Morgunblaðið - 02.02.2008, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 02.02.2008, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2008 21 - kemur þér við Hvað ætlar þú að lesa í dag? Ingibjörg Kristjáns- dóttir og Afríkuveikin Ný tækni, gamalt velferðarkerfi Bergur Ebbi á heimskan flatskjá Baldur Trausti Hreinsson opnar myndaalbúmið Fiskvinnslan ekki svipur hjá sjón Illugi Jökulsson skrifar um siðferði í pólitík KULDABOLI bölvaði árangurs- laust vestur á Melum á fimmtudags- kvöld því aðsóknin virtist hátt yfir meðallag. Það var að líkindum mest að þakka einleikara kvöldsins, Nat- ösju Korsakovu, enda langreynt að ung alþjóðleg stórtalent trekkja bet- ur en flest annað. Varla spillti held- ur að rússneska fiðlustjarnan ku af- komandi Rimskíjs Korsakovs og rithöfundur í þokkabót; vitanlega fyrir utan óhaggaðar vinsældir Fiðlukonserts Brahms er telja má meðal fimm ástsælustu slíkra verka. Enda stóð ekki á funheitum und- irtektum að leik loknum. Þeim linnti sízt þegar Korsakova galdraði krefj- andi aukalagið, 1. þátt úr einleiks- sónötu Ysafes nr. 5, fram úr erminni með gjörsamlega óþvinguðum þokka. Aðalviðmiðunin var samt hið al- þekkta snilldarverk Brahms, og þar varð ég fyrir svolitlum vonbrigðum. Þrátt fyrir frekar hæg og viðráð- anleg tempó í útþáttum var hljóm- sveitin heldur loðin, jafnvægið mis- gott (einkum gagnvart sólistanum) og allt að ísmeygilega hlédræg nálg- un Korsakovu í fíngerðasta lagi fyrir rustaheyrð Háskólabíós þótt hefði sjálfsagt komið betur út í viðunandi ómvist. Þá saknaði maður víða hins „demónískt“ blóðheita sígauna undir náttúrusælu yfirborði meist- araverksins. En mikil ósköp – sóló- röddin var dáfallega leikin, og kadenzan mikla í I. þætti var svo til örðulaus. Konsertforleikur brazílska tón- skáldsins Camargos Guarneris (1909–93) þar á undan var saminn 1942. Hressileg og auðtekin tónlist með nýklassísku yfirbragði, þótt bæri að mínu viti sterkari keim af bandarískri samtímatónlist (þ. á m. úr kvikmyndum og frá Broadway) en heimalandi höfundar. Hljóm- sveitin hefði þar að ósekju mátt vera hrynskarpari en heyrn bar stundum vitni. Þess gætti hins vegar minna í e-moll lokaatriði kvöldsins frá 1907. 2. og kunnasta af þrem sinfóníum Sergeis Rakhmaninoffs var í heild glæsilega leikin, jafnt í strengjum og tréi sem í glampandi pjátrinu. M.t.t. tíðra styttinga fyrri tíma hljómsveitarstjóra mátti að vísu segja að misvel hafi gengið að halda fullri athygli allar óskertu 57 mín- úturnar, og gæti ég helzt ímyndað mér sem aðalsökudólg að hér vant- aði fyrst og fremst botninn á styrksviðinu; ómissandi andstæðu sem t.a.m. aðalstjórnandi SÍ hefur reynzt einkar laginn við að laða fram, með 5. sinfóníu Vaughan– Williams í fersku minni. Þegar nán- ast ekkert fer niður fyrir með- alstyrk í jafnlöngu verki, kemst það varla hjá því að verka þreytandi á köflum. Engu að síður tóku hlust- endur vösku framlagi Johns Nesch- lings og hljómsveitarinnar með kostum og kynjum. Ísmeygilegur þokki TÓNLIST Háskólabíó Guarnieri: Abertura concertante. Brahms: Fiðlukonsert. Rakhmaninoff: Sinfónía nr. 2. Natasja Korsakova fiðla; Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi: John Neschling. Fimmtudaginn 21. jan- úar kl. 19:30. Sinfóníutónleikarbbbnn Ríkarður Ö. Pálsson ÞESSI aðlögun á Óþelló eftir Shake- speare er sambland af dansi, lát- bragðsleik og tali (bæði á íslensku og táknmáli) og það fyrsta af þessu tagi sem sýnt er á Íslandi. Hilmir Snær túlkar Jagó af miklu öryggi eins og við mátti búast og Brad Sykes, í hlutverki Óþellós, sýnir að hann er frábær dansari þó að hann vinni í furðulega takmörkuðu rými. Það er ekki síður gaman að fylgjast með Elsu