Morgunblaðið - 05.02.2008, Qupperneq 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HVAÐ
EIGUM VIÐ
AÐ GERA?
ÉG ÆTLA AÐ
FARA MEÐ ÞIG Á
ÍTALSKAN
VEITINGASTAÐ
SÍÐAN GETUM VIÐ
FARIÐ Á SÆDÝRASAFNIÐ
ÞETTA ER
KÆRASTAN
MÍN...
ÞÚ ÞARFT
AÐ FINNA
ÞÉR NÝJA
JÆJA...
ÞÁ ER
MATURINN
BÚINN
ÞAÐ ER GOTT AÐ
FINNA FYRIR SVONA
ÖRYGGISKENND
Á SAMA TÍMA Á MORGUN
FÆ ÉG AFTUR KVÖLDMAT
OG DAGINN EFTIR
ÞAÐ FÆ ÉG AFTUR
KVÖLDMAT Á SAMA TÍMA
GEFÐU MÉR SMÁKÖKUR
EÐA ÉG KASTA ÞESSARI
VATNSBLÖÐRU Í ÞIG!
EKKI HÓTA MÖMMU ÞINNI!
OG EKKI LÁTA ÞÉR DETTA
ÞAÐ Í HUG AÐ KASTA
ÞESSARI BLÖÐRU HÉRNA
INNI!
ÚT!
ÚT!
ÉG ER VISS UM AÐ ÉG
HEFÐI FENGIÐ SMÁKÖKUR
EF ÉG HEFÐI SETT
MÁLNINGU Í
BLÖÐRUNA
ÉG LEGG AF STAÐ TIL
ENGLANDS Í LEIT AÐ
FRÆGÐ OG FRAMA!
ÉG LEGG AF STAÐ TIL
ENGLANDS Í LEIT AÐ
FRÆNKU MINNI, FRÍÐI!
HVAÐ? ÞAÐ ER SVO LANGT
SÍÐAN ÉG HEIMSÓTTI HANA
AÐ ÉG ER BÚINN AÐ GLEYMA
ÞVÍ HVAR HÚN Á HEIMA
ÞETTA VAR
FRÁBÆR
HUGMYND,
TONTO! ÞAÐ Á
ENGINN EFTIR AÐ
ÞEKKJA OKKUR
Í ÞESSUM
DULARGERVUM
ÚGH!
KRAKKARNIR ERU HLAUPANDI
UPP UM ALLA VEGGI! ÞAÐ ER EINS
GOTT AÐ SKÓLARNIR BYRJA
Á MORGUN!
NEMA ÞAÐ
VERÐI KENNARA-
VERKFALL
ÞAÐ Á
EKKI EFTIR
AÐ VERÐA
NEITT
VERKFALL!
ÞEIR ERU
EKKI ENNÞÁ
BÚNIR AÐ
SEMJA...
AF HVERJU
ERTU SVONA
VISS?
ÞEIR MEGA
EKKI FARA Í
VERKFALL!
MAMMA!
ÞÚ BJARGAR ÞÉR EKKI MEÐ
ÞVÍ AÐ HREYFA ÞIG...
ÉG GET EKKI
PLATAÐ ÞIG
ÁÐUR EN ÉG GERI ÞETTAÉG GERÐI ÞETTA REYNDAR
BARA TIL AÐ FÆRA MIG
FRÁ NÖRNU...
dagbók|velvakandi
Hafa skal það
sem sannara reynist
Í frétt í Morgunblaðinu sunnudag-
inn 3. febrúar sl. hefur Magnús
Jónasson yfirlæknir ekki rétt eftir
mér. Orðrétt skrifaði ég: „Vegna
tíðra innlagna útaf hjartabilun, nú
síðast um sl. helgi, með vatn í
lungum, vonaðist ég til að komast
enn einu sinni í endurhæfingu
hjartasviðs Reykjalundar.“ Rétt
er að ég var á Reykjalundi fyrir
u.þ.b. tveimur árum. Frá þeim
tíma hef ég margoft legið á
hjartadeild Landspítalans, nú síð-
ast í október sl. Nú bíð ég bara
eftir að hringt verði í mig og mér
boðið pláss á Reykjalundi fyrst
Magnús kannast ekki við að hafa
sagt að ég væri orðin of gömul
fyrir dvöl þar.
Og með þessum orðum lýkur
skrifum mínum um Reykjalund og
bið ég staðnum Guðs blessunar og
sendi kveðju til Magnúsar með
von um að hann geti í framtíðnni
staðið við orð sín.
