Morgunblaðið - 05.02.2008, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 05.02.2008, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 27 Þá hefur Alla amma kvatt. Það er sérstök tilfinning að amman sem alltaf hefur verið til staðar sé skyndilega farin. Ýmsar minningar skjóta upp kollinum á tímamótum sem þessum, en mér er einna minnistæðust vikulöng ferð sem ég fór með ömmu sem krakki norður á Melrakkasléttu að tína fjallagrös. Ferðin hefði, miðað við allt og allt, ekki átt að hugnast tíu ára krakka. Það er ekki draumur hvers barns að hírast dögum saman í tjaldvagni með fólki sem allt er sex sinnum eldra en það, þegar leikja- tölvan bíður heima í hlýjunni. En mér leið vel, mér fannst ég öruggur og leiddist aldrei svo neinu næmi, og það var fyrst og fremst ömmu að þakka. Hún hafði ofan af fyrir mér og leiddi mig í allan sannleik um Aðalheiður Helgadóttir ✝ AðalheiðurHelgadóttir fædd- ist á Krossi á Beru- fjarðarströnd 6. nóv- ember 1939. Hún andaðist á líknardeild Landspítala hinn 22. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Bústaðakirkju 4. febrúar. leyndardóma íslenskr- ar náttúru. Og hún hafði fullan skilning á því að mér þætti ábrystir vondur. Amma var ekki mik- ið að troða skoðunum sínum upp á annað fólk. Satt að segja man ég varla eftir einu ein- asta skipti sem það gerðist. En það var ekki þar með sagt að hún hefði þær ekki. Það var til dæmis lýð- um ljóst af breytni hennar í lífi og starfi að henni var annt um þá sem minna mega sín og mátti fátt aumt sjá. Þessar skoðanir umhverfðust hins vegar sjaldan í orð, hvað þá rifrildi, enda hafði amma öllum stundum – bókstaflega – nóg annað að sýsla. Eljan var slík að maður gat ekki annað en dáðst að henni og þrátt fyrir dugnaðinn sáust varla þreytumerki á glaðværu and- litinu fyrr en undir það allra síðasta. Það gafst ekki tími til að vera þreytt- ur. Einhver varð að galdra fram all- an veislumatinn og prjóna utan um tuttugu manna fjölskyldu. Og maðk- arnir tíndu sig ekki sjálfir. Amma sigraðist tvisvar á illvígum sjúkdómi áður en hann veitti henni loks náðarhöggið. Ég skildi það ekki þá, en betur nú, hversu erfitt það hefur verið fyrir jafndugmikla konu og ömmu að þurfa að gera einskonar hlé á lífinu á meðan þau veikindi riðu yfir. En amma lét ekki segja sér að eitthvað væri of erfitt – hún var ekki týpan í það – heldur yfirsteig erf- iðleikana, ekki einu sinni heldur tvisvar. En allt er þá þrennt er. Eins og í ævintýrunum. Eftir á að hyggja vorum við amma líklega ekki ýkja náin, þótt við hefð- um ferðast saman og ég dvalist lang- dvölum heima hjá henni sem barn. Ég veit ekki hvers vegna það var, hvort ég ræktaði samband mitt við hana ekki nægilega eða hvort ódrep- andi þjónustulundin og vinnufýsn gerði það að verkum að hún mátti ekki vera að því að hleypa fólki nær sér en svo. Hver var Alla amma þegar ætt- móðurhlutverkinu sleppti? Ég fæ svörin víst ekki úr þessu. Það er mið- ur, því þau hefðu örugglega verið forvitnileg. Stígur Helgason. Elsku Alla. Komið er að kveðjustund. Löngu og ströngu veikindastríði er lokið, baráttu sem þú háðir af miklu æðruleysi. Við vorum að vona að við fengjum að hafa þig lengur með okkur en ör- lögin taka oft í taumana. Það var gott að eiga ykkur Hilmar að sem góða vini og nágranna. Þær voru æði margar ferðirnar sem þú komst yfir til okkar Daníels með fínar nýbakaðar kökur eða brauð. Alla hefur í gegnum tíðina