Guðbjörgu Björnsdóttur leika Desdemónu á táknmáli á móti Hilmi Snæ og Brad þar sem hún geislar af sakleysi og gleði. Samt sem áður var þessi sýning meira „athygl- isverð“ en skemmtileg og fyrir ýmsar sakir. Í kynningarefni Borgarleikhússins á verkinu stendur að „þessi ólíku tjáningarform [dans, táknmál og tal- mál] munu á einhverjum tímapunkti renna saman með ófyrirséðum afleið- ingum“. Ekki veit ég hvernig afleið- ingar geta verið ófyrirséðar í svona frægum harmleik nema það að í þess- ari útgáfu stingur Óþelló ekki Jagó né fremur hann sjálfsmorð. Því miður kom mér lítið á óvart nema það að þessi aðlögun náði alls ekki þeim dramatísku hápunktum sem eru í frumverkinu. Þó að hver leikandi skili sínu hlutverki vel í sólósenum gengur samspilið á milli þeirra ekki nægilega vel upp nema aðeins á örfáum stöð- um. Það er til dæmis ágætis kafli þar sem Elsa Guðbjörg og Hilmir Snær ná að sýna kómíska hlið á atriði teknu úr þætti 2, senu 1, og aftur á milli Elsu Guðbjargar og Brads á þeim tíma sem allt leikur í lyndi milli Óþell- ós og Desdemónu. Hins vegar er samspil Jagós og Óþellós tæknilega gott en alls ekki sannfærandi. Við vit- um að Jagó er að ljúga og tortíma Óþelló en danshreyfingar Óþellós endurspegla ekki sálarangist hans. Búningar Óþellós og Jagós eru flottir en kjóll Desdemónu var of sviplaus. Þessi athugasemd kann að virka sem smámunasemi en hinn rauði búningur Jagós og svarti bún- ingur Óþellós voru það sláandi að í samanburði gerði búningur Desdem- ónu lítið fyrir leikpersónu hennar. Það var einnig skrítið að sjá að öll þrjú voru með rendur og bletti í kringum annað augað (svart hjá Brad og Hilmi Snæ og hvítt hjá Elsu Guð- björgu) sem var kannski „smart“ en lítið annað. Afbrýðisemi Jagós í garð Óþellós er útskýrð hér sem grunsemdir hans um að konan hans hafi haldið framhjá honum með Máranum og sem valda- barátta Jagós og Óþellós, en í verki Shakespeares snýst málið meira um kynþáttahatur. Hér kemur ekki einu sinni fram að Óþelló er svartur! Ým- islegt annað í sýningunni var tilgerð- arlegt og þjónaði engum drama- tískum tilgangi. Það var til dæmis erfitt að sjá af hverju Jagó bleytir sig nokkrum sinnum með vatni á meðan hann heldur ræðu yfir Óþelló enda gerði blautt sviðið það erfiðara fyrir leikendur að fóta sig. Leikmyndin truflaði ekki nema í lokasenunni þar sem er sannað að allt sem fer upp þarf ekki endilega að koma niður aft- ur, eða alla vega ekki eins og til var ætlast. Þó að Óþelló, Desdemóna og Jagó séu óneitanlega aðalpersónurnar í frumverkinu snýst sagan ekki aðeins um þremenningana. Ef til vill hefði verið hægt að gera meira úr þessu efni með því að hafa Cassió, Emílíu og Roderigó með. Sýningin er stutt (um það bil klukkustund) og hug- myndin fín, en úrvinnslan því miður ekki nægilega góð til að skapa þá spennu sem við er búist af verkinu Óþelló. Athyglisverð „Sýningin er stutt (um það bil klukkustund) og hugmyndin fín, en úrvinnslan því miður ekki nægi- lega góð til að skapa þá spennu sem við er búist af verkinu Óþelló,“ segir Martin m.a. í dómnum. Góð hugmynd en erfið í framkvæmd LEIKLIST Borgarleikhúsið Leikstjóri og höfundur leikgerðar: Gunnar I. Gunnsteinsson. Þýðing texta: Helgi Hálfdanarson. Þýðing á táknmál: Elsa G. Björnsdóttir og Hjördís Anna Haralds- dóttir. Danshöfundur: Ástrós Gunn- arsdóttir. Leikarar: Hilmir Snær Guðna- son og Elsa Guðbjörg Björnsdóttir. Dansari: Brad Sykes. Búningar: María Ólafsdóttir. Leikmynd: Vignir Jóhanns- son. Tónlist: Rúnar Þórisson. Hár- greiðsla: Hanna Lára. Förðun: Kristín Thors. Lýsing: Magnús Arnar Sigurðsson. Óþelló, Desdemóna og Jagó Martin Regal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.