Morgunblaðið - 05.02.2008, Blaðsíða 21
heilsa
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 21
ÞAÐ reynir vel á staðfestu og
viljastyrk fólks er það gerir sitt
besta til að breyta um lífstíl, t.d.
með því að bæta mataræðið eða
auka hreyfinguna. Stundum er það
þó svo að fjölskyldan er ekki á
einu máli þegar kemur að hollustu
og heilbrigði. Makinn getur þá
reynst manns versti óvinur, án
þess kannski að hafa ætlað sér
neitt illt. Hér á eftir fylgja nokkur
ráð að hollara fjölskyldulífi sem
breska dagblaðið Daily Telegraph
birti á dögunum.
Þú skalt:
Setja þér raunhæf markmið,
t.d. að vera kominn í gott form
fyrir skíðaferðina, eða að léttast
um nokkur kíló fyrir sumarfríið.
Vertu þó meðvituð/aður um að
átakshugmyndir þínar kunna að
hljóma sem martröð í huga
makans.
Vertu hvetjandi. Þegar vara-
dekkið um maga makans hefur
minnkað þá skaltu ekki spara
hrósið.
Gerðu heimilið „snakkhelt“.
Slepptu því að geyma kexpakka,
kartöfluflögur og aðrar slíkar
freistingar á heimilinu því þá
dregur úr líkum á lagst sé í
óhollustu síðla kvölds, eða að
maður leiðist út í tilfinningaát í
leiðindum.
Gerðu nokkrar litlar breytingar
á máltíðum fjölskyldunnar og
gerðu skyndibitann útlægan.
Gerðu litlar, en varanlegar
breytingar á æfingarútínu þinni.
Ef þú t.d. er vanur/vön að fara
út að ganga, hvernig væri þá að
prófa að skokka stuttar vega-
lengdir á göngunni til að bæta
þolið.
Þú skalt ekki:
Reyna að vera æfingafélagi
makans, eða deila með honum
einkaþjálfara nema þið séuð í
svipuðu formi. Annars á annar
aðilinn einfaldlega eftir að gef-
ast upp meðan hinum leiðist.
Ekki hæðast að hugmyndum
makans um hreyfingu. Ef hon-
um/henni finnst góð hreyfing að
fara út að ganga með hundinn
skaltu virða það. Öll hreyfing er
betri en engin.
Ekki freista makans með fit-
andi mat þegar þú veist að hann
er að reyna að léttast.
Ekki draga úr staðfestu mak-
ans með því að koma með full-
yrðingar eins og: „Megrun-
arkúrar virka ekki. Þú átt eftir
að bæta þessu öllu aftur á þig
og meiru til.“
Ekki gretta þig eða setja upp
leiðindasvip þegar makinn segir
þér eða öðrum frá heilsuátak-
inu.
Þegar
fjölskyld-
an fitar
Árvakur/Kristinn.
Hreyfing Ef hugmynd makans
um góða hreyfingu er að fara
út að ganga með hundinn þá
skaltu virða það.
!"
#
$
%
%
!
$
'
()
*
+
,--.
/
)
0
()
+
,--1
2)
'
3
2
)
&
4
5
.
4
6-7
' "%
)%
11-
8---
4
9:
11-
8-6-
4
;;;&2)&
4
2)<2)&
0
)
=
'
>
&(
)
?
2
)
-
7
!
=
@
) "
)
A
"$
)!
$
"#
$%% & ' ()*+, + )-&
B
!
!
C
"
!
$
2
)
&
$
@ D
B"
B
%
&
9 !
%
%
D
$"@
$
D
$
B
&
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
18
0
8
7
MISSTU EKKI
AF ÞRÆÐINUM
Notaðu tannþráð daglega.
Hann nær þangað sem burstinn kemst ekki
og munnurinn verður hreinni og heilbrigðari.