sleppi við
lögbundinn skatt af launum. Talið
er að allt að fimm hundruð konur
sem stunda þessa atvinnugrein
fari á svig við skattalög. Frá
þessu er greint á fréttavef BBC.
Herferðin felur meðal annars
í sér að grandskoða vefsíður þar
sem sænskar konur fækka fötum
fyrir framan vefmynda vélar í
þeim tilgangi að bera kennsl á
þær. „Við sjáum að þetta eru
ungar konur. Líklega eru þær
ekki mjög vel að sér í skattalög-
unum,“ segir Dag Hardyson, sem
fer fyrir herferðinni. - kg
Herferð í Svíþjóð:
Skattayfirvöld
skoða fatafellur
Vilt þú að aflaheimildir verði
innkallaðar og kvótakerfið lagt
af?
Já 78,3%
Nei 21,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ert þú sátt/ur við viðtöku Sjálf-
stæðisflokks á 55 milljónum frá
tveimur fyrirtækjum?
Segðu skoðun þína á visir.is
SKOÐANAKÖNNUN Meirihluti þeirra
sem afstöðu tóku í könnun Frétta-
blaðsins vilja að reist verði álver í
Helguvík. Alls sögðust 57,5 prósent
fylgjandi byggingu álvers en 42,5
prósent sögðust andvíg. Vikmörk í
könnuninni eru 3,7 prósent og mun-
urinn því marktækur.
Karlar voru líklegri til að styðja
byggingu álvers. Alls sögðust 63,4
prósent karla sem afstöðu tóku
styðja byggingu álversins, en 51,2
prósent kvenna voru fylgjandi.
Enginn munur var á afstöðu
þeirra sem tóku þátt í könnuninni
eftir búsetu.
Mikill meirihluti þeirra sem sögð-
ust ætla að kjósa Sjálfstæðisflokk-
inn var hlynntur byggingu álvers,
80 prósent. Enn fleiri fylgismenn
Framsóknarflokksins vildu álverið,
eða 85 prósent.
Meirihluti stuðningsmanna Sam-
fylkingarinnar, um 56 prósent, var
hlynntur byggingu álversins. Stuðn-
ingur við byggingu álversins var
áberandi minnstur meðal fylgis-
manna Vinstri grænna. Af þeim
voru aðeins tæp 23 prósent þeirrar
skoðunar að reisa ætti álverið.
Hringt var í 800 manns þriðju-
daginn 7. apríl og skiptust svar-
endur jafnt eftir kyni og hlutfalls-
lega eftir búsetu. Spurt var: Á að
reisa álver í Helguvík. 83,6 prósent
afstöðu til spurningarinnar. - bj
Karlar frekar en konur fylgjandi byggingu álvers í Helguvík samkvæmt könnun:
Meirihluti vill álver í Helguvík
Allir
Á AÐ REISA ÁLVER Í
HELGUVÍK?
Já
Nei
57,5
85
,0
42,5
15
,0
80
,0
20
,0
55
,8
44
,2
SAMKVÆMT KÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS 7. APRÍL
80
60
40
20
0%
JERÚSALEM, AP Þúsundir fetuðu í
hinstu fótspor Jesú í Jerúsalem,
höfuðborg Ísraels, í gær þegar
þeir gengu píslargöngu sömu leið
og talið er að Kristur hafi borið
krossinn um götur borgarinn-
ar. Er þessi athöfn fastur liður á
föstudaginn langa.
Sumir viðstaddra sungu sálma
á latínu meðan aðrir sungu á arab-
ísku. Hersingunni fylgdi fjöldi
forvitinna gesta með myndavélar
og nokkuð af lögreglumönnum.
John Herder, frá Ontario-fylki í
Kanada, einn pílagrímanna, ferð-
aðist sérstaklega til Jerúsalem
vegna tilefnisins. „Þessi reynsla
hefur hreyft við mér,“ sagði Her-
der í gær.
Þá létu þrjátíu karlar og konur
krossfesta sig á Filippseyjum til
að minnast píslargöngu Krists. - kg
Þúsundir minntust pínu Krists víða um heim á föstudaginn langa:
Píslarganga og krossfesting
Á FRELSARANS SLÓÐ Ástralskur maður, John Michael að nafni, býr sig undir krossfest-
ingu skammt utan við Maníla á Filippseyjum á föstudaginn langa. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
USS HALYBURTON Hér má sjá freigátu bandaríkjahes, USS Halyburton, sigla inn í herstöð sjóhersins í Mayport í Flórída í apríl
2005. Herskipið er, að sögn bandarískra yfirvalda, meðal þeirra sem send hafa verið á vettvang gíslatökunnar undan ströndum
Sómalíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJÖRKASSINN