Morgunblaðið - 05.02.2008, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.02.2008, Blaðsíða 18
Ósofnir menntskælingar eru kannski eng-in nýlunda en hins vegar er óvenjulegraað svefnleysið sé hluti af námsefniþeirra. Sú var hins vegar raunin þegar 45 MK-ingar sóttu valfagið HUB 102 á dögunum eftir að hafa verið vaknir og sofnir yfir ungabarns- dúkku, sem er raunverulegri en þær flestar. Þegar blaðamaður gengur inn í skólastofuna er kennari námskeiðsins, Ólafur Grétar Gunnarsson, að máta vesti með áfastri bumbu og barmi á einn strákinn í bekknum við mikla kátínu samnemenda hans. Bæði strákar og stelpur fá þannig nasasjón af því aukaálagi sem meðgangan hefur í för með sér. HUB stendur fyrir „Hugsað um barn“ en áfanginn felst í því að krakkarnir fá heim með sér yfir helgi brúðu sem lítur út eins og ungabarn og er að mörgu leyti gædd sömu eiginleikum. Nem- endurnir þurfa að sinna „barninu“ og bregðast við gráti þess með því að gefa því pela, skipta um bleyju, hugga það og annast á annan máta nótt sem nýtan dag. Í framhaldinu fá þeir fræðslu um meðgönguna, foreldrahlutverkið, ótímabært kyn- líf og fleira. Allt það versta í börnum „Þetta var bæði gaman og erfitt,“ segir einn Anna Margrét Gunnarsdóttir, í tímanum á mánu- deginum eftir að hafa skilað barninu. „Það koma kaflar þar sem barnið grenjar og grenjar. Þá þarf maður virkilega að reyna að finna út hvað sé að, fara í gegn um alla rútínuna, skipta á bleyju, gefa pela og allt þetta. En svo er þetta rosalega gaman inn á milli þegar barnið hlær og hjalar.“ Undir þetta tekur Sindri Jónsson sem fann þó ekki jafn marga ljósa punkta við ungbarnastússið og skólasystir hans. „Mér finnst þetta aðallega sýna fram á allt það versta í börnum því það var aldrei neitt skemmtilegt eða ánægja í þessu held- ur bara vinna, meiri en ég bjóst við. Ef barnið byrjaði að gráta grét það kannski fimm sinnum í röð en þagði svo í einn, tvo eða jafnvel þrjá tíma áður en það tók aðra rispu.“ Þau eru sammála um að barnið hafi verið ákaf- lega bindandi. „Og það var ekkert hægt að svindla – maður þurfti alltaf að vera á staðnum út af arm- bandinu sem við fengum,“ segir Anna. Vildi vinna veðmál Armbandið sem Anna nefnir er hluti af tölvu- búnaði dúkkunnar sem skráir alla umönnun. Þannig þurfa unglingarnir að bera armbandið upp að dúkkunni um leið og þeir sinna henni því annars kemur fram við skráningu að barninu hafi ekki verið sinnt. Einkunn krakkanna í áfanganum er svo byggð á niðurstöðum skráningarinnar. Og það er sú niðurstaða sem hvatti Sindra til þess að skrá sig í áfangann. „Ég fór í keppni við vinkonu mína sem heldur því fram að ég verði ekki góður faðir. Ég held hins vegar að ég sé sá besti og ætla að sýna fram á það með því að vinna hana í þessu,“ segir hann og glottir. Aðrar ástæður lágu að baki því að Anna ákvað að fara í þetta fag. „Ég vissi ekkert um börn og var svo stressuð yfir þeim að ég hafði eiginlega sagt við sjálfa mig að ég ætl- aði aldrei að verða mamma. Mig langaði því að prófa þetta og fannst það geðveikt gaman. Núna er ég alveg búin að skipta um skoðun og er bara spennt fyrir því að verða ólétt,“ segir hún. „Ann- ars þarf enginn að hafa áhyggjur,“ bætir hún hlæj- andi við þegar hún sér svipinn á blaðamanni. „Ég ætla mér ekkert að verða ólétt á næstunni!“ Sindri segir þessa reynslu þó varla verða til þess að hann þori ekki að leggja út í barneignir síðar meir. „Gerist það ekki bara ef það gerist?“ spyr hann æðrulaus. „En það er svosem ekkert á plan- inu í bráð.“ ben@mbl.is Barneignir ekki á planinu í bráð Árvakur/Árni Sæberg Reynslunni ríkari „Þetta var bæði gaman og erfitt,“ sögðu þau Sindri Jónsson og Anna Margrét Gunnarsdóttir. Ósofin Þreytan sagði til sín hjá nemendunum að lokinni helgi með „raun- veruleikabarninu“. Fróð Sigríður Pálmadóttir hjúkrunarforstjóri fræddi krakkana um meðgöngu og börn. Þungun Kennarinn, Ólafur Grétar Ólafur Gunnarsson, aðstoðar kynbróður sinn við að finna fyrir þyngdinni sem óléttubumba hefur í för með sér. |þriðjudagur|5. 2. 2008| mbl.is daglegtlíf Það þarf íturvaxna tösku undir allra nauðsynlegustu græjurnar fyrir sundsprettinn ef marka má það sem í boði er. » 20 sund Hrós er mun betra stjórn- og agatæki en refsing ef marka má dr. Laura Riffel sem hefur ára- tugareynslu af kennslu. » 20 menntun „ÞETTA er sá aldur sem er í áhættu varðandi ótímabærar þunganir svo mér fannst tilvalið að bjóða upp á þetta sem valfag,“ segir Margrét Friðriksdóttir, skólameistari MK. „Þetta er í fyrsta skipti sem boðið er upp á þetta í framhaldsskólum þannig að við vissum ekki alveg hvernig þetta myndi falla í kramið hjá krökkunum. Við áttum von á kannski 15 en fagið sló í gegn því 45 nemendur skráðu sig.“ Námskeiðið fólst í þremur tvö- földum kennslustundum þar sem unglingarnir voru fræddir um kynlíf, getnað, umönnun barna og foreldrahlutverk, getnaðarvarnir, kynsjúkdóma „og fleira sem á er- indi við aldurshópinn,“ útskýrir Margrét. Að auki þurftu þau að annast „raunveruleikabarnið“ í tvo og hálfan sólarhring, eða frá kl. 20 á föstudagskvöldi til kl. 8 á mánudagsmorgni. „Það var mjög mikil lukka með þetta og við er- um ákveðin í að bjóða okkar nemendum upp á þetta áfram,“ bætir hún við. Hún segir námskeiðið af- sprengi samvinnu skólans og Heilsugæslunnar í Kópavogi en í skólanum er starfandi hjúkr- unarfræðingur á hennar vegum sem styrktur er af sor- optomistaklúbbnum og rot- aryklúbbnum í bænum. „Við fréttum af þessum námskeiðum sem ÓB ráðgjöf er með í gegn um hjúkrunarforstjóra heilsugæsl- unnar, Sigríði Pálmadóttur, og fannst þau strax spennandi. Og þar sem þetta styrkir svo vel for- varnastarf hjúkrunarfræðingsins, hennar Elínar Birnu Hjörleifs- dóttur, ákváðum við að slá til.“ Í fyrsta sinn í fram- haldsskóla Þeir voru dálítið þreytulegir krakkarnir sem mættu í HUB 102 í MK mánudaginn fyrir rúmri viku. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir sat í tíma með þeim og 45 raunveruleikabörnum sem höfðu haldið fyrir þeim vöku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.