Morgunblaðið - 02.02.2008, Qupperneq 48
Hlutverk rýnisins hlýt-
ur að vera að fjalla um
og rýna í það verk sem hann
upplifði … 53
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
HRYLLINGSMYNDIN Dark
Floors – The Lordi Motion Picture
verður frumsýnd í borginni Oulu í
Finnlandi á miðvikudaginn, 6. febr-
úar. Þeir Júlíus Kemp og Ingvar
Þórðarson hjá Kvikmyndafélagi Ís-
lands eru meðframleiðendur mynd-
arinnar og verða þeir viðstaddir
frumsýninguna. Oulu er heimabær
rokksveitarinnar Lordi sem fór með
sigur úr býtum í Evróvisjón-
söngvakeppninni árið 2006 með lag-
inu „Hard Rock Hallelujah“. Hljóm-
sveitarmeðlimir leika stór hlutverk í
myndinni auk þess sem þeir komu að
handritsskrifum, og sáu auðvitað um
tónlistina.
Um er að ræða hryllingsmynd sem
gerist á sjúkrahúsi, og að sögn Júl-
íusar er þetta skrímslamynd undir
japönskum áhrifum. Þótt myndin sé
finnsk eru leikararnir flestir breskir
og því er enskt tal í henni.
„Við erum
rosalega spenntir
að sjá lokaútgáfu
myndarinnar,“
segir Júlíus, en
þeir félagar hafa
aðeins séð nokkur
brot úr myndinni.
„Fólk heldur að
þetta tengist
Lordi mjög mikið,
en þetta er í rauninni bara bíómynd
með finnskum skrímslum.“
Ekki verður um neina hefðbundna
frumsýningu að ræða á miðvikudag-
inn því að sögn Júlíusar fer hún fram
í 5.000 manna skautahöll borgar-
innar, og strax í kjölfar frumsýning-
arinnar mun Lordi halda tónleika í
höllinni.
Dark Floors – The Lordi Motion
Picture verður svo frumsýnd í Sam-
bíóunum 29. febrúar.
Lordi-myndin loks tilbúin
Óhugnaður Myndin segir frá fólki sem lokast inni í óhugnanlegu sjúkra-
húsi þar sem morðóð skrímsli vaða uppi. Lordi-menn leika skrímslin.
Dark Floors frumsýnd með pomp og prakt í Finnlandi
Júlíus Kemp
Meðal þeirra
kvikmynda sem
taka þátt á kvik-
myndahátíðinni í
Gautaborg er
Veðramót í leik-
stjórn Guðnýjar
Halldórsdóttur. Guðný hélt stutta
tölu fyrir frumsýningu mynd-
arinnar á þriðjudag og minntist
m.a. þátttöku sinnar í hátíðinni fyr-
ir átta árum þegar Ungfrúin góða
og húsið var sýnd en þá voru við-
staddir frumsýninguna allir helstu
menningarvitar Svíþjóðar og önnur
fyrirmenni. Gerðist það þá stuttu
áður en hún hafði lokið kynning-
unni að hún var stöðvuð af starfs-
manni hátíðarinnar og henni til-
kynnt að filman af Ungfrúnni hefði
ekki enn borist; hún væri föst úti á
flugvelli. „Þá var mér allri lokið. Ég
varð svo reið að ég hét því að koma
aldrei aftur til Gautaborgar. En nú
er ég hér komin …“ sagði Guðný
við mikinn hlátur viðstaddra.
Hét því að koma aldrei
aftur til Gautaborgar
Heyrst hefur að þeir félagar
Frank Hvam og Casper Christen-
sen, sem Íslendingar þekkja ef til
vill betur úr þáttunum Klovn, séu á
leið hingað til lands um miðjan
febrúar. Frank og Casper hafa á
undanförnum árum skipað sér í
flokk vinsælustu grínista Danmerk-
ur og ef að líkum lætur munu þeir
troða upp á einhverjum staðnum
hér í borg og leiða Íslendinga í all-
an sannleikann um danskt grín eins
og það gerist best. Enn hvílir dulítil
leynd yfir væntanlegri komu þeirra
Franks og Caspers en allt ætti að
koma í ljós á allra næstu dögum.
