Fréttablaðið - 11.04.2009, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 11.04.2009, Blaðsíða 68
48 11. apríl 2009 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is Í janúar síðastliðnum gekk Veigar Páll Gunnarsson til liðs við Nancy í Frakklandi eftir að hafa orðið Noregsmeistari með Stabæk. Síðan þá hefur hann hins vegar fá tækifæri fengið með liðinu og aðeins komið við sögu í fimm leikjum, þar af í einum sem byrjunarliðsmaður. Alls hefur hann spilað 114 mínútur í frönsku úrvalsdeildinni og á enn eftir að skora mark. „Þeir voru búnir að segja við mig að þeir ætluðu að byggja liðið upp í kringum mig – ég átti að vera aðalmaðurinn,“ sagði Veigar í samtali við Fréttablaðið. „Það hlýtur því að vera tóm steypa.“ „Ef það væri tilfellið hefði ég búist við því að ég yrði meira notaður nú í ár. En sjálfur lít ég á þetta sem svo að ég sé að nota þetta tímabil til að koma mér inn í franska fótbolt- ann og geri ég mér lengur engar væntingar um að fá að byrja inn á. Ég mun svo æfa eins og vitleysingur í sumar og sjá svo hvað setur.“ Hann segir að þjálfarinn hafi greinilega lítinn áhuga á að nota sig og það vekur furðu hans. „Ég er farinn að halda að það hafi einhverjir jakkafatamenn séð mig spila, litist vel á mig og keypt mig. Þjálfarinn hafi því ekkert vitað hvað hann hafi fengið þegar ég kom til félagsins.“ Nancy er sem stend- ur í bullandi vandræðum í frönsku úrvals- deildinni og er í sextánda sæti, aðeins einu stigi frá fallsæti. „Ég held að í síðustu 12-13 leikjum hafi liðið ekki skorað nema fimm mörk sem getur ekki talist eðlilegt. Mér finnst hugmyndaaflið í sóknarleik liðsins ekki upp á marga fiska og miðað við hvernig ég hef verið að standa mig á æfingum finnst mér að ég eigi meira skilið. Það er bara spurning hve- nær þjálfarinn áttar sig á því,“ sagði Veigar Páll í léttum dúr. Hann er nú að jafna sig á smávægilegum meiðslum og gat hann ekki spilað með Nancy um síðustu helgi vegna þeirra. VEIGAR PÁLL GUNNARSSON: HEFUR SPILAÐ MINNA Í FRAKKLANDI EN HANN VONAÐIST TIL Átti að vera aðalmaðurinn í liði Nancy prismasetur skipta um dekk hjá Max1 Umfelgun og ný dekk á góðu verði Umfelgun og jafnvægisstilling á 4 fólksbíladekkjum á 12–16 tommu stálfelgum 6.458 kr. Kauptu sumardekkin hjá Max1 á góðu verði. Spyrðu okkur hvað við getum gert meira fyrir þig. Við erum góðir í að gera hlutina fljótt og vel og ódýrt – skoðaðu: www.max1.is Reykjavík, sími 515 7190: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnaseli 6, Knarrarvogi 2. Akureyri, sími 462 2700: Tryggvabraut 5. Skoðaðu www.max1.is Sparaðu, láttu Ný sumardekk Dekkjaskipti Opið í dag frá 9 til 13 Bíldshöfða 5a KÖRFUBOLTI Grindvíkingar eiga í dag möguleika á að vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í þrettán ár þegar þeir taka á móti KR í Röstinni í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvígi þeirra í Ice- land Express-deild karla. Tveir leikmenn hafa öðrum fremur komið Grindvíkingum í þessa frábæra stöðu að geta orðið Íslandsmeistarar á heimavelli en það eru þeir Nick Bradford og Brenton Birmingham. Nick og Brenton hafa báðir unnið Íslands- meistaratitilinn oftar en einu sinni (Brenton 3 og Nick 2) og þeir hafa báðir verið kosnir bestu leikmenn úrslitakeppninnar (Nick 2005 og Brenton 2006). Þetta eru tveir af mestu sig- urvegurum íslensks körfubolta síðustu ára og ástæðuna má sjá inni