Morgunblaðið - 05.02.2008, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Ég get engu lofað, það vantar 4,527 upp á réttu töluna.
VEÐUR
Talið er að notaðir séu minnst 500milljarðar plastpoka árlega en
sú tala gæti verið helmingi hærri.
Samkvæmt því eru notaðir milljón
plastpokar á mínútu í heiminum.
Plastpokar eru mengunarvaldur.Þeir eru hættulegir dýrum, sem
geta kafnað við að gleypa þá. Þeir
eyðast ekki í umhverfinu, heldur
leysast upp í örsmáar agnir. Þá eru
plastpokar,
sem feykjast
um í vind-
inum og
blakta í trjá-
greinum, ekki
beint til feg-
urðarauka í
borgarlands-
laginu.
Plastpokanotkun er mikil á Íslandiog lítil áhersla hefur verið lögð
á að draga úr henni. Jafnvel mætti
segja að með plastpokasjóðum sé ýtt
undir notkunina vegna þess að þá er
neytandinn að leggja góðum mál-
stað lið með því að kaupa sér poka.
Á Írlandi var hins vegar skorin upp
herör gegn fyrirbærinu með plast-
pokaskatti árið 2002. Jafnframt var
lagt í mikla áróðursherferð og á
skömmum tíma tókst að draga veru-
lega úr notkuninni. Áður en bannið
var sett voru notaðir 1,2 milljarðar
plastpoka á Írlandi en nú hefur
notkunin dregist saman um 90 af
hundraði. 18 milljónir lítra af olíu
hafa sparast vegna þessa.
Írar fluttu alla sína plastpoka innmeð ærnum tilkostnaði. Nú ganga
viðskiptavinir um með eigin skjóður
og þeir, sem biðja um plastpoka, eru
nánast litnir hornauga.
Ólíklegt er að plastpokaskatturdugi einn og sér til að breyta
hegðun Íslendinga. Þegar er lagt
gjald á plastpoka án þess að það hafi
sýnileg áhrif. Sennilega gerist ekk-
ert fyrr en það verður hallærislegt
að biðja um plastpoka í verslunum.
Þá gæti hins vegar mjög skyndilega
orðið brátt um plastpokann.
STAKSTEINAR
Milljón plastpokar á mínútu
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
" #$
" #
" #$
$
" #$
" #$
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
&% % &% &% &% &% % %
*$BC '''
!
"# $
%
& ' (
#
$
*!
$$B *!
(
) ' ' ' #
*
<2
<! <2
<! <2
( #)"+ ', "!-'.$+"/
D8-E
<7
)$
#
* !
#
)
!
<
+,'
-
"
*
.
& ' (
/
+
"
1
#
& '
01++''22"+'
'3 $
', "!
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Steinn Hafliðason | 4. febrúar 2008
Bolludagurinn …
… er einn af fáránleg-
ustu dögum ársins. Þá
hamast fólk við að setja
ofan í sig ógeðslega
óhollan mat sem er
gerður úr smjörlíki, eggj-
um og rjóma. Síðan
smjattar fólk á þessum …
Ég hef óbeit á svona átdögum. Ég
er hvorki með lystarstol né heldur þjá-
ist ég af offitu og hef aldrei gert. Hins
vegar vekur þetta upp í mér hroll yfir
þeirri ofboðslegu ofneyslu sem hinn
vestræni heimur þjáist af.
