Morgunblaðið - 05.02.2008, Qupperneq 44
Árvakur/Skapti Hallgrímsson
Gjöf Árni Valur Viggósson les
gjafabréf Góðtemplara á FSA.
GÓÐTEMPLARAREGLAN á Ak-
ureyri afhenti sjúkrahúsinu þar í
bæ, FSA, í gær 50 milljónir króna að
gjöf sem varið verður til kaupa á
tækjum til greiningar og meðferðar
hjartasjúkdóma. Jón Þór Sverr-
isson, forstöðulæknir lyflækn-
ingadeilda, segir gjöfina duga stofn-
uninni í nokkur ár til tækjakaupa
vegna hjartasjúkdóma.
Fyrirtæki og hús Góðtempl-
arareglunnar hafa verið seld og hluti
andvirðisins notaður til að gera upp
Friðbjarnarhús við Aðalstræti, þar
sem Góðtemplarareglan á Íslandi
var stofnuð en þar verður safn um
starfsemina. Þeir fjármunir sem eft-
ir eru renna til FSA. |16
Gáfu FSA 50
milljónir kr.
ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 36. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Mikil eldhætta stafar
af tómum húsum
Mikil sambrunahætta er í miðbæ
Reykjavíkur vegna þéttrar byggðar,
að sögn slökkviliðsstjóra höfuðborg-
arsvæðisins. Hann segir að mikil
eldhætta fylgi yfirgefnum húsum,
sem bíða framkvæmda eða niðurrifs,
ekki síst í miðbænum. » Forsíða
Undrast agaleysið
Evrópskum kennaranemum, sem
eru hér á landi á vegum verkefnisins
EUROPROF, kemur agaleysi í
kennslustundum í íslenskum fram-
haldsskólum spánskt fyrir sjónir.
Þeir hafa m.a. orðið vitni að því að
nemendur fái sér kríublund og svari
í farsíma í miðjum tíma. » Miðopna
Ógnaði með öxi í banka
Þrír karlmenn eru í haldi lögreglu
höfuðborgarsvæðisins eftir vopnað
rán í útibúi Glitnis við Lækjargötu í
gærmorgun. Einn mannanna ógnaði
starfsfólki með múröxi og krafðist
peninga. » 4
Ósáttir við landfyllingar
Framkvæmdasvið Reykjavík-
urborgar kynnti í gær tillögur um
breytingar á sjóvörnum við Ána-
naust og hugmyndir um landfyll-
ingar á svæðinu. Íbúar í nágrenninu
eru mjög ósáttir við fyrirhugaðar
framkvæmdir. » 6
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Á mjúku nótunum
Staksteinar: Milljón plastpokar á
mínútu
Forystugreinar: Þjóðareign í stjórn-
arskrá | Hvar eru hugmyndirnar?
UMRÆÐAN»
Beitum okkur betur innan Evrópu
Uppruni og rætur
Netið og framtíð sjónvarps
Vanræksla stjórnvalda
4
4 4&
4 &4 4 & 5!6'( / "', "!
7"+""+''%'
/ ' 4
4
4& 4& 4
&4 4 4
&4
4 . 8 2 (
4
4 4& 4&
4 &4 4
&4 9:;;<=>
(?@=;>A7(BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA(8'8=EA<
A:=(8'8=EA<
(FA(8'8=EA<
(3>((A%'G=<A8>
H<B<A(8?'H@A
(9=
@3=<
7@A7>(3,(>?<;<
Heitast -0 °C | Kaldast 6 °C
Norðvestan og vest-
an 8-13 m/s suðvestan
og vestanlands. Skýjað
víðast og él á stöku
stað. Hlánar eystra. » 10
Kvikmyndin Brúð-
guminn stóð af sér
frumsýningar helg-
arinnar og situr sem
fastast á toppi Bíó-
listans. » 39
KVIKMYNDIR»
Brúðguminn
á toppnum
MYNDASÖGUR»
Myndasögur eru mikið
lesnar. » 40
Kvikmyndin
Veðramót var sýnd
á alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í
Gautaborg á dög-
unum. » 41
KVIKMYNDIR»
Fjallað um
Gautaborg
FÓLK»
Craig þarf að hafa fyrir
hlutverki Bonds. » 43
TÓNLIST»
Nóg að gera hjá Bed-
room Community. » 36
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Viktoría „getur ekki meira“
2. Viðbrögð gjaldkera hárrétt
3. Öxin fannst og þýfi endurheimt
4. Vopnað bankarán í Lækjargötu
Íslenska krónan veiktist um 0,24%
RITHÖFUNDURINN og sjón-
varpsmaðurinn Sir David Attenbor-
ough sækir Ísland heim í haust og
heldur hér fyr-
irlestur.
Attenborough
kemur til lands-
ins í tilefni af út-
gáfu nýjustu bók-
ar sinnar á
íslensku. En það
er bókaútgáfan
Opna sem hefur
gengið frá út-
gáfusamningi við
Attenborough um útgáfu á bók hans
Life in cold blood sem fjallar um
skriðdýr með kalt blóð.
