Morgunblaðið - 02.02.2008, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
UMTALSVERÐAR hækkanir urðu
á evrópskum hlutabréfamörkuðum í
gær og munu fréttir af hugsanlegum
yfirtökum í námavinnslu- og fjár-
málageirunum hafa haft áhrif þar á.
Kaup kínverska álfyrirtækisins
Chinalco, ásamt bandaríska álfyrir-
tækinu Alcoa, á 12% hlut í námafyr-
irtækinu Rio Tinto leiddu til hækk-
ana á námafyrirtækjum eins og hinu
franska Eramet, sem hækkaði um
4,9%, og þýska stálfyrirtækinu Salz-
gitter, sem hækkaði um 14,6%. Þá
hækkuðu bréf Norsk Hydro um
11,7% og bréf sænska stálfyrirtæk-
isins SSAB um 9,3%.
Veik staða franska bankans Soc-
iété Générale, sem eins og kunnugt
er tapaði nýlega milljörðum evra á
svikum starfsmanns, ýtti undir orð-
róm um að yfirtaka á bankanum
væri yfirvofandi og hækkaði gengi
bréfa bankans um 18,9%. Breska
FTSE-vísitalan hækkaði um 2,54%,
þýska DAX um 1,71% og franska
CAC um 2,22%. Á Norðurlöndum
hækkuðu helstu vísitölur, samnor-
ræna vísitalan um 2,75%, sú sænska
um 2,89% og sú norska um 2,70%.
Í Bandaríkjunum hækkuðu hluta-
bréfavísitölur sömuleiðis, þótt hækk-
anirnar væru ekki eins miklar og í
Evrópu.
Yfirtökutilboð Microsoft í Yahoo
átti þar stóran þátt, en á móti kemur
að neikvæðar fréttir af atvinnumál-
um unnu á móti hækkununum.
Fækkaði störfum í bandaríska hag-
kerfinu um 17.000 og er það í fyrsta
sinn síðan í ágúst 2003 sem störfum
fækkar þar í landi.
Dow Jones-vísitalan hækkaði um
0,73% og Nasdaq um 0,98%.
Hlutabréfamarkaðir
taka stökk upp á við
Fréttir af yfirtökum höfðu örvandi áhrif á erlenda markaði
Reuters
Niður Nikkei-vísitalan japanska lækkaði í gær, ein helstu vísitalna heims.
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar OMX
á Íslandi lækkaði um 0,32% í gær og
er 5.463 stig. Bréf Century Al-
uminium hækkuðu um 6,13%, bréf
Exista um 4,41% og SPRON um
1,63%. Bréf Flögu lækkuðu um 3,2%
og Kaupþings um 1,15%.
Krónan styrktist aftur á móti í gær
um 0,40%, en velta á milli-
bankamarkaði nam 22,3 milljörðum.
Gengi Bandaríkjadollars er 64,68
krónur og evru 96,03 krónur.
Úrvalsvísitalan lækk-
ar annan daginn í röð
● CHINALCO og
Alcoa hafa keypt
14 milljarða dala
hlut í Rio Tinto,
þriðja stærsta
námafyrirtæki
heims. Áður hafði
stærsta námafyr-
irtæki heims,
BHP Billington
gert yfirtöku-
tilboð, en sam-
einuð hefðu Rio og BHP ráðið yfir yf-
irgnæfandi hluta álgrýtisnáma og
þriðjungi járngrýtis á heimsmarkaði.
Tilboði BHP í nóvember var hafnað.
Álfyrirtækin tvö munu ekki gera
frekara tilboð í Rio Tinto. Chinalco
lagði fram drjúgan meirihluta kaup-
fjár, en Alcoa 1,2 milljarða dala.
Rio Tinto hækkaði um 16% í kjöl-
far kaupanna og varð gengið 11%
hærra en tilboð hins ástralska BHP.
Kaup álrisa á 12% Rio
Tinto útiloka yfirtöku
Járngrýtisnámur
Rio Tinto.
● VELTA viðskipta með skuldabréf í
Kauphöll OMX á Íslandi í janúar nam
683 milljörðum króna og hefur hún
aldrei verið meiri í einum mánuði.
Fyrra met var sett í nóvember í
fyrra þegar velta á skuldabréfamark-
aði nam 361 milljarði og er aukn-
ingin því 322 milljarðar eða 89,2%.
Mest voru viðskiptin með íbúða-
bréf, eða fyrir 357 milljarða króna og
þar af námu viðskipti með
HFF150644 bréfin 140 milljörðum.
Velta með hlutabréf nam 201 millj-
arði króna, sem er 37% minni velta
en á sama tíma í fyrra. Velta með
kauphallarsjóði nam 4,7 milljörðum.
Nýtt met sett á
skuldabréfamarkaði
● STORMUR á
fjármálamörk-
uðum krefst
hærri varn-
argarða, segir
danska fjármála-
eftirlitið, sem
mun auka eftirlit
með dönskum
bönkum. Nú þeg-
ar hafa nokkrir bankar fengið „gula
spjaldið“ frá eftirlitinu vegna him-
inhárra útlánavaxta, segir í Politi-
ken. Lektor við viðskiptaháskólann í
Kaupmannahöfn óttast að fleiri
smærri bankar muni fylgja í kjölfar
Bank Trelleborg sem varð gjald-
þrota. Lausafjárkreppan og lækk-
andi fasteignaverð sé aðeins byrj-
unin á vandræðunum.
Aukið eftirlit með
dönskum bönkum
HEFÐI verið fáránlega lágt fyrir
hálfu ári,“ segja greinendur um
44,6 milljarða dala kauptilboð hug-
búnaðarfyrirtækisins Microsoft í
vefgáttina Yahoo. Tilboðið hljóðar
upp á 31 dal, rúmar 2.000 krónur, á
hlut, 62% hærra er lokaverð Yahoo
á fimmtudag. Bréf Yahoo ruku
strax upp um 50% á eftirmarkaði
fimmtudags en Microsoft lækkaði
hins vegar um 5%.
Microsoft gaf til kynna að sam-
einuð myndu fyrirtækin styrkjast í
samkeppninni við Google, sem
heldur úti stærstu leitarvélinni á
netinu, en Yahoo og Microsoft eru í
öðru og þriðja sæti. Líklega mun
sameining vekja athygli samkeppn-
isyfirvalda bæði í Bandaríkjunum
og Evrópu. Þá eru samlegðaráhrif
áætluð verða um einn milljarður
dala og stærðarhagkvæmni aukin
umtalsvert, ekki síst á auglýs-
ingamarkaði.
Í yfirlýsingu frá Yahoo sagði að
stjórnin myndi meta tilboðið vand-
lega út frá langtímaáætlunum.
Yahoo er spáð 32% samdrætti á
árinu 2008, en þegar frá ársbyrjun
hefur markaðsverð þess lækkað um
18%. Í ljósi veikrar stöðu þykir
Yahoo líklegt til að samþykkja til-
boðið. Tímasetning Microsoft er því
heppileg, en orðrómur um þetta yf-
irtökutilboð hefur verið á kreiki
síðan snemma á síðasta ári. Þá gæti
11% lækkun Standard & Poor’s vísi-
tölunnar frá hátindi sínum í októ-
ber kveikt á fleiri fyrirtækjum í leit
að góðum kaupum.
Yahoo fyrir 45 ma.
KAUPRÉTTARSAMNINGAR
starfsmanna fyrirtækja verða að fela
í sér kröfu um árangur og hluthafar
verða að geta treyst því að stjórn og
stjórnendur hafi hag allra hluthafa
að leiðarljósi. Þetta kom fram í er-
indi Vilhjálms Bjarnasonar á aðal-
fundi Samtaka fjárfesta í gær.
Vilhjálmur tók kaupréttarsamn-
inga hjá Glitni og Spron sem dæmi
um að starfsmönnum séu réttar allar
hækkanir frá samningstíma burtséð
frá því hvernig þeir hafi staðið sig.
Hann segir hagsmuna hluthafa í
engu gætt með þeim samningum.
„Það er lágmarkskrafa að kaup-
réttarsamningar verði aðeins að
kaupauka ef skilgreindum lágmarks-
árangri er náð,“ segir Vilhjálmur.
„Stjórn fyrirtækis á að setja ásætt-
anleg markmið um arðsemi, og ef
markmiðum er náð, þá aðeins verði
kaupréttur einhvers virði.“
American Express var tekið sem
dæmi um fyrirtæki þar sem stjórnin
setti forstjóranum sérstök skilyrði
um árangur til langs tíma til að fullur
kaupréttur hans fengist innleystur.
Meðal þeirra voru skilyrði um að
vöxtur fyrirtækisins yrði minnst
15% á ári að meðaltali, vöxtur tekna
yrði minnst 10% á ári og arðsemi eig-
in fjár yrði minnst 36% á ári.
Vilhjálmur telur að hér á landi sé
ekki gert ráð fyrir að menn nái neinu
fram eða geri betur en aðrir. Þarna
sé beinlínis gengið á rétt hluthafa.
Kaupréttarsamningar
ganga á rétt hluthafa
Árvakur/Brynjar Gauti
Árangur, takk! Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjár-
festa, segir samninga Spron og Glitnis ekki þjóna hagsmunum hluthafa.
