Morgunblaðið - 05.02.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.02.2008, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Andra Karl andri@mbl.is ÞRÍR karlmenn á þrítugsaldri eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu eftir vopnað rán í útibúi Glitnis við Lækjargötu í gærmorg- un. Mennirnir hafa allir komið við sögu lögreglunnar áður og sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins var einn þeirra handtekinn fyrir vopnað rán í maí á síðasta ári. Lög- regla leitaði enn eins karlmanns þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi. Mennirnir þrír voru yfirheyrðir í gærdag og að sögn Ómars Smára Ármannssonar, yfirmanns auðgun- arbrotadeildar lögreglu höfuðborg- arsvæðisins, var síðdegis komin nokkuð góð mynd af broti þeirra. Hann sagði ekki mikla áherslu lagða á að ná fjórða manninum, enda hans þáttur ekki veigamikill. „Við teljum að þetta sé strákur sem geti skýrt ferðir eftir ránið, en við höfum fyrst og fremst beint athygli okkar að yfirheyrslum yfir hinum þremur og púslað saman heildar- myndinni.“ Ómar Smári sagði í gærkvöldi að mennirnir yrðu að minnsta kosti í haldi í nótt, en tekin verður ákvörð- un um það í dag hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir þeim. Góð samvinna allra aðila Athygli vekur hversu stuttur tími leið frá ráninu þar til það var svo gott sem upplýst. Ómar Smári segir það m.a. helgast af góðum upp- tökum úr eftirlitsmyndavél í bank- anum og svo að þeir aðilar sem leita þurfti til hafi verið afar hjálp- samir í upplýsingamiðlun. „Það gerði það að verkum að mjög auð- velt var að reikna út ferðir þeirra og upplýsa málið. Annars hefur gengið mjög vel að leysa vopnuð rán. Þetta eru alvarleg afbrot sem við leggjum mikla áherslu á að leysa fljótt og örugglega.“ Rúmri klukkustund eftir ránið var karlmaður handtekinn í Aðal- stræti og laust fyrir hádegi voru tveir til viðbótar handteknir við Garðatorg í Garðabæ. Reyndust þeir vera með þýfið á sér, og höfðu aðeins eytt litlum hluta þess. Spurður út í hvort ránið tengdist fíkniefnaheiminum segir Ómar Smári að ekki verði greint frá því sem komið hafi fram við skýrslu- tökur. „En mörg rán sem við höfum upplýst tengjast að einu eða öðru leyti fólki í neyslu, og þá er fólk oft að ná í fjármuni til að fjármagna fíkniefnaneyslu.“ Ómar sagði jafn- framt ekki ljóst hvort ránið hefði verið framið í annarlegu ástandi. Öryggi starfsfólks í fyrirrúmi Einn mannanna fjögurra framdi ránið, skömmu eftir að útibú Glitnis var opnað í gærmorgun, og hitti fé- laga sína að því loknu á gistiheimili Hjálpræðishersins. Ógnaði hann starfsfólki með múröxi og fékk pen- ingana afhenta – tæplega eina millj- ón króna, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Ekki fékkst leyfi til að ræða við starfsfólk sem varð vitni að ráninu en Már Másson, upplýsingafulltrúi Glitnis, segir starfsfólk bankans vel þjálfað til að takast á við slíkar að- stæður og það hafi skilað sér í þessu tilviki. Ýttu gjaldkerarnir á neyðarhnapp, sem setti í gang við- vörunarkerfi með hljóðum og af- hentu manninum síðan peninga án þess að eiga nokkur frekari sam- skipti við hann. Már segir megináherslu lagða á að tryggja öryggi og vellíðan starfs- manna og því standi öllum starfs- mönnum útibúsins