Morgunblaðið - 05.02.2008, Page 26

Morgunblaðið - 05.02.2008, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR HVER er hann þessi Litli maður sem mörgum stjórnmálamönnum, auðmönnum og vald- höfum er svona hug- leikinn? Hver er hann þessi stubbur sem er hossað svo djarflega í fangi þeirra sem sækj- ast eftir auði og völdum og telja sig þess um- komin að ákveða hver skuli uppskera og öðl- ast og hver ekki? Þegar kosningar eru í nánd er Litli mað- urinn dreginn fram í dagsljósið og skellt í fangið á framboðsfólki sem rífst um það hvert þeirra ætlar að gera mest fyrir hann. Honum er hossað og klappað og sýnd vorkunn- semi og allir segjast vita um að- stæður hans og hvað hann má þola af óréttlæti og raunum fyrir það eitt að vera svona lítill og máttvana. Hann er jafnvel stundum tuskaður til og sagt að hann reyni ekki sjálfur nógu mikið til að bjarga sér, þrátt fyrir að litli bærinn hans sé umlukinn gaddavírs- girðingum og háum illklífanlegum múrum sem reynist erfitt að komast yfir. Þegar honum tekst að klífa yfir múrinn bíða hans strengja- brúðuverðir sem elta hann eins og hundar, leita í vösum hans og skoða farangurinn hans til að vera vissir um að ekkert sé þar yfir þeim mörkum sem kúgarar hans hafa sett. Þeir vilja eiga hann að þegar í harðbakka slær og þurfa að nota hann í þeim tilgangi að slá á sektarkennd sína út af græðgi vegna auðæfa sinna og valda og blindrar trúar á að þeir verðskuldi svo miklu meiri lífsgæði en aðrir og hafi jafnvel verið sérútvaldir af al- mættinu til að ráðskast með aðra. Aðstæður Litla mannsins eru skapaðar og mótaðar af vilja þessa fólks. Um hans málefni hafa verið búnar til stofnanir og fé- lög sem eru settar skorður og búin til lög og lög þar ofan á og svo reglur og reglugerðir, svo að strengjabrúð- unum sem starfa innan þessa ramma fyrir gráð- uga fólkið sé gert það ómögulegt að skilja nokkuð í þessum frum- skógi reglna og reglu- gerða sem hefur mynd- ast, hvað þá að komast í gegnum hann. Strengjabrúðurnar eru margar líka bara fegnar á meðan einhver tog- ar í strengina þeirra og stýrir þeim áfram og hafa ekki mikla burði til að breyta á meðan þær eru aðeins strengjabrúður. Margar strengja- brúður fá líka umbun fyrir að fara að vilja gráðuga fólksins og er haldið góðum svo þær séu ekki að stíga nein sjálfstæð skref og losa sig við streng- ina. Það eru margar strengjabrúður hræddar við að lenda innan múranna í kringum bæ Litla mannsins. Í bæ Litla mannsins er einmana- legt. Hann er oft veikur og þreyttur. Húsakynnin hans eru léleg og hann er slitinn vegna stanslausra tilrauna til að klífa múrinn og reyna að sækja sér betri vistir og aðbúnað fyrir utan og láta í sér heyra. Það er þó erfitt fyrir hann að fá áheyrn þegar hann er keflaður þegar út kemur og að koma með nokkuð til baka þegar leitað er á honum og allt hirt sem mögulegt er að hann geti nýtt sér til að öðlast meiri kraft og getu til að brjóta niður múrana sem umlykja bæinn hans. Hann fær engin tækifæri. Hann er dæmdur til vistar innan múranna og dæmdur til að búa þar um aldur og ævi á meðan gráðuga fólkið ræður og blekkingin grasserar. En í raun er Litli maðurinn hetja. Hann reynir á sínum veikbyggðu, stuttu fótum að klífa múrinn aftur og aftur og leita að réttlæti. Hann er með ríka réttlætiskennd. Hann vill ekki láta hossa sér. Hann hefur þolað mikið og verið kúgaður og sagðir um hann ljótir hlutir sem eru ósannir. Litli maðurinn býr yfir djúpstæðri visku og þekkingu. Hann er hjarta- hreinn og