á vellinum í lokaúrslitun- um á móti KR. Nick og Brenton eru langhæstir þegar kemur að framlagi í lokaúrslitaeinvíginu og þeir einu sem eru að skila meira en 24 framlagsstigum til síns liðs. Nick er með 37,0 í framlagi að meðal- tali í þessum þremur leikjum og Brenton kemur skammt á eftir með 32,0 í framlagi. Saman eru þeir tveir að skila 69,0 framlagsstigum að með- altali í leik. Nick Bradford hefur verið stórkostlegur í leikjunum í DHL-höllinni þar sem hann hefur skorað 85 stig í tveimur leikjum og hitt úr 30 af 47 skotum sínum (63,8 prósent), þar af 9 af 14 skotum fyrir utan þriggja stiga línuna. Nick er með 33,0 stig að meðaltali á 35,0 mín- útum í lokaúrslitunum til þessa en hann hefur auk þess tekið 7,7 fráköst, stolið 4,0 boltum og varið 2,0 skot að meðaltali. Nick hefur hitt úr 60 prósent þriggja stiga skota sinna en 9 af 15 skotum hans fyrir utan hafa ratað rétta leið. Brenton er með 19,0 stig, 8,7 fráköst og 6,7 stoðsendingar að meðaltali á 35,3 mínútum en hann hefur auk þess stolið 3,0 boltum og varið 1,3 skot í leik. Skotnýting Brentons er 61,1 pró- sent og 88,9 prósent í vítaköstum. ooj@frettabladid.is Tveir sem kunna að vinna titla Nick Bradford og Brenton Birmingham hafa spilað frábærlega með Grindavík í lokaúrslitunum og skila saman 52,0 stigum og 16,3 fráköstum, 9,3 stoðsendingum og 7,0 stolnum boltum að meðaltali í leik. ÖFLUGIR Þeir Nick Bradford og Brenton Birmingham spila aldrei betur en þegar mest á reynir. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL HÆSTA FRAMLAG Í LOKAÚRSLITUNUM: (EFTIR 3 FYRSTU LEIKINA) Nick Bradford, Grindavík 36,7 Brenton Birmingham, Grindavík 32,0 Jón A. Stefánsson, KR 23,3 Jason Dourisseau, KR 22,3 Helgi Már Magnússon, KR 18,7 Fannar Ólafsson, KR 16,7 Helgi Jónas Guðfinnsson, Grindavík 9,7 Þorleifur Ólafsson, Grindavík 9,7 Jakob Örn Sigurðarson, KR 8,3 Páll Axel Vilbergsson, Grindavík 8,0 Páll Kristinsson, Grindavík 7,7 Guðlaugur Eyjólfsson, Grindavík 7,0 Arnar Freyr Jónsson, Grindavík 4,3 Pálmi Freyr Sigurgeirsson, KR 3,3 KÖRFUBOLTI Nick Bradford skoraði 47 stig í 107-64 sigri Grindavíkur á KR í þriðja leik lokaúrslitanna á skírdag og var aðeins þremur stigum frá því að jafna stigamet Njarðvíkingsins Rondey Robin- son í lokaúrslitum. Það hefur aftur á móti enginn leikmaður skorað fleiri stig í venjulegum leiktíma en Nick. Rondey Robinson skoraði 50 stig í 107-110 tapi Njarðvíkur í framlengingu í fyrsta leik loka- úrslitanna 1994. Nick hefur þar með skorað bæði 38 og 47 stig í þessum lokaúrslitum en báðir þessir miklu stigaleikir eru meðal átta hæstu á listanum yfir flest stig í úrslitaeinvígi - óój Nick Bradford á skírdag: Þremur stigum frá meti Rondey 47 STIG Á 34 MÍNÚTUM Nick Bradford hitti frábærlega í DHL-höllinni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL KÖRFUBOTI Grindvíkingar unnu KR í DHL-höllinni á skírdag með 13 stiga mun og geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í Röstinni í dag. Það var ólíkt hljóðið í þjálfur- um liðanna eftir leikinn á fimmtu- daginn. „Þessi leikur hefur kannski komið einhverjum á óvart, en ekki okkur. Við vorum að spila gríðar- lega vel í 33 mínútur í þessum leik, sérstaklega í vörninni,“ sagði Frið- rik Ragnarsson, þjálfari Grinda- víkur, eftir frábæran sigur. „Við vorum fyrst og fremst orðn- ir leiðir á því að koma hérna inn eins og kisur, enda sást það