Morgunblaðið - 02.02.2008, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.02.2008, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Eftir Atli Vigfússon Aðaldalur | Fjölbreytt danssýning var haldin í félagsheimilinu Ýdölum á dögunum, en það voru grunn- og leikskólanemendur úr Aðaldal, Kinn, Tjörnesi og Reykjahverfi sem sýndu ásamt kennara sínum árangur af danskennslu vikunnar. Það var Dansskóli Jóns Péturs og Köru sem sá um að segja krökk- unum til í dansmenntinni og á síð- asta degi námskeiðsins var for- eldrum og aðstandendum boðið að koma og sjá útkomuna. Notað á diskótekunum „Þetta er að jafnaði ein vika á hverju ári og það er alltaf mjög gam- an að vinna með þessum hópi,“ segir Jón Pétur Úlfljótsson danskennari. „Við kennum aðallega dansa sem hafa skemmtanagildi og krakkarnir nota þessa kunnáttu í félagslífinu, til dæmis á diskótekum. Dansinn er góður að því leyti að hann byggir upp hreyfifærni einstaklingsins og tekur á feimni fólks og stuðlar þann- ig að betri líðan. Flestum líður vel í dansi, en auðvitað fellur þetta ekki að öllum og þess vegna má ekki gera þetta of flókið, til dæmis með því að hafa þetta of mikið efni og keyra þannig of þungan pakka.“ Jón Pétur segir að besta greiðslan til sín sé að börnin dansi og það sé svo gaman þegar eitthvað sitji eftir hjá krökkunum sem hafi notagildi. Hann segist kenna mikið leikdansa fyrir yngri nemendur og einnig skip- tidansa sem séu mjög vinsælir. Á sýningunni var létt yfir dans- nemendunum og fannst fólki mjög gaman að sjá hve mikla færni margir höfðu öðlast á gólfinu. Jón Pétur var hæstánægður með árangurinn og hvatti krakkana til að dansa mikið á þorrablóti skólans sem haldið verður á næstunni. Dansinn stuðlar að betri líðan Gaman Helgi Maríus Sigurðsson og Jana Valborg Bjarnadóttir, nemendur í Hafralækjarskóla, höfðu gaman af dansinum, eins og félagar þeirra. Í HNOTSKURN »Þetta er 11. árið í röð semdanskennsla á vegum Jóns Péturs og Köru fer fram í Hafra- lækjarskóla. »Mikið er að gera hjá dans-kennurum og ef allir skólar væru með danskennslu væri skortur á fólki í þessari starfs- grein. Eftir Ingimund Óðin Sverrisson Vesturbyggð | Davíð Rúnar Gunnarsson hefur verið ráðinn slökkviliðsstjóri Brunavarna Vest- urbyggðar og Slökkviliðs Tálknafjarðar. Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð reka sitt hvort slökkviliðið, eins og þau hafa gert, en slökkviliðsstjórinn og aðstoðarslökkviliðsstjóri eru sameiginlega yfir báðum liðunum. Davíð segir að með ráðningu starfsmanns í fullt starf sé stórt skref stigið í brunavarnarmál- um. Þetta sýnir framsýni hjá sveitarstjórnum Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps þar sem öryggi og velferð íbúa sé sett í forgang. Þrjátíu slökkviliðsmenn starfa hjá slökkvilið- unum báðum og mun þessi samvinna styrkja bæði liðin umtalsvert. ,,Við erum með vel þjálfað lið, flestir eru búnir með grunnnám fyrir hluta- starfandi slökkviliðsmenn. Aðalvandamálið varðandi mönnun liðsins er almennt byggðar- vandamál því allt of oft flytja menn í burtu og þar með tapast því miður mikil þekking og reynsla,“ segir Davíð. Ríflega 1.200 íbúar eru á svæðinu og er skemmst frá því að segja að mikil áhersla hefur verið lögð á að fjölga æfingum og bæta útbúnað slökkviliðanna tveggja undanfarin ár. Stefnt er að því að auka eldvarnaeftirlit enn frekar í sam- vinnu við fyrirtæki og stofnanir á svæðinu. Verið er að leggja lokahönd á brunavarnar- áætlun fyrir sunnanverða Vestfirði og kemur hún til með að greina hversu vel slökkviliðin eru búin til að fást við þær áhættur sem eru á svæð- inu, og hvað þurfi að bæta til þess að uppfylla þær kröfur og skyldur sem gerðar eru til slökkviliða. Morgunblaðið/Ingimundur Óðinn Sverrisson Slökkviliðsstjóri Davíð Rúnar Gunnarsson er hæstráðandi í slökkvistöðvunum. Einn stjóri ráðinn til að stjórna tveimur liðum Volkswagen – kolefnisjafnaður útblástur Passat 4x4 F í t o n / S Í A
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.