Morgunblaðið - 05.02.2008, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 05.02.2008, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGANUM SÝND Í REGNBOGANUM NÚ VERÐUR ALLT VITLAUST! ÓTTINN BREYTIR ÖLLU! “... trúlega besta Stephen King mynd í tæpan áratug.” T.V. - Kvikmyndir.is MISTRIÐSÝND Í REGNBOGANUM EITTHVAÐ SKELFILEGT ER Á SVEIMI! STÆRSTA JANÚAROPNUN SÖGUNNAR Í BANDARÍKJUNUM! SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI  - Ó.H.T., RÁS 2  - B.S., FBL  - S.V., MBL SÝND Í SMÁRABÍÓI Nú mætast þau aftur! Tvö hættulegustu skrímsli kvikmyndasögunnar í tvöfalt betri mynd! Missið ekki af einum flottasta spennutrylli ársins!! - HJJ, Mbl  - MMJ, Kvikmyndir.com FERÐIN TIL DARJEELING SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI - H.J. , MBL FYRST RAY, SÍÐAN WALK THE LINE...NÚ ER KOMIÐ AÐ DEWEY COX !! FRÁ GAURNUM SEM FÆRÐI ÞÉR KNOCKED UP, SUPERBAD OG TALLADEGA NIGHTS SÝND Í SMÁRABÍÓI - Kauptu bíómiðann á netinu - * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu 450 KRÓNUR Í BÍÓ* Aliens vs. Predator 2 kl. 8 - 10:10 B.i.16 ára Alvin og íkornarnir ísl. tal kl. 4 - 6 Walk hard kl. 6 - 8 - 10 B.i. 14 ára The Darjeeling Limited kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára Brúðguminn kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára The Golden Compass kl. 5:30 - 8 B.i. 10 ára The Mist kl. 10:30 B.i. 16 ára Walk hard kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i.14 ára Cloverfield kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i.14 ára Brúðguminn kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára Brúðguminn kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Smárabíó Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Sími 462 3500 Sími 564 0000 Sími 551 9000 SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI  DÓRI DNA, DV  - V.I.J., 24 STUNDIR  - S.V, MBL Brúðguminn kl. 6 - 8 B.i. 7 ára Atonement kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára Cloverfield kl. 6 - 10 B.i. 14 ára - Kauptu bíómiðann á netinu - Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! Þegar öfgarnar ná tökum á mérþá finnst mér myndlist-arheimurinn hreinlega vera samansafn af hálfvitum. Og ég hef engan áhuga á því að fá milljónir manna í röð að skoða þetta dót. Af hverju ættu þær að gera það? Þetta kemur þeim lítið sem ekkert við. Að ætlast til að þetta njóti vinsælda er ómögulegt. Það er afskaplega lítið í þessu að hafa fyrir gríðarlegan fjölda áhorfenda og ég held að sá fjöldi sé búinn að komast að því. Hann hefur í raun engan áhuga, flýt- ur bara með straumnum, með vit- leysunni.“    Þannig komst breski myndlist-armaðurinn og -rýnirinn Matt- hew Collings að orði í tímaritinu 3:AM árið 2002, í þýðingu undirrit- aðs. Þeir sem lesið hafa greinar Coll- ings um myndlist vita að hann er af- ar stórorður og gerir jafnvel í því að fá menn upp á móti sér með tali eins og þessu. Collings þorir að segja það sem hugurinn býður honum, þorir að rugga hinum risastóra báti mynd- listarheimsins og þeirra fínu herra sem ráða öllu um borð. Collings heldur áfram, segir skipuleggjendur Turner-verð- launanna, fjölmiðlamenn á bresku sjónvarpsstöðinni Channel 4 (þar sem hann var með sjónvarpsþætti fyrir nokkrum árum) og millistétt- arfólkið sem skrifi greinar í blöðin, gera ráð fyrir að hinn venjulegi maður þurfi að láta útskýra sam- tímalist fyrir sér. Hvatningin að baki því sé „algjört kjaftæði“ því allt sé þetta gert í gróðaskyni, til að færa einhverjum tekjur, auka áhorf sjón- varpsstöðva eða lestur dagblaða. Ég er auðvitað ekki sammála þessari skoðun Collings, ef ég væri það gæti ég allt eins sagt starfi mínu lausu. Ég ætla í það minnsta að vona að fólk hafi áhuga á samtímalist og lesi greinar um hana. Vonandi.    