Morgunblaðið - 05.02.2008, Blaðsíða 36
Það vantar íslenskan
Collings til að hleypa
smávegis fjöri í listumræð-
una … 38
»
reykjavíkreykjavík
Mikið verður
um dýrðir í Höll-
inni föstudaginn
14. mars þegar
Sálin hans Jóns
míns heldur af-
mælistónleika
sína. Sálinni til fulltingis verður
blásara- og strengjasveit, Gosp-
elkór Reykjavíkur og fleiri aðstoð-
armenn, auk þess sem von er á
leynigestum. Bróðurpartur gólfsins
í Höllinni verður sætalaus, sviðið
frambyggt, rampur lagður fram
gólfið og hyggjast Sálverjar nálg-
ast málið með þeim óformlega
hætti sem áhangendur þeirra eiga
helst að venjast. Hins vegar var
ásóknin svo mikil í stúkusæti þegar
opnað var fyrir miðasölu á föstudag
að öll sætin seldust upp á innan við
sólarhring. Hvort þetta gefi til
kynna ástand og aldur aðdáenda
Sálarinnar skal ósagt látið en
ákveðið hefur verið, í ljósi þessa, að
bæta 250 sætum fyrir neðan stúk-
una. Sala í þau sæti hefst í dag kl.
10. Miðasala fer fram á miði.is
Uppselt í stúku á Sálar-
tónleika í Höllinni
Vefsamfélagið MySpace hefur á
undanförnum misserum verið
einkar vinsælt hjá hljómsveitum
og tónlistarmönnum til að kynna
list sína og þar hafa nær allir net-
tengdir tónlistarmenn sett upp
prófíl með tóndæmum og mynd-
um. En það eru fleiri en listamenn
sem notast við síðuna því á meðal
þeirra sem hafa komið upp eins-
konar heimasíðu/kynningarsíðu er
handknattleiksmaðurinn Logi
Geirsson. Á síðu Loga er margt
forvitnilegt að finna, svo sem
klippur úr landsleikjum, myndir,
blogg, vini (sem flestir eru kven-
kyns) og síðast en ekki síst ein-
kennisorð Loga sem eru einfald-
lega þessi: „Þeir sem þora, þeir
skora!“
Svona tala bara sigurvegarar.
Logi þorir á MySpace
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÍSLENSKA plötuútgáfufyrirtækið
Bedroom Community hóf starfsemi
fyrir rúmu ári. Í fyrsta kasti komu
út tvær plötur með erlendum tón-
listarmönnum, Bandaríkjamann-
inum Nico Muhly og Ástralanum
Ben Frost sem hefur verið búsettur
hér á landi um allnokkra hríð. Í
haust kom svo út sólóplata Valgeirs
Sigurðssonar, sem stofnsetti útgáf-
una á sínum tíma. Valgeir ber sig
vel að liðinni jólageðveiki þegar
blaðamaður slær á þráðinn til hans
og er afar sáttur með gengi útgáf-
unnar til þessa. Hann og félagar
hans í hljóðverinu Gróðurhúsinu
eru nú farnir að hugsa sér til hreyf-
ings á nýju ári og tvær nýjar plötur
eru í farvatninu, en sú fyrsta kemur
út núna eftir helgina.
Appalasía
Nýjasta útgáfa Bedroom Comm-
unity kallast All Is Well og er með
Bandaríkjamanninum Sam Amidon,
en hann vinnur með þjóðlagatónlist
Appalasíufjalla. Þeir gestir síðustu
Airwaves-hátíðar sem römbuðu inn
á dagskrá Norræna hússins áttu
færi á að sjá Amidon spila, en einn
og óstuddur með banjóið að vopni
flutti hann fallegar og brothættar
stemmur, og m.a. ansi mergjaða út-
gáfu af slagara eitís sveitarinnar
Tears for Fears, „Head Over
Heels“.
„Ég og Nico Muhly unnum svo
með tónlistina, útsettum og settum
strengi og blástur við þetta,“ út-
skýrir Valgeir. „Þetta er klárlega
aðgengilegasta Bedroom Comm-
unity-platan til þessa ef svo mætti
segja.“ Aðrir sem að plötunni koma
eru m.a. Ben Frost og Eyvind Kang.
Önnur plata Nico Muhly er þá vænt-
anleg í vor. Á henni vinnur hann
með raddir í þremur verkum og not-
ast við nefndan Sam Amidon, Helga
Hrafn Jónsson og bandarísku söng-
konuna Addy Fischer.
Yfirþyrmandi gott
Valgeir segir að gott „suð“ sé í
kringum þessar útgáfur og tilfinn-
anleg spenna hafi verið að hlaðast
upp á undanförnum vikum.
„Annars hafa viðtökur við útgáfu-
fyrirtækinu verið framar öllum von-
um,“ segir Valgeir. „Umfjöllun
blaða hefur verið yfirþyrmandi góð
verð ég að segja,
og þrátt fyrir að
einstakar plötur
frá okkur hafi
verið ólíkar virð-
ast þær hafa
fundið sinn far-
veg.“
Nú um stundir
eru Bedroom-
liðar að vinna í
því að styrkja
dreifingarmálin
úti í heimi en
dreifingaraðilinn
í Þýskalandi
gekk t.d. úr
skaftinu fyrir
stuttu.
