Fréttablaðið - 11.04.2009, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 11.04.2009, Blaðsíða 10
 11. apríl 2009 LAUGARDAGUR Miðasala á www.listahatid.is www.midi.is STOFUTÓNLEIKA LISTAHÁTÍÐAR Retro Stefson, FM Belfast og MC Plútó, 101 Reykjavík Föstudagur 22. maí Ágerður Júníusdóttir, 107 Reykjavík Áshildur Haraldsdóttir og Katie Elizabeth Buckley, Túngötu 44, Benóný Ægisson, Skólavörðustíg 4c, Gershwin í Mýrinni, Kjartans- götu 9, Spilmenn Ríkínís, Dómkirkjuloftinu, Miðillinn, í fl utningi Ásgerðar Júníusdóttur, Melhaga 2, Melchior, Bugðulæk 17, Jón Ólafsson, Hagamel 33, Sigrún Hjálmtýsdóttir og Stofukvartettinn, Vesturbrún 4, amiina, Grundarstíg 10. Melakvartettinn, Þórsgötu 18, Dvorák-hópurinn, Hávallagötu18, Stofutónleikar í Stekknum, Urðarstekk 3, Felix Bergsson, Starhaga 5, Valgerður Andrésdóttir og Ingibjörg Guðjónsdóttir, Grettisgötu 39, Barrokk í Þingholtunum, Bragagötu 27, Djass í Breiðholti, Vesturbergi 137, Tómas R. Einarsson, Reynimel 24 (bílskúr), Duo Landon, Laugarnestanga 70. Benda slagverkshópur, Heiðargerði 1b, Ólöf Arnalds, Ingólfsstræti 10, Vicky, Holtsgötu 39, Bloodgroup, Hólmaslóð 2, Retro Stefson, FM Belfast og MC Plútó, Ingólfsstræti 21a, Weirdcore, Hólmaslóð 2, Reykjavík!, Smiðjustíg 4a. Laugardagur 23. maí Sunnudagur 24. maí Kristjana Stefáns og Agnar Már Magnússon, 109 Reykjavík Helgina 22. til 24. maí verða 25 STOFUTÓNLEIKAR á jafn mörgum heimilum í Reykjavík, í póstnúmerum 101 til 111. Aðeins ÖRFÁ SÆTI í boði. ■ Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@ frettabladid.is DR. GUNNI neytendur@ frettabladid.is KAÍRÓ, AP Barack Obama Banda- ríkjaforseta virðist hafa tekist vel upp í ferð sinni til Evrópu, Tyrk- lands og Íraks. Múslimar víða um lönd hafa brugðist jákvætt við þeim orðum sem hann lét falla á ferða- laginu og segjast binda vonir við betri tíð í samskiptum landa sinna við Bandaríkin og Vesturlönd, með Obama við stjórnvölinn í Washing- ton í stað fyrirrennarans George W. Bush. En í bland við bjartsýnina lýsa margir einnig vantrú á að stefna Bandaríkjastjórnar breytist mikið þótt nýr maður sé fluttur í Hvíta húsið. Obama rétti út sáttahönd til araba og múslima í ræðu sem hann hélt á fundi með tyrkneskum náms- mönnum í Istanbúl í byrjun vikunn- ar. Þar sagði hann meðal annars að Bandaríkin væru ekki og myndu aldrei verða í stríði við íslam. Því næst hélt hann til Íraks, en vera Bandaríkjahers þar hefur nú um árabil verið mikill þyrnir í augum araba og múslima. Þar sagði hann að tími væri kominn til að kalla herliðið frá Írak í áföngum og láta Íraka sjálfa axla ábyrgðina á stjórn og öryggi landsins. Margir íbúar múslimalanda, sem AP-fréttastofan spurði álits, segj- ast hrifnir af því hvernig Obama komi þeim fyrir sjónir. Hann virð- ist vera einlægur, eða að minnsta kosti laus við þann hroka sem þeim fannst einkenna fyrirrennarann. Jamal Dahan, fimmtugur leigu- bílstjóri í múslimahverfi líbönsku höfuðborgarinnar Beirút, segir Obama koma sér fyrir sjónir sem „hæverskur maður með mannlega sýn á heimsmálin“. Aftur á móti álíti hann George W. Bush vera „hrokafullan mann sem þekki ekk- ert annað en hervald“. En sumum eru jákvæð orð ekki nóg. „Ég legg fyrst trúnað á að hann vilji í raun breytingar þegar ég sé hermennina yfirgefa Írak og þegar ég heyri hann segja Ísrael- um að tími sé kominn til að þeir hypji sig frá hernumdum svæð- um Palestínumanna,“ segir Tarik Hussein, 25 ára gamall skósali í Ramallah á Vesturbakkanum. „Annars er þetta bara pólitískur blekkingaleikur.