Morgunblaðið - 02.02.2008, Side 8

Morgunblaðið - 02.02.2008, Side 8
8 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Á ÞRIÐJUDAGINN var því fagnað að áttatíu ár voru liðinn frá stofnun Slysavarnafélags Íslands en með stofnuninni hófst skipulagt björg- unar- og slysavarnastarf í landinu. Slysavarnafélagið Landsbjörg gaf af þessu tilefni Landhelgisgæslu Ís- lands tvö sett af Barryvox VS 2000 Pro-snjóflóðaleitarbúnaði, sem sér- útbúinn er til notkunar í þyrlum. Búnaður þessi er nýr af nálinni og með því fullkomnasta sem til er í heiminum í dag. Georg Lárusson, forstjóri Lanhelgisgæslunnar, tók við gjöfinni fyrir hönd Gæslunnar og er hann á myndinni ásamt Smára Sigurðssyni, varaformanni Landsbjargar, og Kristni Ólafssyni framkvæmdastjóra. Gæslan fær gjöf STÚDENTARÁÐ Háskóla Íslands hvetur nýja meirihlutann í borg- arstjórn Reykjavíkur til að vinna hratt og örugglega að uppbygg- ingu stúdentagarða eins og meiri- hlutinn hefur lýst yfir að hann hyggist gera. Í langan tíma hafi legið fyrir áætlun um uppbyggingu um 600 íbúða sem Stúdentaráð og Félagsstofnun stúdenta hafi unnið að innan starfshóps borgarinnar. Vegna tíðra meirihlutaskipta í borginni hafi endanleg ákvarð- anataka tafist með tilheyrandi óþægindum fyrir stúdenta. Borgarráð vísaði áætluninni til Skipulagsráðs á fundi sínum á fimmtudag. Það er von Stúd- entaráðs að borgin samþykki áætl- unina snögglega og nýti þá breiðu pólitísku sátt sem um uppbygg- inguna er. Stúdentaráð vill stúdentagarða VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ hefur styrkt verkefnið Jafnréttiskennitöl- una, sem unnið er við Háskólann á Bifröst, um eina milljón. Það miðar að árlegri birtingu upplýsinga, einkum um hlutfall kvenna í stjórn- um og meðal æðstu stjórnenda í fyr- irtækjum hér á landi. Ráðuneytið hefur jafnframt ákveðið að styrkja verkefnið Við segjum já, á vegum Félags kvenna í atvinnurekstri og LeiðtogaAuðar. Verkefnið miðar að því að hvetja konur til að bjóða fram krafta sína í þágu stjórnunar. Styrkveiting STJÓRN Faxaflóahafna sf. tekur einhuga undir ályktun borgarráðs varðandi gerð og legu Sundabraut- ar í göngum og ítrekar vilja sinn til að koma að framkvæmd verkefn- isins í samræmi við fyrri sam- þykktir þar að lútandi. Stjórnin fagnar áhuga samgönguráðherra, alþingismanna og sveitarfélaga á að koma verkefninu sem fyrst til framkvæmda og því mati að verk- efnið sé brýnasta verkefnið í sam- göngumálum á landinu. Hafnarstjórn samþykkti í gær að tilnefna formann hafnarstjórnar, Júlíus Vífil Ingvarsson, í samráðs- hóp Reykjavíkurborgar um lagn- ingu Sundabrautar. Hafnarstjóra var falið að taka saman greinar- gerð um áhrif þess á önnur svæði Sundahafnar að lega Sundabrautar verði ákveðin um Sundagöng. Sundabrautin er brýnust STUTT Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is VÍÐIR Hólm Guðbjartsson, bóndi í Grænuhlíð í Arnarfirði, segist skelfast tilhugsunina um að olíu- hreinsunarstöð rísi í landi Hvestu. Grænahlíð er næsta byggða ból við Hvestu. Víðir er fjárbóndi og er með á sjöunda hundrað fjár og æð- arvarp þar sem eru um sjö hundr- uð hreiður. Hann óttast að olíu- hreinsunarstöðin gangi af æðarvarpinu dauðu og að fáir vilji kaupa kjöt sem er ræktað í