Morgunblaðið - 02.02.2008, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR | KIRKJUSTARF
AKRANESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Skírnir Garðarsson messar.
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Svavar A. Jónsson, kór Akureyr-
arkirkju syngur, organisti Lára Bryndís
Eggertsdóttir. Sunnudagaskóli kl. 11 í
safnaðarheimilinu. Súpa og brauð á vægu
verði eftir guðsþjónustuna.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Börn borin til skírnar. Guðmundur Haf-
steinsson leikur á trompet, Margrét Helga
Kristjánsdóttir syngur við undirleik Krist-
jáns Björns Snorrasonar. Kirkjukórinn
leiðir söng undir stjórn Krisztinu Kalló
Szklenár. Sigrún Óskarsdóttir þjónar fyrir
altari. Sunnudagaskóli kl. 11.
ÁSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Ges-
taumsjónarmenn Halla Jónsdóttir og
Gunnar Finnbogason. Messa kl. 14. Kór
Áskirkju syngur, organisti Magnús Ragn-
arsson. Kaffisopi í boði sóknarnefndar
eftir messu. Sóknarprestur Áskirkju þjón-
ar við guðsþjónustu á Helgafelli á Hrafn-
istu kl. 10.30, organisti Magnús Ragn-
arsson.
ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl. 11. Pre-
dikunarefni skírnin og fermingin. Foreldrar
hvattir til að koma ásamt fermingarbörn-
unum. Barnastarf á sama tíma. Prestur
sr. Bára Friðriksdóttir, tónlistarstjóri
Helga Þórdís Guðmundsdóttir og kór
Ástjarnarkirkju styður sönginn. Kaffi og
ávextir á eftir.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli kl.
11 í sal Álftanesskóla. Leiðtogar sunnu-
dagaskólans, þau Bolli Már, Matthildur,
Snædís og Sunna Dóra, stjórna fræðandi
starfi. Foreldrar hvattir til að mæta með
börnum sínum.
BORGARPRESTAKALL | Barnaguðsþjón-
usta kl. 11.30. Messa kl. 14.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur sr. Gísli Jónasson, kór Breiðholts-
kirkju syngur, organisti Julian Isaacs.
Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá
Nínu Bjargar, Lindu Rósar og Jóhanns Ax-
els. Kaffisopi eftir messu.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11.
Biskup Íslands ávarpar börnin. Guðsþjón-
usta kl. 14. Karl Sigurbjörnsson biskup
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt pró-
fasti, sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni, og
sóknarpresti. Eftir messuna er öllum
kirkjugestum boðið í kirkjukaffi í safn-
aðarheimilinu. Pálmi Matthíasson.
DIGRANESKIRKJA | Útvarpsguðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson,
organisti Kjartan Sigurjónsson, kór Digra-
neskirkju. Sunnudagaskóli á sama tíma í
kapellu. Léttar veitingar að guðsþjónustu
lokinni. www digraneskirkja.is.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Þorvald-
ur Víðisson prédikar, Dómkórinn syngur,
organisti er Marteinn Friðriksson. Barna-
starf á kirkjuloftinu.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Barnakórinn leiðir sönginn undir
stjórn Torvalds Gjerde og Sigríðar Lauf-
eyjar Sigurjónsdóttur. Börn sem verða
fimm ára á árinu verða heiðursgestir. 4.
feb. kyrrðarstund kl. 18.
EYRARBAKKAKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11.
FELLA- OG Hólakirkja | Guðsþjónusta og
altarisganga kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyj-
ólfsson héraðsprestur, félagar úr kór
Fella- og Hólakirkju leiða almennan safn-
aðarsöng undir stjórn Guðnýjar Ein-
arsdóttur kantors kirkjunnar. Sunnudaga-
skóli á sama tíma í umsjá Ragnhildar
Ásgeirsdóttur. Meðhjálpari Kristín Ing-
ólfsd.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudaga-
skóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 13. Kór Frí-
kirkjunnar leiðir sönginn.
FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl.
11. Kennsla, söngur, leikir o.fl. Almenn
samkoma kl. 14. Sigrún Einarsdóttir pré-
dikar. Lofgjörð, barnastarf og fyrirbænir.
Að henni lokinni verður kaffi og samfélag.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Æskulýðsguðs-
þjónusta fyrir alla fjölskylduna kl. 14. Ása
Björk þjónar og leiðir stundina ásamt
Nöndu Maríu. Móeiður guðfræðinemi
verður við flygilinn og leiðir tónlistina.
Æskulýðsfélagar taka þátt og flytja hug-
leiðingu sem samin var í „Sleep-over“ um
efnið: „Náunginn og ég.“
FÆREYSKA sjómannaheimilið | Færeysk
kvöldvaka 2. febrúar kl. 20. Sjóm-
anstrúboði Torleif Johannesen verður
með ræðu. Samkoma sunnudag kl. 17.
Torleif Johannesen prédikar. Kaffi og
spjall á eftir bæði kvöldin.
Árvakur/Sverrir
Grafarvogskirkja.
ORÐ DAGSINS:
Skírn Krists.
(Matt. 3)
Messa í
Grafarvogskirkja
Messa kl. 11. Prestar eru sr. Vig-
fús Þór Árnason og sr. Lena Rós
Matthíasdóttir. Kór Grafarvogs-
kirkju syngur, organisti er Að-
alheiður Þorsteinsdóttir, á fiðlu
leikur Hjörleifur Valsson og á
kontrabassa Birgir Bragason. Í
messunni er fermingarbörnum
boðið að ganga til altaris í fylgd
með foreldrum sínum. Að lokinni
messu er fundur með foreldrum og
fermingarbörnum í Folda- og
Hamraskóla þar sem fjallað er um
fermingardaginn og atriði er lúta
að fermingunni. Sunnudagaskóli er
á sama tíma kl. 11 í Grafarvogs-
kirkju og í Borgarholtsskóla.
Aðalfundur Safnaðarfélags Graf-
arvogskirkju verður mánudaginn
4. febrúar kl. 20, í safnaðarsal
kirkjunnar. Þar kennir Ingólfur H.
Ingólfsson hjá SPARA.is sparsemi.
Hann ræðir um tilgang, uppbygg-
ingu og tegundir sparnaðar, hrað-
ari eignamyndun í húsnæði, út-
skýrir vexti og verðbætur.
Kaffiveitingar „bollukaffi“.
Alla virka daga föstunnar kl. 18
lesa ráðherrar og alþingismenn
passíusálma séra Hallgríms í Graf-
arvogskirkju. Geir H. Haarde for-
sætisráðherra les fyrsta pass-
íusálminn á öskudaginn. Alls er
þetta í 31 skipti. Síðasti lesturinn
verður miðvikudaginn 19. mars nk.
Orgelandagt
og messa í
Hallgrímskirkju
Á kyndilmessu, 2. febrúar, verður
orgelandagt kl. 12. Björn Steinar
Sólbergsson leikur á orgelið og sr.
Birgir Ásgeirsson annast ritning-
arlestur. Leikin verða verk eftir
J.S. Bach og Ch. Widor. Fræðslu-
morgunn er á undan messunni á
sunnudag kl. 10. Dr. Árelía Eydís
Guðmundsdóttir stjórnmálafræð-
ingur og lektor við viðskipta- og
hagfræðideild HÍ, talar um bjart-
sýni og von andspænis erfiðleikum
undir yfirskriftinni Mót hækkandi
sól en árið 2005 kom út samnefnd
bók eftir dr. Árelíu. Aðgangur er
ókeypis á þessa viðburði. Í mess-
unni kl. 11 prédikar sr. Birgir Ás-
geirsson og þjónar ásamt sr. Maríu
Ágústsdóttur og hópi messuþjóna.
Organisti er Björn Steinar Sól-
bergsson og kórsöng annast fé-
lagar úr Mótettukórnum. Barna-
starfið er á sama tíma í umsjón
Magneu Sverrisdóttur djákna.
Æskulýðsguðsþjónusta
í Fríkirkjunni í
Reykjavík
Æskulýðsguðsþjónusta fyrir alla
fjölskylduna verður kl. 14. Með-
limir Æskulýðsfélagsins flytja hug-
leiðingu um efnið „Náunginn og
ég“. Eftir að hafa gist í kirkjunni
aðfaranótt sunnudagsins, þar sem
allt efni guðsþjónustunnar verður
undirbúið, s.s. lestrar, bænir, hug-
leiðing og tónlistaratriði m.a.
prests og unglings, fá kirkjugestir
að njóta þess mannauðs sem er til
staðar í hópnum. Aðrir unglingar
og foreldrar sérstaklega hvattir til
að mæta með börnum sínum. Mó-
eiður Júníusdóttir verður við flyg-
ilinn og leiðir tónlistina.
