Morgunblaðið - 02.02.2008, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2008 53
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI
eee
"VEL SPUNNINN FARSI"
"...HIN BESTA SKEMMTUN."
HEIÐA JÓHANNSDÓTTIR
eeee
„...EIN SKEMMTILEGASTA
GAMANMYND SEM ÉG HEF SÉÐ
Í LANGAN TÍMA...“
„...HENTAR FÓLKI Á ÖLLUM ALDRI
- FRÁBÆR SKEMMTUN!“
HULDA G. GEIRSDÓTTIR – RÚV/RÁS2
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI SÝND Í KRINGLUNNI
EITTHVAÐ SKELFILEGT
ER Á SVEIMI!
TOM HANKS, JULIA ROBERTS OG PHILIP SEYMOR HOFFMAN FARA Á KOSTUM
Í ÞESSARI GAMANSÖMU MYND SEM BYGGÐ ER Á RAUNVERULEGUM ATBURÐUM.
TILNEFND TIL ÓSKARSVERÐLAUNA.
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
UNREACHABLE kl. 8 - 10:10 B.i.16 ára
BRÚÐGUMINN kl. 6 - 8 B.i.7 ára
ALIENS VS. PREDATOR kl. 10:10 B.i.16 ára
THE GAME PLAN kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 LEYFÐ
ALVIN OG ÍKORNARNIR m/ísl tali kl. 2 - 4 LEYFÐ
BRÚÐGUMINN kl. 3:40 - 5:50 - 8 B.i. 7 ára
ALIENS VS. PREDATOR kl. 10:10 B.i. 16 ára
BUTTERFLY ON A WHEEL kl. 8 B.i. 16 ára
RUN FATBOY RUN kl. 10:10 LEYFÐ
NANNY DIARIES kl. 5:50 LEYFÐ
ALVIN OG ÍKORNARNIR m/ísl tali kl. 1:40 LEYFÐ
TÖFRAPRINSESSAN m/ísl tali kl. 1:40 LEYFÐ
BÝFLUGUMYNDIN m/ísl tali kl. 4 LEYFÐ
/ SELFOSSI
BÍÓUNUM ÁFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SWEENEY TODD kl. 6 - 8 - 10:20 B.i.16 ára
THE GAME PLAN kl. 2 - 6 LEYFÐ
CHARLIE WILSON'S WAR kl. 10 B.i.12 ára
DEATH AT A FUNERAL kl. 8 B.i.7 ára
TÖFRAPRINSESSAN m/ísl tali kl. 2 - 4 LEYFÐ
BÝFLUGUMYNDIN m/ísl tali kl. 4 LEYFÐ
SÝND Á SELFOSSI
ÁST. SKULDBINDING. ÁBYRGÐ.
HANN HLEYPUR FRÁ ÖLLU!
SÝND Á SELFOSSI
Nú mætast þau aftur!
SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSIÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU T ALI
NÚ VERÐUR ALLT VITLAUST!
SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSI
HILMIR SNÆR
GUÐNASON
MARGRÉT
VILHJÁLMSDÓTTIR
LAUFEY
ELÍASDÓTTIR
JÓHANN
SIGURÐARSON
ÓLAFÍA HRÖNN
JÓNSDÓTTIR
ÞRÖSTUR LEÓ
GUNNARSSON
ÓLAFUR DARRI
ÓLAFSSON
ÓLAFUR EGILL
EGILSSON
ILMUR
KRISTJÁNSDÓTTIR
TILNEFND TIL 4 GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA
Þ.Á.M. BESTA MYND + BESTI LEIKARI Í AÐALHLUTVERKI.
TILNEFND TIL 5 BAFTA VERÐLAUNA.
SÝND Í KRINGLUNNI
eee
- S.V, MBL
eee
DÓRI DNA, DV
eee
- V.I.J., 24 STUNDIR
STÆRSTA
JANÚAROPNUN
SÖGUNNAR
Í BANDARÍKJUNUM!
„Myndin er meinfyndin“
„Philip Seymour Hoffman fer
á kostum í frábærri mynd“
- T.S.K. 24 STUNDIR
eeee
„ Charlie Wilson’s War
er stórskemmtileg
og vönduð kvikmynd
- V.J.V., TOPP5.IS
Alltaf er sérkennilegt þegargagnrýnendur og listrýnareru að biðja um önnur verk
en þeir sáu eða lásu. Hlutverk rýn-
isins hlýtur að vera að fjalla um og
rýna í það verk sem hann upplifði.
