Morgunblaðið - 02.02.2008, Page 1

Morgunblaðið - 02.02.2008, Page 1
STOFNAÐ 1913 32. TBL. 96. ÁRG. LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is Ivanov >> 49 Allir í leikhús Leikhúsin í landinu STEFNIR Á ÓL 2014 EIN EFNILEGASTA SKÍÐAKONA LANDSINS LJÓMAR AF KEPPNISSKAPI >> BÖRN LANDSMENN fundu fyrir mestu gaddhörku vetrarins í gær og kólnaði eftir því sem leið á daginn. Veðurstofan gerði ráð fyrir að kuldakastið næði hámarki í nótt sem leið og árla dags í dag. Frost- ið færi víða niður fyrir 20 stig inn til landsins sunnan- og vest- anlands, en síðan færi að hlýna á ný. Í gær gekk á með éljum á Norð- ur- og Austurlandi en annars stað- ar var léttskýjað. Haraldur Eiríks- son, veðurfræðingur á Veður- stofunni, sagði að áfram yrði éljagangur fyrir norðan og sums staðar mætti búast við stanslausri snjókomu en seinni partinn færi að draga úr frostinu. Spáin fyrir nótt- ina og morguninn var frá um 10 stiga frosti úti við sjóinn og niður fyrir 20 stig í innsveitum. | 6 Árvakur/Árni Sæberg Mesta kuldakastið Gengur á með éljum og frostið niður fyrir 20 stig í innsveitum landsins Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is VILHJÁLMUR Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, varpaði þeirri hugmynd fram á fundi Landssambands kúa- bænda um framtíð mjólkurfram- leiðslu að næsti samningur sem ríkið gerði við kúabændur yrði síð- asti búvörusamningurinn. Samn- ingurinn fæli í sér að ríkið keypti allt greiðslumark af bændum. Vilhjálmur sagðist setja þessa hugmynd fram til umræðu, m.a. vegna þess að það kynni að vera að pólitískur stuðningur við greiðslu- markið myndi dvína á næstu árum. Hann sagði einnig að kostnaður bænda við að kaupa greiðslumark væri mikill og hefði óhjákvæmilega veruleg áhrif á afkomu í greininni. Hugmynd Vilhjálms byggðist á því að ríkið gerði samning við bændur um að kaupa allan mjólk- urkvóta. Hann sagði að það væri hægt að reikna út hvað þyrfti að borga mikið árlega fyrir greiðslu- markið. Hann sagðist ekki vera viss um að þetta væri svo óskap- lega há upphæð. Ríkið gæti gefið út skuldabréf sem bændur réðu hvað þeir gerðu við. Bændur gætu átt það eða selt. Þeir gætu líka not- að fjármunina til að greiða skuldir. „Það sem ynnist við þetta er að við sætum eftir með miklu lægri kostnað fyrir alla greinina og miklu heilbrigðari möguleika til að hag- ræða og fjárfesta í framleiðslu- tækjum. Við myndum líka vera í miklu betri stöðu til að takast á við samkeppni sem mun koma að utan og í betri stöðu til að lækka verð,“ sagði Vilhjálmur. Ríkið kaupi kvótann Í HNOTSKURN »Greiðslumark eða kvóti erákveðinn af ríkinu. Kvótinn var upphaflega settur á vegna þess að framleiðslan var of mikil. Undanfarin misseri hef- ur hins vegar frekar skort mjólk en hitt. »Hugmynd Vilhjálms fékkþokkalegar viðtökur á fundinum. Þeir sem tjáðu sig sögðu sjálfsagt að skoða þessa tillögu vandlega.  Gerður verði samningur við bændur sem verði síðasti búvörusamningurinn  Tillögu varpað fram um að ríkið hætti beinum stuðningi við kúabændur FRÉTTASKÝRING Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is GENGISBUNDIN lán heimila námu 138 milljörðum króna í desember sl. og eru í sögulegu hámarki, sam- kvæmt tölum frá Seðlabankanum. Voru þau um 73 milljarðar í desember 2006 og hækkuðu því um 90% á tólf mánaða tímabili. Á sama tíma er gengi krónunnar nánast óbreytt og felst aukningin því fyrst og fremst í því að sífellt fleiri taka slík lán. Lán í erlendri mynt, svokölluð myntkörfulán, hafa lengi staðið bíla- kaupendum til boða. Styttra er síðan slík íbúðalán fóru að bjóðast. Íbúða- lán í erlendri mynt námu um áramót- in 35,9 milljörðum króna eða um 26% af öllum slíkum lánum og höfðu hækkað um 13,2 milljarða á síðari helmingi ársins. 