Morgunblaðið - 05.02.2008, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
DEATH AT A FUNERAL kl. 6 - 8 - 10:10 B.i.7 ára
THE GAME PLAN kl. 5:40 LEYFÐ
NATIONAL TREASURE 2 kl. 8 B.i.12 ára
I AM LEGEND kl. 10:30 B.i.14 ára
SWEENEY TODD kl. 5:40D - 8D - 10:30D B.i.16 ára DIGITAL
UNTRACEABLE kl. 8:20 - 10:30 B.i.16 ára
CLOVERFIELD kl. 8:30 - 10:30 B.i.14 ára
MICHAEL CLAYTON kl. 6:10 B.i.7 ára
TÖFRAPRINSESSAN m/ísl tali kl. 6:10 LEYFÐ
SWEENEY TODD kl. 5:30D - 8D - 10:30D B.i.16 ára DIGITAL
SWEENEY TODD kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 ára LÚXUS VIP
UNTRACEABLE kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.16 ára
CHARLIE WILSON'S WAR kl. 5:50 - 8 - 10:30 B.i.12 ára
SIGURVEGARI
JOHNNY DEPP
BESTI LEIKARI
GOLDEN GLOBE®
SÖNGLEIKUR/
GAMANMYND
BESTA MYND
SÝND Í ÁLFABAKKA
DWAYNE „THE ROCK“ JOHNSON
- S.V, MBL
O S C A R
®
T I L N E F N I N G A R
ÞAR Á MEÐAL3BESTI LEIKARI - JOHNNY DEPP
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
DIANE LANE Í ÓVÆNTASTA
SÁLFRÆÐITRYLLI ÁRSINS.
HVERNIG FINNURÐU
RAÐMORÐINGJA SEM SKILUR
EKKI EFTIR SIG NEINA SLÓÐ?
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSI
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
„Sweeney Todd er sterkasta
mynd þessa ágæta leikstjóra
í háa herrans tíð...“
H.J. MBL
„Hressandi hryllingur“ „...
besta mynd Tims Burton
í áraraðir.“
R.E.V. – FBL.
Myndasögum á Íslandihefur vaxið fiskur umhrygg undanfarin ár oghægt er að nálgast þær
bæði í sérverslun, bókasöfnum og
bókabúðum. Í dag er það ekki frá-
gangssök í kúltíveruðu samsæti að
segjast hafa gaman af myndasögum
eins og það gat verið áður. Jafnvel
að þyki svolítið hipp og kúl að láta
glitta í nördinn í sér endrum og sinn-
um. Þetta er allavega reynsla und-
irritaðs en þegar ég var í mennta-
skóla fyrir rúmlega áratug hefði ég
frekar komið nakinn fram en að tjá
mig um aðdáun mína á Batman.
Búðin
Eftir nokkrar tilraunir til að koma
myndasögum á markað hér í
Reykjavík, meðal annars í kjall-
aranum á Eymundson við Hlemm og
hinum megin við hornið á Rauð-
arárstíg í verslununum Goðsögn og
Fáfni, fann forvígismaður mynda-
sögubyltingarinnar á Íslandi, Gísli
Einarsson loks endanlegan stað fyr-
ir verslunina sína, Nexus. Það var
árið 1995 og hefur Nexus verið á sín-
um stað ofarlega við Hverfisgötuna
allar götur síðan og veitt þeim sem
hafa áhuga á myndasögum, hlut-
verkaspilum, leikföngum og mynd-
böndum athvarf frá hinum harða
heimi raunveruleikans. Myndasögu-
deild þeirrar verslunar er með mikl-
um ágætum og hefur danskur
myndasöguáhugamaður meðal ann-
ars haft við mig á orði að Nexus sé
betri myndasöguverslun en bæði
Fantask og Faraos Cigarrer sem
eru virtustu og elstu mynda-
söguverslanir Kaupmannahafnar og
eru Danir þó mjög ginnkeyptir fyrir
myndasögum almennt. Sá maður
sem að sögn Gísla bar þó mesta
ábyrgð á því að festa myndasöguna í
sessi hér á Íslandi var umsjón-
armaður verslunarinnar til margra
ára, Pétur Yamagata, enda eldheitur
áhugamaður þar á ferð. Hann hefur
þó nýlega hætt störfum og við hlut-
verki vertsins tók Þórhallur Björg-
vinsson sem veldur starfinu vel.