Attenborough hélt opinn fyrir-
lestur hér á landi árið 2003 í Salnum
í Kópavogi sem sprakk undan að-
sókninni, en fjöldi manns þurfti þá
frá að hverfa. Sigurður Svavarsson,
annar eigenda Opnu, segir að það sé
alveg ljóst að stærra húsnæði þurfi
undir fyrirlestur Attenborough í
þetta skipti.
Sigurður segir að Attenborough
hafi verið mjög ánægður með síð-
ustu heimsókn sína hingað, en hann
vill fá að ráða ferðalögum sínum sem
mest sjálfur.
Attenborough er nú 82 ára að
aldri og var sæmdur heiðursdokt-
orsnafnbót við Háskóla Íslands í júní
2006. | 41
Attenbor-
ough kemur
David
Attenborough
Eftir Theódór Kr. Þórðarson
FJÓRIR ísbirnir hafa verið felldir í byggð á austur-
strönd Grænlands síðan í desember og er það óvana-
legt á svo skömmum tíma.
„Veturinn hefur verið óvenjuharður hér, mikill snjór
og langvinnur kuldi,“ segir Haukur Vernharðsson, vél-
stjóri í frystihúsinu í Kummiit á austurströnd Græn-
lands, við Morgunblaðið. „Það er ísilagt út allan fjörð
og því eiga ísbirnir auðvelt með að fara um. Fjórir ís-
birnir hafa verið felldir í byggð síðan í desember, tveir
í Kulusuk og tveir í Tasiilaq. Sá síðasti var kominn inn í
miðjan bæ í Tasiilaq og búinn að ná lokinu af kari með
selkjöti sem búið var að safna fyrir sleðahunda. Hann
var ekkert á því að gefa sig þegar lögreglumenn komu
þarna að og var björninn því felldur á staðnum. Þetta
var stór, fullvaxinn björn sem var skotinn þarna.“
Haukur segir að það komi alltaf öðru hverju fyrir að
ísbirnir komi inn í byggð.
Á Grænlandi gilda sérstök lög um veiðar á ísbjörn-
um. Til dæmis mega aðeins viðurkenndir veiðimenn
skjóta ísbirni og veiðimennirnir hafa sinn kvóta. „Það
voru allir veiðimenn búnir með sinn kvóta í desember
og því var reynt að fæla burt þessa ísbirni sem voru á
ferðinni en það gekk ekki. Það endaði þá með því að
lögreglan þurfti að skjóta dýrið.“
Óvenjuharður vetur á austurströnd Grænlands
Komst í feitt og galt með lífi sínu
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
LEIKARINN danskættaði Viggo
Mortensen, sem hlaut heimsfrægð
sem Aragorn í kvikmyndunum um
Hringadróttinssögu og er nú orðaður
við Óskarsverðlaun fyrir kvikmynd-
ina Eastern Promises, heldur sýn-
ingu á ljósmyndum í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur í sumar. Sýningin verð-
ur opnuð 31. maí og kallast Skógarbú-
ar – eða Skovbo á dönsku.
Mortensen er ekki einhamur í list-
inni. Auk þess að vera vinsæll kvik-
myndaleikari hefur hann gefið út
ljóðabækur, samið tónlist og haldið
sýningar á málverkum og ljósmynd-
um. Þá hefur hann gefið út einar fimm
ljósmyndabækur. Mortensen hefur
heimsótt Ísland nokkrum sinnum á
síðustu árum og gaf fyrir nokkrum
misserum út bók
um Georg Guðna
Hauksson mynd-
listarmann.
Má búast við
örtröð
Eftir að hafa
séð sýningu með
ljósmyndum Mor-
tensens í Brandts-
safninu í Óðinsvéum árið 2004 ákvað
María Karen Sigurðardóttir, for-
stöðumaður Ljósmyndasafnsins, að
falast eftir sýningu með verkum hans.
„Hann útbýr sérsýningu fyrir okk-
ur,“ segir María Karen. „Þetta eru
myndir af náttúrunni, teknar hér á
landi og annars staðar.“
Fyrst var hún í sambandi við um-
boðsmann Mortensens en nú hafa þau
verið í beinu sambandi. „Hann er
mjög notalegur maður. Undirbúning-
urinn gengur vel fyrir sig, hann er
greinilega mjög vel skipulagður.
Mortensen segist vilja selja mynd-
irnar á lágu verði en ágóðinn mun
renna til Náttúruverndarsamtaka Ís-
lands. Hann hefur mikinn áhuga á að
efla náttúruvernd.“
María Karen segir að tölvupóstur
sé farinn að berast á safnið með fyr-
irspurnum um sýninguna og frá fólki
sem hefur áhuga á að komast á opn-
unina.
„Í síðustu viku var ég á fundi með
forstöðumönnum ljósmyndasafna á
Norðurlöndum og forstöðumaður
Brandts spurði hvort ég væri búin að
láta lögregluna vita af sýningunni,“
segir María Karen og hlær. „Hann
sagði það mikilvægt, því stór hópur
fylgdi Mortensen eftir. Það mætti bú-
ast við mikilli örtröð.“
Viggo Mortensen
Vill að ágóðinn renni til Náttúruverndarsamtaka Íslands
Viggo Mortensen sýnir í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur