Morgunblaðið - 02.02.2008, Page 26

Morgunblaðið - 02.02.2008, Page 26
úr bæjarlífinu 26 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Fræðslukvöld um gönguskíði Miðvikudaginn 6. febrúar kl. 20.00 í FÍ salnum Mörkinni 6. • Ferðalög á skiðum – búnaður – fatnaður – öryggisbúnaður – skíðapúlkur – tjald – svefn- poki – skíðaferðir FÍ. • Sporganga – líkamsrækt – keppni – tegundir skíða – skíðaáburður – að leggja spor – göngu- svæði á höfuðborgarsvæðinu – Íslandsgangan. Að lokinni fræðslu verður boðið upp á kaffi og sýnt myndband frá Vasagöngu. Þátttaka er ókeypis og allir velkominir www.fi.is, fi@fi.is sími: 568-2533, m bl 9 66 73 3 Skíðagöngufélagið Ullur og Ferðafélag Íslands É g er í ljónsmerkinu en veit ekki hvort það hef- ur nokkuð með það að gera hvað ég er hrifin af ljónum. Ég er mikil dýramanneskja og langaði alltaf að eiga dýr en þar sem sumir eru með ofnæmi á mínu heimili var það aldrei hægt,“ segir Una Jóhannesdóttir sem hefur dreymt um að komast til Afríku frá því hún var lítil stúlka. „Ég flaug út í ágúst til þessarar lang- þráðu heimsálfu og lenti á tvítugs- afmælisdeginum mínum alein úti í Harare, höfuðborg Simbabve. Þaðan lagði ég upp í rúmlega sjö vikna trukkaferðalag. Þeir sem voru í ferðalaginu voru frá öllum heims- hornum og á öllum aldri og við gist- um alltaf í tjöldum. Við komumst heldur ekki alltaf í sturtu eða á kló- sett, heldur þurftum að grafa holur úti í eyðimörkinni, enda er svona trukkaferð ekki stíluð inn á nein þægindi. Ég endaði svo trukkaferð- ina í Jóhannesarborg, en þaðan kom ég mér sjálf í ljónagarðinn Antelope Park þar sem ég hafði ráðið mig í tveggja mánaða sjálfboðavinnu. Það vildi svo heppilega til að þrír ljón- sungar fæddust daginn sem ég kom.“ Veiðar og sjúkdómar herja á ljónastofninn Una segir sögu garðsins nokkuð merkilega. „Maðurinn sem á hann keypti þetta svæði fyrir um tuttugu árum og með því fylgdu nokkrir munaðarlausir ljónsungar sem hann tók að sér. Þarna er í raun verið að rækta ljón og reynt að koma upp sterkum stofni, því afrísk ljón eru á válista. Á síðustu tuttugu árum hefur þeim fækkað í Afríku allri úr 200.000 ljónum niður í 15.000 ljón, vegna veiða og sjúkdóma. Ferðamenn geta farið þarna um til að skoða ljónin og önnur dýr, farið á fílsbak og fleira. Þarna eru auk ljóna og fíla til dæmis gíraffar, antilópur og mjög blómlegt fuglalíf. En þetta er líka uppeldisstöð fyrir ljón og verndarstaður fyrir þau.“ Una vann með yngstu ljónin, frá þriggja vikna ungum til 18 mánaða, en á því stigi eru þeir mjög hændir að manninum. „Á öðru stigi eru þeir vandir af mönnum en á þriðja stigi para ljónin sig og eignast unga úti í náttúrunni. Sterku ungarnir eru svo seldir út um alla Afríku til að efla ljónastofninn.“ Leit að veiðiþjófum Hún segir vinnuna hafa verið fjöl- breytta og skemmtilega. „Við byrj- uðum að vinna um hálfsjö á morgn- ana og fórum með ljónsungana út í göngu til að láta þá æfa sig í að veiða og kynnast umhverfinu. Ljón eru nefnilega ótrúlega miklir hræðslu- púkar, sérstaklega þegar þau sjá eitt- hvað nýtt í fyrsta sinn, hvort sem það er tré eða sebrahestur. Þessar stóru skepnur eru með ósköp lítið hjarta. Ljón eru hópdýr og litu á okkur mennina sem hluta af hópnum en við urðum að passa að sýna þeim að við hefðum yfirráðin.“ Starfsmenn þurftu m.a. að þrífa umhverfi ljónanna. „Eins sáum við um að brytja kjöt í þau og stundum fengum við heila kýrskrokka frá bændum í nágrenninu. Girðing- arvinna var hluti af starfinu því veiði- þjófar gera göt á girðingar og setja upp snörur í garðinum til að veiða hin ýmsu dýr, bæði til að ná sér í kjöt og skinn. Í okkar verkahring var líka að hjálpa til með fílana, sem voru fjórir. Eigandinn hafði tekið þá að sér eftir sinubruna en við hann urðu þeir við- skila við hjörðina. Fílarnir unnu fyrir sér með því að ferðast með túrista á sínu fílsbaki, ýmist til göngu eða sunds. Einu sinni í viku fórum við svo á munaðarleysingjaheimili til að leika við börnin.