Morgunblaðið - 02.02.2008, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 02.02.2008, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ SIGLINGASTOFNUN Stefnumótun í samgöngum Samgönguráð efnir til fimmta fundar í fundaröð sinni um stefnumótun í samgöngum. Fundarefnið að þessu sinni er: Almenningssamgöngur • Sporvagnakerfið í Stuttgart - tekist á við áskoranir 21. aldarinnar. Manfred Bonz fv. yfirmaður almenningsvagna í Stuttgart í Þýskalandi. • Samþætt svæðis- og samgönguskipulag með almenningssamgöngur sem burðarás. Gunnar Eiterjord yfirmaður samgöngumála hjá Rogalandsfylki í Noregi • Drög að skýrslu um almenningssamgöngur sveitarfélaga. Páll Brynjarsson, formaður nefndar um þetta efni skipaðri af samgönguráðherra. • Umræður og fyrirspurnir. Fundarstjóri er Dagur B. Eggertsson formaður samgönguráðs. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 7. febrúar 2008 kl. 15:00 - 17 á Grand Hótel Reykjavík. Aðgangur er ókeypis og öllum er heimill aðgangur. Væntanlegir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir að skrá sig á netfangið postur@sam.stjr.is eigi síðar en klukkan 12:00 þann 7. febrúar 2008. Samgönguráð Flugmálastjórn Íslands - Siglingastofnun Íslands - Vegagerðin Samgönguráðuneytið Ljósheimar fyrir huga, líkama og sál Allir hjartanlega velkomnir! Brautarholti 8 - sími 551 0148 - www.ljosheimar.is Ljósheimadagur Opið hús sunnudaginn 3. febrúar kl. 14-18 Á morgun sunnudag höldum við Ljósheimadag hátíðlegan og kynnum starfsemi Ljósheima gestum og gangandi. Boðið verður upp á örtíma í hinum ýmsu meðferðum gegn vægu gjaldi. Meðal þess sem verður í gangi yfir daginn: Heilunarpýramýdinn verður uppi, tarotlestur, gestum gefst kostur á að æfa sig í spilalögn undir leiðsögn, kristalla- sýning- og sala, og að sjálfsögðu verður te-hús Ljós- heima sneisafullt. Dagskrá í sal: 15:00 Kynning og sýning á barnajóga 15:30 Sýning á nuddi með kristöllum 16:15 Kynning á Reiki 17:00 Hóphugleiðsla í sal LOKAUMFERÐ Skákþings Reykjavíkur á dögunum bauð upp á mikla spennu, ekki síst vegna þess að efsti maður mótsins, Henrik Danielssen, gat samkvæmt reglum mótsins ekki orðið Skákmeistari Reykjavíkur. Líklegastur sigurveg- ari var sennilega Guðmundur Kjart- ansson sem hafði lagt Henrik að velli fyrr í mótinu og teflt af miklu öryggi en hann átti að kljást við Daða Óm- arsson í lokaumferðinni. Davíð Kjartansson fékk það erfiða verkefni að tefla við Henrik í síðustu umferð. Henrik þurfti aðeins jafntefli til að tryggja sér einn efsta sætið. Aðrir sem voru inni í myndinni voru Sig- urbjörn Björnsson og Sverrir Björnsson. En margt fer öðruvísi en ætlað er. Guðmundur Kjartansson lenti í óvæntum erfiðleikum í skákinni við Daða Ómarsson og var um tíma með tapað tafl. Honum tókst með seiglu að rétta sinn hlut og ná jafntefli. Þeir Sigurbjörn og Sverrir, sem einnig voru með sex vinninga fyrir lokaum- ferðina, sættust einnig á jafntefli. Athygli manna beindist nú mjög að viðureign Davíðs og Henriks. Davíð gat tryggt sér titilinn næði hann að leggja Henrik að velli. Hann ætlaði sér greinilega sigur og náði mark- miði sínu m.a. vegna þess að hann hélt haus í afar vandasamri stöðu. Byrjun þessarar skákar kom ekki á óvart. Henrik leitar stundum í smiðju til Bents Larsen sem kom vængtöflum á kortið á alþjóðlegum mótum sjöunda áratugarins. Í 19. leik vinnur svartur peð en Davíð heldur áfram að byggja upp stöðu sína eins og ekkert hafi í skorist. Það dregur til tíðinda í 29. leik þegar hvítur nær miklum þrýstingi eftir h- línunni og plantar riddara á f6 sem lamar allt athafnafrelsi svarts. 