Morgunblaðið - 05.02.2008, Side 1
STOFNAÐ 1913 35. TBL. 96. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
FÁNÝTT DÓT
STÓRYRTIR OG STUÐANDI, ÞANNIG ERU
MYNDLISTARDÓMAR MATTHEW COLLINGS >> 38
Í HNOTSKURN
»Inngönguleiðum í tóm húsþarf að loka. Einnig þarf að
hafa eftirlit með húsunum og sjá
til þess, ef inngangar hafa verið
opnaðir, að þeim sé lokað á ný og
haldið lokuðum.
»Sambrunahætta er mikil þarsem byggð er þétt, en alltaf
þarf að gá að fólki fyrst af öllu.
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
ELDHÆTTA og öryggisvandi fylgir yfirgefnum húsum
sem bíða framkvæmda eða niðurrifs í Reykjavík, ekki
síst í miðbænum. Þetta er mat Jóns Viðars Matthías-
sonar, slökkviliðsstjóra slökkviliðs höfuðborgarsvæðis-
ins. „Þeir sem ekki eiga höfði sínu að að halla annars
staðar sækja í svona byggingar, en oft er búið að taka
bæði hita og rafmagn af þeim svo að fólk er jafnvel að
hlýja sér við opinn eld,“ segir Jón Viðar.
„Við förum ávallt í bruna með því hugarfari að þar sé
einhver inni. Það tefur slökkvistarf enda þarf fyrst að
fara inn til að gá að fólki. Niðri í miðbæ er mikil sam-
brunahætta vegna þéttrar byggðar og tíminn skiptir því
höfuðmáli. Þess eru dæmi erlendis að slökkviliðsmenn
farist í brunum eins og þessum og utangarðsmenn
brenni inni,“ segir Jón Viðar. Hann kallar eftir ábyrgð-
artilfinningu eigenda og meira eftirliti með húsum. Hann
segir að ganga þurfi fljótt til verks um að rífa hús sem á
að rífa. „Mínir menn þurfa að fara inn í hús sem hafa ver-
ið rifin til hálfs, jafnvel með göt í gólfunum.“ Hann óttast
að tómum húsum sem bíða breytinga fari nú fjölgandi, í
ljósi fyrirhugaðrar uppbyggingar í miðbænum.
Brunahætta af yfirgefnum
húsum í miðborginni mikil
Hætta á sambruna í þéttri byggð Slökkviliði stendur ógn af hálfrifnum húsum
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
HÆKKANDI fjármagnskostnaður
hefur komið mjög illa við kúabú sem
staðið hafa í miklum fjárfestingum á
undanförnum árum. Kjörvextir verð-
tryggðra lána hafa á tveimur árum
farið úr 4,9% í 8,9%, en þetta er 81,6%
hækkun. Sumir bændur hafa teygt
sig mjög langt í fjárfestingum og sitja
nú uppi með skuldir sem þeir eiga í
erfiðleikum með að standa undir
vegna hærri vaxta og hækkunar á
rekstrarkostnaði.
Meðalskuldir sérhæfðra kúabúa
eru komnar yfir 40 milljónir. Þetta
eru miklar skuldir í ljósi þess að
heildartekjur meðalbúsins námu að-
eins 18,1 milljón á árinu 2006. Skuld-
irnar hafa hækkað hratt á und-
anförnum árum, en þær námu 23,5
milljónum í árslok 2003. Þessi mikla
skuldaaukning er til komin vegna
þess að bændur hafa verið að stækka
búin. Það kallar á nýbyggingar, kaup
á nýjum tækjum og kaup á kvóta.
Ekki er óalgengt að stækkun á fjósi
með kvótakaupum kalli á fjárfestingu
upp á 60 milljónir, en dæmi eru líka
um miklu hærri tölur.
Gerbreyttar forsendur
Runólfur Sigursveinsson, ráðu-
nautur á Selfossi, orðaði það svo á
málþingi um mjólkurframleiðslu sem
haldið var í síðustu viku, að ekki stæði
steinn yfir steini í þeim rekstraráætl-
unum sem bændur hefðu gert þegar
þeir lögðu af stað með sínar fjárfest-
ingar. Það eru orð að sönnu. Lands-
samband kúabænda hefur reiknað út
að frá ársbyrjun 2006 til dagsins í dag
hefur áburður hækkað í verði um
96,9%, vextir hækkað um 81,6%,
kjarnfóður hækkað um 51,6% og dís-
ilolía hækkað um 48%. Á sama tíma-
bili hækkaði verð á mjólk til bænda
um 13,1%.