Þar sem Nexus er langstærsti
söluaðili myndasagna hér á landi er
rétt að líta til þeirra til að fá vísbend-
ingar um hvaða verk voru vinsælust
til kaups á síðasta ári. Listinn yfir
söluhæstu verkin er áhugaverður. Í
efsta sæti tróna tveir titlar eftir
sama höfund; The Life and Times of
Scrooge McDuck og The Life and
Times of Scrooge McDuck Comp-
anion eftir Don Rosa sem oft er kall-
aður erfðaprins Andabæjarsagn-
anna sem Carl Barks lagði grunninn
að. Í fyrri bókinni er safnað saman
þeim 12 köflum sem fyrst komu út í
blaðaformi og segja fyrstu ,,raun-
verulegu“ ævisögu ríkustu andar í
heimi, Jóakims Aðalandar. Rosa
þessi tók sig til og spann allar
minnstu vísanir í Jóakim úr sögum
Barks í heillega frásögn sem slær
flest út í skemmtun. Í seinni bókinni
er svo safnað saman öðrum sögum af
Jóakim eftir sama höfund sem
dýpka þá mynd sem fæst með fyrri
bókinni. Þar glittir jafnvel í róm-
antíska hlið nirfilsins svo hörðustu
menn komast við. Að sögn Þórhalls
verslunarstjóra Nexus byggjast
þessar vinsældir líklega á því að fólk
sem kemur inn í búðina í öðrum er-
indagjörðum en að kaupa mynda-
sögur fjárfesti í þessum bókum sök-
um gamals kunningsskapar við
viðfangsefnið. Í öðru sæti vinsælda-
listans er svo hin umdeilda The Boys
eftir Garth Ennis og Darick Robert-
son. Þar er safnað saman fyrstu
tölublöðunum af þessari seríu sem
DC útgáfurisinn neitaði útgáfu
vegna þess að menn þar á bæ voru
ekki á eitt sáttir um umfjöllunar-
efnið og efnistökin sem eru víst í
efra borð ofbeldisskalans að því við-
bættu að ofbeldið snýr aðallega að
ofurhetjum. Það kemur kannski ekki
á óvart þegar litið er til þess að Enn-
is hefur farið mikinn í að úthúða of-
urhetju-„konseptinu“ í sínum fyrri
verkum og keyrir hér á öllum
strokkum samkvæmt því sem ég hef
heyrt en vinsældir bókarinnar voru
þvílíkar að mér tókst ekki að verða
mér úti um eintak fyrir þessi skrif.
Þriðja sætið fellur í skaut nýjasta
bindisins í Fables flokknum eftir Bill
Willingham og nokkra teiknara.
Þessi sería hefur hlotið allra handa
lof og verðlaun í gegn um tíðina og
ánægjulegt að sjá að íslenskir kaup-
endur kunna einnig gott að meta.
Þessi mikla sala er einnig áhugaverð
í því ljósi að út eru komin níu bindi í
flokknum og líklegt að þeir sem hafa
keypt það nýjasta hafi einnig orðið
sér út um hin bindin sem sýnir mikið
traust kaupenda á vörunni.
Þrátt fyrir góða sölu á þessum
fyrrnefndu verkum í Nexus ber
myndasöguhöfundurinn Hugleikur
Dagsson höfuð og herðar yfir aðra
höfunda hvað varðar sölu á lands-
vísu og hefur gert síðustu ár. Nýj-
asta bókin í ... okkur flokknum,
Kaupið okkur, hefur selst í rúmlega
1800 eintökum að sögn útgefanda en
aðrar bækur eftir hann á síðasta ári
Ókei bæ! og Kisi og leyndarmálið
hafa einnig selst mjög vel. Það segir
því margt um góða stöðu myndasög-
unnar á Íslandi að íslenskur höf-
undur á vinsælustu myndasögu árs-
ins. Bravó.