Trúðar til landsins
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„ÞETTA er fyrst og fremst hrá tónlist, hrjúfur
hljómur,“ segir Andreas Constantinou, for-
sprakki hljómsveitarinnar Andreas and the
Gloryholes, um tónlist sveitarinnar. Sveitin sendi
nýverið frá sér lagið „Gloria“ þar sem þungt,
blússkotið rokk er ráðandi með háum og djúpum
karlmannssöng á víxl.
Með Andreas í sveitinni eru þeir Ragnar Ólafs-
son og Elvar Atli Ævarsson, þeir eru s.s. „dýrð-
arholurnar“ í sveitinni. Andreas segist hafa
hlustað mikið á PJ Harvey, Placebo, Tori Amos
og Marilyn Manson á unglingsárum og í þá tónlist
sæki hann sjálfsagt innblástur. Þetta bland gæti
skýrt fyrrnefndar barkasveiflur söngvara í
„Gloriu“ en einnig að Andreas hlustaði mikið á
Kate Bush á uppvaxtarárum sínum.
Andreas and the Gloryholes er með ónefnda
plötu í smíðum, 11 eða 12 laga, sem ætti að koma
út á árinu.
Hrá kynorka
– En hvaðan kemur þetta nafn á hljómsveit-
inni?
„Þar kemur tvennt til. Það er annars vegar
háðsádeila í þessu, grín gert að sveitum eins og
Antony and the Johnsons, þess háttar hljómsveit-
anöfnum. Hins vegar á þetta vel við textagerðina
hjá mér, lagatextana. Þeir fjalla mikið um kyn-
hvöt, myrkari hliðar lífsins, stundum eða oft vís-
að í kynhneigð, falda kynhneigð. Það er mikið af
hrárri kynorku í tónlistinni. Þaðan kemur heitið
Gloryholes,“ útskýrir Andreas.
Áhorfendahópur sveitarinnar er enn smár en
vex hratt og vonast Andreas til þess að sveitin nái
eyrum Íslendinga. Andreas er margt til lista lagt,
hann er lærður dansari og kennir dans í Listahá-
skóla Íslands og Klassíska listdansskólanum, hef-
ur samið framúrstefnuleg dansverk og sýnt með
dansleikhúsflokki sem hann stofnaði með Stein-
unni Ketilsdóttur, UglyDuck Productions. „Ég
hef samið lög frá unga aldri og ég var í nokkrum
hljómsveitum þegar ég bjó í Bretlandi. Þá flutti
ég til Íslands og hætti um tíma í tónlistinni til að
einbeita mér að leikfélagi sem ég stofnaði,
Himherandit.productions,“ segir Andreas. Hann
er af grískum ættum, nam dans í New York og
London og bjó og starfaði í Asíu á tímabili.
Hafsteinn verður með
Hinn 7. febrúar nk. treður Andreas upp með
„dýrðarholunum“ sínum, þeim Ragnari og Elvari
Atla, í húsnæði Samtakanna ’78 í Reykjavík og
verður aðgangur ókeypis. Tónleikarnir verða að
mestu órafmagnaðir, hugguleg og persónuleg
stemning en tónlistin þó hrá og fersk.
Þar mun stíga á svið söngvarinn Hafsteinn
Þórólfsson, sá hinn sami og vakti mikla athygli í
Söngvakeppni Sjónvarpsins 2007 þegar hann
söng lagið „Þú tryllir mig“ með tilþrifum. Haf-
steinn og Andreas eru góðir vinir og segir Andr-
eas að Hafsteinn muni syngja raddir í einhverjum
lögum á væntanlegri plötu Andreas and the
Gloryholes.
„Við höfum átt í samstarfi undanfarið eitt og
hálft ár, samið saman tónlist, rætt um tónlist en
höfum ekki enn komið fram saman á tónleikum.
Þetta verður í fyrsta skipti,“ segir Andreas
spenntur.
Samtökin ’78 eru til húsa á Laugavegi 3 og sem
fyrr segir er aðgangur á tónleikana ókeypis. Þeir
hefjast kl. 21.
Dýrðarholurnar rokka
Grískættaður dansari stígur fram á íslenskan tónlistarvöll með nýja hljómsveit
Árvakur/Golli
Þrír í sófa Andreas Constantinou og Ragnar Ólafsson en á milli þeirra er staðgengill Elvars Atla
Ævarssonar sem ekki komst í myndatökuna.
Vefsíða hljómsveitarinnar:
www.myspace.com/andreasconstantinou