Morgunblaðið - 05.02.2008, Síða 17

Morgunblaðið - 05.02.2008, Síða 17
Morgunverðarfundur Slysavarnaráðs 6. febrúar á Grand Hóteli 2+2 EÐA 2+1 VEGIR: Öryggi vegfarenda – kostnaður samfélagsins – erum við á réttri leið? Skráning fer fram á www.lydheilsustod.is/skraning fyrir 5. febrúar Dagskrá Fundarstjóri: Þóra Arnórsdóttir, fréttamaður Kl. 08.00 Skráning og greiðsla þátttökugjalds Kl. 08.25 Setning morgunverðarfundar Guðlaugur Þór Þórðarson, Heilbrigðisráðherra Kl. 08.35 2+1 vegir - öruggur og ódýr valkostur Haraldur Sigþórsson, Línuhönnun 2 + 2 = 0 – reiknum dæmið til enda Steinþór Jónsson, formaður Samstöðu og FÍB Framanákeyrslur 1998-2007 Gögn rannsóknarnefndar umferðarslysa um banaslys Ágúst Mogensen, Rannsóknarnefnd umferðarslysa Kl. 09.35 Fyrirspurnir og pallborðsumræður Í panel verða: Haraldur Sigþórsson, Steinþór Jónsson, Ágúst Mogensen og Þórólfur Þórlindsson forstjóri Lýðheilsustöðvar Kl. 10.00 Fundarslit Þátttökugjald er 2.000 kr. og greiðist við upphaf fundarins Innifalið í þátttökugjaldi er morgunverðarhlaðborð MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 17 SUÐURNES Eftir Kristbjörgu Sigurðardóttur Kópasker | Kópasker mun vera einn af fáum stöðum á landinu þar sem sá siður er við lýði að íbúarnir geta átt von á því að vera bollaðir í morgunsárið á bolludag. Flest börnin í fjórða til áttunda bekk grunnskólans söfnuðust sam- an fyrir klukkan fimm í morgun og ruddust inn í þau hús sem ólæst voru í þessum tilgangi. Sumir þeir sem hafa hús sín opin setja upp allskonar gildrur sem þykir auðvitað spennandi en líklega eru það nú bollurnar sem eru eftir- sóknarverðastar í hugum þátttak- enda. Morgunblaðið/Kristbjörg Sigurðardóttir Bollur Börnin búin að gæða sér á bollum á heimili kl. 5.40 í gærmorgun. Þorpsbúar bollaðir Árnessýsla | Nýtt samstarfsverk- efni, Uppsveitadagatalið, hefur göngu sína. Biskupstungur eru þema fyrsta dagatalsins. Fyrirhugað er að gefa dagatalið út með mismunandi myndaþemum úr uppsveitum Árnessýslu ár hvert í samstarfi við heimamenn í sveitunum fjórum sem eru: Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur. Dagatalið sem nú hefur verið gefið út er byggt á myndum úr myndasýn- ingunni „Mannlíf í Biskupstungum“ sem unnin var af Skúla Sæland sagn- fræðingi fyrir Skálholt. Sýningin var opnuð í Skálholtsskóla í desember. Útgefandi Uppsveitadagatalsins er ferðamálafulltrúi Uppsveita Árnes- sýslu og samstarfsaðilar að fyrstu út- gáfu 2008 eru Skúli Sæland sagn- fræðingur og Kristinn Ólason rektor í Skálholti. Dagatalið verður til sölu í Skálholti og í verslunum á svæðinu. Hvert ein- tak er númerað í þeim tilgangi að auka söfnunargildi útgáfunnar. Gefa út dagatal fyrir uppsveitir Árnessýslu LANDIÐ Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Sandgerði | „Þetta er kjörið tæki- færi fyrir foreldra til að nálgast börnin sín og ræða við þau um ýmsa hluti, áður en þau hlaupa al- veg frá okkur,“ segir Fanney Halldórsdóttir, skólastjóri Grunn- skólans í Sandgerði. Tvær dætur hennar fermast í vor og hún reyn- ir að taka sem mestan þátt í ferm- ingarfræðslunni. Björn Sveinn Björnsson, sókn- arprestur í Útskálaprestakalli, sem nær yfir sóknirnar í Garði og Sandgerði, bauð um helgina for- eldrum og fermingarbörnum til sameiginlegrar fermingarfræðslu í Gerðaskóla. Fermingarbörnin eru tæplega fimmtíu og var ágæt- lega mætt í fræðsluna. Horft á þætti um Jesúm „Þetta var mjög ánægjuleg reynsla, sérstaklega hvað foreldr- ar tóku vel í þessa tilraun. Ég hef að vísu á undanförnum árum átt stefnumót við foreldra og ferm- ingarbörn en þá höfum við einu sinni yfir veturinn gert okkur eitt og annað til dægrastyttingar, en þetta er í fyrsta skipti sem ég kalla foreldrana til beinnar þátt- töku í fermingarfræðslu,“ segir séra Björn Sveinn. Á fræðsludeginum var horft á valda kafla úr nýrri þáttaröð frá BBC, „Kraftaverk Jesú“. Björn segir að meginviðfangsefni fræðslunnar sé eins og ávallt áður að nálgast Jesúm sem mest og þá ekki síst hvernig