37. Leikur hvíts, b4, brýtur niður peða- stöðu svarts. Framhaldið krefst mik- illar nákvæmni og í stað þess að létta á spennu sem oft er tilhneiging held- ur Davíð öllu mótspili svarts niðri með rólegum en hnitmiðuðum leikj- um: 38. Hh4, 40. Kb2, 43. c3 og 45. Hh1. Án efa ein besta skák mótsins: Skákþing Reykjavíkur 2008; 9. umferð: Davíð Kjartansson – Henrik Danielssen Pirc-vörn 1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4. h3 Bg7 5. Be3 c6 6. f4 Da5 7. Bd3 Rbd7 8. Df3 e5 9. dxe5 dxe5 10. f5 b5 11. g4 h6 12. Bd2 Dc7 13. Rge2 Bb7 14. Rg3 Bf8 15. a4 a6 16. Rd1 Bc5 17. Re3 Dd6 18. 0-0-0 Dd4 19. Kb1 Dxa4 20. h4 0-0-0 21. g5 hxg5 22. hxg5 Rh7 23. Dg4 Kc7 24. fxg6 fxg6 25. Hdf1 Hdf8 26. Hxf8 Rdxf8 27. Bc3 Bd4 28. b3 Da3 29. Bxd4 exd4 30. Df4+ Dd6 31. e5 De6 32. Rg4 Hg8 33. Hh6 Hg7 34. Rf6 c5 35. Rge4 Kb6 36. Rd6 Bc6 37. b4 He7 38. Hh4 Kc7 39. bxc5 Kb8 40. Kb2 Ka7 41. Bd4 Bxe4 42. Dxe4 d3 43. c3 d2 44. Dd4 Hc7 45. Hh1 Ka8 46. Ha1 Hc6 47. De4 – og svartur gafst upp. Alþjóðlegt unglingamót Hellis Taflfélagið Hellir stendur fyrir al- þjóðlegu unglingamóti dagana 1.-3. febrúar 2008. Mótið fer fram í húsa- kynnum Skákskóla Íslands, Faxa- feni 12. 29 keppendur eru skráðir til leiks og þar tíu erlendir skákmenn sem koma frá Danmörku, Svíþjóð, Skotlandi og Þýskalandi. Mótið hófst kl. 10 í gærmorgun en þá lék nýskip- aður formaður Íþrótta- og tóm- stundaráðs, Bolli Thoroddsen, fyrsta leikinn í mótinu. Flestir af bestu íslensku skák- mönnunum sem eru fæddir 1991 eða síðar taka þátt í mótinu en stiga- hæsti keppandinn er Sverrir Þor- geirsson. Rétt eins og erlendu skák- mennirnir koma þeir innlendu einnig víða að auk fjölda Reykvíkinga, frá Borgarnesi, Vestmannaeyjum, Ak- ureyri og Kópavogi. Um er að ræða stærsta og sterkasta alþjóðlega skákmót sem fram hefur farið hér- lendis fyrir unglinga. Aðalstyrktar- aðili mótsins er Reykjavíkurborg en einnig styðja Kópavogsbær og Skák- samband Íslands mótshaldið. Davíð vann úrslitarimmuna Helgi Ólafsson helol@simnet.is SKÁK Skákþing Reykjavíkur 6.-25. janúar 2008 Skákmeistari Reykjavíkur 2008 Davíð Kjartansson að tafli. Ljósmynd/Fréttir VM Íslandsmeistari aftur Kristófer Gautason úr Taflfélagi Vestmannaeyja varð um síðustu helgi Íslandsmeistari barna annað árið í röð. Piltar úr Eyjum hafa þar með hlotið þennan titil þrisvar á síðustu fjórum árum. Hér er Kristófer með verðlaunagripina fyrir sigurinn. Hann verður fulltrúa Íslands í yngsta aldursflokknum á Norðurlandamóti pilta sem fram fer um miðjan mánuðinn. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Stjörnukeppni á Bridshátíð Hin vinsæla stjörnukeppni verður spiluð 13. febrúar kl. 19. Sextán sveitir taka þátt og er skráð í pörum en sveitafélagar eru dregnir saman. Spilað er á Hótel Loftleiðum. Í fyrra komust færri að en vildu en nú er laust fyrir nokkur pör. Skráning og nánari upplýsingar hjá Bridssambandinu í síma 587 9360. Frá Hreppamönnum Nýlokið er tvenndarkeppni sem spiluð var þrjú kvöld hjá okkur Hreppamönnum. Keppnin var spenn- andi og jöfn en spilað var á 6 borðum. Lokastaðan: Helga Teitsd. – Karl Gunnlaugss. 376 Anna Ipsen – Pétur Skarphéðinss. 371 Guðrún Hermannsd. – Magnús Gunnlss.364 Guðrún Einarsd. – Hreinn Ragnarss. 354 Elín Kristmundsd. – Guðm. Böðvarss. 333 Næsta þriðjudagskvöld hefst síðan keppni í aðaltvímenningi vetrarins. Gullsmárinn Það var spilað á 11 borðum 31. jan. sl. og urðu úrslitin þessi í N/S: Sigtr. Ellertsson – Tómas Sigurðsson 217 Sigurður Björnsson – Ólafur Gunnarss. 192 Eysteinn Einarsson – Jón Stefánsson 191 Karl Gunnarss. – Stefán Friðbjarnars. 189 A/V Aðalheiður Torfad. – Ragnar Ásmundss. 201 Haukur Guðbjartsson – Jón Jóhannss. 