áfallahjálp til boða næstu daga. Afar fáir viðskiptavinir voru í bankanum þegar ránið var framið, Lögregla komin með góða heildarmynd af bankaráninu  Karlmaður á þrítugsaldri ógnaði starfsfólki Glitnis við Lækjargötu með múröxi og krafðist peninga  Maðurinn komst á brott með töluverða fjármuni en var fljótlega handtekinn ásamt vitorðsmönnum Árvakur/Frikki Í bankanum Loka þurfti útibúinu fyrir hádegi í gær vegna ránsins, á meðan lögregla tók skýrslur af starfsfólki. Árvakur/Júlíus Vopnið Ræninginn ógnaði starfs- fólki bankans með múröxi. ÓHÆTT er að hrósa lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir vel unn- in störf við rannsókn bankaránsins í Glitni í gærmorgun. Í grófum dráttum var atburðarásin á þennan veg: 8.00-9.00 – Tveir menn kaupa múröxi í BYKO við Hringbraut á þessum tíma. 9.00 – Útibú Glitnis í Lækjargötu er opnað fyrir viðskiptavinum. 9.05 – Karlmaður klæddur svört- um jakka, grárri hettupeysu og með svört sólgleraugu gengur inn í útibúið og rakleiðis í átt að gjaldkerum. Maðurinn ógnar gjaldkerum með öxinni og heimtar fjármuni. Gjaldkerar afhenda peningana og þrýsta á neyðarhnapp. 9.15 – Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu mætir á vettvang, lokar útibúinu og tekur til við að yfir- heyra starfsfólk og viðskiptavini sem urðu vitni að ráninu. 9.20 – Þrír menn taka leigubifreið frá gistiheimili Hjálpræðishers- ins. 10.30-10.50 – Lögregla handtekur karlmann í Aðalstræti. Sá reyn- ist búa yfir upplýsingum um ránið. Leitað er í herbergi á gistiheimili Hjálpræðishersins, þar sem öxin finnst. 11.20-11.40 – Tveir karlmenn eru handteknir nálægt Garðatorgi í Garðabæ. Annar þeirra reynist vera með ránsfenginn í fórum sínum. Talið er að upphæðin sé nálægt einni milljón króna. 16.00 – Lögregla sendir frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að fjórða mannsins sé leitað og fyrir liggi hver hann er. Bankaránið upplýst fyrir hádegi ATHUGASEMDIR hafa borist frá eftirlits- dýralæknum sem taka á móti íslenskum hestum á flugvellinum í Billund í Danmörku um aðstöðu og ástand hrossanna og hafa íslenskir dýralækn- ar óskað eftir breytingu á reglugerð um útflutn- ing á hrossum. Vilja þeir að hross yngri en tveggja vetra séu bandvön áður en þau eru flutt úr landi. Er reglugerðin nú til endurskoðunar hjá landbúnaðarráðuneytinu. Dönsku dýralæknarnir hafa greint frá því að oft sé mjög erfitt að skoða hross við komuna til landsins og engar aðstæður séu til þess á flug- vellinum. Um 1.300-1.500 hross voru flutt út í fyrra. Starfsmaður flugvallarins í Billund, Carsten Lissau, gerir í bréfi sem birt er á vefsíðunni ur- valshestar.is, athugasemdir við ástand íslenskra hesta sem fluttir eru í gegnum flugvöllinn. Í bréfinu, segir Carsten unga hesta illa undir ferðalagið búna og starfsmenn flugvallarins eiga í erfiðleikum með að ráða við þá. Hann segir hestana oft ferðast dögum saman til nýrra heim- kynna í Evrópu og þola það misvel, sumir séu í slæmu ástandi, styggir, þreyttir og uppþornaðir. Ráðleggur hann útflutningsaðilum hér á landi að undirbúa hrossin betur. Í athugasemd við bréf Carstens á heimasíðu Úrvalshesta bendir Sigríður Björnsdóttir, dýra- læknir hrossasjúkdóma, á að breytingar á reglu- gerð um útflutning hrossa sem hvatt hefur verið til, eigi