blíðlyndur. Gráðuga fólkið er í raun hrætt við hann þótt það hossi honum og klappi annað slagið. Það er skíthrætt við það vald sem hann fengi ef hann tæki til máls og múrarnir brystu og strengjabrúð- urnar hlustuðu á hann þegar hann færði rök fyrir sínu máli og leyfði visku sinni að streyma óhindrað. Þau vita nefnilega að hann veit sínu viti og að hann sér í gegnum spillinguna og veit að gráðuga fólkið getur ekki horfst í augu við hann. Það verður flóttalegt ef hann reynir að ná augn- sambandi. Tími Litla mannsins mun koma. Hans tími kemur þegar hver og einn mun horfast í augu við sjálfan sig án þess að líta undan. Litli maðurinn er okkar innri kjarni. Hann er sannleik- urinn. Hver er Litli maðurinn? Litli maðurinn er okkar innri kjarni segir Margrét St. Haf- steinsdóttir Margrét St. Hafsteinsdóttir » Litli maðurinn dreg- inn fram í dagsljósið og skellt í fangið á fram- boðsfólki sem rífst um það hvert þeirra ætlar að gera mest fyrir hann. Höfundur er listakona. STUNDUM er eins og tekist hafi að kæfa alla heilbrigða hugsun og all- ar mannlegar tilfinningar gagnvart þeirri hálfri annarri milljón manna, sem innilokaðar eru á því landsvæði sem kallað er Gaza í útjaðri Palest- ínu. Í morgunfréttum Rúv. 20. jan. var sagt frá aðflutningsbanni Ísraels á allar nauðsynjar til svæðisins. Þar kom fram að raforkufram- leiðsla væri að stöðvast af þeim sökum og síðan bætt við fréttina, að óvíst væri hvaða áhrif það hefði. Þarna er ver- ið að tala um tíu sinnum fleira fólk en býr í Reykjavík. Já, hvaða áhrif skyldi það hafa ef Reykvíkingar hættu að fá rafmagn? Ætli það væri nokkuð léttbærara þó þeir væru tífalt fleiri? Kannski er þetta meðvituð tilraun fréttamanns til að vekja íslensk stjórnvöld? Stundum getur ein heimskuleg spurning vakið meiri og heilbrigðari viðbrögð, en löng og gáfuleg ræða. Þó mörgum kunni að þykja það heimskulegt, þá verð ég að játa að ég þjáist á hverjum degi út af sam- ábyrgð okkar Íslendinga á þeim voðaverkum sem hernámsþjóðin heldur þarna áfram. Um langt árabil hef ég orðið þess var, að ef ráðamenn í Ísrael gefa grænt ljós á samningaviðræður er sérstök ástæða að óttast framferði þeirra. Það fór hálfgerður hrollur um mig á dögunum þegar Bush lýsti því yfir að þeir þyrftu að sjálfsögðu að skila herteknu svæðunum. Enda var þá stutt í loftárásir. Hversu oft hefði hann ekki getað verið búinn að krefjast þess í alvöru? Og þvílík er snilli gyðinga í áróðri, að heimurinn virðist trúa því að þeir séu einlægir friðarsinnar og vilji í al- vöru bjóða fram sættir, þó þeir drepi tugi manna í loftárásum um leið og fyrsta samningalotan er búin, eða var það á meðan hún stóð yfir? Var það ekki hryðjuverk? Lengi vel var líkast því að sjálfs- morðsárás inn í Ísrael kæmi eins og eftir pöntun, ef búið var að koma viðræðum af stað. Það hefur raunar ekki farið dult að þeim hefur tekist að kljúfa palestínsku þjóðina upp í andstæðar fylkingar. Hamas-samtökin, sem meira en helm- ingur þjóðarinnar styð- ur, hefur verið skil- greindur sem hryðjuverkasamtök, yf- irráðasvæði þeirra óvinaland. En hver úr- skurðaði það? Spyrja má, voru ekki öll samtök á móti hernámsliði Þjóð- verja í grannlöndum okkar í heims- styrjöldinni síðari hryðjuverka- samtök? Þetta er ferli sem Zionistar þurfa að hafa í gangi til þess að ná mark- miðum sínum, að sundra og dreifa frumbyggjum landsins og innlima síðan alla Palestínu. Þeir vita hvað þeir vilja, og þeir eru í stríði, og stríð kostar mannfórnir. Eftir því sem heimurinn hjálpar þeim lengur að þjarma að Palest- ínumönnum verður mannfallið hlut- fallslega minna þeirra megin. Fyrir u.