“ Afríkuöskur Ljón hafa stóran kjaft, jafnvel þó þau séu ekki fullvaxin og þessar tennur eiga eftir að verða vígalegri. Brytjaði belju- skrokka í ljónin sín Klappaðu mér! Hinn ársgamli Masai lætur Unu klóra sér. Ljón eru bestu skinn og með músarhjörtu, eftir því sem Una Jóhannesdóttir segir, en hún fór alla leið til Afríku til að starfa við umönnun ljóna í tvo mánuði. Kristín Heiða Kristinsdóttir hitti ljónastelpuna sem fór líka í trukkaferð. Við Sandgerðingar þekkjum vel þær aðfarir sem Akurnesingar kvarta nú sáran undan eftir að HB Grandi ákvað að hætta að mestu leyti starfsemi sinni á Akranesi. Miðnes hf. var rekið í Sandgerði í 56 ár og var alla tíð stærsti at- vinnurekandinn á staðnum. Fjöldi fólks vann hjá fyrirtækinu í ára- tugi. Svo kom að því að Miðnes hf. var sameinað Haraldi Böðvarssyni hf. á Akranesi. Sameiningin þótti ekki lofa góðu en forráðamenn HB komu til fundar í Sandgerði og sögðu frá áætlunum um áframhald- andi starfsemi og endurnýjun á skipum fyrirtækisins í Sandgerði, eflingu starfseminnar og að starfs- fólki yrði ekki fækkað. Það var lítið að marka fögur orð forráðamanna HB því að lokum var öllum starfs- mönnum sagt upp, jafnt sjómönn- um sem starfsfólki í landi, alls um áttatíu manns, og skip og kvóti flutt upp á Akranes. Eftir stóð í Sandgerði fjöldi tómra bygginga sem áður höfðu ið- að af mannlífi. Öll þessi hús hafa nú komist í hendur nýrra eigenda og þar er nú fjölbreytt starfsemi.    Útgerðarfyrirtæki hafa víða sam- einast á síðustu árum. Sums staðar hefur vel tekist til en á allt of mörgum stöðum hafa hinir stóru farið burt með kvótann sem í flest- um tilvikum er feiti bitinn í við- komandi fyrirtæki. Eftir standa verðlausar húseignir og óánægðir íbúar bæjarfélaga. Því eru Ak- urnesingar nú að kynnast. Vonandi tekst þeim að vinna úr stöðunni og finna aðra starfsemi í húsin enda eru þeir þekktir fyrir það á öðrum vettvangi að snúa vörn í sókn.    Árið 2008 er merkilegt afmælisár í slysavarnasögu Íslendinga. 25. febrúar 1928 strandaði togarinn Jón forseti við Stafnes og fjöldi sjó- manna fórst. Slysið varð til þess að kraftur var settur í að stofna Slysavarnafélag Íslands sem lagði áherslu á sjóbjörgun við strendur landsins. Fyrsta slysavarnasveitin á landinu var stofnuð 1928 í Sand- gerði og er það Slysavarnasveitin Sigurvon sem í 80 ár hefur verið virk og öflug. Nú á afmælisárinu verður tekin í notkun ný björg- unarstöð á hafnarsvæðinu og eru framkvæmdir þegar hafnar. Félagar í Sigurvon hafa haft nóg að gera að undanförnu í hinu rysj- ótta veðurfari sem hér hefur verið og hefur sannast hversu mikilvægt er að hafa öfluga björgunarsveit í hverju bæjarfélagi.    Veðurguðirnir hafa minnt vel á sig það sem af er ári. Lægðirnar hafa komið eins og á færibandi með til- heyrandi tilbrigðum í veðri. Hér hefur kyngt niður meiri snjó en sést hefur um árabil þótt ekki hafi hlotist mikil vandræði af. Sandgerðisbær fjárfesti í tveimur öflugum dráttarvélum með snjó- tönnum í byrjun vetrar. Segja má að vélarnar hafi haft nóg að gera við að halda götum bæjarins hrein- um og eiga starfsmenn áhaldahúss- ins heiður skilinn fyrir vel hreins- aðar götur. Þá hefur þurft að bæta við vélum frá verktökum á mestu álagstímum. SANDGERÐI Reynir Sveinsson Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Björgun Framkvæmdir eru hafnar við nýja björgunarstöð Sigurvonar. daglegt líf

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.