Fréttablaðið - 11.04.2009, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 11.04.2009, Blaðsíða 18
18 11. apríl 2009 LAUGARDAGUR að fá ekki greitt og vilja eitthvað áþreifanlegt í staðinn. Þá gæti orðið sú atburðarás að hingað komi alþjóðlegt fyrirtæki sem Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn væri tilbúinn að lána gegn því að það legði nýtt eigið fé inn í Landsvirkjun. Ég held, með öðrum orðum, að það sé raunveruleg hætta á að Landsvirkjun verði tekin af okkur. Og þar með auðlindin.“ Lítil von í stjórnmálunum Í þessu umróti öllu hefur Sigurður Gísli orðið fyrir vonbrigðum með pólitíkina og telur lag að stokka upp stjórnskipunarfyrirkomulag- ið. Honum misbauð til að mynda að ekki skyldu fara fram umræð- ur á Alþingi um samninginn við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn áður en hann var samþykktur. Slíkar umræður fóru fram í Úkraínu, en ekki hér. „Eigum við ekki að heita þroskað lýðræðisríki? Ég hef orðið ákaflega takmark- aða trú á stjórnmálaflokkum og sé ekki framtíðarsýn í nokkrum flokki sem færir mér trú eða von. Ekki síst þess vegna held ég að það sé mikilvægt að hugmyndir um stjórnlagaþing nái fram að ganga enda hefur sýnt sig að stjórnmála- mennirnir ráða ekki við að breyta stjórnarskránni. Það er lífsnauðsynlegt fyrir framhaldið að hreinn aðskilnaður verði á milli framkvæmdarvalds- ins og löggjafarvaldsins og að Alþingi verði þannig endurreist. Það gengur ekki lengur að Alþingi sé bara afgreiðslustofnun fyrir framkvæmdarvaldið. Ráðherrar eiga að fá sömu laun og þingmenn, þingið á að skipa dómara, það á að vera tiltölulega auðvelt að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu og svo væri æskilegt að landið yrði gert að einu kjördæmi. Eða í það minnsta að vægi atkvæða yrði jafnað. Einn maður, eitt atkvæði. Bara sjálft hugtakið „þingmaður kjördæmis- ins“ er hræðilegt,“ segir hann og telur að fleiri stoðir samfélagsins þurfi að hysja upp um sig buxurn- ar. „Í okkar litla samfélagi hefur ríkt ákveðin tegund þöggunar og því þarf að breyta. Það er til dæmis eftirtektarvert hve lítið hefur heyrst í háskólasamfélaginu, sem í raun réttri ætti að vera afl í umræðunni. Þaðan ætti að koma gagnrýnin hugsun. Sama er að segja um fjölmiðl- ana. Það er ekki nokkur vafi á því í mínum huga að fjölmiðlar gegndu ekki hlutverki sínu, þeir voru ekki þetta svokallaða fjórða vald. Þar spilar reyndar inn í að öflugir blaðamenn voru tíndir inn í bankana og önnur fyrirtæki sem í krafti peninganna soguðu til sín fjölda fólks með mikla reynslu en eftir sat það fólk sem minni hafði reynsluna.“ Hugsjónirnar hurfu Eftir að hafa stundað ýmiss konar viðskipti í rúm þrjátíu ár, fylgst grannt með gangi mála og horft upp á velgengni og ófarir hefur Sigurður Gísli komist að þeirri niðurstöðu að samþjöppun auðs sé óráð. Það sjáist ekki bara í raunveruleikanum held- ur blasi við í lífsspeki ævintýranna. „Alls staðar þar sem er kista eða poki með gulli í ævintýrunum, þar er óhamingja. Og þar verður vesen. Út frá því má leggjast í heimspeki- legar pælingar um hvort þetta kons- ept sem við höfum lagt til grund- vallar í lífinu, peningar og neysla, sé ekki bara misskilningur. Og við höfum líka dæmin úr veruleikan- um. Ég held að það geti orkað tví- mælis að safna miklum peningum til einhverrar framtíðar, sérstaklega í sjóðum og fyrirtækjum, því það bregst ekki að það er reynt að stela þeim. Ég segi stela innan gæsalappa. Við höfum nú horft upp á það gerast í lífeyrissjóðunum. Frá þeim er búið að stela fullt af peningum.“ Hann telur einnig að óheillaþróun hafi orðið hvað varðar tengsl fyrir- tækja við samfélagið og að hugsjón- ir hafi vikið fyrir óheftri arðsem- iskröfunni. Við hverfum ein 150 ár aftur í tímann. „Þá söfnuðust bændurnir saman í Þingeyjarsýslu utan um samvinnu- hugsjónina. Það var frábært fram- faramál, mikið þjóðþrifamál. Það óx og dafnaði en einhvers staðar á leið- inni glataðist hugsjónin og Samband- ið varð að vél sem var til fyrir sjálfa sig. Auðvitað endaði það með því að reksturinn fór allur á hausinn.