hérna í dag. Þetta var allt annað Grinda- víkurlið en síðast. Það stendur ekkert annað til en að klára þetta í næsta leik. Við eigum heimaleik næst fyrir framan fólk sem ég veit að verður alveg brjálað. Ef við erum nógu góðir, þá vinnum við þennan leik. Ann- ars bara töpum við honum. Við gerum bara það sem við getum,“ sagði Friðrik. „Ég hef oft verið í þessari stöðu sjálfur og strák- arnir líka. Ég sagði s t rá k u nu m að brosa út að eyrum og njóta þessa sigurs í kvöld, en það verður æfing í hádeginu á morgun og þar vil ég ekki sjá eitt einasta bros. Ég vil bara sjá tólf einbeitt andlit sem eru með hug- ann við næsta verkefni,“ sagði Friðrik. „Við byrjuðum leikinn ágæt- lega, en þegar færðist harka í leik- inn urðum við bara litlir í okkur og spiluðum eins og draugar þar til við sýndum smá stolt í restina,“ sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR. „Núna skipta hlutir eins og leik- aðferðir eða styrkur leikmanna ekki máli. Ef hjartað og leikgleð- in er ekki til staðar í þessu, eru menn bara teknir og niðurlægðir. Við verðum að hætta að spila eins og lið sem á það á hættu að missa titilinn og spila eins og lið sem vill vinna titilinn,“ sagði Benedikt sem hrósaði Nick Bradford hjá Grindavík sem skoraði 47 stig í leiknum. „Frammistaða Nicks Bradford var ótrúleg og hann er að sýna hversu mikill sigurvegari hann er. Hann er rífandi kjaft allan tímann við okkur og áhorfendur og dansar við dómarana. Við þurfum að fara að rífa aðeins kjaft á móti og gefa af okkur til áhorfenda og ná upp stemningu,“ sagði Benedikt. - bb Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR, eftir þriðja leikinn: Þurfum að fara að rífa kjaft á móti TVÖ TÖP Í RÖÐ Bene- dikt Guðmundsson, þjálfari KR. KÖRFUBOLTI Það ætti kannski ekki að koma á óvart að Grindavík sé komið með undirtökin í úrslita- einvíginu á móti KR í Iceland Express-deild karla þegar litið er á söguna og hver er að þjálfa Grindavík. Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur, hefur nefnilega unnið öll þrjú einvígi sín á móti KR sem þjálfari í úrslitakeppni úrvalsdeildar. Grindavíkurliðið er einum sigri frá því að bæta því fjórða við en Grindavík er komið í 2-1 eftir 107-94 sigur á KR í DHL-höllinni í þriðja leiknum. Undir stjórn Friðriks hafa lið Njarðvíkur og Grindavíkur unnið 10 af 12 leikjum sínum á móti KR, þar af sópað þeim út í undan- úrslitum 2001 og út úr átta liða úrslitum 2003. KR hefur aðeins unnið tvo leiki á móti liðum Friðriks í úrslita- keppni, þeir minnkuðu muninn í 2-1 í undanúrslitunum 2002 og unnu síðan fyrsta leik lokaúrslit- anna í ár. - óój Friðrik Ragnarsson: Kann hann á KR-ingana? 10-2 Friðrik Ragnarsson er með frábært sigurhlutfall á móti KR í úrslitakeppni. FRÉTTABLAÐIÐ/E. STEFÁN > Næsta stig Brentons verður númer 600 í lokaúrslitum um titilinn Brenton Birmingham er einu stigi frá því að komast í fámennan hóp leikmanna sem hafa náð að skora 600 stig í lokaúrslitum um Íslandsmeist- aratitilinn. Brenton er búinn að skora 599 stig í 27 leikjum í úrslitaleikjum sem gera 22,2 stig að meðaltali í leik. Brenton hefur skorað 57 þessara stiga í einvígi Grindavíkur á móti KR en 447 af stigum hans í lokaúrslitum hafa komið með Njarðvík. Guðjón Skúlason (Keflavík og Grindavík) og Teitur Örlygsson (Njarðvík) eru einu meðlimir 600 stiga klúbbsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.