16% af heildarskuldum heimila Í lok síðasta árs skulduðu heimilin samtals 838,2 milljarða hjá banka- kerfinu en það er aukning um rúm- lega 130 milljarða á einu ári. Jukust skuldirnar um tæpa fjórtán milljarða í desember einum. Hlutdeild erlendra skulda heimila hefur farið vaxandi á síðustu mánuðum og þau eru nú rúm- lega 16% af heildarskuldum heimila. Breytingar á gengi krónunnar hafa áhrif á greiðslubyrði gengisbundinna lána og þannig eykst greiðslubyrði heimila þegar krónan veikist og að sama skapi minnkar greiðslubyrðin þegar krónan styrkist. Ástæða þess að fólk kýs að taka lán í erlendri mynt felst í því að vextir eru mun hærri hér á landi en víða annars staðar. Hér greiðir fólk 14% vexti af láni sem það tekur í íslenskum krónum, en 4,75% af samskonar láni í evrum, 5,73% í dollurum og um 1% í japönskum jen- um, svo dæmi séu tekin. „Það er tiltölulega nýtilkomið að heimili séu að taka erlend lán, en við sjáum á meðal viðskiptavina okkar að þessi lán eru að sækja á,“ segir Ásta Sigrún Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heim- ilanna. Hún telur að fólk geri sér ekki alltaf grein fyrir þeim sveiflum sem orðið geta á greiðslubyrði lánanna. Það horfi fyrst og fremst til lágra vaxta og að lánin séu óverðtryggð. „Þetta varð nokkurs konar tísku- fyrirbrigði í upphafi árs í fyrra, að taka erlend lán til fasteignakaupa,“ segir Björn Rúnar Guðmundsson hjá greiningardeild Landsbankans. Þá hafi krónan verið frekar veik og líf fór að færast á ný í fasteignamarkaðinn eftir ákveðna stöðnun á árinu 2006. Í kjölfarið jókst sókn fólks í erlend íbúðalán. „Auðvitað felst í þessu ákveðin gengisáhætta fyrir heimilin,“ segir Björn Rúnar. 90% aukning á erlendum lánum Fólk gerir sér ekki alltaf grein fyrir sveiflum sem orðið geta á greiðslubyrði lánanna, segir forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna                                       !"# $  !"# Washington. AP. | Geimrannsóknastofnun Bandaríkjanna, NASA, hyggst senda út Bítlalagið „Across the Universe“ þvert yf- ir alheiminn til Pólstjörnunnar. Er þetta í fyrsta skipti sem geimrann- sóknastofnunin sendir lag út í geiminn. Út- sendingin var ákveðin í tilefni af 50 ára af- mæli NASA og 40 ára afmæli lagsins sem er eftir Paul McCartney og John Lennon. Gert er ráð fyrir því að lagið verði kom- ið til Pólstjörnunnar eftir 431 ár. Lagið verður sent út stafrænt sem MP3- skrá frá fjarskiptastöð NASA á Spáni á miðnætti aðfaranótt mánudags. Bítlalag sent til Pólstjörnunnar John Lennon Paul McCartney SPÆNSKA lögreglan hefur handtekið ís- lenskan mann á fertugsaldri eftir að tæpt kíló af meintum fíkniefnum fannst í bifreið sem hann ók. Lögreglan stöðvaði för mannsins skömmu eftir miðnætti aðfaranótt föstu- dagsins í sumarhúsahverfinu La Marina á Costa Blanca-ströndinni. Samkvæmt spænska vefmiðlinum In- formation fundust tveir pokar með tæpu kílói af hvítu dufti sem talið er að sé amfeta- mín er lögreglan stöðvaði Íslendinginn á Helsinkigötu í La Marina. Íslendingur handtekinn á Costa Blanca Fundu tæpt kíló af meintu amfetamíni ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.