Morgunblaðið - 05.02.2008, Síða 41

Morgunblaðið - 05.02.2008, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 41  "VEL SPUNNINN FARSI" "...HIN BESTA SKEMMTUN." HEIÐA JÓHANNSDÓTTIR  „...EIN SKEMMTILEGASTA GAMANMYND SEM ÉG HEF SÉÐ Í LANGAN TÍMA...“ „...HENTAR FÓLKI Á ÖLLUM ALDRI - FRÁBÆR SKEMMTUN!“ HULDA G. GEIRSDÓTTIR – RÚV/RÁS2 SÝND Í KRINGLUNNI EITTHVAÐ SKELFILEGT ER Á SVEIMI! TOM HANKS, JULIA ROBERTS OG PHILIP SEYMOR HOFFMAN FARA Á KOSTUM Í ÞESSARI GAMANSÖMU MYND SEM BYGGÐ ER Á RAUNVERULEGUM ATBURÐUM. TILNEFND TIL ÓSKARSVERÐLAUNA. SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI  - S.V, MBL  DÓRI DNA, DV  - V.I.J., 24 STUNDIR STÆRSTA JANÚAROPNUN SÖGUNNAR Í BANDARÍKJUNUM! SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI SÝND Í KRINGLUNNI 7TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNABESTAMYND - BESTILEIKARI ÍAÐALHLUTVERKI SÝND Í KRINGLUNNI  - S.V. FRÉTTABLAÐIÐ SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSI Nú mætast þau aftur! ÁST. SKULDBINDING. ÁBYRGÐ. HANN HLEYPUR FRÁ ÖLLU! SÝND Á SELFOSSI SÝND Á SELFOSSI BRÚÐGUMINN kl. 8 B.i. 7 ára ALIENS VS. PRETADOR kl. 10:10 B.i. 16 ára BUTTERFLY ON A WHEEL kl. 8 B.i. 16 ára RUN FATBOY RUN kl. 10:10 LEYFÐ / SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI SWEENEY TODD kl. 8 - 10:20 B.i.16 ára DEATH AT A FUNERAL kl. 8 B.i.7 ára CHARLIE WILSON'S WAR kl.10 B.i.12 ára VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á UNTRACEABLE kl. 8 - 10:10 B.i.16 ára BRÚÐGUMINN kl. 8 B.i. 7 ára ALIENS VS. PRETADOR kl. 10:10 B.i.16 ára  „ Charlie Wilson’s War er stórskemmtileg og vönduð kvikmynd - V.J.V., TOPP5.IS „Myndin er meinfyndin“ „Philip Seymour Hoffman fer á kostum í frábærri mynd“ - T.S.K. 24 STUNDIR  „Sérlega vel heppnað og meinfyndið bandarískt sjálfsháð...“ Ó.H.T., RÚV/Rás 2 02.02.2008 3 7 10 34 36 9 8 1 8 3 1 7 4 8 5 38 30.01.2008 15 21 32 39 46 47 364 38 Eftir Kristínu Bjarnadóttur kb.lyng@gmail.com ALÞJÓÐLEGU kvikmyndahátíðinni í Gauta- borg er lokið. Á hátíðinni sem hófst 25. janúar hafa alls verið sýndar 450 kvikmyndir frá 67 löndum á um 750 sýningum á þeim tíu dögum sem hátíðin hefur staðið. Kvikmynd Guðnýjar Halldórsdóttur Veðramót var eina íslenska kvikmyndin sem almennum gestum bauðst að sjá á hátíðinni í ár, nokkuð sem kann að þykja athyglisvert í ljósi þess að talað er um að kvik- myndasumarið sé gengið í garð á Íslandi. Hvað kemur til? Þegar spurningin er lögð fyrir fram- kvæmdastjóra hátíðarinnar, Marit Kapla, gefur hún skýrt í skyn að það sé síður en svo verið að loka dyrunum á íslenska kvikmyndagerð. „Við viljum gjarna sýna íslenskar myndir. Málið er að okkur býðst ekki alltaf að sýna þær myndir sem við óskum eftir, þar erum við algerlega háð því hvernig kvikmyndaframleiðendur forgangs- raða.“ Einstakt tækifæri Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvik- myndamiðstöðvar, sem sótti hátíðina að vanda, útskýrir að það kunni að vera aðrar hátíðir sem valdar séu framyfir, því A-hátíðir taka yfirleitt ekki á móti myndum sem búið er að sýna utan heimalandsins. En framleiðendur geta hins- vegar valið að sýna á lokuðum sýningum innan Gautaborgarhátíðarinnar, þ.e.a. á Norræna kvikmyndamarkaðinum (Nordic Film Market), kynningardeild innan hátíðarinnar. Í þeirri deild eru bæði kynntar norrænar myndir sem eru á almennum sýningum hátíðarinnar og aðr- ar sem eru aðeins á sýningum lokuðum almenn- ingi og fjölmiðlafólki. Þar mæta ýmsir alþóðleg- ir aðilar úr kvikmyndaheiminum, ekki síst fulltrúar annarra hátíða allt frá Argentínu og Ástralíu til Kanada og Rússlands auk margra Evrópulanda. Meðal þeirra var Maurizio Di Ri- enzo fulltrúi kvikmyndahátíðarinnar Locarno í Swiss, sem kvaðst vera hér í annað sinn, því þetta væri í rauninni einstakt að ein fimm lönd sameinuðust um markaðinn. Það væri frábært að geta komið og kynnt sér myndir Norð- urlanda á einum og sama staðum. Líður að Sveitabrúðkaupi Veðramót sem í allt var sýnd þrisvar sinnum á hátíðinni, var um leið kynnt í markaðs- deildinni