Ekki panta eitthvað annað. Að
sama skapi finnst mér ekki hægt
að fara fram á það að listamenn
vinni verk út frá þeim efnivið eða
aðferðum sem listrýnirinn heillast
helst af; hans hlutverk hlýtur að
vera að lesa í hvert verk á þess
forsendum, með opnum huga.
Að þessu sögðu er ég hikandi við
að biðja um fleiri verk á borð við
það sem ég las með dætrum mín-
um um daginn, og vorum öll jafn
spennt. Það var hins vegar afar
ánægjulegt að lesa barna- og ung-
lingabók sem byggist á þjóðlegum
stefjum og er jafn vel lukkuð og
Draugaslóð eftir Kristínu Helgu
Gunnarsdóttur.
Á síðustu tíu árum hefur KristínHelga skrifað á annan tug
bóka fyrir þennan þakkláta hóp
lesenda, og áheyrenda. Bækurnar
um Fíusól voru með fyrstu „stóru“
bókunum sem dóttir mín, sem nú
er níu ára, las og skemmti sér kon-
unglega yfir. Í Draugaslóð kveður
við annan og alvarlegri tón, þótt
kímnin sé alltaf nærri. Kristín
Helga notar hina þjóðlegu þætti á
meðvitaðan hátt, hún leggur sögu-
heiminn ofan á eldri heim þjóð-
sagna, og það lukkast það vel að
við fórum jafnhliða lestrinum að
lesa okkur til, og ég að segja dætr-
unum betur frá því sem vísað er til.
Aðalpersóna Draugaslóðar er
pilturinn Eyvindur, sem hefur ver-
ið sagt að hann sé afkomandi
Fjalla-Eyvindar, sem hann hefur
mikinn áhuga á. Hann hefur alist
upp hjá ömmu sinni (er sonur
ítalsks sjóliða sem átti stutta við-
dvöl í Reykjavík) og eyðir sumri á
Hveravöllum með móður sinni, sem
er þar landvörður. Inn í söguna
blandast á dramatískan hátt örlög
Reynistaðarbræðra, örlög skoskra
bræðra, draumar eru mikilvægir
og þarna eru draugurinn í Hvít-
árnesi, draugur á Hveravöllum
sem virðist vera Jón Austmann,
nútíma útilegumaður og snær-
isþjófar samtímans, og þarna kem-
ur risinn Bergþór í Bláfelli við
sögu.
Söguheimurinn stendur mérnærri. Sjálfur var ég ekki
nema unglingur þegar ég reið með
afa mínum til Hveravalla, þar sem
hann var gæslumaður, og eyddi
þar nokkrum vikum. Ég var mjög
meðvitaður um Eyvind og Höllu og
hreysi þeirra og slóðir í Kjal-
hrauni. Ásamt Jóni Kalman Stef-
ánssyni vann ég fyrir mörgum ár-
um grein um Hvítárnesdrauginn
fyrir blaðið og svo förum við dæt-
urnar af og til og skoðum legstein
tröllkarlsins Bergþórs fyrir utan
kirkjugarðinn í Haukadal, þar sem
svo margir úr minni móðurfjöl-
skyldu hvíla innan kristinna
marka.
Í þessum vel mótaða söguheimi
sínum magnar Kristín Helga upp
spennu, sem er þjóðleg á heillandi
hátt. Hún vísar lesendum og
áheyrendum í sjóð þjóðsagnanna,
en sagan er líka framúrskarandi
skáldverk fyrir alla fjölskylduna.
Þegar svona vel tekst til, er þá
ekki óhætt að biðja um meira af
slíku?
Draugar og
draumaráðning-
ar á hálendinu
AF LISTUM
Einar Falur Ingólfsson
»Ég var mjög meðvit-aður um Eyvind og
Höllu og hreysi þeirra
og slóðir í Kjalhrauni.
Árvakur/Brynjar Gauti
Á draugaslóð Ungir piltar hafa tyllt sér í helli Fjalla-Eyvindar.
efi@mbl.is