þ.b. áratug var hlutfallið 1:4,5. Ári 2006 var það 1:30, í fyrra var það svo 1:40, en þessa síðustu daga er hlut- fallið 0:39 skv. fréttum. Þær meintu ógnir af eldflaugum, sem eru taldar ástæðan fyrir þessum seinustu aðgerðum, eru einhvers kon- ar fálm örvita fólks, (líkt og grjótkast barna) sem eiga þá eina hugsun eftir að deyja frekar en kyssa vönd þeirra harðstjóra sem alla ævi hafa rænt það landi þeirra og mannréttindum. Sennilega eru þessi skeyti frekar í ætt við pappírsflugdreka en vopn og gætu auk þess verið send af flugu- mönnum, eftir pöntun frá Ísrael. Það er fátt hættulegra fyrir ein- staklinga og þjóðir en að fá þau skila- boð frá umhverfi sínu eða meintum vinum, að þeir séu hafnir yfir lög og rétt og hafi eindæmi yfir þeim sem þeir þurfa að losna við. Þess háttar skilaboð höfum við Ís- lendingar, eins og allar aðrar vest- rænar þjóðir, sent gyðingum með því að slíta engin vináttusambönd eða viðskipti, þó þeir hafi hunsað fjölda- margar samþykktir Sameinuðu þjóð- anna. Vonandi skilst okkur sem fyrst, að við erum ekki eingöngu að bregðast Palestínumönnum með þessu af- stöðuleysi, ekki síður erum við að bregðast Ísraelsmönnum. Hverjir hafa frekar möguleika á frumkvæði í þessu máli en við Íslend- ingar? Hvar eru mörkin sem við setj- um fyrir stuðningi við Ísrael? Gleymum ekki, að þögn er sama og samþykki. Því vænti ég að skilaboðin sem ut- anríkisráðherra okkar sagðist, í sjón- varpsviðtali 21. janúar, ætla að flytja ríkisstjórn Ísrael, hafi verið tæpi- tungulaus. Hvar eru mörkin? Sævar Sigbjarnarson skrifar hugleiðingu um ástandið á Gaza »…við erum ekki ein- göngu að bregðast Palestínumönnum með þessu afstöðuleysi, ekki síður erum við að bregð- ast Ísraelsmönnum. Sævar Sigbjarnarson Höfundur er félagsmálamaður og fv. bóndi frá Rauðholti. Hann birtist við hliðið á Ljótsstöðum, svipbjartur maður með rauðbrúnt, þykkt og liðað hár. Augun sterk og fram- koman minnti á persónu úr skáld- sögu eftir föðurbróður hans, Gunnar Gunnarsson. Þarna sá ég Sigurjón fyrst – í heimsókn með Elínborgu og Friðmari frá Tungu í Fáskrúðsfirði til systur þeirra Ragnhildar sem var nýgift Gunnari, elsta syninum á Ljótsstöðum. Heimsóknin að Ljótsstöðum var ævintýraleg, heimilið iðandi af lífi og fjöri. Spriklandi lax, sóttur í bæjar- ána á hádegisverðarborðið, heimilis- faðirinn Sigurður við borðsendann, líkur ættarhöfðingja með ellefu börn í föðurhúsum. Útreiðartúr á sunnu- degi um Vopnafjarðarsveitir. Auðvitað fylgdist unglingsstelpan með hve vel Sigurjón og Elínborg náðu saman. Þau klæddu hvort ann- að, bæði sprottin upp úr fögrum fjallahring Austfjarða, með svipaða lífssýn – hugsjónafólk. Svipmynd frá Ási: Sigurjón mætt- ur, spariklæddur. Elínborg að koma úr kennslunni, í svartri glanskápu, með regnúða í rauðbrúnu lokkunum. Blikið í augum beggja leyndi sér ekki. „Þú leyfir þeim að vera í friði,“ sagði Oddný móðir mín og bauð þeim til stofu. Þau giftu sig stuttu síðar og leituðu að jarðnæði líkt og bændur fyrri tíma. Syðra Hvarf í Skíðadal varð fyrir valinu og dalurinn varð ríkari af mannauði. „Þar streymdi hamingjan til okkar niður fjallshlíð- arnar,“ segir Elínborg. Austfirsku hjónin urðu fljótt eins Sigurjón Sigurðsson ✝ Sigurjón Sig-urðsson fæddist á Ljótsstöðum í Vopnafirði 4. mars 1925. Hann lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 6. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dalvík- urkirkju 12. janúar. og innfæddir Skíðdæl- ingar, mörkuðu spor í menningar- og fé- lagslíf, tóku þátt í sjálf- boðavinnu af lífi og sál. Gamla skátaheimilið á Dalvík breyttist í fé- lagsheimilið Mímis- brunn, sem auðgaði menningarlíf byggðar- innar – og endurbyggð Vallakirkja reis úr brunarústum. Sigur- jón steypti stjörnur í kirkjuhvelfinguna, en stjörnur Sigurjóns prýða nú kirkjur víða um landið. Kórastarf og söngur í Mímiskór og kirkjukór Vallakirkju var annar sam- eiginlegur vettvangur. Gaman var að heimsækja hina tón- elsku fjölskyldu í dalnum, Elínborg settist gjarnan við orgelið – og Sig- urjón var alltaf til í fjallgöngur, að sýna góðar berjalautir og villtan gróður. Glöggur náttúruunnandinn gerði sér góða grein fyrir samspili jarðargróðurs og veðráttu. Í Hjalta- staðadal fann hann steingervinga með ummerki hitabeltisgróðurs og í garðinum heima gerði hann tilraunir með trjárækt með snjóalög í huga. Eitt haustið kom hann með af- leggjara af blæösp sem gekk erfið- lega að festa rætur sunnanlands, en hann færði mér þá aðra þrjá. Þurrk- að villiblómaseyði úr Skíðadalnum minnir líka á Sigurjón. Á haustdögum hljómaði rödd Sig- urjóns í símanum: Nú eru berin alveg að verða þroskuð! Oft var stefnt í berjamó norðan heiða með heilræði hans í farteskinu. Hann var meiður af bændastétt, eins og þær gerast best- ar, lánsamur að verða aldrei gamall, alltaf léttur á fæti og fullur lífsorku. Kæra Elínborg. Megir þú áfram njóta „gullkistu fegurðar“ eins og Ás- grímur Jónsson sagði um Skíðadal- inn – og vonandi á blæösp Sigurjóns eftir að syngja hér sunnan heiða, minna á austfirska öðlinginn sem festi rætur í norðlenskri mold. Oddný Sv. Björgvins. Það er með söknuð í hjarta sem ég sest nið- ur og skrifa nokkrar línur til að minnast þín, Sigga mín. Ég man alltaf hvað þú varst hress, sama hvað við strákarnir gerðum. Þegar við komum saman til að skemmta okkur var það oft sem þú settist hjá okkur og tókst þátt í skemmtuninni. Ég held ég geti aldrei gleymt hversu glatt þú hlóst þegar þú komst að okkur Bjössa koma inn í bústað- inn eldsnemma morguns eftir að hafa labbað alla leið frá Grundar- firði, því við höfðum enga trú á því að nokkur maður gæti verið edrú í hús- inu. Þú stríddir okkur í nokkur ár eftir þessa göngu. Sigga, ég vil láta þig vita að þú þarft ekki að hafa áhyggjur af hon- um Bjössa þínum því við strákarnir lítum á hann sem bróður okkar og Sigríður Björnsdóttir ✝ Sigríður Björns-dóttir fæddist í Seli í Grímsnesi 8. september 1940. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Suð- urnesja 21. janúar síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Keflavík- urkirkju 28. janúar. gerum hvað sem er fyrir hann. Ég vil þakka þér, Sigga mín, fyrir allar samverustundirnar sem við áttum saman. Elsku Bjössi, Ásdís og aðrir aðstandend- ur, ég sendi ykkur innilegar samúðar- kveðjur Haukur. Þú ert ljúf og yndisleg, manneskja og vinur. Við söknum þín. Saman áttum stundir góðar, í vinahóp og víðar þú gengur nú á englafund og móttökur færð blíðar Við trúum því. Bænin okkar er svo sú að góður Guð þig geymi, gæska þín og viðmót hlýtt var slíkt að enginn gleymir. Elsku Sigga, við kveðjum þig nú að sinni og óskum þér góðrar heim- komu. Takk fyrir allar góðu stund- irnar. Sendum öllum ættingjum samúð- arkveðjur og Guð gefi þeim líkn með þraut. Þínir vinir, Margrét og Þórður. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar UMRÆÐAN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.