undirbúið og bakað í margar stór- veislur. Einnig var hún hannyrða- kona mikil og var alltaf með eitthvað á milli handanna, sama hvort hún fékkst við fínasta útsaum, prjónaði eða stóð í matargerð, allt var þetta listavel unnið. Hún var afar gjafmild og vildi allt- af vera að gleðja aðra. Þetta hefur verið erfiður tími fyrir fjölskylduna. Hún þráði að vera heima sem lengst og það er aðdáun- arvert hversu Hilmar og fjölskylda önnuðust hana vel. Ég kveð þig, kæra vinkona, með söknuði, takk fyrir allt og allt. Guð blessi þig elsku Alla. Sárt er vinar að sakna. Sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna. Margar úr gleymsku rakna. Svo var samfylgd þín góð. Daprast hugur og hjarta. Húmskuggi féll á brá. Lifir þó ljósið bjarta, lýsir upp myrkrið svarta. Vinur þó félli frá. Góða minning að geyma. Gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma. Þér munum við ei gleyma. Sofðu í sælli ró. (Ók.höf.) Hilmar og fjölskylda, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Kristbjörg. Elsku Alla. Fáein kveðju- og þakkarorð fyrir frábærar samverustundir á liðnum árum. Allt frá fyrstu kynnum geisl- aði frá þér hlýja, góðvild, ró og festa. Hilmar og Alla voru glæsileg hjón. Þau hófu mjög ung lífshlaupið saman og það entist vel. Alla var mikil hagleikskona á ótrúlega mörg- um sviðum, svo sem hönnun hennar á íslensku ullinni, smíðar, útskurður margskonar, saumaskapur, garð- rækt blóma, nytjajurtir og fleira ber glöggt vitni um. Einnig var hún frá- bær kokkur, bakari og konfektgerð- arkona. Lax- og silungsveiðar stunduðu Alla og Hilmar sér til mikillar ánægju og ferðuðust um fjöll og firnindi sem og til útlanda. Góð móðir, amma og eiginkona var Alla og hlúði af alúð að tengda- foreldrum sínum meðan þeir lifðu. Mér eru í fersku minni öll skemmti- legu fjölskylduferðalögin og mótin þegar við sungum öll saman og hlóg- um og dönsuðum við gítar- og harm- onikkuspil í kvöldkyrrðinni, t.d. í Þjórsárdalnum. Alla og Hilmar unnu alltaf fallega saman. Bæði voru þau hörkudugleg og lifðu lífinu lifandi meðan fært var. Þau voru sannir höfðingjar heim að sækja og af ljúfmennsku leystu þau hvers manns vanda er til þeirra leitaði. Þúsund þakkir fyrir liðin ár. Elsku Hilmar og fjölskylda, inni- legar samúðarkveðjur. Kristín Magnúsdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐRÍÐUR BRYNJÓLFSDÓTTIR, áður Hæðarbyggð 9, Garðabæ, verður jarðsungin frá Garðakirkju á Álftanesi föstudaginn 8. febrúar kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Skúli Brynjólfur Steinþórsson, Ólöf Sigurðardóttir, Helgi Hólmsteinn Steinþórsson, Hrafnkell Sigurbjörn Steinþórsson, Bryndís Tryggvadóttir. ✝ Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELSA A. VESTMANN, Skarðshlíð 36f, Akureyri, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar fimmtudaginn 31. janúar. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 8. febrúar kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Akureyrar. Hallur Sveinsson, Margrét Hallsdóttir, Reynir Hjartarson, Sigursveinn Hallsson, Ingibjörg Guðjónsdóttir, Þorvaldur Hallsson, Kristrún Þórhallsdóttir, Unnur Elva Hallsdóttir, Heiðar Ólafsson, Sævar Örn Hallsson, Bryndís Valtýsdóttir, Auður Hallsdóttir, Birgir Árnason, ömmu- og langömmubörn. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR JÓHANNSDÓTTUR, Árskógum 6, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hjúkrunarþjónustunnar Karítas og starfsfólks Líknardeildar LSH í Kópavogi. Jóhann Sævar Erlendsson, Þuríður E. Baldursdóttir, Anna Rósa Erlendsdóttir, Guðni Ágústsson, Kristín Erla Guðnadóttir, Brynjar Víðisson, Arnar Páll Jóhannsson, Jóhann Baldur Jóhannsson, Magnea Mjöll Ingimarsdóttir. Elsku amma Didda. Það er í rauninni enginn staður til að byrja á til að koma reiðu á allar þær minningar sem þotið hafa gegnum huga minn síðustu daga. Þú hefur allt- af verið stór hluti af lífi mínu. Þegar ég var krakki bjuggum við fjölskyldan í sömu götu og ekkert var jafn sjálfsagt og að fara í Hamarstíginn til þín og afa. Þú varðst svo glöð í hvert skipti sem ég kom, þó ég kæmi marga daga í röð. Þú varst með gælunöfn á okkur öll- um og ég var Brúsaskeggur, ótrúlega furðulegt nafn en stórkostlegt. „Nei, ert þetta þú Brúsaskeggur minn“ var það sem tók á móti mér þegar ég kom. Ég var ekki mjög gamall þegar ég gerði mér grein fyrir því að þú varst engin venjuleg amma. Þú varst alltaf ung í anda og varðst þess vegna enn merkilegri fyrir mér þegar ég varð unglingur. Opin fyrir tækninýjungum, fylgdist vel með tískustraumum og samfélaginu. Reglulega sagðiru að föt- in sem ég væri í væru flott, þá reyndar notaðirðu orðið smart. Það voru sko ekki margir fullorðnir sem höfðu fyrir því að spá í hvaðan hin og þessi flík kom sem ég klæddist. Þú sagðir ótrúlega skemmtilega frá, varst orðheppin og hafðir frá svo mörgu að segja. Þú varst alltaf byrjuð að segja frá einhverju áður en maður hafði náð að heilsa og oft eins og við hefðum verið í miðjum samræðum meðan ég var enn að fara úr skónum. Oftar en ekki byrjaðirðu á innsoginu, það var góð vísbending um að eitt- hvert hneyksli væri komið af stað í samfélaginu eða að afi hefði verið að ögra þér með skoðunum sínum. Þú varst með ákveðnar skoðanir og fullkomlega óhagganleg þegar þú varst búin að mynda þér þær. En það var alveg jafn gaman að vera sammála þér og ósammála. Þú varst svo mikill karakter og ég er svo stoltur að hafa átt ömmu eins og þig. Ég hef alltaf sagt sögur af þér og mun gera það alla mína tíð. Ég mun alltaf heyra röddina þína og sakna þín. Soffía Þorvaldsdóttir ✝ Soffía Þor-valdsdóttir fæddist á Akureyri 6. maí 1924. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 26. jan- úar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Akureyr- arkirkju 4. febrúar. Ég elska þig amma, takk fyrir allt. Gunnlaugur V. Guðmundsson. Elsku Soffía mín! Vin- ir berast burt með tím- ans straumi. Þessi orð komu upp í huga minn er ég heyrði að þú værir horfin á braut. Þegar ég vaknaði laugardaginn 26. janúar sl. var ég að hugsa um að hringja til þín, þar sem þú lást á Sjúkrahúsi Akureyrar, og athuga um líðan þína. Ég lét það eiga sig því ég vissi að ég myndi heyra í þér að venju hinn 29. janúar. Seinna þennan dag var mér tilkynnt um and- lát þitt. Elsku Fía, mig langar til að skrifa þér nokkrar línur og rifja örstutt upp kynni okkar. Ég vann á Prjónastof- unni Heklu á Akureyri er þú byrjaðir að vinna í mötuneytinu. Þar vann fyrir kona er hét Sigríður Pálmadóttir og inni í sal vann Sigríður Jónsdóttir. Með okkur fjórum tókst mjög góður vinskapur, við brölluðum margt; fór- um í sumarbústað í aftakaveðri og hitt- umst hver hjá annarri með jöfnu milli- bili og áttum saman yndislegar stundir enda tiltölulegar ungar á þessum ár- um. Fía mín, þín nærvera var einstök, þú hafðir dillandi hlátur, fallegan mál- róm