Morgunblaðið - 05.02.2008, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 33
dagbók
Í dag er þriðjudagur 5. febrúar, 36. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Hann stendur mér við hlið til þess að veita mér lið og vernd. (Daníel 11, 1.)
Fjármálaráðuneytið heldur op-inn morgunverðarfund áGrand hóteli á morgun, ísamstarfi við Stofnun stjórn-
sýslufræða og stjórnmála og Félag for-
stöðumanna ríkisstofnana.
Yfirskrift fundarins er Stjórnun og
starfsmannamál hjá ríkisstofnunum
–Niðurstöður könnunar, hvernig má
nýta þær í komandi kjarasamningum
og aðgerðir í mannauðsmálum ríkisins.
„Á fundinum kynnum við nið-
urstöður annars hluta af þremur í viða-
mikilli könnun sem unnin var meðal
forstöðumanna ríkisstofnana um
starfsumhverfi ríkisstofnana og stjórn-
un þeirra,“ segir Gunnar Björnsson,
skrifstofustjóri hjá starfsmannaskrif-
stofu fjármálaráðuneytisins, en auk
hans flytja erindi á morgunverðarfund-
inum þeir Guðmundur H. Guðmunds-
son, sérfræðingur á starfsmannaskrif-
stofu ráðuneytisins, og Ómar H.
Kristmundsson, dósent við HÍ.
„Í fyrsta hluta rannsóknarinnar var
sjónum beint að fyrirkomulagi launa-
ákvarðana og afstöðu til laga og
reglna, en í öðrum hluta var einkum
litið til stjórnunar og starfsmanna-
mála. Í lokahluta rannsóknarinnar
verða svo skoðuð viðhorf forstöðu-
manna til eigin starfs,“ útskýrir Gunn-
ar.
Rannsóknin hefur skilað ýmsum
áhugaverðum niðurstöðum: „Svar-
endur voru m.a. mjög jákvæðir í garð
þeirra breytinga sem átt hafa sér stað
innan stjórnsýslunnar, s.s. varðandi
breytta uppbyggingu og framsetningu
á launatöflum. Er þetta til marks um
að farið hafi verið á rétta braut á sín-
um tíma með því að leitast við að gera
kjarasamninga þannig úr garði að þeir
væru sem hlutlausastir gagnvart upp-
byggingu og útfærslu verkefna hverr-
ar stofnunar fyrir sig,“ segir Gunnar.
„Einnig kom í ljós að um tveir þriðju
hlutar stofnana eru með skriflega
starfsmannastefnu, en hins vegar
merkti aðeins fjórðungur forstöðu-
manna við að þeir væru „mjög sam-
mála“ þeirri fullyrðingu að starfs-
mannastefnunni væri fylgt, og rúmur
helmingur var „frekar sammála“.
Þetta gefur vísbendingar um að þörf sé
á átaki til að stofnanir marki sér
starfsmannastefnu með skýrum hætti,
og nýti hana betur.“
Skráning á morgunverðarfundinn er
á slóðinni stjornsyslustofnun.hi.is/
page/stjornunogstarfsmannamal.
Stjórnsýsla | Morgunverðarfundur á Grand hóteli kl. 8 til 10 á morgun
Starfsmannamál ríkisins
Gunnar Björns-
son fæddist í
Reykjavík 1954.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá MT
1974 og útskrif-
aðist úr lagadeild
Háskóla Íslands
1982. Hann starf-
aði hjá Skattstof-
unni í Reykjavík, Ríkisskattstjóra og
síðar Orkustofnun, en hefur frá 1988
starfað hjá fjármálaráðuneytinu. Eig-
inkona Gunnars er Þóra Gísladóttir
kennari og eiga þau þrjá syni og eitt
barnabarn.
Tónlist
Norræna húsið | Á háskólatónleikum í
Norræna húsinu 6. feb. kl.12.30 leikur
djass-rokksveitin BonSom verk, flest
ný, eftir þá félagana Andrés Þór Gunn-
laugsson, Eyjólf Þorleifsson, Scott
McLemore og Þorgrím Jónsson. Að-
gangseyrir er kr. 1000, kr. 500 fyrir
eldri borgara og öryrkja en ókeypis
fyrir nemendur HÍ.
Norræna húsið | Margrét Bóasdóttir
sópran og Daníel Þorsteinsson píanó-
leikari halda tónleika á Myrkum mús-
íkdögum kl. 12.15 í Norræna húsinu.
Tónlist eftir Jón Hlöðver Áskelsson.