Hækkandi fjármagnskostnaður
hefur leitt til þess að æ fleiri bændur
hafa kosið að skuldbreyta lánum í er-
lenda gjaldmiðla. Vextir á erlendum
lánum eru lægri og lánin eru óverð-
tryggð. Þessi breyting þýðir hins
vegar að nýr áhættuþáttur kemur inn
í reksturinn, það er þróun gengis.
Árvakur/RAX
Fjárfesting Mörg ný fjós hafa verið
reist hér á landi á síðustu árum.
81,6%
hækkun
á vöxtum
Meðalbóndi skuldar
yfir 40 milljónir
ALLT tiltækt slökkvilið var kallað
að Hverfisgötu 34 í Reykjavík rétt
fyrir klukkan 18.00 í gær. Eldur
logaði á annarri hæð og á milli
þilja. Slökkvistarf gekk greiðlega.
Hiti og rafmagn var aftengt í hús-
inu, sem er mannlaust, og leikur
sterkur grunur á að um íkveikju
hafi verið að ræða. Aftur þurfti að
kalla slökkvilið til á áttunda tím-
anum, þar sem eldur tók sig upp á
ný. Vel gekk að slökkva hann. Þetta
var þriðja útkall slökkviliðs að
Hverfisgötu 34 á stuttum tíma. Þess
má geta að í næsta húsi er hótel.
Árvakur/Júlíus
Slökkva þurfti eld í mannlausu húsi í tvígang
HARALDUR
Benediktsson,
formaður Bænda-
samtaka Íslands,
telur að Íslend-
ingar eigi að feta
sig frá kvótakerfi
í mjólkurfram-
leiðslu líkt og aðr-
ar Evrópuþjóðir
séu að gera.
„Ég hef lengi verið þeirrar skoð-
unar að við þyrftum að endurskoða
þetta kerfi [kvótakerfið]. Á margan
hátt hamlar það bæði hagræðingu
og framförum í landbúnaði. Mér
sýnist að við séum að ýmsu leyti á
hættulegri braut með þetta kerfi.
Við erum að millifæra milli framleið-
enda gríðarlega fjármuni í gegnum
kvótaviðskipti. Við eigum að gera
svipað og aðrar Evrópuþjóðir og
feta okkur frá kvótakerfinu,“ sagði
Haraldur.
Hann tekur þó fram að áfram
verði hið opinbera að styðja bændur,
líkt og gert sé við alla bændur í hin-
um vestræna heimi. | Miðopna
Eigum að feta okkur
frá kvótakerfi
Haraldur
Benediktsson
STÆRSTA kjúklingabú landsins
verður á Melavöllum á Kjalarnesi
með fyrirhugaðri stækkun fyrirtæk-
isins Matfugls á aðstöðu sinni þar.
Ætlunin er að reisa fjögur ný hús sem
hvert um sig verður tæplega 1.800
fermetrar að stærð. Fram kemur í
frummatsskýrslu vegna umhverfis-
mats á stækkuninni að í heild verði í
búinu pláss fyrir 196.000 fugla eftir
stækkun, en fyrir eru þar 84.000
stæði.
Svara aukinni eftirspurn
Samkvæmt upplýsingum frá Fé-
lagi kjúklingabænda er stærsta kjúk-
lingabú landsins sem stendur á Ás-
mundarstöðum í Rangárvallasýslu,
en það er rekið af Reykjagarði hf.
sem framleiðir svonefndan Holta-
kjúkling. Þar eru í dag stæði fyrir
156.000 fugla og því er ljóst að hið
stækkaða bú Matfugls verður lang-
stærst.
Yfirlýstur tilgangur stækkunarinn-
ar er að svara aukinni eftirspurn eftir
kjúklingakjöti. Hlutdeild þess sl. 12
mánuði nam rúmlega 30% af kjötsölu
í landinu, eins og segir í skýrslunni.
Pláss fyrir
196.000
kjúklinga
Sæmundur fróði >> 37
Komdu í leikhús
Leikhúsin í landinu
NÝJUNG 250 ml umbúðir