Meira: steinnhaf.blog.is
Bryndís Ísfold Hlöðversd. | 3. febrúar
Ólæknandi útþrá …
Fyrir suma eru janúar
og febrúar erfiður tími
og mörgum finnst best
að kúra helst undir
sæng alla þessa mán-
uði. Persónulega er
mér einfaldlega alltaf
kalt í janúar og yfir mig leggst
óstöðvandi útþrá og í stað þess að
leggjast í rúmið ligg ég í tölvunni og
skoða heimasíður allra þeirra ferða-
apparata sem hafa möguleika á því
að flytja mig af landi brott, í sól og
sumar …
Meira: bryndisisfold.blog.is
Kristinn Pétursson | 4. febrúar 2008
Björn Bjarnason
góður í Silfri Egils
Frammistaða Björns
Bjarnasonar dóms-
málaráðherra í Silfri Eg-
ils í gær var sérlega
góð. Björn svaraði öll-
um spurningum yfirveg-
að. Mér fannst þetta
viðtal eins og slík viðtöl gerast best.
Að menn svari spurningum án þess
að maður fái á tilfinninguna að við-
komandi sé að snúa út úr – eða fara
undan í flæmingi. …
Þetta var viðtal til fyrirmyndar.
Meira: kristinnp.blog.is
Auður H. Ingólfsdóttir | 3. febrúar 2008
Úps!
Í dag upplifði ég skrýtna
tilviljun. Ég hlusta oft á
íslenska útvarpsþætti í
tölvunni um helgar.
Helst eru það þættirnir
Vikulokin og Gárur á
Rás 1 og Endurvinnslan
á Rás 2 sem ég hef gaman af að
hlusta á um leið og ég sinni hús-
verkum. Eftir að hafa hlustað á þessa
þrjá þætti í dag langaði mig að hlusta
meira og fór að kíkja á þætti síðustu
viku. Ég rambaði að lokum á þáttinn
Samfélag í nærmynd á Rás 1 og
hlustaði á hann til enda. Þar var m.a.
viðtal við Baldur Þórhallsson, for-
mann stjórnar Alþjóðamálastofnunar.
Undir lok viðtalsins minntist Baldur á
útgáfumál stofnunarinnar og sagði að
á næstu vikum kæmi út bók um utan-
ríkisstefnu Íslands frá því eftir Kalda
stríðið. Mér eiginlega snarbrá. Ég á
nefnilega kafla í umræddri bók, sem
var skrifaður fyrir tveimur árum síðan.
Það er orðið meira en ár síðan ég hef
heyrt nokkuð um þessa bók og ég var
þess fullviss að búið væri að slá út-
gáfuna út af borðinu. Mér stóð ekki al-
veg á sama um að bókin væri enn á
dagskrá og væri alveg við það að
koma út. Efnið sem ég skrifaði um er
stefna Íslands í viðræðum um lofts-
lagssamninga og margt hefur gerst
bæði alþjóðlega og hérlendis þessi
tvö ár síðan ég skrifaði greinina. Ég
fór að leita að greininni til að skoða
hversu úrelt hún væri orðin en fann
hana hvergi í tölvunni minni. Ég var að
vinna hana til skiptis í heimatölvu,
vinnutölvu og svo úti um allan heim í
ýmsum lánstölvum. Mér datt þá það
snjallræði í hug að kíkja inn á gamla
vinnupóstinn minn, sem ég hef enn
aðgang að en nota ekkert, þar sem ég
hafði sent síðasta eintakið af grein-
inni til ritstjóra úr því netfangi. Þar
biðu tveir tölvupóstar frá ritstjóra bók-
arinnar, annar frá því á miðvikudag og
svo ítrekunarpóstur í dag, þar sem ég
var vinsamlegast beðin um að lesa yf-
ir síðustu útgáfuna einu sinni enn. Ef
ég hefði ekki hlustað á þennan út-
varpsþátt hefðu vel getað liðið nokkr-
ar vikur þar til mér hefði dottið í hug
að kíkja á póstinn í gamla vinnunet-
fanginu …!!! En ég eyddi sem sagt
deginum í að uppfæra greinina, þann-
ig að vonandi er hún boðleg, þó vissu-
lega sé aðalfókusinn á tímabilið
1990-2005, og minna fjallað um síð-
ustu tvö árin. …
Meira: aingolfs.blog.is
BLOG.IS