“ audunn@frettabladid.is NÝR TÓNN Írakar fylgjast með sjónvarpsfréttum af Íraksheimsókn Obama í gegnum vatnspípureykinn á kaffihúsi í bænum Najaf, 160 km suður af Bagdad. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Múslimar jákvæðir fyrir boðskap Obama Viðbrögð meðal múslima og araba í Mið-Austurlöndum við þeim boðskap sem Obama Bandaríkjaforseti hélt á lofti í heimsókn sinni til Evrópu, Tyrklands og Íraks, eru jákvæð. Fólk bindur vonir við betri tíð í samskiptum við heimsveldið. Bleiuverð hefur rokið upp með hruni íslenska krónuræfilsins. Pakki af lúxusblei- um eins og Pampers og Libero er nú á um 2.000 kall í Bónus. Því hafa hagsýnar hús- mæður keypt Euroshopper-bleiur í staðinn, sem hafa lengi verið á innan við þúsundkall pakkinn. En ekki lengur. Sigríður skrifar: „Ég var byrjuð að kaupa Euroshopper-blei- ur og finnst þær bara mjög fínar. Um mán- aðamótin ætlaði ég að kippa pakka með í Bónus en rak þá augun í að pakkinn hafði hækkað úr 907 kr í 1.298 kr. Þetta finnst mér fyrir neðan allar hellur og skil ekki hvernig hægt er að réttlæta þessa rosalegu hækkun.“ Guðmundur Marteinsson í Bónus er með svarið: „Samkvæmt úrskurði Samkeppnis- eftirlitsins er okkur ekki heimilt að selja vörur undir kostnaðarverði og þess vegna urðum við að hækka Euroshopper-bleiurn- ar í 1.298 krónur pakkann, sem er okkar kostnaðarverð með 24,5% vsk. Við hjá Bónus munum gera okkar besta til þess að lækka aðrar vörur og koma með sterk tilboð til þess að koma til móts við okkar viðskiptavini. Ég vil samt benda á að þrátt fyrir þessa hækkun eru þessar bleiur á góðu verði miðað við gæði. Það er auðvitað baga- legt að það sé 24,5% vsk á bleium og blaut- þurrkum, en í Bretlandi er til að mynda enginn virðisaukaskattur á barnavörum.“ Því ekki að lofa að afnema þennan virðis- aukaskatt á barnavörum, kæru frambjóð- endur? Neytendur: Verð á Euroshopper-bleium hækkar Hækkun samkvæmt úrskurði Samkeppniseftirlitsins VIÐSKIPTI Gengið hefur verið frá stefnu á hendur Björgólfi Guð- mundssyni og Björgólfi Thor Björg ólfssyni vegna 5 milljarða króna skuldar þeirra við Nýja Kaupþing. Fréttablaðið sagði frá því á fimmtudag að feðgunum hefði verið stefnt vegna skuldar- innar. Björgólfur Thor bar það til baka, en Fréttablaðið hefur heim- ildir fyrir því að gengið hafi verið frá stefnu á hendur þeim feðg- um innan bankans fyrir nokkrum vikum. Samkvæmt orðum Björg- ólfs hefur hún ekki verið afhent. Beðist er velvirðingar á því mis- hermi. Öll meginatriði fréttarinn- ar standa hins vegar óhögguð: Björgólfsfeðgar eru í persónulegri ábyrgð fyrir fimm milljarða skuld sem er í uppnámi í Nýja Kaupþingi og sú skuld er tilkomin vegna kaupa Samsonar, eignarhaldsfé- lags þeirra feðga, á Landsbankan- um 2002. Í frétt Fréttablaðsins kom skýrt fram að Landsbankinn hafi verið að fullu greiddur á sínum tíma. Það þyki á hinn bóginn kaldhæðn- islegt að í kjölfar yfirtöku ríkis ins á Kaupþingi í haust sé það ríkis- banki sem þurfi að innheimta fimm milljarða skuld Björg ólfs- feðga vegna þátttöku þeirra í einkavæðingu Landsbankans. - kóp Skuld Björgólfsfeðga við Nýja Kaupþing upp á fimm milljarða króna: Stefna hefur verið útbúin BJÖRGÓLFUR THOR Björgólfsfeðgar skulda Nýja Kaupþingi rúmlega 5 millj- arða króna. Skuldin er tilkomin vegna kaupa þeirra á Landsbankanum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.