m.a. að draga úr hræðslu og stressi hjá hestunum. Betri aðstaða í Svíþjóð Gunnar Örn Guðmundsson, héraðsdýralæknir í Reykjavík, segir rétt sem komið hafi fram í gagnrýni dýralækna ytra að aðstaðan í Billund sé ekki góð. Hins vegar séu nú flestir hestar fluttir í gegnum flugvöllinn í Norköping í Sví- þjóð. Þar sé aðstaðan mun betri. Almennt sé að- búnaður hesta sem fluttir eru út í góðu lagi. Áður en lagt sé af stað með dýrin skoði dýra- læknir þau og segir Gunnar Örn að fyrir komi að hætt sé við útflutning sé heilsufari þeirra ábóta- vant. Með því að bandvenja hest er átt við að hægt sé að teyma hann og hann sé nokkuð vanur um- gengni við fólk. Í núgildandi reglugerð um út- flutning eru engin ákvæði um tamningu hrossa, en flest þeirra fara tamin úr landi. Gunnar Örn segir sérstöðu íslenskra hesta m.a. felast í því að þeir alast upp frjálsir úti í haga fyrstu misserin og eru því oft óvanir umgengni við menn. Hann segir útflytjendur hvatta til að bandvenja hross fyrir útflutning en að dýralæknar vilji ganga lengra og að slík ákvæði séu sett inn í reglugerð. „Þá höfum við möguleika á að hafna útflutningi séu dýrin ekki bandvön,“ segir Gunnar Örn. Hrossin eru flutt út fimm saman í gámi. Þau eru ekki bundin og fyrir kemur að þau slasi hvert annað og sjálf sig á ferðalaginu. „Við höfum orðið varir við að þeir fái sár á fætur og höfum tekið á því með því að gera ráðstafanir til að snyrta hófa þeirra sem geta verið beittir.“ Gunnar Örn segir ferðalag milli landa álag fyr- ir hesta en „það er alveg ótrúlegt hvað þeir eru rólegir. Ég held að það skýrist af því að íslenski hesturinn er sterkur andlega“. Hross séu bandvön áður en þau eru flutt úr landi Árvakur/Ómar Frelsi Íslensk hross alast upp við frelsi í hög- unum og eru því oft óvön mannfólkinu. ÞREMUR starfsmönnum í útibúi Glitnis við Lækjargötu hefur verið sagt upp störfum en ástæður uppsagnanna eru að sögn Más Más- sonar, upplýsingafulltrúa bankans, niðurrif útibúsins. Til stendur að byggja hótel á reitn- um og segir Már að við það flytjist útibúið í minna húsnæði í Vonarstræti. Spurður hvort frekari uppsagnir hafi átt sér stað hjá bank- anum, segir Már að þar sé alltaf nokkur starfsmannavelta, líkt og annars staðar. Í fyrra hafi um 300 manns verið ráðin og bank- inn sé því vel mannaður. „Það segir sig því sjálft að menn ráða ekki mikið inn. Þá er ekki ráðið í þau störf sem losna ef hægt er að kom- ast hjá því.“ Engar fjöldauppsagnir hafi hins vegar átt sér stað og ekkert ákveðið um slíkt. Benedikt Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Kaupþings, segir að þar hafi engar fjölda- uppsagnir átt sér stað. Um 1.400 manns starfa hjá Kaupþingi og Benedikt segir að starfsmannaveltan sé á bilinu 10-15% á ári. Þetta þýði að um 140-180 manns hætti störf- um á ári hverju af ýmsum ástæðum. Hann segir að þrátt fyrir að erfiðari aðstæður hafi sárafáum verið sagt upp hjá, engar fjölda- uppsagnir séu fyrirhugaðar og nýjar aðstæð- ur muni helst endurspeglast í því að ekki verði ráðið í lausar stöður. Eins og fram kom í Morgunblaðinu fyrir helgi hefur viðskiptum fyrir eigin reikning verið hætt hjá Exista og fjórum starfsmönn- um sagt upp störfum. Þremur sagt upp hjá Glitni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.