Morgunblaðið - 05.02.2008, Side 19

Morgunblaðið - 05.02.2008, Side 19
úr bæjarlífinu MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 19 Fyrirlestur um tölvufíkn unglinga verður haldinn í ME í dag kl. 18.00. Fyrirlesturinn flytur Þorsteinn K. Jóhannsson, sem sjálfur hefur þurft að glíma við alvarlega tölvufíkn í aldarfjórðung og markaði það mjög líf hans og aðstandenda. Persónu- leikabreytingar koma að sögn Þor- steins fram hjá fólki við mikla tölvu- notkun og ætlar hann að leitast við að varpa ljósi á þann vanda sem margir standa frammi fyrir eða stefna hratt í. Fyrirlesturinn er opinn öllum for- eldrum, forráðamönnum og kenn- urum sem hafa áhyggjur af tölvu- notkun barna.    Sátt virðist hafa náðst í launadeilu milli sveitarfélagsins og starfsfólks við leikskólann Tjarnarland. Fyrir mistök hefur ákveðnum starfs- mönnum leikskóla á Fljótsdalshér- aði, nema þeim er vinna á Tjarn- arlandi, undanfarin misseri verið greidd of há álagsþóknun fyrir að borða hádegisverð með leik- skólabörnunum. Starfsfólk á Tjarn- arlandi vildi fá sömu greiðslur og þá afturvirkar í ákveðinn tíma. Sveitar- félagið hefur nú lent málinu með starfsfólkinu þar, en ekki er gefið upp í hverju það nákvæmlega felst.    Laus sæti til Egilsstaða er frasi sem hefur öðlast nýja merkingu í hugum fólks eftir að Svandís Svavarsdóttir lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu fyrir nokkrum vikum að sæti hennar í flugvél sem var að lenda á Egils- stöðum losnaði. Við það fékk hún hálshnykk og brá að vonum. Hann er heldur ónotalegur hristingurinn þegar komið er fram af Jökuldals- heiðinni og verið að lækka flugið að vellinum á Egilsstöðum. Væri ráð að hnika flugleiðinni eitthvað til?    Samkvæmt Fasteignamati ríkisins hefur eitt einbýlishús selst á Fljóts- dalshéraði frá áramótum en engin íbúð í fjölbýli. Mikið er búið að byggja undanfarið og talsvert af húsnæði því laust til sölu eða leigu. Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæj- arstjóri á Fljótsdalshéraði, sagði á fundi fyrir nokkrum vikum að bæj- arstjórn hefði frá upphafi gert sér ljóst að ákveðin samkeppni yrði um fólk milli sveitarfélaga á Austur- landi. Spilað hefði verið út frá því. „Ég hef ekki miklar áhyggjur af of- framboði á húsnæði vegna þess að þensluáhrifin eru ekki öll komin fram“ sagði Eiríkur þá. „Við munum áfram njóta þeirra. Við höfum heyrt þetta frá öðrum svæðum, eins og t.d. varðandi járnblendið á Grundar- tanga á Akranessvæði og Borgarnes þar sem þensluáhrifa gætir enn. Mér finnst jákvætt í dag að heyra að hér sé offramboð á húsnæði því yf- irleitt var nú talað um vöntun á því og lóðaskort. Ég hef ekki heyrt fólk hafa sérstakar áhyggjur af of- framboði á húsnæði á Akureyri eða í Reykjavík, þar sem er gríðarlegt framboð. Auðvitað er þetta eitthvað sem verður að koma í ljós en ég hef trú á að ekki sé allt komið enn,“ sagði Eiríkur.    Sveitarfélagið styrkir nú á vorönn Þekkingarnet Austurlands til að halda tölvunámskeið fyrir íbúa sveitarfélagsins sem eru af erlend- um uppruna, þeim að kostn- aðarlausu. Segir á heimasíðu Fljóts- dalshéraðs að námskeiðið sé til að hjálpa þátttakendum við að afla sér upplýsinga um ýmis atriði sem geta verið gagnleg til að aðlagast ís- lensku samfélagi, sem og að geta fylgst með því sem gerist í þeirra heimalandi. Sjötíu og tveir nem- endur geta tekið þátt. Sveitarfélagið hefur einnig komið upp tölvu á Bókasafni Héraðsbúa sem sér- staklega er ætluð erlendum íbúum til upplýsingarleitar.    