og skemmtilega frásagnargáfu. Ég á margar yndislegar minningar frá fallegu heimili ykkar Steina í Hamars- tíg og voruð þið hjónin samstiga í því að taka vel á móti gestum. Eftir að ég flutti til Reykjavíkur hittumst við að sjálfsögðu sjaldnar en alltaf var skemmtilegt að tala við þig í símann og enn skemmtilegra að fá þig í heim- sókn. Í gegnum árin höfum við rætt margt um lífið og tilveruna og alltaf var jafngaman að ræða við þig. Þér var svo margt gefið, jákvæðni, glaðlyndi og áhugi á listum. Nú sé ég þig fyrir mér þar sem þú dansar stjör- nudansinn. Elsku vinkona, nú ríkir þögn og söknuður í mínu gamla hjarta en ég segi ástarþakkir fyrir að hafa fengið að eiga þig fyrir vinkonu. Elsku Steini og fjölskylda. Megi góður Guð halda sinni verndarhendi yfir ykkur öllum. Ekkert líf er án dauða, enginn dauði án lífs, sofðu rótt. Þín vinkona Soffía. Mér var brugðið þegar ég fékk þær fréttir að Didda systir mömmu væri látin. Didda hefur alltaf verið hluti af heildarmynd minni, fastur punktur í tilverunni sem ætíð tók á móti mér og mínum af mikilli gestrisni, væntum- þykju og gleði. Kynni mín af Diddu sýna að hún var ákaflega þrautseig, gestrisin, mannblendin, listhneigð og ekki má gleyma fjölskrúðugum orða- forða hennar um menn og málefni. Í æsku minni voru sólarlandaferðir fjölskyldunnar að fara til Akureyrar. Þá var gist hjá Diddu og Steina, alltaf var opið hús hjá þeim hjónum og mað- ur kynntist hinu skemmtilega mann- lífi á Akureyri. Ég og Þorvaldur sonur Diddu fórum í ævintýraferðir um Ak- ureyri kynntumst m.a. Ljóni norðurs- ins sem bjó í tjaldi, skreyttu ljónum, á tjaldstæðinu á Akureyri, fórum í Lystigarðinn og skemmtiferðir yfir í Vaglaskóg. Systurnar sóluðu sig, spjölluðu, hlógu og fóru í Amaró, þar sem þær gerðu merkilega góð kaup á alskyns dýrindis varningi. Það var einhver ævintýraljómi yfir þessum ferðum og nafninu, Amaró. Sem ung- lingur fór ég í sumarvinnu norður að Grund í Eyjafirði. Helgarfríunum mínum eyddi ég á Akureyri þar sem Didda tók alltaf vel á móti mér. Þegar ég mörgum árum seinna flutti í Skagafjörð fjölgaði ferðum mínum til Akureyrar og alltaf var nóg húsrúm og hjartarúm hjá Diddu og Steina fyr- ir mig og börnin mín enda eiga þau góðar minningar frá þessum heim- sóknum. Þegar Didda kom í heimsókn til mín í Skagfjörð, lét hún það ekki á sig fá þó fannfergi væri mikið á leið henn- ar yfir ,,fjöllin sjö“,eins og sagt var í gríni, enda þurfti að komast á skemmtanir í Skagafirði; ball í Mið- garði eða þorrablót, alltaf var Didda hress og brött. Hún keyrði ein suður í áttræðisaf- mælið sitt og fannst henni það ekki mikið, ,,hálf leiðilegt því það var engin hálka eða snjór“. Þetta lýsir Diddu vel og hversu ern hún var. Didda var hér síðast fyrir sunnan fyrir um hálfum mánuði og auðvitað hittust þær syst- ur. Það sem er sterkast í minningunni er dillandi hlátur þeirra þegar þær komu saman. Sagðar voru sögur og gerðu þær óspart grín að hvor ann- arri, skemmtu sér og öðrum og alltaf var hlátur í kringum þær. Þær þreytt- ust ekki á að vera með alkyns uppá- komur og eitthvað skemmtilegt sprell og tóku sig aldrei hátíðlega. Þær voru samheldnar og mikil væntumþykja ríkti á milli þeirra. Ég þakka Diddu frænku minni allar góðu minningarn- ar. Það verður hálf tómlegt að koma til Akureyrar og hafa ekki Diddu frænku að heimsækja. Sigríður Snjólaug Vernharðsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.