“ Ekki taki betra við hjá hlutafélög- um. „Ég hef alltaf haft fyrirvara á því þegar sagt er að hlutafélög hafi sam- félagslega ábyrgð. Hlutafélag getur ekki og á ekki að gera neitt annað en að hámarka afkomu hluthafans. Allt annað gildir um félag sem þú átt einn. Gott og vel, það kann vel að vera heppilegt fyrir framlínu fyrirtæk- is að verja peningum í eitthvað sem talið er vera samfélagsleg ábyrgð, styðja líknarstarf eða þvíumlíkt. En drifkrafturinn er hagsmunir fyrirtækisins. Þegar fyrirbærið hlutafélag varð til í Bandaríkjun- um á sínum tíma var mönnum þetta ljóst enda máttu bara einstaklingar eiga hlutabréf. Með því var mann- eskjuleg nánd við bæði starfsem- ina og samfélagið. En þegar félög fóru að geta átt hlutabréf og svo félög sem áttu félög sem áttu félög, þá rofnuðu tengslin og samfélagið hætti að skipta máli.“ Hann bendir þó á að síðasta orðið sé alltaf fólksins. Neytandans. „Með því að taka ábyrgð og hafa fyrir því að láta sig varða hvort vörurnar sem verða fyrir valinu raska, til dæmis, jafnvægi nátt- úrunnar eða eru framleiddar við barnaþrælkun, leggur fólk sín lóð á vogarskálarnar. Með því að snið- ganga slíkar vörur er beinlínis hægt að leysa börn úr ánauð eða leggja náttúrunni lið.“ Smátt er fallegt Sigurður Gísli stendur, eins og sam- félagið allt, á tímamótum. Í fyrsta sinn á lífsleiðinni finnur hann fyrir hugmyndafræðilegu tómi. En um leið treystir hann því að eitthvað gott muni gerast. Að við munum hallast í átt að betri siðum. „Á sínum tíma vorum við góðu gæjarnir sem börðust gegn komm- únismanum, og unnum. Nú finnst mér eins og kapítalisminn sé eins og risi úr leir sem riðar til falls. Um leið er ég þeirrar skoðunar að við höfum alls ekki séð fyrir endann á því sem er að gerast í umheim- inum. Niðurstaða mín er því sú að það skiptir kannski ekki öllu máli hvaða kerfi við notum. Það sem skiptir máli er að heilbrigð sið- fræði búi að baki. Á því er mikill skortur, bæði hér á Íslandi og ann- ars staðar. Og ef til vill liggja tæki- færin til framtíðar í þeirri hugsun. Kannski er það alltaf gildismatið sem vísar veginn til góðs og ills. Verkefni okkar er að viðhalda heil- brigðum gildum og ala okkur sjálf og börnin okkar upp. Einu sinni var það kallað guðsótti og góðir siðir. Kannski gildir það enn. Þjóðin má vera stolt af því að eiga Ísland og vera Íslendingar með okkar menn- ingu, sögu og náttúru. Þetta sést til dæmis á því að við höfum ekki lag á að sníða okkur stakk eftir vexti. En nú treysti ég því að upp sé að renna sá tími að menn sjái að smátt er fallegt. Að við áttum okkur á því að það er betra að fá tíu 30 manna fyrirtæki heldur en eitt 300 manna fyrirtæki. Að við eigum að gjalda varhug við öllu sem heitir milljarður.“ Þegar Sigurður Gísli talar um að við eigum að sjá að smátt er fal- legt á hann ekki við að við eigum að hugsa smátt. Síður en svo. Við eigum að hugsa stórt. Það þarf líka að hugsa stórt til að sjá að smátt er fallegt. „Nú ríður á að skapa rými fyrir umbreytingu, við þurfum að skil- greina tilgang okkar. Hvernig ætlar Ísland að birtast í heimin- um – samfélagi þjóðanna? Hvaða áhrif viljum við hafa? Mín skoð- un er sú að við eigum að ákveða að vera fordæmi fyrir veröldina; taka ábyrgð á því hvar við erum stödd með því að vera sjálfbær. Skapa frið og jafnvægi í okkar tilvist. Við þurfum að beisla óttann við að vera ekki nógu góð eins og við erum. Ég kalla eftir leiðtogum sem geta haldið uppi viðhorfi velsældar, því Ísland er gríðarlega gjöfult land. Líkt og Ólafur Stefánsson gerði í landsliðinu af slíkri sannfæringu að hinir leikmennirnir gerðust áskrifendur að viðhorfi hans og urðu sigurvegarar. Græðgin sem var svo áberandi hér hin síðustu ár á rætur í skorti á tilgangi í lífinu. Það er tilfinningalegt tóm innra með fólki sem það reynir að fylla með efnislegum hlutum. En eftir því sem maður treður meira í sig stækkar tómið. Þegar maður hefur skilgreint tilgang sinn í lífinu eða tilgangsleysi eftir atvikum og tekið ábyrgð á því, breytist allt.