Farnist honum vel.
Svanfríður Guðrún Gísladóttir.
Nýja lyfið Tysabri við
MS sjúkdómnum
Ég á son sem hefur greinst með
MS sjúkdóminn. Hann hefur alla
tíð verið hraustur og dugmikill til
vinnu enda fyrir stórri fjölskyldu
að sjá. Hann hefur fengið lyf þar
sem hann sprautar sig sjálfur en
samt sem áður hefur hann fengið
nokkur köst eins og það er kallað,
þá liggur leiðin á spítalann til að
fá stera í æð til að minnka dofa og
bólgur sem koma við þessi köst.
Hann hefur verið nokkuð heppinn
hingað til því köstin hafa gengið
að mestu til baka þó dofinn, þreyt-
an og máttleysið sé alltaf til stað-
ar.
Hann er einn af þeim sem bíða
eftir því hvort hann sé einn af
þessum 50 sjúklingum sem skv.
nýjustu fréttum fái nýja lyfið Ty-
sabri.
Er furða þó fólk spyrji afhverju
það séu aðeins 50 manns sem fái
lyfið þegar það gæti bjargað
heilsu fjölda þeirra sem eru með
þennan sjúkdóm? Getur það verið
kostnaðurinn? Ef svo er þá langar
mig að vita hvort þeir sem fjár-
magninu ráða geri sér ekki grein
fyrir því að þegar fólk dettur út af
vinnumarkaði og getur ekki leng-
ur séð sér og sínum farborða,
hvort það sé ekki dýrara fyrir
samfélagið þegar upp er staðið,
fyrir utan alla þá þjáningu sem
sjúklingurinn og fjöldskyldan líður
vegna þess. Ég skora á þá sem
fara með þessi mál að sjá til þess
að allir þeir sem þurfa fái þetta
nýja lyf Tysabri.
Áhyggjufull móðir og amma.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Það er eins gott að kuldaeinangrunin sé í lagi þegar synt er í 15 stiga
frosti. Ljósmyndari Árvakurs tók þessa mynd uppi í Heiðmörk um helgina,
en líkast til eru þetta stálpaðir ungar frá síðasta sumri.
Árvakur/Ómar
Bað í 15 stiga frosti
FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGSFYRIRLESTUR
Kennaraháskóla Íslands ber yf-
irskriftina Öðruvísi fólk, annars
konar miðlar. Þar fjallar Stefán
Jökulsson lektor um hlutverk fjöl-
miðla í fjölmenningarsamfélögum.
Hann veltir upp þeirri spurningu
hvort tekist hafi að skapa fjölmiðla-
umhverfi sem hæfir slíkum sam-
félögum og þeim margbreytileika
sem einkennir þau. Hvernig þjóð-
arfjölmiðlar geti lagt sitt af mörk-
um við breyttar aðstæður og
hversu mikilvægt er að minni-
hlutahópar reki eigin fjölmiðla.
Jafnframt verður vikið að hugtak-
inu verulíki (representation), sem
snertir efnisval og efnistök fjöl-
miðla, og námsgreininni táknvísi
(media literacy) sem getur ýtt undir
gagnrýna hugsun og fjölskrúðuga
framleiðslu fjölmiðlaefnis.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og
fer fram í Bratta, fyrirlestrarsal í
Skriðu, við Kennaraháskóla Íslands
miðvikudaginn 6. febrúar kl. 16.
Öðruvísi fólk,
annars konar miðlar
HRAFNAÞING – fræðsluerindi
Náttúrufræðistofnunar Íslands
verður haldið miðvikudaginn 6.
febrúar kl. 12.15 í Möguleikhúsinu
við Hlemm.
Þröstur Þorsteinsson, jarðeðl-
isfræðingur við Jarðvísindastofnun
Háskóla Íslands, flytur erindi um
mestu sinuelda sem þekktir eru á
Íslandi. Í Mýraeldum brann alls 73
ferkílómetra landsvæði á þremur
dögum, frá 30. mars til 1. apríl.
Fylgst var með framvindu eldanna
meðan á þeim stóð, en auk þess var
stuðst við gervitunglamyndir til
frekari rannsókna. Þröstur mun
fjalla um niðurstöður þessara rann-
sókna og í lokin segja frá öðrum
bruna sem varð á Miðdalsheiði í
júní 2007.
Nánari umfjöllun um erindi
Þrastar er á heimasíðu Nátt-
úrufræðistofnunar á slóðinni
www.ni.is
Útbreiðsla og ákafi Mýraelda