Morgunblaðið - 05.02.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.02.2008, Blaðsíða 6
                                         !" # FRAMKVÆMDASVIÐ Reykja- víkurborgar kynnti í gær tillögur um breytingar á núverandi sjóvörn- um við Ánanaust og hugmyndir um landfyllingar á svæðinu. Íbúar í ná- grenninu og aðrir hagsmunaaðilar voru ekki sáttir við gang mála. Fyrir liggur leyfi fyrir allt að þriggja hektara landfyllingu við Ánanaust þar sem gert er ráð fyrir um 35 hektara landfyllingu sam- kvæmt aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024. Kærunni vísað frá Til stóð að hefja landfyllingu fyrr en samþykkt skipulagsráðs Reykjavíkur um framkvæmdaleyfi var kærð til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála í sept- ember á nýliðnu ári. Borgin frestaði þá útgáfu framkvæmdaleyfis en í desember komst úrskurðarnefndin að þeirri niðurstöðu að vísa bæri kærunni frá og var greint frá úr- skurðinum á fundinum í gær. Þar segir meðal annars að ,,með hlið- sjón af aðstæðum og eins og atvik- um er háttað þykir umdeild fram- kvæmd ekki þess eðlis að hún snerti grenndarhagsmuni eða aðra einstaklega lögvarða hagsmuni kæranda með þeim hætti að hann teljist eiga kæruaðild í máli þessu. Verður kærumáli þessu af þeim sökum vísað frá úrskurðarnefnd- inni“. Einar Arnarsson, íbúi við Vest- urgötu, segir að fólk sé mjög ósátt við ákvörðunina. Framkvæmdin eigi að fara í umhverfismat og næsta skref sé að biðja um fund með borgarstjóra. Hann útilokar ekki málaferli. Íbúar í nágrenninu mjög ósáttir við gang mála og vilja umhverfismat Landfylling við Ánanaust og endurbættar sjóvarnir 6 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is ENN UM sinn verður ekki hægt að biðja um endurnýjun á lyfseðli raf- rænt um netið en í mars nk. verður þeim áfanga náð að allar heilsu- gæslustöðvar á landinu geta sent lyfseðla með rafrænum hætti í lyfjaverslanir. Sjúklingar þurfa þó áfram að fara á heilsugæslustöð til að fá lyfseðla eða hringja á síma- tíma til að fá þá endurnýjaða. Hins vegar stendur til hjá heilbrigðis- ráðuneytinu að koma á því kerfi að fólk geti sótt um endurnýjun fjöl- nota lyfseðla rafrænt í gegnum net- ið. Það verður þó ekki að veruleika fyrr en rafræn auðkenni, eða raf- ræn skilríki svokölluð, verða komin í gagnið en þau eru forsenda op- inberrar þjónustu sem þessarar á netinu. Þau eru nokkurs konar vegabréf í netheimum og leið til raf- rænnar undirskriftar. Þróun þeirra er á könnu fjármálaráðuneytisins. Hægt að ná í lyfseðil í hvaða apótek sem er Breytingin með rafrænu lyfseðl- unum felur í sér að í stað þess að prenta út lyfseðil eða hringja í apó- tek sendir læknir lyfseðilinn ann- aðhvort beint í svokallaða lyfseðla- gátt, sem heitir Hekla, eða í valið apótek samkvæmt ósk sjúklings. Ef lyfseðillinn er sendur beint í lyf- seðlagáttina getur hvaða apótek sem er, sem er tengt lyfseðlagátt- inni, sótt rafrænt viðkomandi lyf- seðil. Ef lyfseðill er sendur beint á ákveðið apótek kemur hann fram þar. „Verklag við að ávísa lyfseðlum breytist ekki, eftir sem áður eru það eingöngu læknar sem gefa út lyfseðla eftir að hafa séð sjúkling á stofu eða eftir símtal ef til dæmis um endurnýjun á lyfseðli er að ræða,“ segir Gunnar Alexander Ólafsson, sérfræðingur í heilbrigð- isráðuneytinu. Hann bendir á að sumar heilsugæslustöðvar bjóði upp á endurnýjun með tölvupósti. Sjúklingur getur þá sent tölvupóst um hvaða lyf hann þarf að endur- nýja og læknir sendir lyfseðilinn rafrænt í apótekið. Í framtíðinni er hins vegar ætl- unin að fólk geti sótt um endurnýj- un á lyfseðli í gegnum netið og sparað þannig sporin út á heilsu- gæslustöð eða tíma við símann. „Það er ekki spurning um hvort heldur hvenær þetta gerist,“ segir Gunnar. Erfitt sé að segja ná- kvæmlega hvenær slík vinnubrögð gætu orðið að veruleika en vonandi innan 2-3 ára. „Það er mikill vilji innan heilbrigðisráðuneytisins til að setja þetta mál á dagskrá og breyta í betra horf.