Morgunblaðið - 02.02.2008, Blaðsíða 25
|laugardagur|2. 2. 2008| mbl.is
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Nú þegar tími árshátíða, þorrablóta,góuhófa og annarra skemmtanaer framundan, draga margir framúr skápum sínum flíkurnar allra
fínustu sem þeir annars ekki klæðast. Það er
gaman að fá tækifæri til að skarta síðkjólum
og gullskóm, kokteilkjólum eða Abbasamfest-
ingum. Raða saman ólíklegustu fötum, vera í
stíl eða algjörlega úr stíl. Opna skart-
gripaskrínin og hengja á sig perlufestar,
eyrnalokka, armbönd og annað glingur.
Skreyta sig duglega og velja veski sem hæfa
skvísum. Jafnvel fara til mömmu eða ömmu
og fá gamlan flottan kjól að láni. Gramsa í
gömlum kistum og uppgötva kannski ótrú-
lega flottar fornar flíkur með sögur frá
sokkabandsárum foreldranna. Skemmtilegt
að klæðast einhverju sem mamma eða amma
eiga rómantískar minningar um.
En það er líka gaman að kaupa sér nýja
flík fyrir fínu tilefnin. Fara með vinkonunum
í búðarráp og máta saman og spá og spek-
úlera. Það þarf alls ekki að kosta mikið, enn
eru útsölur í verslunum og á síðustu dög-
unum núna um helgina er götumarkaður
bæði í Kringlunni og Smáralindinni þar sem
hægt er að gera reifarakaup. Í Spútnik
stendur nú yfir hinn árlegi kílóamarkaður,
þar sem eitt kíló af fötum kostar aðeins 3.500
krónur og heilmargt getur rúmast í kílói. Og
nýju vörurnar eru líka freistandi. Hver hefur
sinn háttinn á og eigin smekk, sem betur fer.
Ekki væri gaman að koma á árshátíð eða
þorrablót þar sem allir væru eins klæddir
eða í sama lit. Verum óhrædd að vera við
sjálf!
Litir, gull og
silfur Græni
kjóllinn er á út-
sölu í Karen Mill-
en á 5.000 kr., og
líka gullveskið
sem kostar
14.990 kr. og
gullskórnir
22.990 kr.
Rauði kokteil-
kjóllinn fæst á kílóa-
markaði í Spútnik en
silfurskórnir kosta
1.900 kr.
Glerfínar Allt nýjar vörur frá
Karen Millen: Rauður kjóll
18.990 kr., sebraveski 12.990
kr., sebraskór 18.990 kr. Svart-
ur síður kjóll 25.990 kr.
Sprell Það er hægt að versla flotta kjóla í Spútnik fyrir lítinn pen-
ing á kílóamarkaðnum. Parið af skónum kostar 1.900 kr.
Tjúttum á blótum
og árshátíðum
Á
rv
ak
ur
/K
ri
st
in
n
In
gv
ar
ss
on
Kristján Bersi Ólafsson setti fram
hugmynd sína um góða limru fyrir
nokkrum árum:
Limra er best sé hún bull
af blaðri og rökleysum full.
En einstöku sinnum
það undur vér finnum
að bullið breytist í gull.
Og hann bætir við:
Löng er bið eftir ljóðum
– og lengri sé búist við góðum
ljóðum sem mætti
með hefðbundnum hætti
hrósa sem dálítið góðum.
Svo yrkir hann bull-limru í sam-
ræmi við sannfæringu sína:
Það er víst heilnæmt að hugsa
og hætta að drabba og slugsa,
faŕí megrunarkúr.
En ef maður á búr
verður þyngdin eins og hjá uxa.
Þegar þögnin var orðin ærandi á
bragaþingi kvaddi Hreiðar Karls-
son sér hljóðs og róaði mannskap-
inn:
Um það hef ég heldur fátt að segja,
hugsun mín er fremur vanmáttug.
Yfirleitt er ósköp gott að þegja,
ef að manni dettur fátt í hug.
Egill Þórðarson sendi frá sér
bókina Gamalt vín á nýjum belgjum
með skírnarvísu á kápunni:
Blessuð sértu barnið mitt,
bið ég lífsins herra,
láti hann aldrei lánið þitt,
né lífshamingju þverra.
Hafsteinn Stefánsson var snjall
og hraðkvæður hagyrðingur. Hann
þakkaði fyrir góðan hádegisverð:
Sæt er soðin ýsa
satt er það.
Er þetta ekki vísa
eða hvað?
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af gulli og
limrubulli
daglegtlíf
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
frábær verð um veröldina
- bókaðu í dag!
Kairó
Dubai
Bankok
Manila
!"
#!$ % á www.klmiceland.is
"
" &&'
" &
#
$
(
&
!
$
klmiceland.is
frá ISK 68.900
frá ISK 85.400
frá ISK 101.500
frá ISK 110.700