skugga olíuiðnaðar. Víðir er fæddur og uppalinn í Feigsdal í Arnarfirði og nytjar þá jörð einnig fyrir búskap sinn. Hann bjó lengi hjá afa sínum, Bjarna Kristóferssyni í Hvestu og var vinnumaður hjá honum en keypti Grænuhlíð 1995. Víðir býr þar nú ásamt konu sinni, Maríu Bjarnadóttur. „Þetta er eins og að fá krabba- mein hér í Ketildalina, það er ekk- ert flóknara en það,“ segir Víðir um olíuhreinsunarstöðina. „Ket- ildalirnir og Arnarfjörðurinn eru með fallegustu stöðum á landinu ef ekki í heiminum. Hvesta er einn alfallegasti og besti staður á land- inu.“ Nærtækar ráðstafanir Víðir ber ekki á móti því að Vestfirðir virðist vera deyjandi landsvæði. Nú eru fimm bændur í Arnarfirði, kalkþörungaverksmiðja og útgerð og þjónusta á Bíldudal helstu atvinnuvegir í firðinum. Hann telur þó ekki lausnina vera fólgna í olíuhreinsunarstöð. Komi hún sé hætta á að svæðið verði út- lendinganýlenda. Hann telur aðrar ráðstafanir mun nærtækari til að styrkja Vestfirðina í lengd og bráð. „Þessar byggðir eru gullnámur að því leyti hvað er gott að vera hér. Til að bjarga þessu tel ég vera númer eitt, tvö og þrjú að fá betri samgöngur. Svo verður að greiða niður vöruflutninga til að gera okkur samkeppnishæf við önnur svæði á landinu. Flutningsgjöldin nú eru bara glæpur – þau eru svo há.“ Víðir vill fá betri vegi suður á land og einnig vegtengingu við norðurhluta Vestfjarða sem er opin allt árið. Hann telur mikla vitleysu að ekki skuli hafa verið gerður heilsársvegur yfir Trostansfjarð- arheiði eða göng yfir í Dýrafjörð frekar en að setja stórfé í veg- arbætur í Ísafjarðardjúpi. Það hefði tryggt greiða tengingu allra Vestfjarða við Vestur- og Suður- land. Hann nefndi einnig þörfina fyrir hraðara og tryggara netsam- band við svæðið. Í því felist ótal atvinnutækifæri. Margir á móti Víðir sagðist vita af mörgum íbúum í Vesturbyggð sem væru mótfallnir áformum um olíu- hreinsunarstöð. Þeir virtust þó vera feimnir við að sýna andstöðu sína eða þyrðu ekki að gera það. Hann sagði að bæjarstjórnin hefð- iekki staðið fyrir neinum kynning- arfundum um málið en hann vissi til þess að forsvarsmenn olíu- hreinsunarstöðvarinnar hefðu mætt á fundi, m.a. hjá sauma- klúbbi, til að kynna málið. „Einn í bæjarstjórninni sagði mér að þegar yrði búið að ákveða þetta ætti að halda kynningarfund. Eina kynningin sem maður hefur fengið er: „500 störf“. Fólk á stöð- um þar sem nánast enga vinnu er að hafa stekkur á þetta eins og drukknandi fólk á björgunarhring. Svo skilst mér raunar að það sé einfaldlega ekki rétt að störfin hér verði svona mörg. Vinnubrögðin eru alveg fáránleg,“ sagði Víðir. Hann sagði fylgismenn hug- myndarinnar hamra á því að það væri bara fólk í póstnúmeri 101 sem væri á móti olíuhreins- unarstöðinni, en Víðir fullyrti að margir í póstnúmeri 465 (Bíldudal- ur) og öðrum póstnúmerum fyrir vestan væru líka á móti þessum áformum. „Þetta er eins og að fá krabbamein hér í Ketildalina“ Ljósmynd/Jón Þórðarson Bóndi Víðir Hólm Guðbjartsson er með fjárbú í Grænuhlíð og Feigsdal í Arnarfirði. Honum hugnast ekki að fá olíuhreinsunarstöð í næsta nágrenni við bæinn sinn og óttast að hún gangi af æðarvarpinu hans dauðu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.