Morgunblaðið - 05.02.2008, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
„ÞAÐ sem hefur bjargað mér í lífinu er að ég
hef tekið öllu með ískaldri ró. Ég gerði það
besta sem ég gat. Ef það dugði ekki þá varð
bara Guð að taka við. Annað var ekki hægt að
gera,“ segir Jóhannes Sólbjartur Sigur-
björnsson, fyrrverandi skipstjóri og stýri-
maður, sem fagnar 100 ára afmæli í dag með
afmælisveislu fyrir vini og ættingja.
Jóhannes hefur fótaferð á hverjum degi og
fer allra sinna ferða um Dvalar- og hjúkr-
unarheimilið Grund með stuðningi göngu-
grindar. Jóhannes þakkar æðruleysinu háan
aldur sinn en hefur ekki verið með sérstakar
tiktúrur í mataræðinu. „Ég hef bara borðað
sjómannamat og borða mikið af fiski.“
Jóhannes kvaðst hafa reykt og fengið sér
stundum neðan í því á yngri árum, en hætt
því. „Ég komst að þeirri niðurstöðu, krakk-
anna vegna, að ég gæti ekki gert þetta. Ég
átti þá fjögur börn og varð að hugsa um
krakkana mína.“ Jóhannes var kvæntur
Ágústu Skúladóttur en hún dó árið 1983. Þau
eignuðust fjögur börn, Ingibjörgu Ólöfu og
Guðrúnu Jóhönnu, sem báðar eru látnar, og
þau Skúla og Ágústu.
Í Heimilispóstinum, sem gefinn er út á
Grund, er saga af því hvernig Jóhannes fékk
millinafnið Sólbjartur. Þegar fyrstu sólar-
geislarnir náðu að brjótast niður í Önundar-
fjörðinn eftir að Jóhannes fæddist veturinn
1908 féllu fyrstu geislarnir á vögguna hans.
Mamma hans ákvað þá að gefa drengnum sín-
um þetta nafn.
Jóhannes kvaðst hafa byrjað sjómennsku
sína fimmtán ára gamall og þá verið hjálp-
arkokkur hjá pabba sínum sem var mat-
sveinn. Sjómennskan varð hans ævistarf.
Hann fór í Stýrimannaskólann og útskrifaðist
1941. Eftir það var hann stýrimaður og skip-
stjóri, aðallega á togurum, en lauk sjómanns-
ferlinum sem skipstjóri á vs. Hafþóri 1976.
Fundust í hafi
Jóhannes var lengi fyrsti stýrimaður á
togaranum Úranusi og þegar togarans var
saknað í janúar 1960. Úranus hafði verið við
veiðar á Nýfundnalandsmiðum og var á heim-
leið. Þegar ekkert samband náðist við Úranus
gegnum loftskeytastöð var farið að óttast um
skipið og 27 manna áhöfn þess. Leitarflugvél
frá Varnarliðinu, þar sem þeir Guðmundur
Kjærnested og Guðjón Jónsson frá Landhelg-
isgæslunni voru um borð, fann togarann síð-
degis 13. janúar 1960 þar sem skipið var á
siglingu um 490 sjómílur frá Reykjanesi. Jó-
hannes minnist þess þegar flugvélin kom og
þeir gátu gefið merki um að allt væri í lagi
um borð, nema loftskeytastöðin. Fréttin af
fundi skipsins barst fljótt út og vakti mikinn
fögnuð. „Fagnaðarbylgja fór um Reykjavík,
er gleðitíðindin bárust,“ segir m.a. á forsíðu
Morgunblaðsins sem birti stóra mynd sem
tekin var af Úranusi. Þegar togarinn kom til
hafnar var áhöfninni tekið með gleðitárum.
„Ég gerði það besta sem ég gat“
Landsmönnum var létt þegar ljóst var að tog-
arinn Úranus var ofansjávar og á heimleið.
Árvakur/RAX
Aldarafmæli Jóhannes Sólbjartur Sigurbjörnsson fagnar 100 ára afmæli í dag.
Þakkar æðruleysi og sjómannamat að hafa náð 100 ára aldri
KRISTJÁN Gunnarsson, formaður
Starfsgreinasambandsins, segir að
samningamál hafi tekið nýja stefnu í
gær og ef allir komist í sama gírinn
ættu málin að skýrast fyrir vikulok.