„Þar úti ætlum
við að taka þetta
skrefi ofar hvað dreifingu varðar.
Við erum með dreifingu í öllum
þeim löndum sem eru undir þessum
vestræna tónlistarhatti, og Ástralía
var síðasta landið til að koma inn.
En við erum ekkert á mörkuðum
eins og í Asíu eða Afríku, en erum
að vísu með góða dreifingu í Japan.“
Valgeir segir að nú sé verið að
skoða vandlega dreifingarmál þess-
ara nýjustu platna.
„Hingað til höfum við verið harð-
ir á því að halda því sem við höfum
verið að gefa út saman en það er
skiljanlegt að fólk hafi meiri áhuga
á einni plötu umfram aðra þannig
að það er verið að skoða þessi mál í
því ljósi.“
Heimsþorpið
Valgeir samþykkir þá staðhæf-
ingu blaðamanns að það sem lagt
hafi verið upp með í byrjun sé að
hafast.
„Þróunin hefur verið góð. Við
byrjuðum ekki á
auðveldustu
plötunum, það er
ekki hægt að
segja að þær hafi
verið einhverjar
kjörplötur til að
markaðssetja.
En það hefur
sýnt sig að svona
tónlist á upp á
pallborðið og
það víða og um-
fjöllun og grein-
ar hafa verið að
rata í marga
miðla sem sér-
hæfa sig í þess-
um jaðargeira.
Það hefur t.d.
hlaupið ágæt-
lega á snærið hjá Ben og Nico eftir
að plötur þeirra komu út.“
Bedroom Community er á marg-
an hátt prýðisgott dæmi um útgáfu
sem starfar samkvæmt líkani heims-
þorpsins. Plöturnar seljast út um
allan heim, bæði í gegnum netið og
út úr búðum, þó að gert sé út frá Ís-
landi. Samstarfsaðilar eru þá stað-
settir hér og hvar í heiminum en
samskipti og samvinna gengur þó
tiltölulega snurðulaust fyrir sig.
„Það sem er erfitt er að halda ut-
an um þetta og vera viss um að allir
séu að skila sínu. Þetta veltur fyrst
og fremst á góðu samstarfsfólki. En
gott gengi útgáfunnar hefur valdið
því að fyrirspurnum er sífellt að
fjölga, fólk vill fá að vera með og
„demóin“ streyma inn. Þannig að
við göngum vonbjartir inn í þetta
nýja ár.“
Framar öllum vonum
Tvær nýjar plötur væntanlegar frá plötufyrirtækinu Bedroom Community
Morgunblaðið/Jim Smart
Sam Amidon Sá kúreki sem Bedroom Community veðjar á næst. Tekur víst mergjaða útgáfu af Tears for Fears
slagaranum Head over Heals. Næsta plata Amidon verður klárlega aðgengilegasta plata Bedroom Community.
Aðalsprautan Valgeir Sigurðsson í
hljóðveri sínu Gróðurhúsinu.
www.bedroomcommunity.net
Óhætt er að
segja að keppnin
í síðustu Laug-
ardagslögum
hafi verið hníf-
jöfn þó ekki hafi
það komið á
óvart hvaða tvö lög komust
áfram. Lag Magga Eiríks, Leigu-
bílar, var og er fínasta lag en lík-
lega er hljómurinn um 20 árum
of gamall fyrir Evróvisjón-
keppnina – eins og hún hefur
þróast á undanförnum árum.
Lagið hefði hins vegar komist
áfram í öllum öðrum lagakeppn-
um og í öllum öðrum lagakeppn-
um hefði Dr. Gunni ekki komist í
gegnum fyrstu síu.
Næsta kvöld verður þó ekki
jafnspennandi. Barði hefur svo
gott sem unnið kvöldið fyrirfram.
Ekki alltaf besta lagið
sem kemst áfram
■ Fim. 7. febrúar kl. 19.30
Myrkir músíkdagar
Einstakur viðburður, frumflutningur tveggja íslenskra sinfónía, eftir
Atla Heimi Sveinsson og John Speight. Tónleikar sem enginn
áhugamaður um spennandi nýja tónlist má missa af.
Stjórnandi: Roland Kluttig. Einsöngvarar: Ágúst Ólafsson og
Gunnar Guðbjörnsson. Bakraddir: Hulda Björk Garðarsdóttir,
Sesselja Kristjánsdóttir og Hrólfur Sæmundsson.
■ Lau. 16. febrúar kl. 17
Kristallinn – kammertónleikaröð Þjóðmenningarhúsinu
Fransk-rússneskur kammersirkus. Verk fyrir fjölbreytta hljóðfæra-
skipan eftir Debussy, Ravel og Prokofiev.
■ Fim. 21. febrúar kl. 19.30 – Nokkur sæti laus
Sellósnillingur í toppformi
Daniel Müller-Schott, ein skærasta stjarna sellóheimsins í dag,
leikur einleik í byltingarkenndum konsert Haydns. Einnig eru á
dagskrá forleikur eftir Mozart og Sveitasinfónía Beethovens.Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is