hann kom fyrstu aldar mönnum fyrir sjónir. Því var meðal annars velt upp hvað kraftaverkafrásögur guðspjall- anna segðu okkur. Björn Sveinn segist líta svo á að foreldrar þurfi að taka virkan þátt í trúarlegu uppeldi barna sinna enda hafi þau gengist undir þá ábyrgð þegar börnin voru bor- in til skírnar. „Því fannst mér upplagt að fá foreldrana með í fræðsluna,“ segir sóknarprestur- inn og bætir því við að góð sam- vinna við foreldrana eins og tekist hafi nú sé mikilvæg. Hann var í gær með fermingarbarnahópinn í Skálholti. Ræða málin á kaffihúsi Fanney Halldórsdóttir mætti með dætrum sínum, tvíburasystr- unum Ósk Matthildi og Thelmu Guðlaugu Arnardætrum, sem ný- lega eru orðnar fjórtán ára. Hún var ánægð með að fá þetta tæki- færi til að kynnast fermingar- fræðslunni af eigin raun enda tel- ur hún mikilvægt að foreldrar setji sig inn í það sem krakkarnir eru að læra. Hún sagði að þætt- irnir sem sýndir voru væru áhugaverðir en hún hefði gjarnan viljað fá umræður á eftir um efn- ið. Fanney er að undirbúa ferm- ingu í fyrsta skipti og segist ekki vera farin að huga alvarlega að veislunni enda góður tími til stefnu þar sem Ósk og Thelma verða ekki fermdar fyrr en í maí. Þær kusu að fermast í Hvals- neskirkju en ekki safnaðarheim- ilinu í Sandgerði þar sem flestir fermast. „Þær voru skírðar í Hvalsneskirkju og finnst það há- tíðlegra að láta ferma sig þar,“ segir Fanney. Hún ræðir töluvert við dætur sínar um ferminguna. „Við förum oft saman á kaffihús eftir messu til að ræða málin og þar fylla þær út spurningablöðin frá prestinum. „Þetta er kjörið tækifæri fyrir foreldra til að nálgast börnin sín og ræða við þau um ýmsa hluti, áður en þau hlaupa alveg frá okk- ur,“ segir Fanney og vísar til þeirra miklu breytinga sem verða oft samskiptum á unglingsárun- um. Foreldrar í Útskálaprestakalli taka þátt í fermingarfræðslunni með börnunum Tækifæri til að ræða málin Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Mæðgur Ósk Matthildur Arnardóttir, Fanney Halldórsdóttir og Thelma Guðlaug Arnardóttir fóru saman í fermingarfræðslu. Í HNOTSKURN »Fermingin á sér langa hefðhér á landi. Meginþorri ís- lenskra ungmenna „gengur til prests“ og fermist, eða yfir 90% úr hverjum árgangi. »Fermingarundirbúning-urinn er mismunandi. Í Út- skálaprestakalli felst hann í námskeiðahaldi allan veturinn, börnin sækja messur og einnig er farið í fræðslu- og menning- arferðir. Lögð er áhersla á samvinnu við foreldrana. Reykjanesbær | Leikskólarnir í Reykjanesbæ eru fullsetnir um þessar mundir, að því er fram kom hjá leik- skólafulltrúa á fundi fræðsluráðs fyrir skömmu. Ástæðan er mikil fjölgun íbúa. Verið er að huga að frekari uppbygg- ingu. Fjölgun íbúa í háskólahverfinu á Vall- arheiði hefur haldist í hendur við fjölgun leikskólaplássa þar. Hjallastefnan rekur leikskóla í samvinnu við Reykjanesbæ. Með nýbyggingu við Vesturberg bæt- ast við 47 leikskólapláss en fræðsluráð hefur óskað eftir því að laus skáli við Vesturberg verði færður að Heiðarseli til bráðabirgða til að mæta þörf þar næsta haust. Samhliða flutningi skálans verði starfsmannaaðstaða bætt. Verið er að skoða hugmyndir um við- byggingu við leikskólann Hjallatún en fræðsluráð telur að slík viðbygging gæti verið góður kostur þar sem eftirspurn eftir leikskólaplássum er töluverð mið- svæðis í bænum. Samkvæmt framtíðarsýn Reykjanes- bæjar liggur fyrir að byggður verður nýr leikskóli í Dalshverfi og verður hugað að undirbúningi á næstunni. Jafnframt er vilji til að skoða aðra kosti, svo sem á Fitjum, Baugholti, Vatnsholti eða í Hlíð- arhverfi. Kostirnir verða skoðaðir með tilliti til íbúaþróunar í bænum á næstu árum. Að auki mun fræðsluskrifstofa Reykja- nesbæjar leitast við að tryggja nýráðnum leikskólakennurum íbúðir á Vallarheiði til tveggja ára til þess að fjölga leik- skólakennurum í bæjarfélaginu. Leikskólarnir í Reykjanesbæ eru fullsetnir Leikur Þorramatur á borðum í leikskóla.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.