Morgunblaðið - 05.02.2008, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
KJÖTKVEÐJUHÁTÍÐIR eru nú
haldnar víða um heim, en lang-
stærsta og viðamesta hátíðin er í
Rio de Janeiro í Brasilíu. Rio hef-
ur verið kölluð höfuðborg kjöt-
kveðjuhátíðanna og um hálf millj-
ón gesta heimsækir hana á ári
hverju. Hátíðin stendur í fjóra
daga en lokadagurinn er í dag og
við tekur páskafastan.
Litskrúðugir dansarar helstu
samba-dansskóla Rio sýndu hæfni
sína á kjötkveðjuhátíðinni í gær,
en skrúðgöngur dansskólanna
eru hápunktur kjötkveðjuhátíð-
arinnar. Göngurnar eru jafn-
framt keppni milli skólanna, m.a.
um hvernig þeim tekst að koma
boðskap sínum á framfæri með
búningum og skreytingum. Stór
úrslitaþáttur er hvernig til tekst
að koma 5.000 manna hópunum á
áfangastað á skemmri tíma en 80
mínútum.
Reuters
Sambasveiflur í Ríó
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
MITT Romney, fyrrverandi ríkis-
stjóri Massachusetts, reyndi í gær
að koma í veg fyrir að öldungadeild-
arþingmaðurinn John McCain ynni
nánast fullnaðarsigur í forkosning-
um repúblikana í dag þegar kosið
verður í yfir 20 sambandsríkjum
Bandaríkjanna. Nýjustu skoðana-
kannanir benda hins vegar til þess
að öldungadeildarþingmaðurinn
Barack Obama hafi unnið upp for-
skot Hillary Clinton og líklegt er að
baráttu þeirra í forkosningum demó-
krata ljúki ekki fyrr en í fyrsta lagi í
næsta mánuði.
CNN-sjónvarpið birti í gær könn-
un sem bendir til þess að McCain
njóti stuðnings 44% líklegra kjós-
enda repúblikana í öllu landinu en
29% styðji Romney. Kosið verður í
21 ríki í forkosningum repúblikana
og McCain er með forystu í flestum
þeirra en ný skoðanakönnun bendir
þó til þess að Romney geti komið á
óvart með sigri í Kaliforníu.
Barist verður um alls 1.023 kjör-
menn í forkosningum repúblikana í
dag og til að verða tilnefndur for-
setaefni repúblikana þarf McCain að
fá alls 1.191 kjörmann. Hann hefur
nú þegar fengið 93 kjörmenn. Í níu
ríkjum af 21 fær sigurvegarinn alla
kjörmennina þannig að McCain von-
ast til þess að komast mjög nálægt
því að gulltryggja sér sigur í for-
kosningunum.
Öðru máli gegnir um baráttu
Obama og Clinton sem keppa um
1.681 kjörmann í dag en þurfa alls
2.025 til að sigra í forkosningum
demókrata. Kjörmönnunum er út-
hlutað í hlutfalli við atkvæðafjölda
frambjóðenda þannig að líklegt er að
ekki dragi til úrslita í baráttu Clin-
ton og Obama fyrr en í fyrsta lagi í
mars.
Tvær nýjar kannanir benda til
þess að Clinton og Obama séu hníf-
jöfn en ef marka má þriðju könn-
unina er forsetafrúin fyrrverandi
með nauma forystu.
Barátta þeirra er mjög tvísýn í
Kaliforníu sem er með flesta kjör-
menn, eða 370. Samkvæmt nýrri
könnun CNN og Los Angeles Times
ætla 36% líklegra kjósenda demó-
krata í Kaliforníu að kjósa Clinton og
34% Obama, en 18% voru enn
óákveðin. Skekkjumörkin voru 4,5
prósentustig.
Sigri Obama í Kaliforníu yrði það
mikið áfall fyrir Clinton sem var með
17 prósentustiga forskot í ríkinu fyr-
ir tæpri viku samkvæmt samskonar
könnun.
John McCain
vonast eftir
fullnaðarsigri
Stefnir í hnífjafna
baráttu milli
Clinton og Obama
Reuters
Þungavigtarmenn Barack Obama
með Robert De Niro (t.v.) og Edw-
ard Kennedy á fundi í New Jersey.
ÍSRAELSK kona og tveir palest-
ínskir árásarmenn létu lífið og ellefu
manns særðust í sjálfsmorðsárás í
Ísrael í gær.
Árásin var gerð
af tveimur mönn-
um í verslunar-
miðstöð í borg-
inni Dimona í
sunnanverðu Ísr-
ael. Annar mann-
anna sprengdi sig
í loft upp, en lög-
regla skaut hinn
manninn áður en
sprengjubelti hans sprakk.
Al-Aqsa-herdeildin er tengist
Fatah-samtökum Mahmud Abbas,
forseta Palestínumanna, og aðrir
tengdir hópar, hafa lýst árásinni á
hendur sér.