LÍKURNAR á því að lánardrottnar
hollenska bankans NIBC fái allt það
er þeim ber eru ekki miklar ef
marka má frétt Bloomberg-
fréttastofunnar. Þar segir að mark-
aðurinn meti það svo að 70% áhætta
sé á því að bankinn muni lenda í
vanskilum á næstu fimm árum í
kjölfar þess að Kaupþing hætti við
kaupin á honum.
Þessi tala er fengin með hjálp
verðmatslíkans bandaríska fjár-
festingarbankans JPMorgan Chase,
og byggist á því að til þess að
tryggja 10 milljóna evra skuldabréf
bankans til fimm ára þurfi að
greiða 2,6 milljónir evra fyrirfram
og hálfa milljón evra á ári. Að sögn
Bloomberg er krafan um fyrirfram-
greiðslu til marks um að fjárfestar
sjái hættu á vanskilum.
Í útreikningunum er gert ráð fyr-
ir því að félagið muni geta staðið
skil á 40% af skuldbindingum sínum
við hvern lánardrottin.
Miklar líkur
á vanskilum
hjá NIBC
&
&
&
'&
() ( !"
" *
+,
&
& &
!"#$%&'( ( )
$(
.
(/01#
'23
.
(/01#
,4 "$1#
5.
(/01#
.
$
6 1#
7#, " 08
9:"
"
;<!
.
(/01#
=/0> 9' 1#
5 "6 :"
"1#
!
1#
?@
$
//
A'/
"
#6#1#
+!B 1#
C""/
1#
D-1#
!"<1#
$
$ <
)B"
$
$ <?!$
(
!/?E
, '
9.
(/01#
F
(B'
;<!
<.
(/01#
G1!
1#
+
B99 9 "$3 1#
H "
/"$3 1#
! "#
$
I! $/
B
/ /I(#
7'.
1#
70 1#
% &'(
)
H " 0$
9" "
+
6(J
( 9"K
=/0
#- %## #-%## -## #D--#-
#-#D
--#-# #DD##--
#-# #%# DD#-# ##D
#D#
##%
A
#%-#-
A
--#%
# #%# A
A
A
-#%-# A
A
L L DLD
%LD-
%%-L D L DL -L%
L
L-
-D-L -L D-L DLD%
DL A
A
D--L A
A
- LD-
D %L %% DL
L-
LD
DL -L%
-L%
L%
--L DL A
A
A
D- L-
3
2 " 0$
DD
-D
-
D
D
-
A
D
A
A
A
-
A
A
A
A
A
9"!$ 9
2 "#2!
"
D D D D # # -# ● EFTIR að hafa hækkað á fimmtu-
dag lækkaði skuldatryggingarálag á
skuldbréfum bankanna í gær.
Um miðjan dag í gær var álagið á
bréf Kaupþings um 4,65 prósentu-
stig og hafði þá lækkað um 0,20
prósentustig frá fyrri degi. Álag á bréf
Glitnis lækkaði sömuleiðis um 0,20
prósentustig og var um 4,25 pró-
sentustig og álag á bréf Landsbanka
var um 2,40 prósentustig eftir 0,15
prósentustiga lækkun.
Álagið lækkar á ný
EIGINFJÁRSTAÐA Exista er of-
metin í ársreikningum fyrirtækisins
að mati greiningardeildar Finn-
landsdeildar fjárfestingarbankans
Carnegie. Í áliti bankans á uppgjöri
Exista er einnig fundið að reiknings-
skilaaðferðum Exista, einkum áhrifa
hlutdeildarfélaganna Kaupþings og
Sampo á ársreikning Exista. Í stað
þess að reikna gengishagnað, eða
-tap, af þessum eignum reiknar Ex-
ista sér hlut í hagnaði fyrirtækjanna.
Í áliti Carnegie er bent á að í árs-
reikningnum kemur fram að mark-
aðsvirði Kaupþings og Sampo í árs-
lok 2007 hafi verið 992 milljónum
evra lægra en bókfært virði þeirra
hjá Exista. Exista lét framkvæma
virðisrýrnunarpróf á eignunum og
var ekki talin ástæða til að endur-
meta félögin þar sem lækkunin á
markaðsvirði sé talin tímabundin.
Segir í áliti Carnegie að illskiljan-
legt sé hvernig virði félaganna í
reikningum Exista geti verið hærra
en markaðsvirði þeirra.
Vegna þessa, sem og lækkana á
markaðsvirði Bakkavarar og Store-
brand, þar sem Exista er stór hlut-
hafi, telst Carnegie svo til að eigið fé
Exista sé nær 900 milljónum evra í
stað þeirra 2,4 milljarða sem greint
sé frá í ársreikningnum. Hins vegar
segir að ekki sé víst að Exista neyð-
ist til að selja eignir á árinu.
Carnegie
gagnrýnir
Exista