Í hinu svokallaða Jónshúsi hér í bæ, þar sem býr gamalt fólk og sumt heldur lasburða, hafa lyftuvandræði verið áberandi sem aldrei fyrr. Þetta hefur valdið íbúum endalausum vandræðum og mál til komið að ein- hver gangist við vandanum og láti laga almennilega fyrir fullt og fast svo fólk sitji ekki fast milli hæða. Steinunn Ásmundsdóttir Árvakur/Steinunn Ásmundsdóttir Vetrarveður Snjóbyljir geta gert búðarferð nánast að svaðilför. Erlendur Hansen á Sauðárkrókiyrkir um sviptingar í borginni: Eftir dapra orrahríð aftur kemur betri tíð. Laugavegur lifnar við ljóma slær á íhaldið. Einn af lesendum Vísnahornsins sendi þættinum kvæðið Ráðið eftir Pál J. Árdal, sem honum fannst eiga erindi eftir stjórnmálaumræðu síð- ustu daga og vikna: Ef ætlarðu að svívirða saklausan mann, þá segðu aldrei ákveðnar skammir um hann, en láttu það svona í veðrinu vaka, þú vitir, að hann hafi unnið til saka. En biðji þig einhver að sanna þá sök, þá segðu að til séu nægileg rök, en náungans bresti þú helst viljir hylja, það hljóti hver sannkristinn maður að skilja, og gakktu nú svona frá manni til manns, uns mannorð er drepið og virðingin hans, og hann er í lyginnar helgreipar seldur, og hrakinn og vinlaus í ógæfu felldur, en þegar svo allir hann elta og smá, með ánægju getur þú dregið þig frá, og láttu þá helst eins og verja hann viljir, þótt vitir hans bresti og sökina skiljir. Og segðu hann brotlegur sannlega er en syndugir aumingja menn erum vér, því umburðarlyndið við seka oss sæmir, en sekt þessa vesalings faðirinn dæmir. Svo leggðu með andakt að hjartanu hönd, með hangandi munnvikjum varpaðu önd, og skotraðu augum að upphimins ranni, sem æskir þú vægðar þeim brotlega manni. Já, hafir þú öll þessi happsælu ráð, ég held þínum vilja þú fáir náð, og maðurinn sýkn verði meiddur og smáður, en máske að þú hafir kunnað þau áður. pebl@mbl.is VÍSNAHORNIÐ Af orrahríð og Ráðinu www.ellingsen.is Njóttu frelsis í FleetwoodSantaFe Árgerð 2008 Rafgeymir 12 V 115 amp Heildarlengd 508 cm Heildarbreidd 226 cm Hæð að innan 203 cm Eigin þyngd 805 kg Heildarþyngd 1356 kg Aðrar upplýsingar Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is Opið mánudaga–föstudaga 10–18, laugardaga 10–16 Rúm 196x178 cm Sæti SætiFæranlegt matborð Eldhús Bekkur með útdrægu rúmi Rúm 196x122 cm • Saumlaust Fílon®-þak með sambyggðum Rack Track-teinum, engar berar þéttingar • Vatnsþolnar eldhúsborðplötur með saumlausum köntum • Rafhemlar og 5 bolta nafir • Fjórir stuðningsfætur • Sveif lyftikerfis þægileg í mittishæð • Grjótþolnar TPO-plötur að aftan og framan • Galvaníseraðar hliðarplötur úr stáli • Stálgrind úr holum bitum • E-Z Lube Axle™-öxull og öflugar Slipper-blaðfjaðrir • Álfelgur með krómuðum róm og krómaðri miðju • Gólf og rúmbotnar úr ósamsettum Structurwood-plötum • Þykkir állistar umhverfis vagn eða rúm • „Posi-Lock“-lyftikerfi úr ryðfríu stáli • Hurð með álramma í einu lagi • Undirstöður sæta með máluðum málmramma • Áfastir rúmfætur • Hurðarþrep með innbyggðu geymslurými • Öryggiskeðjur með pósitífri læsingu • Nefhjól sem leggst upp • Varadekk, festing, felgulykill og vínylhlíf fyrir varadekk • Skiptur Sunbrella® 302 tjalddúkur með gluggaflipum • Gagnsæir vínylgluggar • Sandskeifur • Efri eldhússkápar velta ekki en sveiflast með fullri geymslugetu • Djúpur postulínsvaskur • 3 gashellur • 9 kg LP-gaskútur og vínylhlíf fyrir gasgeymi • 80 l vatnsgeymir undir gólfi • Þétt svampdýna með áklæði • 53 l gasísskápur • 25 ampera straumbreytir með hleðslutæki • 12 V rafknúin vatnsdæla • Útiljós á palli • Vatnsþolið matborð með saumlausum köntum • Fóðruð tjöld fyrir gluggum og rúmum • Skrautkappi allan hringinn • Truma®-gashitari • FM/AM-útvarp/geislaspilari Staðalbúnaður Verð 1.520.0 00 kr. Útborg un 3 04.000 kr. Mánað argreið sla miðað við 84 mánuð i Verðdæ mi 18.640 kr. T B W A \R E Y K JA V ÍK \ S ÍA \ 9 0 8 0 1 5 0

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.