“ Lyfjaávísanir enn í gegn- um síma eða á staðnum LOKA þurfti Rafstöðvarvegi í Elliðaárdal um tíma í gærmorgun vegna krapaflóða í Elliða- ám. Töluvert af vatni flæddi yfir veginn og tók lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ákvörð- un um lokun af þeim sökum. Kallaðir voru til starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur og tók um eina og hálfa klukkustund að opna veg- stöðin var ræst í [gærmorgun] var farvegurinn mjög grunnur og flæddi undir brúnni. Málið var hins vegar leyst með því að fá gröfu til þess að hræra í krapanum. Þá komst vatnið í eðlilegan farveg að nýju,“ sagði Eiríkur í samtali við fréttavef Morg- unblaðsins, mbl.is. inn að nýju. Umferðartafir voru óverulegar. Að sögn Eiríks Hjálmarssonar, upplýsinga- fulltrúa Orkuveitunnar, gerist þetta nokkr- um sinnum á veturna í Elliðaám og fleiri ám á landinu. „Það myndast svonefndur botn- stingull sem er krapi sem sest á botninn í án- um og grynnkar farveginn. Þegar Elliðaár- Árvakur/RAX Loka þurfti Rafstöðvarvegi vegna krapaflóða NOKKUÐ hefur borið á því í kuldanum að undanförnu að neysluvatnslagnir, hvort heldur fyrir heitt eða kalt, hafi frosið. Þetta segir Guðbjörn Ævarsson pípulagn- ingameistari. Segir hann yfirleitt um að kenna lélegri einangrun húsanna sem og lökum frágangi og slík vandkvæði komi jafnt upp í eldri húsum sem og nýjum. „Það má segja að við píparar óskum ekki eftir frosti því að það verður allt vit- laust, bæði í ofnlokum og í neysluvatns- kerfinu,“ segir Guðbjörn og tekur fram að ekki sé eðlilegt að vatn hverfi af heilu hús- unum þegar smákuldakast gangi yfir. Að sögn Andrésar Hinrikssonar pípu- lagningameistara gera menn ráð fyrir að álag aukist á pípulagningameistara þegar frostið fer að lina. „Þegar fer að þiðna aft- ur geta bílskúrar orðið hættulegir ef fólk veit ekki af því að skúrarnir eru frosnir,“ segir Andrés og bendir á að ofnkranar og -lokur geti gefið sig með þeim afleiðingum að ofnar í bílskúrum frostspringi. Skemmdir koma í ljós þegar hlýna tekur á ný MÓTMÆLUM gegn reykingabanni á skemmtistöðum verður hætt og horfið frá reykingum innandyra að nýju. Þetta var ákveðið á fundi Félags kráareigenda í gær. Þar var að sögn Kormáks Geirharðs- sonar veitingamanns farið vel yfir reyk- ingamálið auk þess sem ný stjórn var kjör- in. Telja veitingamenn sig hafa vakið yfirvöld til umhugsunar og nóg sé að gert. Hann kveður spurningu í tengslum við sérstök reykherbergi einnig hafa vaknað á fundinum. „Siv Friðleifsdóttir hefur mikið talað um að vernda hagsmuni þeirra sem eigi að þrífa reykherbergi á skemmti- stöðum, verði þau leyfð. Því spyrja menn sig hver þrífur reykherbergið á Alþingi?“ segir Kormákur. Vinnueftirlitið hefur veitt fimm áminningar vegna mótmælaað- gerðanna, en engin kæra barst lögreglu. Mótmæli kráar- eigenda búin FRÁ því Flugfélagið Ernir tók við flugi til Hafnar í Hornafirði hefur farþegastraumur aukist mikið. Vegna þessarar aukningar hefur verið ákveðið að bæta við flugferðum á þriðjudögum, en ekki hefur verið flogið áður þá daga. Um er að ræða hádegisflug á þriðjudögum yfir veturinn og síðan verður flogið að morgni og á kvöldin yfir sumarið. Þessar breytingar taka í gildi 19. febrúar og verður þá flogið hvern einasta virka dag og á sunnudögum til Hafnar í Hornafirði. Ernir fjölga ferð- um til Hafnar Árvakur/Árni Sæberg Hætta af grýlukertum og snjóhengjum SJÖ ára stúlka í Breiðholtinu skarst á vör í gær þegar hún ætlaði að ná í grýlukerti en varð fyrir því og varð að sauma fyrir. Önn- ur lítil stúlka, fimm ára gömul, varð fyrir því í fyrrakvöld að snjóhengja féll á hana ofan af þaki þriggja hæða húss á Akureyri. Slapp hún þó ómeidd að því er fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins í gærkvöld. Stúlkan var að leika sér við húsið ásamt stöllu sinni er hengjan féll en það vildi henni til happs að móðir hennar heyrði skruðningana. Fór hún út til að gá að telp- unum og þá var dóttir hennar að mestu á kafi í snjónum. Losaði hún hana úr skafl- inum og eins og fyrr segir varð stúlkunni ekki meint af. Lögreglan vekur athygli á mikilvægi þess að húseigendur skoði þakkanta sína, því mikil hætta geti stafað af snjóhengjum og grýlukertum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.