Fréttablaðið - 11.04.2009, Blaðsíða 28
28 11. apríl 2009 LAUGARDAGUR
Vandræðalegasta augnablik-
ið? Úff, mér hefur alltof oft liðið
vandræðalega um ævina þótt það
sé sem betur fer að eldast af mér.
Einu sinni ætluðum ég og mað-
urinn minn að skemmta í brúð-
kaupi og undirspilið var allt inni
á skemmtara sem svo reyndist
batteríslaus þegar upp á svið var
komið.
Gáfulegustu orð sem þú hefur
heyrt? „Hver hlutur á sínum stað
og eitt verk í einu.“ Þetta segir
pabbi Einars Áskels í bókinni
Engan asa, Einar Áskell.
Hvaða íslensku hönnuðir finnst
þér standa fremstir í dag ? Ég var
að enda við að koma úr fermingar-
fataleiðangri og uppgötvaði hvað
NIKITA er að gera frábæra hluti.
Vorið er skemmtilegt því þá
… er svo bjart og túlípanarnir 500
sem ég setti niður í haust koma
upp. Og fólk verður líka allt í einu
svo miklu skemmtilegra.
Góð hljómsveit á balli þarf að
vera … Varsjárbandalagið að sjálf-
sögðu. Austur-Evrópustuð af bestu
gerð!
Austur-Evrópa heillar mig af
því að … tónlistin er svo tryllt og
sorgleg í senn.
Harmonikka er hljóðfæri fyrir
… gellur í gullstígvélum.
Ef þú yrði að vera einhver önnur
manneskja í einn dag, hver mynd-
irðu vilja vera og af hverju?
Það gæti verið gaman að prófa
að vera Jean-Paul Gaultier. Honum
virðist alla vega finnast það
gaman.
Þú ferð í skemmtiferð til Akur-
eyrar. Nefndu mér fjögur atriði
sem þú munt gera í bænum? Fara
í Frúna í Hamborg, hef lengi
ætlað mér það. Borða á Friðrik V.
Skreppa á Safnasafnið á Svalbarðs-
eyri. Fara í íþróttaverslun bara til
að geta sagt „knöttur“ með yfir-
drifnum, norðlenskum hreim.
Þú færð það verkefni að mála
og skreyta Ráðhúsið, hvernig læt-
urðu það líta út? Ég myndi mála
það bleikt og drekkja því í mósaíki
eins og húsin hans Gaudís eru
með. Skandinavískur arki-
tektúr er oft svo leiðin-
legur!
Yfir hverju hef-
urðu mestar áhyggj-
ur í augnablikinu? Ég
hef mjög húsmóður-
legar áhyggjur af
fermingarveisl-
unni sem fram
undan er.
Hvaða kæki
ertu með? Ég
ræski mig óþarf-
lega oft.
Þú ert að fara á grímuball. Í
hverju ferðu? Sem Barbarella.
Hvað er það besta sem þú hefur
bragðað um ævina? Afskaplega
margt sem ég borðaði úti í Japan.
Líka fallegast framreiddi indverski
matur sem ég hef fengið á stað í
London sem leit út eins og frum-
skógur að innan.
Hvaða frasa ofnotar þú? Ég þoli
ekki að festast í frösum og þeir
verða sjaldan langlífir.
Eftirlætissjónvarpsþáttur? Mad
Men, My Name is Earl, allt sem
David Attenborough kemur nálægt.
Horfi líka reglulega á Jeeves og
Wooster.
Frægasti ættinginn þinn? Frú
Kitschfríður Kvaran, fyrirmynd-
arhúsmóðir og pistlahöfundur.
Hverju ertu hrifnust af úr eigin
hönnunarlínu? Ég er alltaf mjög
ánægð með kúlukragana mína en
það er ekkert mjög skemmtilegt að
búa þá til. Mun skemmtilegra er að
endurvinna peysurnar því þá eru
engar tvær eins.
Hvaða efni er skemmtilegast að
vinna með? Ull er í sérstöku uppá-
haldi, annars allt sem er í falleg-
um lit og enn betra ef glitrar á það
líka!
Eftirlætislitir á klæðum? Bleik-
ur, rauður og grænblár.
Og að lokum – fallegasti ver-
aldlegi hlutur sem þú hefur
séð og hver hannaði hann?
Sagrada Familia-kirkjan í
Barcelona eftir Gaudí.
Fyrir gellur í gullstígvélum
Litríkar ullarvörur undir nafninu Kitschfríður hafa notið mikilla vinsælda í Kirsuberjatrénu en þær eru hönnun Sigríðar Ástu
Árnadóttur textílhönnuðar. Júlía Margrét Alexandersdóttir tók hönnuðinn og harmonikkuleikarann í þriðju gráðu yfirheyrslu.
MYNDI VILJA SETJA MÓSAÍKFLÍSAR Á RÁÐHÚSIÐ Sigríður Ásta Árnadóttir textílhönnuður er þekkt fyrir litagleði í hönnun sinni. Á þeim sömu nótum myndi hún einnig vilja skreyta Ráðhús Reykjavíkur, fengi hún það
verkefni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÞRIÐJA GRÁÐAN
FULLT NAFN: Sigríður Ásta
Árnadóttir
FÆÐINGARÁR: 1974. Sama ár
var Surtsey lýst friðland.
Á HUNDAVAÐI: Lærður text-
ílhönnuður frá Myndlista- og
handíðaskóla Íslands. Hef
unnið ýmis störf svo sem að
kenna börnum myndmennt,
skrifað greinar sem blaðamað-
ur fyrir ýmis tímarit, nú síðast
Vikuna. Fyrir utan að vera
hafnfirsk húsfreyja með fullt
hús barna.
TEHETTA ÚR ÞÆFÐRI ULL Eitt
það nýjasta úr hönnunarlínu
Kitschfríðar eru forkunnar-
fagrar tehettur í ýmsum
litum úr þæfðri ull.