Léttmessa og listsýn-
ing í Árbæjarkirkju
Fyrsta Léttmessa ársins í kirkjunni
verður kl. 20. Gospelkór Árbæj-
arkirkju ásamt hljómsveit flytur
lög undir stjórn Þóru Gísladóttur.
Þá mun Kristín Björnsdóttir kenn-
ari og doktorsnemi í fötlunar-
fræðum flytja hugvekju.
Listanefnd Árbæjarkirkju stend-
ur fyrir opnun nýrrar listsýningar
í kirkjunni 3. febrúar að lokinni
guðsþjónustu. Myndlistarmaðurinn
og textílhönnuðurinn Guðrún
Gunnarsdóttir mun sýna verk sín í
fordyri kirkjunnar. Verkin sem
sýnd verða heita Heilög þrenning
I. II. III. og Lífsvatnið. Þau eru
annars vegar unnin út frá hinni
heilögu þrenningu með skírskotun
til þyrnikórónunnar og hins vegar
verk sem tengist vatni sem er und-
irstaða lífsins. Vatnið tengist
skírninni og um leið Elliðaánum
sem renna í nálægð kirkjunnar.
Þess má geta að verkin eru unnin
sérstaklega fyrir veggrými Árbæj-
arkirkju. Við opnun sýningarinnar
gefst tækifæri til að hitta listakon-
una og fræðast um verkin. Sýn-
ingin mun standa fram í september
nk.
Biskupinn vísiterar
í Bústaðakirkju
Nú í vikunni hefur biskupinn yfir
Íslandi herra Karl Sigurbjörnsson
vísiterað Bústaðasöfnuð. Hann tek-
ur þátt í kirkjustarfinu þessa viku
og fundar með sóknarnefnd,
starfsfólki og sóknarpresti. Þá hef-
ur hann heimsótt stofnanir í hverf-
inu og félagsmiðstöðina við Hæð-
argarð. Herra Karl Sigurbjörnsson
biskup tekur þátt í barnastarfi
kirkjunnar kl. 11 og ávarpar börn-
in. Í hádeginu verður fundur með
starfsfólki og sóknarnefnd. Vísi-
tasíunni lýkur síðan með guðsþjón-
ustu kl. 14 þar sem biskup mun
prédika og þjóna fyrir altari ásamt
prófasti sr. Jóni Dalbú Hróbjarts-
syni og sóknarpresti. Eftir mess-
una er öllum kirkjugestum boðið í
kirkjukaffi í safnaðarheimilinu.
Trúfræðsla Laug-
arneskirkju
Trúarfræðslutímar eru á þriðju-
dagskvöldum yfir vetrarmánuðina
kl. 20.30. Í næsta trúfræðslutíma
mun sr. Bjarni Karlsson sókn-
arprestur fjalla um Jesús Krist
sem krefst skilyrðislausrar holl-
ustu af fylgjendum sínum. Einnig
verður fjallað um íslenskt sam-
félag. Á undan trúfræðslutímum,
kl. 20, er kvöldsöngur í kirkjunni
þar sem Þorvaldur Halldórsson
leiðir söng við undirleik Gunnars
Gunnarssonar.
Samverur eldri borgara eru
haldnar hálfsmánaðarlega í safn-
aðarheimili Laugarneskirkju kl.
14. Fimmtudaginn 7. febrúar munu
eldri Laugarnesbúar og Álftnes-
ingar þekkjast boð Gerðuberg-
skórsins að vera með í Vetr-
arhátíðardagskrá í
Hólabrekkuskóla, þar sem boðið
verður upp á kórsöng og danssýn-
ingar, kaffiveitingar o.fl. Farið
verður kl. 14 og er heimkoma
áætluð kl.16. Kostnaður verður
1.000 kr. og er fólk hvatt til að
mæta.
Morgunblaðið/Einar Falur
Eyrarbakkakirkja.