197 Oddur Jónsson – Stefán Ólafsson 189 Einar Markússon – Steindór Árnason 188 Boðið verður upp á bollukaffi næsta mánudag. Bridsdeild FEB í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl, 31.1. Spilað var á 9 borðum. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S Friðrik Jónsson – Tómas Sigurjónss. 257 Júlíus Guðmundss. – Ragnar Björnss. 255 Jón Hallgrímss. – Helgi Hallgrímss. 251 Árangur A-V Eyjólfur Ólafsson – Óli Gíslason 235 Hólmfríður Árnad. – Stefán Finnbogas. 234 Soffía Theodórsd. – Oddur Halldórss. 233 Barómeter í Kópavogi Heldur dregur í sundur í toppbar- áttunni eftir tvö kvöld í barómetern- um og hjónin eru staðráðin í að gefa ekki eftir. Af virðingu við „forsetann“ gáfu þau þó eftir tvö stig, þau einu sem þau hafa tapað í keppninni hingað til. Staða efstu para: Birna Stefnisd. – Aðalsteinn Steinþórss. 80 Bernódus Kristinss. – Birgir Steingr. 62 Inda Hrönn Björnsd. – Svala Pálsd. 53 Ragnar Björnss. – Sigurður Sigurjónss. 30 Eiður M. Júlíuss. – Júlíus Snorrason 22 FRÉTTIR AÐALFUNDUR Varðar – Full- trúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík var haldinn laug- ardaginn 26. jan- úar síðastliðinn. Marta Guð- jónsdóttir var endurkjörin for- maður en auk hennar voru kjörin í stjórnina Andri Óttarsson, Inga Dóra Sigfúsdóttir, Garðar Ingvars- son, Halldór Guðmundsson, Júlíus Sæberg Ólafsson, Kristín Edwald og Ingunn Guðlaug Guðmunds- dóttir. Auk framangreindra sitja í stjórninni formenn sjálfstæðisfélag- anna í Reykjavík en þau eru 17 og í þau eru skráðir um 22.000 félagar. Ný stjórn Varðar kjörin Marta Guðjónsdóttir KRANAKLIFUR og kleinur – kaffispjall Saving Iceland verður sunnudaginn 3. febrúar kl. 19.30 á Kaffi Hljómlind, Laugavegi 21. Í fréttatilkynningu segir m.a. að Saving Iceland-hreyfingin sé hjúp- uð dulúð, orðrómi og almennum annarleika. Sú mynd sem fjöl- miðlar og bloggarar gefi sé skökk. Þess vegna sé hreyfingin mán- aðarlega með gamaldags kaffi- spjall. Í þetta skiptið verður dag- skrá kvöldsins opin og mun ráðast af því hverjir koma og hvað þeir vilja gera; horfa á kvikmyndir tengdar beinum aðgerðum, taka þátt í heimspekilegum umræðum eða hvað annað sem fólki dettur í hug. Boðið verður upp á kaffi og með því. Kranaklifur og kleinur FYRIRLESTUR á vegum Alþjóða- málastofnunar Háskóla Íslands og norska sendiráðsins á Íslandi verð- ur haldinn miðvikudaginn 6. febr- úar kl. 12-13 í stofu 201 í Árna- garði. Geir Westgaard, sérlegur ráð- gjafi og yfirmaður „High North“ verkefnisins í utanríkisráðuneyti Noregs, fjallar um ógnanir og tæki- færi í hánorðri. Fyrirlesturinn mun fara fram á ensku og er opinn öllum. Aðgangur er ókeypis. Sjá einnig á www.hi.is/ ams. Ógnanir og tæki- færi í hánorðri RANGT var farið með nafn Ásu Richardsdóttur, framkvæmdastjóra Íslenska dansflokksins, í Morgun- blaðinu í gær. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT Rangt nafn NÝR opnunartími Leiðbein- ingastöðvar heimilanna er mánu- daga og þriðjudaga kl. 10-14 og fimmtudaga og föstudaga kl. 14-17. Lokað er á miðvikudögum. Leiðbeiningastöð heimilanna hef- ur verið starfrækt í rúm 40 ár og er rekin af Kvenfélagasambandi Ís- lands, notendum að kostn- aðarlausu. Hjá Leiðbeiningastöðinni er hægt að fá upplýsingar og ráð er varða matreiðslu, bakstur, heim- ilisþrif, blettahreinsun og fleira er snertir heimilishald. Einnig er þar fylgst með evrópskum gæðakönn- unum á heimilistækjum, segir í fréttatilkynningu. Gjaldfrjálst símanúmer stöðv- arinnar er 552 1135. Velkomið er að senda fyrirspurnir á netfangið leidbeiningar@kvenfelag.is. Leiðbeininga- stöð heimilanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.