“ FRAMHALD AF SÍÐU 17 Í ræðu á Viðskiptaþingi árið 2000 varaði Sigurður Gísli við þeirri þróun sem þá þegar hafði orðið á fjármálamarkaði og lýsti áhyggjum af framtíðinni. Opinn og frjáls hlutabréfamarkaður hafði þá vart slitið barnsskónum en engu að síður tíðkuðust á honum nýstárleg vinnubrögð. „Nú er í tísku að „gíra sig í botn“ sem þýðir eins og allir hér vita að skulda sem mest. Ég var alinn upp við allt annað viðhorf. Í mínu ungdæmi þótti góð búmennska að hafa borð fyrir báru. Ég sef ekki rólegur á nóttunni, ef skuldir hlaðast upp án þess að tekjur og eignir aukist hraðar á móti.“ Hann sagði ungu kynslóðina sem þá hafði haslað sér völl hugsa öðruvísi en eldri kyn- slóðir. Hún þekkti ekki mótlæti. Það væri í lagi að skulda mikið, ekkert gæti farið úrskeiðis. „Markaðurinn mun hins vegar fara niður. Ég veit ekki hvenær, en þá verður gott að hafa borð fyrir báru.“ Sigurður Gísli furðaði sig á nýmóðins við- skiptaháttum á markaðnum sem fólust í að safna bréfum í einu fyrirtæki, tjakka upp verðið og selja svo, taka það næsta og endurtaka leikinn. Slíkt skapi ekki raunveruleg verðmæti. „Jafnvel virt félög á hlutabréfamarkaðnum beygja sig fyrir nýju leikreglunum og taka þátt í því að reyna að festa hærra verðmat á hlutabréf- um í sessi.“ Um leið og hann lýsti aðdáun á unga og vel menntaða fólkinu, sem sennilega væri fyrsta ókomplexaða kynlóðin í Íslandssögunni, kvaðst hann ekki gagntekinn af bjartsýni þess. „Allt þetta verður til þess að ég fer að spyrja sjálfan mig þeirrar spurningar hvort ég sé að verða of gamall og farinn að þvælast fyrir. Er hinn skjótfengni auður ef til vill tryggari en traustasta bjarg? Á að strika orð eins og fyrirhyggju og ráð- deild út úr orðabókinni? Sjálfsagt gildir meðal- hófið í þessu eins og öðru. Meðfædd og innrætt íhaldssemi eins og mín má ekki berja kjarkinn úr unga fólkinu en hún getur líka komið sér vel þegar verr gengur.“ Og að þessu sögðu kom Sigurður að kjarna málsins. „Það er kaldhæðnislegt en því fyrr sem markaðurinn verður fyrir áfalli því betra. Sann- leikurinn er oft þverstæðukenndur en við skulum hafa í huga að stór uppsveifla getur kallað á stóra niðursveiflu ef grunnurinn er ekki traustur.“ Sigurður Gísli vék líka að eftirliti sem hann taldi ábótavant. Öflugt eftirlit væri nauðsynlegt annars gæti markaðurinn beðið óbætanlegt tjón. Fjármálaeftirlit, Samkeppnisstofnun og heilbrigð- iseftirlit hefðu ekki náð að halda í við markaðinn. Þeir sem störfuðu á markaðnum ættu skilyrðis- laust og strax að taka frumkvæðið og setja sér strangar leikreglur og fara eftir þeim, að öðrum kosti myndu þeir þurfa að hlíta valdboði ríkisins. Þetta ætti við atvinnulífið í heild, hvort sem það væru kjúklingar eða peningar. „Við sem störfum í atvinnulífinu berum nefnilega sjálf að stóru leyti ábyrgð á því hvernig starfshættir fyrirtækjanna eru, hvort heiðarleiki sé látinn borga sig, hvort treysta megi orðum manna, hvort reynt sé að halda almennar siða- reglur og hvort við höfum bein til þess að rísa undir velgengninni. Ef við stöndum ekki undir þessari ábyrgð verður Ísland aldrei lengi meðal hinna bestu.“ „Við skulum hafa í huga að stór uppsveifla getur kallað á stóra niðursveiflu ef grunnurinn er ekki traustur“ KÁRAHNJÚKAR Þessi risavaxna virkjanagerð leiddi til þess að Draumalandið varð til. Myndin er frá sumrinu 2004. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.