Það sem Collings hefur hins vegargert öðru fremur á sínum ferli er að reyna að einfalda hlutina, svipta hulu hins heilaga af myndlist- inni, afhelga hana, útskýra hlutina á mannamáli. Óbærilegt orðskrúð og illskiljanlegar langlokur um inni- hald verka há oft nútímamyndlist og eiga það jafnvel til að skemma fyrir áhorfendum hvað varðar upplifun á verkum. Þá verða menn eins og Coll- ings nauðsynlegir, menn sem tala mannamál. „Ég er ekki skrítinn. Ég tala bara venjulega,“ sagði Collings í Guardian í fyrra. Góður frasi það.    Gott dæmi um mannamál Collingsí listaumræðu er grein sem birtist 28. janúar sl. í breska dag- blaðinu Times. Þar er Collings ekk- ert að skafa utan af því, frekar en venjulega, einmitt það sem gerir skrif hans svo skemmtileg. Greinin hefst þannig: „Kanntu að meta af- þreyingu fyrir unglinga? Ertu með greind unglings? Finnst þér Céz- anne ofmetinn? Ef þú svaraðir öllum spurningunum játandi þá veit ég ekki hvað ég á að gera við þig. Þú ert barnalegur, menningarsnauður bókstafsmaður.“ Collings hvetur svo hinn barna- lega til þess að fara í uppboðshúsið Bonhams í Lundúnum, þar sem hald- ið verður í dag uppboð á götulist, seld verk eftir Banksy, Keith Har- ing, Jean-Michel Basquiat o.fl. Coll- ings viðurkennir reyndar að Bas- quiat hafi haft listræna hæfileika en bætir við að allir hinir séu hundleið- inlegir, verk Banksy hafi ekki meira gildi en brandari.    Þó menn eins og Collings séu eiturí beinum margra þá eru þeir bráðnauðsynlegir til að hleypa af stað umræðu og illu blóði í menn, fá smá roða í kinnarnar. Gaman væri ef íslenskur Collings stigi fram og færi að skrifa um listir í blöðin. Hve- nær sá maður seinast slík skrif í ís- lensku dagblaði? Hvað ætli Collings myndi endast lengi í starfi á íslensku dagblaði? Myndi hann þola blogg- árásirnar? Collings minnir mig um margt á Hannes Hólmstein Gissurarson, þann ágæta sjálfstæðismann. Þó maður sé sjaldnast sammála honum í einu og öllu þá er alltaf gaman að sjá hann espa menn upp í fjölmiðlum. Það vantar íslenskan Collings til að hleypa smá fjöri í listumræðuna. Íslenskur Collings óskast » „Ég er ekki skrítinn.Ég tala bara venju- lega,“ sagði Collings í Guardian í fyrra. Umdeildur Collings veit sínu viti um myndlist en það eru sannarlega ekki allir sammála honum. Hér sést hann á kápu bókar sinnar It Hurts. helgisnaer@mbl.is AF LISTUM Helgi Snær Sigurðsson BANDARÍSKA táningapopp- stjarnan Hannah Montana nýtur gríðarlegra vinsælda í Norður- Ameríku ef marka má aðsókn á tón- leikamyndina Hannah Montana & Miley Cyrus: Best of Both Worlds í Bandaríkjunum og Kanada. Myndin er í þrívídd. Montana heitir réttu nafni Miley Cyrus og er 15 ára gömul en Disney fyrirtækið framleiðir þættina um Hönnuh Montana og á því heiðurinn af sköp- un persónunnar. Kvikmyndin um táningsstjörnuna skilaði 29 milljónum dollara í af- greiðslukassa kvikmyndahúsa í Norður-Ameríku um liðna helgi, eða um 1.879 milljónum króna, skv. gengi gærdagsins. Hafa ber í huga að miðaverð á myndina var hærra en á aðrar myndir út af þrívíddartækninni. Í öðru sæti er hryllingsmyndin The Eye, 27 Dresses í því þriðja, Juno í því fjórða og Meet the Spartans í því fimmta. Reuters Vinsæl Táningastjarnan Miley Cy- rus, betur þekkt sem persónan Hannah Montana. Hannah Montana á toppnum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.