Fyrirlestrar og fundir
Háskóli Íslands, Árnagarður stofa
201 | Geir Westgaard, sérlegur ráð-
gjafi og yfirmaður „High North“ verk-
efnisins í utanríkisráðuneyti Noregs,
mun halda fyrirlestur um ógnanir og
tækifæri í hánorðri í stofu 201 í Árna-
garði. Fyrirlesturinn mun fara fram á
ensku og er opinn öllum. Aðgangur
ókeypis. Sjá einnig á http://www.hi.is/
ams.
Kvenfélag Seljakirkju | Fundur verður
haldinn kl. 19.30 5 feb. Gestur kvölds-
ins er Sigríður Arnardóttir (Sirrý sjón-
varpskona). Mætum vel og stuðlum að
öflugu kvenfélagi. Stjórnin.
Litlakot | Á morgun kl. 15, munu Bryn-
dís Víglundsdóttir frá FEB og Ingi-
björg H. Harðardóttir, lektor við Kenn-
araháskóla Íslands, kynna í Litlakoti
niðurstöður rannsókna á framlagi
eldri borgara til samfélagsins. Kaffi-
veitingar að hætti Gróu.
DRENGUR gengur fram á dautt sæljón á Cobquecura-ströndinni í
Chile í gær. Sæljónum fer fækkandi og er aðallega um að kenna
búsetu manna sem hefur færst nær heimkynnum þeirra.
Skoðar dautt sæljón
Reuters
mennt kl. 10, leikfimi kl.11.30, gler-
skurður – frjálst kl.13, bridge kl. 13,
myndmennt kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 | Búta- og
brúðusaumur kl. 9-13, jóga hjá
Björg F., böðun fyrir hádegi, hádeg-
isverður, myndlist kl. 13.30, helgi-
stund kl. 14 hjá séra Ólafi Jóhanns-
syni, söngstund á eftir.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins
og venjulega, dagskrá í allan vetur,
morgunkaffi, Revían 5. februar.
Þegar amma var ung? Hvaða sprell
skyldi það nú vera? Uppl. í síma
568-3132
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun,
miðvikudag, er gaman saman á
Korpúlfsstöðum kl. 13.30.
Kvenfélag Garðabæjar | 55.
aðalfundur Kvenfélags Garðabæjar
verður haldinn 5. febrúar nk. og
hefst stundvíslega kl. 20, venjuleg
aðalfundarstörf. Miðar á galakvöld
félagsins, í tilefni af 55 ára afmæl-
inu, verða seldir á fundinum. Kaffi-
nefnd, hverfi: 5, 6, 19 og 21 sem
mætir kl. 19. Stjórnin.www.kvengb.is
is
Langahlíð 3, félagsmiðstöð |
Morgunkaffi – vísnaklúbbur kl. 9,
boccia kvennaflokkur kl. 10-15,
handverks- og bókastofa kl. 13, spil-
að á spil kl. 13, kaffi kl. 14.30.
Laugarból, Íþr.hús Ármann/
Þróttur Laugardal | Leikfimi fyrir
eldri borgara mánud. kl. 12. Þriðjud.
kl. 11. Fimmtud. kl. 11.
Leshópur FEBK Gullsmára | Vigdís
Grímsdóttir höfundur bókanna Bíbí,
Kaldaljóss, Grandavegur 7, Ég heiti
Ísbjörg o.fl. vinsælla skáldsagna
verður gestur Leshóps FEBK í fé-
lagsheimilinu Gullsmára 13 þriðju-
daginn 5. febr. kl. 20. Enginn að-
gangseyrir. Leshópur FEBK
Gullsmára.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin kl.
9-16 m/ leiðb. kl. 9-13. Hand-
menntastofa opin kl. 9-16 m/ leiðb.
kl. 13-16. Myndlist kl. 9-12, postulín
kl. 13-16, leikfimi kl. 13. Hárgreiðsla
588-1288. Fótaaðgerðarstofa 568-
3838.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höf-
uðborgarsvæðinu | Bingó kl. 19.30,
í félagsheimili Sjálfsbjargar á höfuð-
borgarsvæðinu, Hátúni 12.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fóta-
aðgerðir kl. 9-16. Myndmennt,
enska, hádegisverður, leshópur,
spurt og spjallað /myndbandasýn-
ing, bútasaumur, frjáls spil og kaffi-
veitingar. Upplýsingar í síma 535-
2740.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja
kl. 8.30, handavinnustofan opin
með leiðbeinanda, morgunstund kl.
9.30, leikfimi kl. 10, upplestur fram-
.haldssaga kl. 12.30, Félagsvist kl.
14, félagsmiðstöðin opin fyrir alla
aldurshópa. uppl. í síma 4119450
Þórðarsveigur 3 | Hjúkrunarfræð-
ingur kl. 9 (fyrsta þriðjud í mánuði)
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa frá kl.
9-16.30 , jóga kl. 10, postulínsmáln-
ing og útskurður kl. 13, lestrarhópur
kl. 13.30, bíóferð á Brúðgumann
fimmtudaginn 7. febrúar kl. 16, rúta
frá Aflagranda kl. 15.30.
Árskógar 4 | Bað, handavinna,
smíði/útskurður, leikfimi, boccia.
Upplýsingar í síma 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43 | Leikhúsferð á
Revíu í Iðnó kl. 14. Rútuferð frá Ból-
staðarhlíð kl. 13.10, rútugjald 500
kr. Hárgreiðsla, böðun, handavinna,
vefnaður, morgunkaffi/dagblöð,
fótaaðgerð, hádegisverður, línudans,
kaffi.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í
handmennt opin 9-16 m/ leiðb. til kl.
12. Framsögn og félagsvist kl. 14.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Skák kl. 13, félagsvist kl. 20, fé-
lagsfundur verður haldinn í Stang-
arhyl 4 laugardaginn 9. febr. kl.14,
kynntar verða tillögur um breyt-
ingar á lögum Félags eldri borgara í
Reykjavík.
Félag kennara á eftirlaunum |
Tölvustarf í Ármúlaskóla hefst kl.
15.15. Opið öllum félagsmönnum.
Hægt er að byrja hvenær sem þú
vilt og ekki þarf að mæta alltaf.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, leiðbeinandi verð-
ur til kl. 17, þrír leikfimitímar hjá
Margréti, jóga kl. 9.50, tréskurður
kl. 13 og alkort kl. 13.15.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður, jóga, myndlistahópur, ganga,
leikfimi og hádegisverður. kl. 13,
bútasaumur, Íslendingasögur og
jóga. kl. 20 leshópur. Uppl. í sími
564-5260.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ
| Línudans kl. 12, kyrrðarstund í
kirkjunni, spilað þar kl. 13, málun kl.
13, trésmíði/tréskurður kl. 13.30,
vatnsleikfimi kl. 14.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnu-
stofur opnar kl. 9-16.30, létt ganga
um nágrennið kl. 10.30, postulíns-
námskeið kl. 13, á morgun hefst
Menningar- og listahátíð eldri borg-
ara í Breiðholti, m.a pottapólitík og
vatnsleikfimi í Breiðholtslaug, stafa-
ganga, og íþróttahátíð FÁÍA í
íþróttahúsi v/ Austurberg.
Garðaholt samkomuhús | 55. fund-
ur verður haldinn 5. feb. nk. og
hefst stundvíslega kl. 20, venjuleg
aðalfundastörf. Miðar á galakvöld
félagsins, í tilefni 55 ára afmælisins,
verða seldir á fundinum, kaffinefnd
hverfi: 5, 6, 19 og 21 sem mætir kl.
19, stjórnin.www.kvengb.is
Hraunbær 105 | Kaffi, spjall, blöðin,
kl. 9, glerskurður kl. 9, líkamsrækt í
Árbæjarþreki kl. 10, boccia kl.11, leik-
fimi kl. 12, hádegismatur kl. 12:15,
bónusbílinn.13:30, stafganga kl.15,
kaffi.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, mynd-
kl. 10, bænastund kl. 12, bónusbíll-
inn, kl. 16.45, bókabíllinn.
Kirkjustarf
Árbæjarkirkja | Aðalfundur Kven-
félags Árbæjarkirkju verður 4. febr-
úar kl. 19, í safnaðarheimili Árbæj-
arkirkju. Venjuleg aðalfundarstörf
og veitingar.
Áskirkja | Opið hús milli kl. 10-14 í
dag, föndur og spjall. Bænastund kl.
12, í umsjá sóknarprests. Léttur
hádegisverður eftir bænastundina.
Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjón-
usta kl. 17:30.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11,
kirkjustarf aldraðra kl. 12, léttur
málsverður, helgistund, Valgerður
Gísladóttir framkvæmdastjóri elli-
málaráðs Reykjavíkurprófastsdæma
verður með hugvekju og bingó, 10-
12 ára starf kl. 17-18.15, æskulýðs-
starf Meme fyrir 9-10 bekk kl.
19.30.
Fella- og Hólakirkja | Kyrrðarstund
kl. 12. Orgelleikur, íhugun og bæn,
súpa og brauð eftir, kirkjustarf eldri
borgara kl. 13, Björn Bjartmarz frá
hverfislögreglunni kemur í heim-
sókn, kaffi.
Fríkirkjan í Hafnarfirði | Aðal-
fundur Kvenfélags Fríkirkjunnar
verður þriðjud. 5. febrúar í Félags-
heimilinu, Linnetstíg 6, kl. 20.30.
Fríkirkjan Kefas | Bænastund kl.
20:30.
Grafarvogskirkja | Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 13.30-16, helgi-
stund, handavinna, spil og spjall,
kaffi og eitthvað með. TTT fyrir
börn 10-12 ára í Engjaskóla kl. 16-
17. TTT fyrir börn 10-12 ára í Borga-
skóla kl. 17-18.
Grensáskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Stutt helgistund með altarisgöngu
og bæn fyrir bænarefnum. Að
helgistund lokinni gefst kostur á
léttum málsverði á vægu verði.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
Hallgrímskirkja | Starf fyrir eldri
borgara kl. 11-14. Leikfimi, súpa,
kaffi og spjall.
Hjallakirkja | Bæna- og kyrrð-
arstund kl. 18.
Hjallakirkja | Prédikunarklúbbur
presta kl. 9.15-11, í umsjá sr. Sig-
urjóns Árna Eyjólfssonar héraðs-
prests.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | For-
eldramorgunn kl. 10-12, opið fyrir
alla að mæta með börn og njóta
veitinga, kl. 19-22, Alfa 1 og 2,
hjónaalfa hefst í vor og næsta
námskeið hefst í september. Nánari
upplýsingar á www.filadelfia.is
KFUM og KFUK | Fundur kl. 20, á
Holtavegi 28. Lifandi vatn á Holta-
veginum, Guðrún Sæmundsdóttir,
Jóhann Helgason, Bryndís Böðv-
arsdóttir og Haukur Barkarson
koma á fundinn og kynna verkefnið
og annast hugleiðingu, kaffi eftir
fundinn.
Langholtskirkja | Alla þriðjudags-
morgna kl. 10-12 er opið hús í safn-
aðarheimili Langholtskirkju fyrir
foreldra ungra barna og verðandi
mæður. Spjall, hressing og góðir
gestir koma af og til í heimsókn.
Umsjón hefur Lóa Maja Stef-
ánsdóttir, móðir og sjúkraliði.
Laugarneskirkja | T.T.T.hópurinn (5
- 6. bekkur) kl. 16, kvöldsöngur með
Þorvaldi Halldórssyni kl. 20, trú-
fræðsla sr. Bjarna: Það kostar þig
lífið að eignast lífið, kl. 20:30, á
sama tíma er síðasti opni 12 spora
fundurinn hjá Vinum í bata, sjá
laugarneskirkja.is.
Selfosskirkja | Í kvöld kl. 19.30,
verður kynningarfundur vegna
ALFA-námskeiðs í Selfosskirkju, Sr.
Gunnar Björnsson.
Vídalínskirkja Garðasókn | Opið
hús frá kl 13-16, spilað er vist,
bridge og lomber og púttgræjur á
staðnum. Njótum þess að eiga sam-
félag hvert við annað, kaffi og með-
læti, akstur fyrir þá sem vilja, upp-
lýsingasími: 895-0169. Kyrrðastund
kl. 12, tónlist leikin og ritning-
artextar lesnir frá kl. 12.10, súpa og
brauð kl 12.30.
Þorlákskirkja | Foreldramorgunn í
bókasafni, þriðjudagsmorgun milli
kl. 10 og 12.
M
bl
9
67
77
1
501957 - 2007Elsta starfandi fasteignasala landsinns fagnar 50 ára afmæli. Samanlagður starfsaldur starfsmanna við fasteignaviðskipti eru nú 200 árSverrir Kristinsson löggiltur fasteignasaliSíðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095Sími: 588 9090
Um er að ræða hluta jarð-
hæðar sem er mjög gott
verslunarrými á jarðhæð og
8. hæð hússins. Á 8. hæð er
stór matsalur, vinnusalir,
fundarsalur, o.fl. Hæðin gæti
einnig hentað fyrir skrifstofur.
Mjög stórar svalir eru á 8.
hæðinni en á öðrum hæðum
eru einnig góðar svalir. Á
jarðhæð er gott verslunar-
rými. Fjöldi bílastæða er við
húsið, m.a. í bílageymslu.
Húsnæðið er laust. Nánari
upplýsingar veitir Hákon
Jónsson fasteignasali. 7020
Holtasmári 1 – Leiga – 1. og 8. hæð