Samninganefndir Starfsgreina-
sambandsins og Flóabandalagsins
funduðu með fulltrúum Samtaka at-
vinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í
gær. Kristján Gunnarsson segir að
SA hafi ákveðið að tala við önnur
landssamtök og því hafi hann frest-
að fyrirhuguðum fundi með við-
ræðunefndum Starfsgreina-
sambandsins til fimmtudags, en
hann átti að vera í dag. Aðferða-
fræðin í launamálunum sé háð því að
samhljómur ríki meðal lands-
sambanda og mikilvægt sé að allir
gangi í takt. SA hafi þurft tíma til að
fara yfir þessi mál með öðrum lands-
samböndum og því hafi hann frestað
sínum fundi.
Kristján segir að nái menn sam-
komulagi um aðferðafræðina gangi
hlutirnir hratt fyrir sig í kjölfarið.
Hann segir að útspil SA hafi breyst
og þróast og því hafi þokast í rétta
átt. Starfsgreinasambandið geri
áfram kröfu um 20 þúsund króna
hækkun á taxta, kröfu um almenna
4% hækkun og hækkun lágmarks-
launa. Í stað samnings til tveggja
ára sé talað um samning í eitt ár
með möguleika á framlengingu í tvö
ár ef ákveðin skilyrði séu fyrir
hendi, það er að kaupmáttur hafi
ekki farið minnkandi og að verðlags-
forsendur séu innan tilskilinna
marka.
„Við erum farnir að ræða um inni-
hald samningsins núna í stað þess að
ræða um forsendur,“ segir Kristján.
Ný stefna í
kjaramálum
Rætt um innihald
frekar en forsendur
ÓLAFUR F. Magnússon, borgar-
stjóri í Reykjavík, og nokkrir nem-
endur í Norðlingaskóla tóku í gær
fyrstu skóflustunguna að nýrri leik-
og grunnskólabyggingu við Árvað
3 í Norðlingaholti.
Nýi skólinn verður bæði leik- og
grunnskóli og sá fyrsti í Reykjavík
þar sem börn á tveimur fyrstu
skólastigunum verða undir sama
þaki. Einnig verður tónlistarskóli
starfræktur á sama stað. Skóla-
húsið kemur til með að rúma 450
nemendur í 1.-10. bekk og 110 leik-
skólabörn, en um 200 nemendur
eru nú í bráðabirgðahúsnæði. Áætl-
aður kostnaður við byggingar, lóð
og bílastæði er um tveir milljarðar
króna og er miðað við að skólinn
verði tekinn í notkun 2010.
Samhentir
verkmenn
Árvakur/Árni Sæberg
MÁLVERK eftir Jóhannes Kjarval seldist á 2,8
milljónir króna og verk eftir Þorvald Skúlason
á ríflega 1,5 milljónir á listmunauppboði hjá
Galleríi Fold á sunnudag. Síðan í desember hef-
ur, að sögn Jóhanns Ágústs Hansen listmuna-
sala, hægst um á listaverkamarkaði, eftir að
mikil uppsveifla varð á honum á síðasta ári.
Ekki sé ólíklegt að markaðsverð dýrustu mál-
verkanna hafi almennt lækkað um nálægt 20%
síðan síðasta vor.
Jóhann segir hins vegar að lækkanir séu
minni síðan í desember en búist hafi verið við
og markaðurinn sé að ná jafnvægi ef eitthvað
er. Nú seldust verk metin á nálægt þremur
milljónum króna, sem seldust ekki í desember.
Einnig hélst söluverð verka með meðalhátt
matsverð (um eina milljón króna) stöðugt.
Spútniksölur hækka markaðsverð
Jóhann skýrir uppsveifluna að miklu leyti
með fréttum af gríðarlega háu söluverði verka
eftir Kjarval og Ásgrím Jónsson snemma á síð-
asta ári, þegar verð fór að hlaupa á tugum
milljóna. Við það hafi framboð góðra verka auk-
ist mjög og upphæðir því hækkað í samræmi
við það.
Lágt hlutfall innkeyptra verka, þ.e. verka
sem eigendur fá ekki uppsett lágmarksverð
fyrir, einkenndi uppboðið á sunnudag, eða um
3%. Eftirspurn er því ágæt að mati Jóhanns, en
jafnframt gera eigendur listaverka nú hóflegri
kröfur um lágmarksverð. Þegar verð var sem
hæst í fyrra var þetta hlutfall 7-8%, en erlendis
þekkist að þetta hlutfall sé 15-25%.
Verð þeirra dýrustu 20% lægra
Dýrmæt Verk eftir Ásgrím Jónsson seldust á
háu verði á síðasta ári, í hinni miklu uppsveiflu.
Listmunamarkaður
að ná jafnvægi á ný