Safnið
Að viðbættu mjög auknu aðgengi
kaupenda að myndasögum í gegnum
Nexus og góða dreifingu á íslensk-
um höfundum í bókabúðum hafa
bókasöfn landsins stóraukið úrval
sitt á slíku efni undanfarin ár. Úlf-
hildur Dagsdóttir hefur átt veg og
vanda af því að gera myndasögusafn
Borgarbókasafnsins ótrúlega öflugt.
Þess má geta að Úlfhildur og Hug-
leikur eru systkin og mætti því titla
þau Kennedy-fjölskyldu mynda-
sagna hér á landi. Nú er svo komið
að í aðalsafninu á Tryggvagötu og
sex útsöfnum þess um borgina eru
nú fáanlegir yfir 7000 mynda-
sögutitlar og þá er ekki talið það
sem finnst á öðrum bókasöfnum út
um landið. Að sögn Úlfhildar ganga
útlán á myndasögum gríðarlega vel
og eru þær með vinsælasta efni
safnsins. Þegar litið er til vinsælustu
myndasagna síðasta árs í útlánum
verður hins vegar að líta til margra
óvissuþátta sem gera slíka upptaln-
ingu nokkuð handahófskennda. Í
fyrsta lagi er það svo að af aug-
ljósum ástæðum er ekki hægt að
lána sama eintakið nema einum í
einu sem takmarkar mjög tíðni út-
lána og getur hamlað aðgengi
áhugasamra að tilteknum bókum.
Einnig eru til nokkur eintök af sum-
um titlum en bara eitt af öðrum sem
gerir samanburðinn enn erfiðari, en
þar er fyrst og fremst um að ræða
bækur eftir íslenska höfunda. En ef
við lítum fram hjá þessum vankönt-
um í matinu og tökum nokkrar
stikkprufur lítur út fyrir að vinsæl-
ustu bækur síðasta árs í útlánum
hafi verið Vampire Knight eftir jap-
anska höfundinn Matsuri Hino. Sú
hefur skapað sér mjög gott orð sem
mangahöfundur í undirgeiranum
shojo sem er kannski best lýst sem
sögum um unga fallega menn, skrif-
uðum fyrir stúlkur á unglingsaldri
en lesnar af áfergju af báðum kynj-
um og Jón Ásgeir og afmælisveislan
eftir Óttar M. Norðfjörð sem virðist
vera jafnvígur á bæði ritmál og
myndmál. Hann á það sameiginlegt
með Hugleiki að afhelga myndasög-
una með hraðunnum teiknistíl og
biksvörtum húmor. Aðrar bækur
sem fylgja þar á eftir eru margar
eftir áðurnefndan Hugleik auk ann-
arra mangatitla. Úlfhildur lýsir því
svo að sá hópur sem les manga skeri
sig nokkuð frá öðrum því hann fari
mjög hratt í gegn um bækurnar og
því sé tíðni skila og útlána mjög ör
sem geri það að verkum að hægt sé
að lána sömu bókina oftar. Það er
gaman að geta þess að ofarlega á
þessum lista er hin áhugaverða
Edensgarðurinn eftir listamanninn
Kristján Jón Guðnason sem er enn
eitt dæmi um síaukinn áhuga á ís-
lensku myndasögunni.
Myndasögur eiga því í mörg hús
að venda og framtíðin er björt.
Mest lesnu myndasögur síðasta árs
Lestur á myndasögum hefur vaxið mikið und-
anfarin ár með tilkomu sérhæfðrar verslunar,
aukins framboðs í bókabúðum og gríðarlegs
vaxtar myndasögudeilda í bókasöfnum. Heimir
Snorrason kynnti sér óformlegan lista yfir
vinsælustu myndasögur ársins 2007.
Gísli
Einarsson
Úlfhildur
Dagsdóttir
heimirsnorrason@yahoo.com