Þetta er fyrsta sjálfsmorðsárásin
sem gerð er í Ísrael í rúmt ár.
Ísraelar svöruðu árásinni nokkr-
um tímum síðar með loftárás á bæ-
inn Beit Lahiye á norðanverðu Gaza-
svæðinu. Í loftárásinni lést eftirlýst-
ur leiðtogi andspyrnuhreyfingar er
tengist armi Hamas-samtakanna á
Gaza. Tveir óbreyttir borgarar
særðust í loftárásinni.
Ísraelar
svara sjálfs-
morðsárás
Abwaini Annar
árásarmannanna
ÞÚSUNDIR manna flúðu í gær frá höfuðborg
Tsjad, N’Djamena, eftir tveggja daga átök í borg-
inni milli stjórnarhersins og uppreisnarmanna.
Stjórnarherinn kvaðst hafa hrakið uppreisn-
armennina á flótta en þeir sögðust aðeins hafa far-
ið út fyrir borgina til að gefa íbúunum færi á að
flýja.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hvatti aðild-
arríki samtakanna til að aðstoða stjórnina í Tsjad í
baráttunni við uppreisnarmennina. Frakkar eru
með herstöð í landinu en stjórnvöld í París sögðu í
gær ólíklegt að frönskum hermönnum yrði skipað
að berjast með stjórnarhernum. Uppreisnarmenn-
irnir höfðu áður hótað árásum á friðargæslulið Evrópusambandsins í
landinu vegna stuðnings Frakka við stjórnina.
Stjórn Tsjad hefur sakað stjórnvöld í grannríkinu Súdan um að hafa
staðið fyrir uppreisninni en þau neituðu því í gær.
Þúsundir manna flýja hörð
átök í höfuðborg Tsjad
Frakkar flýja
N’Djamena.
London. AFP. | Bretar virðast fá-
kunnandi í eigin sögu og bók-
menntum samkvæmt niðurstöðum
nýrrar skoðanakönnunar í Bret-
landi. Nærri því fjórðungur svar-
enda heldur því fram að Winston
Churchill sé goðsögn, og enn fleiri
halda að Sherlock Holmes hafi ver-
ið til í raun og veru.
Fram kom í könnuninni að 47%
svarenda héldu því fram að Rík-
harður ljónshjarta, sem var kon-
ungur í Englandi á 12. öld, væri
uppspuni.
23% héldu að Winston Churchill,
sem var forsætisráðherra Bret-
lands í seinni heimsstyrjöldinni,
væri einnig uppspuni. Jafnstór
hluti hélt því
fram að hjúkr-
unarkonan Flor-
ence Nightingale
hefði aldrei verið
til í raun og veru.
Um 3% héldu
að Charles Dick-
ens, einn fræg-
asti rithöfundur
Breta, hefði aldr-
ei verið til.
Indverski leiðtoginn Mahatma
Gandhi og Duke Wellington voru
meðal þeirra tíu sem oftast voru
nefndir sem uppspuni. 58% svar-
enda héldu því hins vegar fram að
Sherlock Holmes hefði verið til.
Fjórðungur taldi Churchill
og Nightingale uppspuna
Gandhi Veruleiki
eða uppspuni? Innheimtukröfur í Netbanka Kaupþings eru tilvalin leið til
að halda utan um kröfur allt frá því að þær eru stofnaðar
þar til þær eru greiddar. Kerfið hentar fyrirtækjum,
stofnunum, sveitarfélögum o.fl. Innheimtukröfur bæta
greiðsluflæði, veita yfirsýn yfir útistandandi skuldir
og auðvelda bókhaldsvinnu. Með því móti spara
innheimtukröfur bæði fé, tíma og fyrirhöfn.
Kynntu þér málið á kaupthing.is, í síma 444 7000 eða
sendu fyrirspurn á innheimtuthjonusta@kaupthing.com
Innheimtukerfi
Nýtt innheimtukerfi
Kaupþings
Kynntu þér innheimtuKröfur í netbanKa Kaupþings
Stórbætt yfirSýn
og
upplýSingagjöf
Tókýó. AFP. | Japanska fyrirtækið
Suntory hefur ræktað bláar rósir
með erfðatækni og tilkynnti í gær að
það hygðist setja þær á markað í
Japan á næsta ári.
Fyrirtækið vonast til þess að selja
hundruð þúsunda blárra rósa í Jap-
an á ári hverju. Það hefur einnig
ræktað slík blóm í Ástralíu og
Bandaríkjunum og vonast til þess að
fá leyfi til að selja þau þar.
Fyrirtækið tilkynnti árið 2004 að
því hefði tekist að rækta fyrstu
erfðabreyttu bláu rósina í heiminum
eftir rannsókn sem stóð í 14 ár.
Bláar rósir
á markað
♦♦♦