norrænu, og var Guðný Halldórsdóttir leikstjóri og handritshöfundur ásamt framleið- anda, Halldóri Þorgeirssyni, á staðnum. En á lokuðum sýningum voru Astrópía og heimild- armyndin Syndir Feðranna kynntar, og fulltrú- ar frá framleiðslufyrirtækinu Köggull og TC film voru Bergsteinn Björgúlfsson og Hrönn Kristinsdóttir. Alls voru því á ferðinni þrjár ís- lenskar myndir af þeim sjö bíómyndum sem frumsýndar voru árið 2007. Innan Norræna markaðarins eru einnig kynnt verk í vinnslu og var Valdís Óskarsdóttir mætt ásamt fylgdarliði, að kynna myndina Sveitabrúðkaup, frumraun sína sem leikstjóri. Sýnt var atriði úr myndinni og Valdís sagði frá tilurð myndarinnar og vinnu- aðferðum, meðal annars samvinnu sinni við leik- hópinn Vesturport. Einnig voru fjórir framleið- endur myndarinnar á staðnum, Guðrún Edda Þórhannesdóttir, Hreinn Beck, Árni Filipp- usson og Davíð Óskar Ólafsson, en myndin verður frumsýnd 28. ágúst næstkomandi. Þá eru ónefndar myndir styrktar af Norræna kvikmyndasjóðnum þar sem Ísland leggur einn- ig sitt af mörkum. Tvær slíkar heimildarmyndir var að finna í sænsku deild hátíðarinnar: Det svider i hjärtat eftir Oscar Hedin, sem frum- sýnd var í Svíþjóð 19. október s.l., og Motstånd- are till Längtan eða Andstæðingur dagdrauma, sem var frumsýnd á hátíðinni og lýsir lífi og starfi ljósmyndarans og lífslistakonunnar Mari- anne Greenwood, eftir Titti Johnson og Helga Felixson. Að Gautaborg lokinni Kristín Bjarnadóttir Hópurinn Aðstandendur myndarinnar Sveitabrúðkaup, á Nordic Film Market: f.v. Guðrún Edda Þórhannesdóttir, Hreinn Beck, Davíð Óskar Ólafsson, Árni Filippusson og Valdís Óskarsdóttir. Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is SIR DAVID Attenborough, rithöfundur og sjónvarpsmaður heimsækir Ísland í haust, og heldur hér fyrirlestur. Bókaútgáfan Opna hefur geng- ið frá útgáfusamn- ingi við Attenbor- ough um útgáfu á bók hans Life in cold blood sem fjallar um salamöndrur, eðlur, skjald- bökur, snáka, slöngur og fleiri frænd- ur þeirra af köldu blóði, en heimsókn hans verður í tengslum við útgáfu bókarinnar á íslensku. „David Atten- borough er sérstaklega stórt nafn á Íslandi,“ segir Sigurður Svavarsson, annar eigenda Opnu. „Þegar hann kom hingað síðast, árið 2003, hélt hann opinn fyrirlestur, eins og hann mun gera í haust. Þá sprakk Salurinn í Kópavogi, það var biðröð kringum húsið og hundruð manna urðu frá að hverfa. Fyrir okkur, þetta nýstofnaða forlag, er þetta því mjög skemmti- legt.“ Sigurður, sem skipulagði síðustu heimsókn Attenboroughs hingað, segir það mikla viðurkenningu á því hvers hann meti Ísland, að hann komi hingað 82 ára að aldri og haldi opinn fyrirlestur. „En við þurfum að finna stærra húsnæði. Það er alveg ljóst.“ Sigurður segir aðspurður, að ákveðinn velvilja þurfi til að koma samningi af þessu tagi um kring, og heimsókn höfundarins. „Útgefandi Attenboroughs er Michael Walter. Hann er gamall félagi minn, fullorð- inn maður, sem var lengi útgáfustjóri hjá Collins fyrirtækinu. Hann hefur síðustu árin rekið eigið útgáfufyr- irtæki og var einn af þeim sem hvöttu mig til að stofna mitt eigið forlag. Hann fylgdi því eftir með því að beita sér fyrir þessum samningi. Attenbor- ough var líka mjög ánægður með síð- ustu heimsókn sína hingað, en vill fá að ráða ferðalögum sínum sem mest sjálfur. Nóg þarf hann nú að ferðast. Þetta er því mjög ánægjulegt,“ segir Sigurður. David Attenborough var sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Háskóla Íslands í júní 2006. Þörf á stærra húsnæði en síðast Árvakur/Sverrir Vinsæll Hundruð manna þurftu frá að hverfa þegar David Attenborough hélt fyrirlestur í síðustu heimsókn sinni hingað til lands. Röðin sem myndaðist við Salinn í Kópavogi náði næstum kringum húsið. David Attenborough kemur til landsins í tengslum við útgáfu nýjustu bókar sinnar á íslensku og heldur hér opinn fyrirlestur Virtur Sir David Attenborough er heiðursdoktor við Háskóla Íslands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.